Morgunblaðið - 18.07.1987, Side 64
Fróöleikur og
skemmtun
fyrir háa sem lága!
Framtíð
ER ViÐ SKEIFUNA
aaaa
% SU2XHCI
LAUGARDAGUR 18. JÚLÍ 1987
VERÐ I LAUSASÖLU 50 KR.
Brekifékk
V estmannaeyjar:
100 tonn á
sólarhring
TOGARAR frá Vestmannaeyj-
um hafa aflað vel síðustu
vikurnar og allir landað tvíveg-
is á síðasta hálfa mánuðinum.
Mest þorski af miðunum fyrir
vestan og norðan land. Fyrr í
vikunni fékk Breki 100 tonn
af þorski í flottroll á Halanum
á rétt rúmum sólarhring.
Stærsta halið gaf 40 tonn.
Breki landaði á fimmtudaginn
180 tonnum eftir stuttan túr.
Morgunblaðið/Björgvin Amaldsson
Það þurfti mörg handtökin hjá skipveijum á Breka frá Vestmannaeyjum við að innbyrða 40 tonna þorskhal, gera að fiskinum,
kassa hann og ísa og raða i lestina. Að afgreiða þannig 100 tonn á rúmum sólarhring er ekki fyrir neina aukvisa.
Endurskoðuð þjóðhagsspá:
Þjóðartekjur geta dreg-
ist saman um 2-3% 1988
Þjóðhagsstofnun telur að tímabil sam-
dráttar fari i hönd eftir þriggja ára góðæri
Breki landaði 215 tonnum 7.
— júli og hefur því fært á land 395
tonn í þessum mánuði. Bergey
hefur landað samtals 340 tonn-
um, Sindri 320 tonnum, Klakkur
240 tonnum, Gideon 160 tonnum
og Halkion 155 tonnum. Sjöundi
Eyjatogarinn, Vestmanhaey, er
enn í stórviðgerð og endurbótum
í Póllandi.
Togbátar hafa einnig aflað vel
upp á síðkastið en bræla í síðustu
viku hamlaði þó veiðum. Smáey
^hefur landað tvívegis á skömmum
tíma, alls 110 tonnum. Ekkert
hefur dregið úr gámaútflutningi
og í vikunni fóru utan 17 gámar
með skipi Eimskips og eitthvað
fór einnig með Sambandsskipi.
Varla hefur hafst undan í
frystihúsunum að vinna allan
þann afla sem til þeirra hefur
borist, enda þar víðast fáliðað
innandyra um þessar mundir. Um
mánaðamótin skellur svo yfír
íjóðhátíð í Heijólfsdal og þá sem
endranær mun öll fiskvinnsla í
Eyjum meira og minna lamast í
hálfan mánuð. Síðasti löndunar-
dagur fyrir Þjóðhátíð verður
* —mánudagurinn 27. júlí.
Kap VE, hefur hætt síldveiðum
þar sem síldin er nú hrygnd og
var afrakstur veiðanna sáralítill.
Fyrirhugað var að veiða nokkurt
magn af hrognasíld sem frysta
átti fyrir markað í Japan. Þrátt
fyrir að báturinn rólaði um allan
sjó í leit að sfidinni, fannst lítið
sem ekkert og að auki var veður
óhagstætt lengst af.
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN telur að
góðærí undanfarinna þríggja ára
sé að líða hjá og fyrírsjáanlegt
sé tímabil einhvers samdráttar.
Ástæður þessa eru fyrst og
fremst mun lakari horfur með
þorskafla á næsta árí, en Haf-
rannsóknastofhun hefúr lagt til
að mjög verði dregið úr þorsk-
veiðum á næstunni. Þetta kom
fram á fúndi sérfræðinga Þjóð-
hagsstofhunar með fréttamönn-
um í gær, þar sem endurskoðuð
þjóðhagsspá fyrir árið 1987 var
kynnt.
Þórður Friðjónsson, forstjóri
Þjóðhagsstofnunar, sagði í upphafi
fundarins að almennar launahækk-
anir á fyrri hluta ársins hefðu orðið
mun meiri en gert var ráð fyrir í
ársbyijun, en ekki væri gert ráð
fyrir jafnmiklum launahækkunum
síðari hluta árs. Gert er ráð fyrir
að atvinnutekjur hækki um 25% að
meðaltali frá upphafi til loka árs-
ins, í stað 16% og kaupmáttur launa
aukist á árinu um 4%. Þórður sagði
þetta þriðja árið í röð sem kaup-
máttur eykst mjög mikið og þannig
hefði hann aukist um 30% á sl.
þremur árum.
Endurskoðuð þjóðhagsspá gerir
ráð fyrir 20% verðbólgu á árinu í
stað 12%. Því er talið að þjóðarút-
gjöld vaxi um 9% í stað 6% og að
þjóðartekjur aukist um 7,5% í stað
5,5%. Efnahagshorfur á næsta ári
eru sagðar óljósar, en með hliðsjón
af því að Hafrannsóknastofnun hef-
ur lagt til, að mjög verði dregið úr
þorskveiðum á næsta ári er talið að
í besta falli megi reikna með óveru-
legri aukningu útflutningstekna.
„Þess vegna er útlit fyrir, að
verulega dragi úr hagvexti á næsta
ári og að jafnvel gæti samdráttar
eftir einstakt vaxtarskeid undanfar-
in þijú ár. Því er ljóst, að verulegs
aðhalds er þörf á öllum sviðum út-
gjalda, ef takast á að draga úr
verðbólgu og viðskiptahalla á næsta
ári,“ segir í frétt Þjóðhagsstofnun-
ar.
Þórður sagði, að yrði þorskveiðin
á næsta ári ekki meiri en Haf-
rannsóknastofnun mælir með, þ.e.
300 þúsund tonn, þá gæti það haft
í för með sér að þjóðartekjur drægj-
ust saman um 2-3%, sem sýndi fram
á að svigrúm til að auka útgjöld
væri ekki fyrir hendi og þar með
væri ekki hægt að auka rauntekj-
ur, án þess að viðskiptahalli ykist.
Mikið ber enn á milli
SOVÉSKA viðræðunefiidin, sem
veríð hefiir hérlendis að undan-
förnu vegna samningaviðræðna
um fyrirframkaup saltsíldar
vegna komandi vertíðar, er nú
farin héðan, án þess að samning-
ar hafi tekist. Mun mikið hafa
boríð á milli að því er söluverð
snertir.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins munu Sovétmennimir hafa
krafist stórfelldrar verðlækkunar
og miðað verðtilboð sín við verð sem
þeir hafa nýlega samið um við
Kanadamenn, svo og tilboð sem
þeir hafa fengið frá Noregi og fleiri
löndum.
Aftur á móti mun Síldarútvegs-
nefnd hafa krafist verulegrar
verðhækkunar vegna gengisfalls
bandaríkjadollars, en öll viðskipti
við Sovétríkin era í dolluram, sam-
kvæmt viðskiptasamningi. Mun
nefndin jafnframt hafa miðað verð-
tilboð sín við samninga, sem
Þórður sagði að horfur væra á
því að raunvextir yrðu háir næstu
misseri, þannig að nú færi í hönd
góður tími til spamaðar.
Sjá kafla úr endurskoðaðri
þjóðhagsspá á bls. 35.
nefndin hefur nýlega gert við sam-
tök sænskra sfldarinnflytjenda.
Rússar munu ekki hafa verið til
viðræðna um neitt verð nálægt
þessu.
Kærður fyrir
hassolíusmygl
til Bretlands
ÍSLENDINGUR um þrítugt, sem
handtekinn var í síðasta mánuði
í Manchester, hefúr nú veríð
ákærður af breskum yfirvöldum
fyrir að flytja inn til landsins 500
gr. af hassolíu í maganum og
bíður hann nú dóms.
Maðurinn var á sínum tíma hand-
tekinn í tengslum við hið svokallaða
hassolíumál, sem upp kom hérlend-
is, þar sem tveir Islendingar og
Englendingur vora handteknir með
750 gr. af hassolíu í fórum sínum
á hvítasunnudag.
Fomleifegröft-
ur í Reykholti
Fornleifauppgröftur hefst í Reykholti í Borgarfirði í næsta
mánuði. Hér er um að ræða undirbúningsgröft til að marka þann
stað í Reykholti sem nauðsynlegt yrði að friða ef ráðist yrði í
raunverulegan fornleifauppgröft.
Þetta kom fram í samtali Morg-
unblaðsins við Harald Blöndal
formann Reykholtsnefndar. Hann
sagði að Sverrir Hermannsson
fyrrverandi menntamálaráðherra
hefði samþykkt tillögur Reyk-
holtnefndar um þennan undirbún-
ingsgröft áður en hann lét af
ráðherraembætti. Haraldur sagði
að uppgröfturinn hæfist í ágúst
og umsjón með honum af hálfu
Þjóðminjasafnsins yrði í höndum
Guðmundar Ölafssonar.
Haraldur sagði að vitað væri
um merkar fornminjar í Reyk-
holti, til dæmis vissu menn hvar
gamli bærinn hefði staðið. Þá
væri möguleiki á merkum fundi í
gamla kirkjugarðinum í Reyk-
holti. „Við vonum að þetta verði
upphafið á því að Reykholt verði
grafið upp,“ sagði Haraldur að
lokum.
Saltsíldarviðræður:
Rússamir fam-
ir án samninga