Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 18.07.1987, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987 ÍÞRÓTTIR UNGLINGA Knatt- spyrnu- skólar enná fullu Þótt farið sé að líða á sumarið eru knattspymuskólar hinna ýmsu félaga enn í fullum gangi. Flestir verða með námskeið í ágúst og er foreldrum og forráðamönnum bama bent á að hafa samband við félögin í sínu hverfi. Við litum inn hjá þremur félög- um, Breiðablik, KR og Fylki, og ræddum við hressa krakka í knatt- spymuskólum þessara félaga. Góðir gestir í heimsókn hjá KR Það var mikið um að vera á KR-svæðinu í lok júnímánaðar. Sérstakir kennarar á því námskeiði vom Hollendingurinn Simon Ta- hamata og Pétur Pétursson. Einnig heimsótti Amór Guðjohnsen krakk- ana og gaf góðar leiðbeiningar um galdra knattpsymunnar. Mikil ánægja var með námskeiðið og lát- um við myndimar tala sínu máli. Fylkir með einn stærsta skólann í Árbænum er mikið af bömum og því ekki að furða að knatt- spymuskólinn hjá Fylkismönnum hafi verið einn sá fjölmennasti. * Kennari er Guðjón Reynisson íþróttakennari og að sögn hans sóttu yfir 100 krakkar um skólavist í júnímánuði. Vegna sumarleyfa hefur eitthvað dregið úr ásókninni en áhuginn er mikill hjá krökkun- um. Tvö námskeið verða í ágúst- mánuði og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þeim geta snúið sér til þeirra við Fylkisvöllinn. Byrjaði 4 ára að spila Þau Ingi Gauti Ragnarsson, Egg- ert Gíslason, Ólöf Vagnsdóttir og Hildur Guðbrandsdóttir hafa öll verið í knattspymuskóla Fylkis áð- ur. Þau em úr Árbænum og því harðir Fylkisaðdáendur. Þau eru y sannfærð um að Fylkir nái að vinna sig upp í 2. deild því liðið eigi þar Hópurinn á þessu námskelðl knattspyrnuskóla Fylkis. Simon Tahamata tekur við gjttf frá KR-hópnum eftlr að námskeið- inu lauk. Hresslr KR-lngar ásamt Tahamata, Pétlr Páturssynl, Arnóri Guðjohnsen, Gordon Lee, Rúnarl Krlstinssyni og Heiml Guðjóns- synl. heima. Eggert byrjaði að spila knattspymu þegar hann var 4 ára gamall en hin hafa líka spilað mjög lengi. Uppáhaldsleikmenn þeirra em Maradona og Ásgeir Sigurvins- son en þau vildu ekki gera upp á milli leikmanna meistaraflokks Fylkis en nefndu þó að Guðjón þjálf- ari væri góður. Hressir Bllkar í pylsustuði Við Blikastaði í Fífuhvamminum í Kópavogi hittum við fyrir stóran hóp að ungum og hressum Blikum. Þar var þá verið að slíta einu nám- skeiði knattspyrnuskóla Breiða- bliks. Þar vom kennararnir Sigurður Víðisson og Elvar Erlings- son á fullu að grilla pylsur fyrir mannskapinn og var þar svo sann- arlega glatt á hjalla. Krakkamir gáfu sér þó tíma til að stilla sér upp fyrir eina mynd og sýndu þau hreykinn viðurkenningarskjal sem þau fengu fyrir þátttöku í nám- Stoltir Brolðabllksmonn moð vltturkennlngar sfnar. skeiðinu. Við náðum þar tali af þremur yngismeyjum sem tóku þátt í skólanum hjá Breiðablik. Gaman að spila með strákunum Þessar stúlkur heita Signý Björg Siguijónsdóttir, Rósa Björg Brynj- ólfsdóttir og Erla Sóley Eyþórs- dóttir. Þær hafa allar verið áður í knattspymuskólanum og þær tjáðu blaðamanninum að það væri gaman að spila með strákunum. Strákamir tæku þeim eins og jafningum og gæfu boltann á þær eins og aðra leikmenn. Þær voru ekki ömggar ef þær myndu halda áfram að æfa fótbolta en sögðu að það væri möguleiki. Signý og Rósa æfa báðar fim- leika með Gerplu en Erla hefur verið í dansi. Þeim fannst það besta við skólann hjá Breiðablik vera leik- irnir og svo auðvitað þessi grill- veisla. Bllkastúlkurnar Slgný Bjttrg Slgurjónsdóttlr, Rósa Bjttrg Brynj- ólfsdóttlr og Erla Sóley Eyþórsdóttlr. Unglr Fylklsmenn: Ingl Gautl Ragnarsson, Eggert VSgnsdóttir, Hildur Guðbrandsdóttlr. Spennandi keppni í flestum flokkum íslandsmótið í knattspyrnu yngri flokka er nú í fullum gangi um allt land. Spennandi keppni er í flestum riðlum og flokkum en línur eru nú farnar að skýr- ast á flestum stöðum. Við látum hér fylgja með úr- slit í yngri flokkunum sem borist hafa skrifstofu KSÍ þessa vikuna. Enn vantar tölu- vert af skýrslum og eru félögin minnt á að senda skýrslur strax inn en ekki trassa það því það getur kostað þau töluverð fjár- útlát. Valur lagði Víking í 3. flokki 3:2 Á þriðjudaginn mættust á Víkingsvellinum lið gömlu ijend- anna Víkings og Vals. Víkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti og áður en Valsmenn höfðu áttað sig höfðu Víkingar sett tvö mörk á þá. En Valsarar eru ekki vanir að gef- ast upp þótt á móti blási og af mikilli hörku náðu þeir að jafna leikinn fyrir hálfleik. Fyrra markið var reyndar sjálfsmark Víkinga en það seinna gerði Friðrik Gestsson. Seinni hálfleikurinn var mjög jafn og spennandi og skiptust liðin á að sækja. En Valsararnir reynd- ust vera skeinuhættari upp við markið og sigurviljinn var meiri þeirra megin. Friðrik Gestsson bætti síðan við öðru marki sínu og Valsmenn sigruðu eins og áður sagði með þremur mörkum gegn tveim. Víkingar gáfu of mikið eftir að hafa náð tveggja marka forskoti með mörkum Þórðar í fyrri hálfleik. Valsmenn eru nú efstir í A-riðli en Víkingar eiga enn möguleika á að komast í úrslit. ÍA skoraði slgurmarkið á síðustu mínútu leiksins UBK — ÍA1:2 í 2. fl. kvenna Tvö af sterkustu 2. fl. kvennalið- um íslands mættust í Kópavoginum á mánudagskvöldið. Þetta eru lið Breiðabliks sem er núverandi ís- landsmeistari í þessum flokki og lið Akraness. Blikarnir stóðu betur fyrir þennan leik þar sem ÍA hafði gert jafntefli við lið Týs frá Vest- mannaeyjum en Breiðablik hafði sigrað Tý. Breiðablik lék undan sterkum vindi í fyrri hálfleik en það voru Skagastelpurnar sem skoruðu fyrst.. Blikastelpurnar pressuðu mjög á Skagann en án þess að skapa sér nein hættuleg færi. En ÍA-liðið var hættulegt í hraðaupphlaupum og úr einu þeirra áttu þær skot í slá Breiðabliks. Staðan var því 0:1 fyr- ir ÍA í hálfleik. Breiðablik mætti ákveðið til leiks í seinni hálfleik og pressaði stíft á mark Akraness. Um miðjan hálf- leikinn átti Sara Haraldsdóttir góða rispu upp hægri kantinn og eftir fyrirgjöf hjá henni skoraði Randí Níelsdóttir gott mark sem mark- vörður ÍA átti ekki möguleika að veija. En nú bökkuðu Blikastúlk- umar of mikið og ÍA-stelpumar fóru að sækja í sig veðrið. Það var síðan á síðustu mínútu leiksins að íris Dögg Steinsdóttir gerði út um leikinn með glæsilegu marki frá vítateigshorninu. Það voru því Skagastúlkumar sem sigruðu með tveimur mörkum gegn einu. Úrslit í yngri flokkunum 2. flokkur A FH-Þór Ak. 1:1 Stjaman — FH 1:1 ÍBK —Víkingur 3:1 B KA — Fylkir 7:3 ÍR — Grindavík 6:1 C Njarðvík — Leiknir 2:5 3. flokkur A Fram — Víkingur 3:1 Víkingur —Valur 2:3 B Haukar — Grindav. 8:4 Leiknir — Selfoss 3:0 Þór-ÍBK 1:3 Njarðvík — UBK 1:5 ÍBK — Leiknir 12:0 UBK — Selfoss 2:0 C Afturelding — Grótta 1:0 Skallagr. — Hverag. 1:1 Aftureld. — Grundfj. 30:0 Armann — Eyrarbakki 2:5 Hverag. — Ármann 12:1 E Þór Ak. — Hvöt 4:0 4. flokkur A UBK — Víkingur 4:2 IA — Afturelding 13:1 ÍBK-KR 1:7 Fram — Fylkir 3:0 B Þór V. — Selfoss 1:7 Haukar —Valur 4:3 C Skallagrímur — Njarðv. 2:3 Eyrarbakki — Þróttur 1:11 F Einheiji — Höttur 2:7 Höttur — Þróttur N. 4:1 5. flokkur A FH — Fram 7:0 B Leiknir — Reynir S. 7:0 Skallagr. — Fylkir 1:5 C Þór Þ. — Grótta 0:10 Aftureld. — Njarðv. 10:2 Njarðv. — Þór Þ. 7:4 Þór Þ. — Ármann 2:5 Hveragerði — Víðir 1:4 D Hörður — Gréttir 2:4 Bolungarv. — Grettir 9:1 F Austri E. — Valur Rf. 0:5 Einheiji — Höttur 8:0 Súlan — Einheiji 5:2 Höttur — Þróttur N. 1:2 Sindri — ValurRf. 4:1 2. fl. kvenna A ÞórAk.-KR 1:4 B UBK-ÍA 1:2
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.