Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 52
■reei irfjr, .ai auaAaaAOöAJ .SKtAiawuoaoM
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
1-
fclk í
fréttum
Aftari röð frá vinstri: Elísabet Kristjánsdóttir, Katrín Sigurðardótt-
ir, Vélaug Steinsdóttir, Guðrún L. Asgeirsdóttir, Sigríður Sigurðar-
dóttir, Alfheiður Sigurgeirsdóttir og Eygló Bjarnadóttir. Fremri
röð: Dröfii Farestveit, Kristrún Jónsdóttir, Marsibil Jónsdóttir og
Unnur Tómasdóttir.
Morgunblaðið/Einar Falur
Óvenjuleg samheldni
Auður Guðjónsdóttir tekur við blómum og konfekti sem Sigurbjörg Bjamadóttir, eigandi reiðhjólaversl-
unarinnar Arnarins, feerði henni. Reiðhjólið, sem er þriggja gira Kalkhoff hjól, var keypt í Eminum I
byijun ferðarinnar og sá varla á því eftir 25 daga ferð um vegi landsins.
Haustið 1960 hófu 13 stúlkur
nám við Húsmæðrakennara-
skóla íslands. Bundust skólasys-
tumar óvenju sterkum vináttubönd-
um og hafa þessi 25 ár, sem liðin
eru síðan náminu lauk, hist í hveij-
um mánuði yfír veturinn. Tuttugu
og fímm ára afmælið héldu þær
hátíðlegt með því að bregða sér til
Kaupmannahafnar, þar sem ein
skólasystirin býr og júbiieruðu þær
í heila viku í borginni við sundið.
Tvær hárprúðar
essar hárprúðu vinkonur voru
festar á filmu í samkvæmi í
London nú í vor. Sú ljóshærða er
fyrirsætan Jerry Hall, eiginkona
söngvarans Mick Jagger en sú
dökkhærða er engin önnur en Koo
Stark, sem frægust er fyrir sam-
band sitt við hertogann af Jorvík.
COSPER
— Sjáðu, hvað hann verður kátur, þegar hann sér þig.
Ein á reiðhjóli
kring um landið
Islensk kona, Auður Guðjónsdótt-
ir, tók á miðvikudaginn við
viðurkenningu sem reiðhjólaversl-
unin Ominn veitti henni fyrir að
hjola hringinn í kring um landið.
Auður, sem nú er búsett í
Kanada, kom hingað til lands í
maílok og byijaði á því að festa
kaup á silfurgráu 26 tommu reið-
hjóli f Eminum. Hún setti það sem
skilyrði að hafa fóthemil og varð
því að láta sér nægja þriggja gíra
hjól. Þann 6. júní lagði hún svo af
stað, ein síns liðs, frá Reykjavík og
austur á bóginn.
Auður sagðist lítið sem ekkert
hafa æft sig fyrir ferðina. „Ég fór
bara hægt af stað og smá jók svo
hraðann eftir því sem ég komst í
betri þjálfun. Ferðin gekk mjög vel
og ég varð aldrei einmana. Þvert á
móti kunni ég því vel að vera ein.
Ég valdi yfirleitt næsta áfangastað
að morgni og gisti bæði hjá kunn-
ingjum og í svefnpokaplássum“.
Morgunblaðið/Einar Falur
Ríkey Ingimundardóttir með styttu sem hún gerði af Halldóri Laxness. Hún hefiir nú málað styttuna og
er hún á sýningu Ríkeyjar í Viðey.