Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 11
rppr ^>r\l r ífTTnAaffAHTTAJ .(TTOTA.TaMTjnJTOM 01
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 11
ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta í Laug-
arneskirkju kl. 11, sr. Jón D.
Hróbjartsson messar. Sóknar-
prestur
BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 11. Organisti Jónas Þórir
Jónasson. Sr. Ólafur Skúlason.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11
Dómkórinn syngur. Organisti
Helgi Pétursson. Sr. Hjalti Guð-
mundsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðs-
þjónusta kl. 10. Sr. Bragi Skúla-
son.
Guðspjall dagsins:
Markús 8.: Jesús mettar
4 þús. manna
HALLGRÍMSKIRKJA: Messa kl.
11. Altarisganga. Sr. Ragnar Fjal-
ar Lárusson. Þriðjudag: Fyrir-
bænamessa kl. 10.30. Beðiðfyrir
sjúkum.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
Sr. Ragnar Fjalar Lárusson.
HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11.
í messunni verður fermd Lilja
Huld Theódórsdóttir, Barónsstíg
39, R. Organisti Orthulf Prunner.
Sr. Arngrímur Jónsson.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja
Guðbrands biskups. Guðsþjón-
usta fellur niður. Sr. Sig. Haukur
Guðjónsson.
LAUGARNESKIRKJA: Laugar-
dag 1. ágúst. Guðsþjónusta í
Hátúni 10b, 9. hæð, kl. 11.
Sunnudag 2. ágúst. Guðsþjón-
usta í Laugarneskirkju kl. 11.
Sóknarprestur.
NESKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Frank M. Halidórsson.
Miðvikudag 5. ágúst: Fyrirbæna-
messa kl. 18.20. Sr. Frank M.
Halldórsson.
SELTJARNARNESKIRKJA:
Guðsþjónusta kl. 11. Organisti
Sighvatur Jónasson. Sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir.
DÓMKIRKJA KRISTS KON-
UNGS, LANDAKOTI: Lágmessa
kl. 8.30. Hámessa kl. 10.30. Lág-
messa kl. 14. Rúmhelga daga er
lágmessa kl. 18 nema á laugar-
dögum þá kl. 14.
MARÍUKIRKJA: Lágmessa kl. 11.
HVÍTASUNNUKIRKJAN F9ad-
elfía: Guðsþjónustur helgarinnar
verða á mótinu í Kirkjulækjarkoti
í Fliótshlíð.
HJALPRÆÐISHERINN: Útisam-
koma kl. 16 á Lækjartorgi.
Hjálpræðissamkoma kl. 20.30.
NÝJA POSTULAKIRKJAN Háa-
leitisbr. 58—60: Messa kl. 11.
KAPELLA St. Jósefssystra,
Garðabæ: Hámessa kl. 14.
KAPELLAN St. Jósefsspftala:
Hámessa kl. 10. Rúmhelga daga
kl. 18.
KARMELKLAUSTUR: Hámessa
kl. 8.30. Rúmhelga daga messa
kl. 8.
ÞINGVALLAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Organisti Einar
Sigurðsson. Sóknarprestur.
Varði doktorsritgerð
í rafmagnsverkfræði
ANNA Soffia Hauksdóttir varði
doktorsritgerð sina við rafmagns-
verkfræðideild Ohio State Uni-
versity i Bandaríkjunum hinn 27.
mai síðastliðinn. Andmælendur
voru Dr. Robert E. Fenton, Dr.
Kathleen A.K. Ossman og Dr.
Umit Özguner. Ritgerðin ber til-
tilinn „State observers and statefe-
edback controllers for a class of
nonlinear systems" (Ástandsmet-
arar og ástands-afturverkunar
stýringar fyrir ákveðna tegund
ólínulegra kerfa). Sem dæmi um
slík kerfi má nefna hreyfijöfnur
(dynamics) bifreiða og flugvéla.
Anna Soffía er fædd í Reykjavík
1958 og er dóttir hjónanna Hauks
Pálmasonar aðstoðarrafmagnsstjóra
og Aðalheiðar Jóhannesdóttur full-
trúa. Hún lauk stúdentsprófi frá
Menntaskóianum við Hamrahlíð 1977
og hlaut viðurkenningu frá íslenska
stærðfræðifélaginu sama ár. Henni
var veittur styrkur úr Minningarsjóði
Þorvaldar Finnbogasonar árið 1980.
Hún lauk BSc-prófí í rafmagnsverk-
fræði frá Háskóla íslands 1981 og
var veittur ferðastyrkur til náms í
Bandaríkjunum frá Fullbright 1981.
Hún stundaði nám við rafmagnsverk-
fræðideild Ohio State University frá
1981 með sjálfvirk stafræn stýrikerfí
(automatic digital control systems)
sem aðalfag og lauk þaðan MSc-
prófí 1983. Hún var aðstoðarkennari
við sömu deild frá 1981 til 1986 og
kenndi m.a. vélamál PDP-ll-tölva
og verklegar tilraunir í stafrænum
rásum og almennri mælitækni. Henni
var veitt viðurkenning „Centennial
Dr. Anna Soffía Hauksdóttir
Keys to the Future" frá The Institute
of Electrical and Electronics Engine-
ers (IEEE) 1984, í tilefni af aldaraf-
mæli IEEE. Hún hlaut Amelia
Earhart-styrk frá ZONTA Intematio-
nal, Vísindastyrk NAT0 og Thor-
Thors-styrk frá Amerísk-skandinaví-
ska félaginu 1986. Hún hefur haldið
fyrirlestra á fagráðstefnum IEEE f
Bandaríkjunum og hefur grein um
sjálfstýringu bifreiða verið birt eftir
hana í The IEEE Transactions on
Vehicular Technology.
Hún er gift Þorgeiri Óskarssyni
sjúkraþjálfara, sem lauk MSc-námi
við Ohio State University nýlega. Þau
hjónin flytjast til íslands á næstunni.
Gömlu dansarnir
á Hótel Borg
UNDANFARIN sunnudags-
kvöld hefur hljómsveit Jóns
Sigurðssonar fengið til liðs við
sig góðkunnan söngvara frá
Bíldudal, Jón Kr. Ólafsson. Jón
Kr. mun syngja með hljómsveit
nafna síns á Hótel Borg öll
sunnudagskvöld í ágústmánuði,
segir í frétt frá Hótel Borg.
Jón Kr. Ólafsson
VEL SKAL VANDA SEM LENGIÁ AÐ STANDA!
VUMK.GEGNVOM
A
GEGNVÖRN A: SALTUPPLAUSN K-33, efni sem smýgur langt inn í viðinn undir
þrýstingi, ætluö sérstaklega þar sem viðurinn er í snertingu
við jarðveginn eða stendur stöðugt í vætu. Jafnt fyrir
sjálfstæðar sem samansettar einingar.
GEGNVÖRN B: Olíuuppleysanleg efni sem smjúga langt inn í viðinn undir
þrýstingi. Sérstaklega fyrir klæðningar, gluggagrindur,
hurðirog aðra álíka hluti, þ.e. timbur sem ekki er í snertingu
við jörð. Jafnt fyrir sjálfstæðar sem samansettar einingar.
í NÝJUM OG FULLKOMNUM TÆKJUM ER ÖLL vinnsla tölvustýrð og skráir tölvan
upplýsingar um magn efna sem fer inn íviðinn, tímasetningu gegnvarnarinnar o.s.frv,
Viðskiptavinurinn færtölvuútskr'ift með upplýsingunum sértil glöggvunar og til staðfestingar
á unnu verki.
ALLAR NÁNARIUPPLÝSINGAR...
...HJÁ OKKUR
HÚSA5MIÐJAN
SÚDARVOGI 3-5 O 687700