Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 36

Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 36
0 Utgerðarfélag Dalvíkinga: Hagnaður annað áríð í röð Lagt af stað S síðasta áfanga ferðarinnar frá Elliðaám niður á Lækj- artorg. Dalvik. HAGNAÐUR varð af rekstri Út- gerðarfélags Dalvíkinga hf. á siðastliðnu ári og er þetta annað árið í röð sem hagnaður verður af rekstrinum eftir erfiðieika- timabil í útgerð. Útgerðarfélagið gerir úr tvo togara, Björgvin EA 311 og Björgúlf EA 312, og leggja þeir afla upp hjá Frysti- húsi Kaupfélags Eyfirðinga á Dalvík. Stærstu hluthafar í fyrir- tækinu eru Dalvikurbær, Kaup- félag Eyfirðinga og Björgvin Jónsson skipstjóri á Dalvík. Aðalfundur félagsins var haldinn nú fyrir skömmu. I reikningum fé- lagsins kemur fram að veruleg breyting hefur orðið á í rekstri þess en hagnaður ársins nam 36,2 millj- ónum króna en var árið 1985 10,5 milljónir króna. Veltufé fyrirtækis- ins er nú orðið jákvætt um tæpar 18,5 milljónir króna en var nei- kvætt árið 1985. Þessi góða útkoma er ekki síst vegna þess að útgerð togaranna gekk vel á síðasta ári en engin meiriháttar óhöpp né bilamir urðu á skipunum. Þá má einnig geta þess að Björgvin er orðinn 13 ára gamall og því engar afskriftir leng- ur á honum. Togaramir öfluðu báðir vel og munu vera ofan við meðal- afla norðlenskra togara af minni gerð. Samtals aflamagn Björgúlfs nam 3.175 lestum að verðmæti kr. 93.560.000. Þar af er rækja 265 lestir. Björgvin aflaði 2.720 lesta að verðmæti kr. 72.719.722. Þar af aflaði hann tæpra 50 lesta af rækju. Vegna kvótastöðu skipanna á síðasta ári var brugðið á það ráð að senda skipin á rækjuveiðar og er það í fyrsta skipti sem þau halda til slíkra veiða. Vom forráðamenn fyrirtækisins ánægðir með þá til- raun og töldu hagkvæmni þeirra veiða jafnvel meiri en bolfískveiðar enda fékkst gott verð fyrir rækju á síðasta ári. Báðir togaramir sigldu nokkrum sinnum með afla á erlendra mark- aði og sigldu m.a. til Þýskalands með fisk en þangað hafa skip Út- gerðarfélagsins ekki siglt frá því að það gerði út austur-þýsku „tappatogarana". Þá var á síðasta ári fluttur út fískur í gámum í fyrsta sinn í sögu félagsins. í stofn- samþykkt Útgerðarfélagsins er ákvæði þess efnis að tilgangur fé- lagsins sé að afla hráefnis fyrir frystihús Kaupfélags Eyfírðinga á Dalvík til að tryggja atvinnu í landi. Að sögn framkvæmdastjóra félags- ins var allur þessi útflutningur í góðu samráði við forsvarsmenn frystihússins á Dalvík og kom ekki niður á atvinnu, en hún var stöðug og jöfn allt síðastliðið ár. Allgott meðalverð fékkst fyrir útfluttan fisk Jón kominn til Reykjavíkur - hjólaði frá Reykja- vík til Akureyrar fyrir 52 árum JÓN Kristinsson sem lagði af stað hjólandi frá Akureyri í síðustu viku kom til Reykjavíkur í gær 17. júlí eltir 600 km ferða- iag. Þetta er þó ekki i fyrsta sinn sem Jón hjólar þessa leið því árið 1935 hjólaði hann ásamt tveimur félögum sínum frá Reykjavík til Akureyrar. Davfð Oddsson borgarstjóri tók á móti Jóni á Lækjartorgi. Jón kom að Elliðaám um kl. 15.30 og þar slógust nokkrir hjól- reiðarmenn með í hópinn og hjóluðu með Jóni niður á Lækjartorg. Jón var hinn hressasti og sagðist ekki fínna til neinnar þreytu eftir ferða- lagið. Davíð Oddsson tók á móti Jóni og bauð hann velkominn í bæinn. Jón þakkaði siðan Davíð fyrir hlý orð í sinn garð og afhenti honum gjöf til Reykjavíkurborgar sem hann sagði að væri boðkefli það sem hann tók með sér frá Revkjavík fyrir 52 árum. Boðkeflið er lurkur sem á eru skjaldarmerki Reykjavík- Morgunbladið/Kristján G. Amgrímsson Jón afhendir Davíð Oddssyni gjöf til borgarinnar sem er lurkur eða boðkefli til minningar um að Jón hjólaði frá Reykjavík til Akureyrar 1935 og nú frá Akureyri til Reykjavíkur aftur 52 árum siðar. ur og Akureyrar og liggja tvær leiðir þar á milli. Önnur leiðin ligg- ur frá Reykjavík til Akureyrar og við hana er ritað ártalið 1935. Hin leiðin liggur frá Akureyri til Reykjavíkur og við hana er ritað ártalið 1987. Jón sagði í samtali við Morgun- Veitingastaðir— verslanir — mötuneyti Kartöflur—kjarakaup! Ódýrar kartöflur í úrvali. Bökunarkartöflur—þær bestu. Gerið góð kaup. Pantið í síma 96-22307. Bifreiðastjórar: Hafið bílbænina í bílnum og orð hennar hugföst þegarþiðakið Drottmn Guó, veit mér vernd þina, og lát mig minnast ábyrgðar minnar er ég ek þessari b^freið I Jesú nafni. Amen. Fæst í Kirkjuhúsinu, Klapparstíg 27, í verslun- inniJötu, Hátúni2a, Reykjavík og í Hljómveri, Akureyri. Verð kr. 50.- Orð dagsins, Akureyri. félagsins eða milli 42 og 43 krónur á kíló. Verulegar umbætur eru nú á döfínni hjá Útgerðarfélagi Dalvík- inga. Björgúlfur er nýkominn úr miklum endurbótum sem gerðar voru á skipinu í Hollandi. Skipt var um skrúfu, skrúfubúnað og rafal í skipinu, aðalvél skipsins var gerð upp og sett nýtt stýri og stýrisvél. Gerðar voru breytingar á dekki þannig að þar komast nú fyrir tvö troll. Kostnaður liggur ekki enn fyrir en talið að hann liggi á biliriu 80—85 milljónir króna. Þá á félagið nýtt skip í smíðum í skipasmíðastöð í Flekkefjord í Noregi og kemur það í stað Björgvins en hann gengur upp í umsamið kaupverð nýja skips- ins. Samningar hljóða upp á að togarinn verði afhentur Útgerðarfé- laginu um mitt næsta ár. Á síðustu dögum hafa staðið yfir samningar við frystihús Kaupfé- lagsins vegna fískverðs eftir að það var gefíð frjálst. Nokkurrar ókyrrð- ar og óvissu hefur gætt meðal sjómanna hver þeirra hlutur yrði með nýrri verðákvörðun. Líkur eru á að samningar takist um að meðal- verð verði látið gilda eins og það gerist á fiskmarkaði í Hafnarfirði í þeirri viku sem togarar félagsins landa afía sínum. Á aðalfundinum var kosin ný stjóm fyrir félagið en hún er skipuð tveim fíilltrúum Dalvíkurbæjar og tveim fulltrúum Kaupfélags Eyfirð- inga ásamt Björgvin Jónssyni sem jafnframt er stjómarformaður. Fréttaritari blaðið að hann væri við hestaheilsu en örlítið rassár eftir hnakkinn á hjólinu. Hann kvaðst reiðubúinn að hjóla til baka aftur ef hann væri ekki svona tímabundinn. Söfnun áheita gekk mjög vel og vom auglýsingar á bílnum sem fylgdi honum alla leið hálfrar millj- ón króna virði. Jón sagði að ekki væri hægt að sjá hversu mikið hefði safnast fyrr en greiðslur fyrir gíró- seðla væru komnar inn. Þó vissi hann að 200 þúsund krónur hefðu safnast á endasprettinum. Á meðan að Jón spjallaði við gamla vini og kunningja og tók við hamingjuósk- • um vom ættingjar hans uppteknir við að taka á móti áheitum og selja happdrættismiða sem Jon hannaði sjálfur og kallaði happanælur. Eins og kunnugt er var Jón að safna fé til byggingar hjúkmnar- heimilis fyrir aldraða en hann hefur nú nýlega látið af störfum sem for- stöðumaður dvalarheimilanna á Akureyri. Ferðamannastraumur- inn að aukast: Tjaldstæði fullnýtt og öll hótel fullbókuð „Ferðamannastraumurinn hingað virðist vera að ná sér upp aftur eftir nokkra lægð i byrjun júli, en undanfarna daga hefur varla verið hægt að koma fleiri tjöldum fyrir á (jaldstæðum, og á öllum hótelum, hér og í ná- grenninu, hefiir allt verið fiill- bókað og verður svo yfír helgina," sagði Gísli Jónsson, framkvæmdastjóri Ferðaskrif- stofu Akureyrar, í samtali við Morgunblaðið i gær. í júnímánuði var ferðamanna- straumurinn miklu meiri en á sama tíma í fyrra, og sagði Gísli að það stefndi allt í að aukning ferða- manna yrði nokkru meiri en spáð hefði verið fyrir um. „Það var búið að spá fyrir um 7% aukningu ferða- manna að jafnaði milli ára allt fram til ársins 1990, en aukningin fyrstu sex mánuði ársins er þegar orðin um 13% og aðal ferðamannatíminn er rétt að byrja,“ sagði Gísli. Hann benti einnig á þá aukningu sem orðið hefði á komum skemmti- ferðaskipa hingað til Akureyrar og sagði að í fyrra hefðu 8 skip komið en í ár væri von á 15 skipum, og þegar væru 9 komin. „Það hefur orðið mikil aukning á komu Norðurlandabúa hingað og Frakkar og Bandaríkjamenn eru famir að sækja hingað í auknum mæli. Það er greinilegt að leið- togafundurinn hefur haft nokkuð að segja og ferðamannastraumur- inn er í samræmi við þær vonir sem ferðamálafrömuðir gerðu sér um hann,“ sagði Gísli að lokum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.