Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987
Mannekla á sjúkrahúsum
og starfsemi í lágmarki
„UÉR fá aðeins þeir sumarfrf
sem það sækja stífast og öll
starfsemi er í lágmarki. Það
fæst ekkert fólk til afleysinga
hérna, hvorki hj úkrunarf ólk né
ófaglært. Þetta hefur haft í för
með sér aukið álag á allt starfs-
fólk sem hér er fyrir,“ sagði
Kristrún Guðmundsdóttir,
Fiskeldismenn varaðir við
óprúttnum kaupendum
Grindavík.
„ÞESSA dagana erum við að
senda forráðamönnum laxeldis-
stöðva leiðbeiningar og tilmæli
um hvemig þeir eiga að standa
að viðskiptum við einstaklinga,
sem vilja taka að sér að sefja lax
á erlendum mörkuðum. Við
stðndum frammi fyrir sömu
hættunum varðandi svik og aðrir
fiskseljendur“, sagði Friðrik Sig-
urðsson framkvæmdarstjóri
Landssambands íslenskra fisk-
eldisstöðva í samtali við fréttarit-
ara Morgunblaðsins.
„í dag eru einkum þrír aðilar sem
selja lax á erlendum markaði, en
við fáum fyrirspumir daglega frá
einstaklingum sem segjast hafa
kaupendur erlendis fyrir fískeld-
isafurðir", hélt Friðrik áfram.
„Okkar tilmæli til okkar félags-
manna eftir að fréttimar um físk-
sölusvikin birtust em að krefjast
bankaábyrgðar áður en viðskipti
em gerð við einstaklinga sem
hyggjast selja á erlendum mörkuð-
um.
Einnig höfum við fengið fyrir-
spumir frá Norðmönnum sem em
að leita að eldislaxi til að standa
við sína samninga en mikill skortur
er á eldislaxi í Noregi. Þeir bjóða
yfírleitt lág verð því þeir halda að
við séum i vandræðum með að losna
við okkar lax. Það kemur hins veg-
Arnessýsla:
Sýslusamlaginu
lokað fram yfir
helgi vegna
peningaleysis
Selfossi.
SÝSLUSAMLAGI Ámessýslu var
lokað á fimmtudaginn, vegna
peningaleysis eins og tilkynnt
var á auglýsingu sem fest var
upp. Ástæða þessa er að sveitar-
félögin standa ekki við lögboðn-
ar greiðslur til sýslusamlagsins.
Staðan er verst þegar stærstu
sveitarfélögin greiða ekki.
„Það þýðir ekki að hafa opið
þegar ekki er til fyrir greiðslum,"
sagði Hjörtur Jónsson fram-
kvæmdastjóri sýslusamlagsins.
„Þetta er svona vegna þess að það
em greiðlsuerfíðleikar hjá sveitar-
félögunum og ég sé ekki betur en
þau láti þessi gjöld sitja á hakan-
um,“ sagði Hjörtur ennfremur, og
að búast mætti við því að lokað
yrði í hverjum mánuði ef sveitarfé-
lögin stæðu ekki í skilum.
í byijun júlí skulduðu sveitarfé-
lögin í Ámessýslu 7,5 milljónir til
sýslusamlagsins. Á skrifstofu sýslu-
manns fengust þær upplýsingar að
staða sveitarfélaganna vænkaðist
alltaf síðari hluta ársins þegar þeim
færa að berast greiðslur frá ríkinu
vegna skattaafsláttar og bamabóta
upp í útsvar. Þær greiðslur innir
rfkið af hendi 5 síðustu mánuði
ársins, 20. hvers mánaðar. í ár
nema þessar greiðslur 51,5 milljón-
um króna. Sig. Jóns.
Fróöleikur og
skemmtun
fyrirháasemlága!
ar ekki til greina að eiga viðskipti
við þá á þessum forsendum. Okkar
markmið hlýtur að vera að skapa
okkur hugtakið íslenskur lax og
undirstrika það.Ég er viss um að
með tfmanum verður okkar lax
verðmætari en sá norski", sagði
Friðrik. Kr.Ben.
þjúkrunarforstjóri við sjúkra-
húsið á ísafírði, í samtali við
Morgunblaðið á fimmtudag.
Ástandið virðist svipað um allt
land og starfsemi sjúkrahúsa
bundin við nauðsynlegustu
þjónustu.
Kristmn sagði að mikil atvinna
væri á ísafírði og fólk vantaði í
öll störf, sama hvort væri skrif-
stofustörf, við fískvinnslu eða á
sjúkrahúsið. „Við höfum auglýst
í blöðum en iíla gengið að fá fólk
til starfa," sagði Kristrún. Hún
sagði að þó að utanbæjarfólk hefði
áhuga á vinnu þá settu það flest-
ir fyrir sig að ekki væri hægt að
bjóða því friðindi eins og ódýrt
húsnæði og dagheimilispláss svo
eitthvað væri nefnt.
Hún sagði að ekki væri hægt
að vísa neitt annað og þess vegna
væri ekki hægt að loka neinum
deildum. „Við höfum ekki í önnur
hús að venda, þetta er eina sjúkra-
húsið á Vestfjörðum sem annast
bráðaþjónustu. Þegar svona fátt
starfsfólk er verður hver að ganga
í annars störf," sagði Kristrún.
Á Selfossi er starfsemi Sjúkra-
húss Suðurlands sömuleiðis haldið
í lágmarki, en sjúkrahúsið þar er
eina sjúkrahúsið á Suðurlandi,
þjónar Rangárvallasýslu, Ámes-
sýslu og V-Skaftafellssýslu. Á
Selfossi hafa engar aðgerðir verið
gerðar í júlímánuði og öll bráðatil-
felli verið send til Reykjavíkur,
að sögn Lilju Hanníbalsdóttur,
hjúkmnarforstjóra.
Fjórðungssjúkrahúsið á Nes-
kaupstað hefur ekki þurft að loka
deildum í sumar, að sögn Sig-
rúnar Guðjónsdóttur hjúkmna-
rforstjóra, en er þó langt frá því
að tekist hafí að manna allar stöð-
ur.
IsA '
ÞVI
í
Skelltu þér í „VILLTA VESTRIÐ11 í sannkölluðum
heimsreisustíl og búa við það besta í:
ORLANDO - 5 ógleymanlegir dagar í
Disney World,
Magic Kingdom, Sea World,
Epcot Center o.fl. Búið á ein-
um glæsilegasta gististað á
Florida.
Florida
NEW ORLEANS
Louisiana
5 dagar með „léttri sveiflu"
í höfuðborg jazzins, hinni
frönsku borg Ameríku, með sinn
sérstaka sjarmerandi stíl, sem
hrífur alla. Sigling á Missisippi-
fljóti o.m.fl. Gisting á hinu
glaesilega, nýja hóteli CROWNE
PLAZA, alveg við franska hverf-
ið.
U
ja tom
3 dagar í Dallas með gistingu á einu glæsilegasta hóteli
Texas heims, LOEWS ANATOLE: Að sjálfsögðu förum við í kvöldverð
á Southfork eins og Ewing - fjölskyldan í sjónvarpsþáttunum.
- 7 dagar í sannkölluðu sumarfríi á völdum
gististað við hvíta sandströnd Mexíkó-flóans.
ST. PETE BEACH
Florida
Allt þetta og meira til með öruggri fararstjórn Útsýnar
undir merkjum Heimsreisuklúbbsins fyrir
aðeins kr. 79.000.- 27. sept - 16. okt. 19 dagar.
Shanghai
HEIMREISA VIIITIL KINA,
HONG KONG OG
PATTAYA
með mögnuðum töfrum Austurlanda.
Brottför 2. nóvember - 25 dagar
Fáum sætum óráðstafað.
Þeir kaupa ekki
köttinn í sekknum
sem velja
HEIMSREISUR
ÚTSÝNAR
Feröaskrifstofan
DtsýnI