Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 62
62 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 KNATTSPYRNA / ÞÝSKALAND Verður Bayem Miinchen meistari Qórða árið í röð? KEPPNI í vestur-þýsku 1. deild- inni í knattspyrnu hefst um helgina og er þetta 25. árið sem deildin er leikin með þessu sniði. Flestir sórfrœð- ingar eru þeirrar skoðunar að Bayern MUnchen verði meist- ari fjórða árið í röð og fari svo verður það í fyrsta skipti sem vestur-þýskt lið nsar þvf. Það liggur í augum uppi að hvert lið hefur sitt markmið, en einnig að öll lið geta ekki orðið meist- ararl Lið eins og Hannover 96 og Karlsruher setja sór það markmið að haida sór í deild- inni, en Bayern, HSV, Stuttgart, Leverkusen og Kaiserslautern œtla sór stóra hluti. Einnig má búast við því að margir þjálfar- T ar verði að taka pokann sinn áður en tímabilinu lýkur, en reynslan sýnir að um 50% þjálfara „lifa ekki af“ tfmabilið. Frá * Jóhanni Inga Gunnarssyni ÍV-Þýskalandi Tveir frægir þjálfarar eru ekki lengur með; Udo Lattek, sem nú er tæknilegur ráðgjafi hjá 1. FC Köln, og Happell, sem var hjá HSV, fór aftur heim til Austurríkis. Margir telja reyndar að Lat- tek haldi ekki árið út við skrifborðið og verði mættur á bekkinn hjá Köln á miðju tímabili. Þrír nýir erlendir þjálfarar reyna fyrir sér, Júgóslav- inn Josef Skoblar hjá HSV, sem gerði Hajduk Split að bikarmeistur- um, Arie Haan hjá VfB Stuttgart og Felix Latzke, Austurríkismaður sem tekur við Waldhof Mannheim. Flestir eru þeirrar skoðunar að með tilkomu þessara þjálfara komi fram nýjar hugmyndir í Bundesligunni, sem ætíð er til bóta, en í gegnum tiðina hafa þjálfarar eins og Happel og Zebec skilið góð sf)or eftir sig. Það sem mörgum þymir í augum eru gífurlegar upphæðir sem borg- aðar eru fyrir leikmenn er þeir fara milli félaga og spumingin er hvort þetta leiði til góðs. Ekki má gleyma að þegar milljónir marka eru greiddar fyrir unga leikmenn er gífurleg krafa á þá að þeir standi Vinir á ný Olaf Thon og Harold Schumacher voru ekki neinir perluvinir, eftir að hin umdeilda bók þess síðamefnda kom út. Nú eru þeir hins vegar saman í liði og sýndu umheiminum fram á að allt væri í himnalagi með því að takast í hendur fyrir ljósmyndarana... sig, og spuming er hvort þeir standi undir þeirri pressu sem því fylgir. Hér má nefiia Gaudino og Fritz Walter, sem Stuttgart greiddi Waldhof 3,6 milljónir marka fyrir, og Ungverjann Detari, sem Eintracht Frankfurt borgaði 3,5 milljónir marka fyrir. Til útlanda eru famir Rudi Völler til Roma á Ítalíu og Klaus AUofs til Marseille í Frakkklandi. Bayem Miinchen Udo Lattek og Jup Heynckes hafa- tekið við liðinu. Markmiðið eins og undanfarin þrjú ár getur ekki verið nema að veija meistaratitilinn. Hvemig á annað að vera? Lið sem á síðasta keppnistímabili tapaði aðeins einum ieik a'útivelli, og fór 26 sinnum af velli án ósigurs. Að vísu hefur Dieter Höhness, hinn skæði framherji, lagt skóna á hill- una, en ekkert félag hefur eins góðan varamannabekk og það mun fátt geta komið í veg fyir sigur Bayem á þessu keppnistímabili. En markmiðið er ekki aðeins að standa sig vel í Vestur-Þýskalandi. Það fylgir Bayem eins og skugginn að hafa ekki sigrað í Evrópukeppni meistaraliða undanfarin ár. Hamburger SV Talið er að HSV, sem kom mjög á óvart á síðasta keppnistímabili, er Happell hafði byggt upp nýtt lið á mjög skömmum tíma, nýr þjálfarinn við stjómvölinn, Júgóslaviunn Sko- bla. Talið að hann muni reyna að blanda kokteil Happel og Sebec. Enda hefur hann lært mikið af báð- um þessum þjálfurum. Felix Magath segir: markmiðið er að komast í UEFA-keppnina og jafn- framt að stytta bilið milli okkar og Bayem. Og við munum sjá til þess að deildarkeppnin verði lengur spennandi nú en síðast. Skobla seg- ir: aðalmarkmiðið að leika góða knattspymu, leika sóknarknatt- psymu. Það er spuming hvort það setur strik í reikninginn að Uli Stein verður ekki með. Stjóm félagsins ákvað að setja hann í „frí“ um óá- kveðinn tíma og bað hann jafnframt að leita sér að nýrri vinnu, vegna þess að hann rotaði einn leikmanna Bayem Munchen í meistarakeppn- inni á dögunum. Kaiserslautsm Ekkert lið mun koma meira á óvart en Kaiserslautem, liðið sem Lárus Guðmundsson leikur með í vetur. Flestir höfðu spáð því að liðið yrði í botnbaráttu í fyrra, en öllum á óvart lék liðið í efri hluta deildarinn- ar, og það var ekki fyrr en á síðasta leikdegi sem draumur liðsins um að komast í UEFA-keppnina varð að engu. Það gefur því auga leið að markmiðið í vetur verður að komast í Evrópukeppni næsta tíma- bil. Áhugi fyrir knattspymu í Kaiserslauten er með eindæmum. í fyrra var reiknað með 17.000 áhorf- endum að meðaltali á leik, en meðaltalið var 27.000 á leik. Félag- inu tókst því að stytta skuldahala sinn, og stendur vel í dag. Þjálfari er hinn ungi Hannes Bongarts, áður einn besti knattspymumaður Þýskalands. Tímabilið í fyrra var hans fyrsta. Hann krefst þess af leikmönnum sínum í vetur að þeir sýni meira sjálfstraust og gefí ekk- ert eftir á þeirri braut sem liðið komst á í fyrra. Kaiserslautem fær tvo góða leik- menn: Láms Guðmundsson og Franco Foda. Um Lárus segir Bong- arts: „Lárus var meira og minna meiddur á síðasta keppnistímabili, en hann er leikmaður sem er mjög fljótur og á að sjá til þess að opna færi á hægri sóknarvængnum. Lár- us er mikill bragðarefur og ég vænti mikis af honum og þýska landsliðs- manninum Wuttke saman." Bayer Uerdingen Bayer Uerdingen stóð ekki undir væntingum áhangenda sinna á síðasta tímabili, en nú á ekkert að spara til. Margir snjallir leikmenn koma til liðs við félagið. Miklar vonri eru bundnar við sænska landsliðsmanninn Robert Prytz og ekki síður við Reinold Mathy, fyrr- verandi leikmann Bayem Munchen. Ekki má gleyma því að Uerdingen hefur ráðið til sín snjallan þjálfara, Horst Köppel, sem var með Becken- bauer, og eytt 2,25 miljónum marka í kaup á mönnum fyrir þetta tíma- bil. Liðsheildin er því sterk, mikil barátta verður um sæti í liðinu, tveir um hveija stöðu. Vonast er eftir 13.000 áhorfendum að meðal- tali á hvem heimaleik. Þjálfarinn er vongóður um góðan árangur, telur að Bayem verði meistari en á góðum degi þurfí Uerdingen ekki að óttast neinn andstæðing og geti unnið hvaða lið sem er. Markmið liðsins er að komast í UEFA-keppni að ári, en að auki verður lögð rík áhersla á að leika meiri sóknar- knattspymu en gert var a'síðasta keppnistímabili. Liðið er orðið nokk- uð gamalt, Bommer 30, Herget 31, Funkel 33, Atli 30, markvörðurinn 35. En allt leikreyndir menn og með þeim mikill efniviður. Nái þeir saman er liðið til alls líklegt. VfB Stuttgart Ekkert lið olli jafn miklum von- brigðum á síðasta keppnistímabili. Markið var sett hátt, sterkir leik- menn keyptir en liðið varð að gera sér að góðu eitt af neðstu sætunum. En eins og alltaf þegar illa gengur er til eitt „gott“ ráð - að reka þjálfa- rann. Nýr þjálfari klom í staðinn, Hollendingurinn fljúgandi Arie Ha- an, sem sannað hefur ágæti sitt sem þjálfari; gerði Anderlecht m.a. að meistumm. Lágmarksmarkmið Stuttgart-liðsins á þessu ári er að komast í UEFA-keppni. Takist það ekki hefur forseti liðsins, sem greiddi 5 milljónir marka í nýja leik- menn fyrir þetta tímabil, sagt að ekki komi annað til greina nema að selja leikmenn í vor. Liðið er talið sterkara en á síðasta keppn- istímabili og Walter og Gaudino muni styrkja liðið mikið. Það gefur auga leið að mikill þrýstingur verð- ur á leikmenn að standa sig. Hver og einn leikmaður veit að árangur verður að nást á þessu keppnistíma- bili. Arie Haan sagði að allir hefðu varað hann við að taka við liðinu því verkefnið væri mjög erfitt, „en ef ég tryði ekki á sjálfan mig og á leikmennina og ef ég væri hræddur hefði ég aldrei tekið að mér þetta starf," sagði hann. „Ég er sann- færður um það að ef við sleppum við meiðsli í vetur eigum við að geta orðið í allra fremstu röð.“ Leverkusen, Gladbach og Werder Bremen eru einnig talin geta bland- að sér í toppbaráttuna. MARAÞONHLAUP Reykjavíkurmaraþon nálgast MARAÞONHLAUP veröur háö á götum Reykjavfkurborgar 23. ágúst næstkomandi og er þaö fjórða árið f röð, sem hið svo- nefnda Reykjavfkurmaraþon fer fram. Jafnframt verður boð- ið upp á keppni f hálfu mara- þonhlaupi og 7 kflómetra skemmtiskokk. Reykjavíkur- maraþon er þvf jafnt vettvang- ur skokkara sem þjálfaðra hlaupara. Skráning fyrir Reykjavíkur- maraþon er nú í fullum gangi en frestur til að tilkynna þátttöku rennur út 14. ágúst. Þátttökugjald fyrir maraþonhlaupið er 600 krón- ur, fyrir hálfmaraþonið 450 krónur og 300 fyrir skemmtiskokkið. Þátt- tökhtilkynningar þurfa að berast Ferðaskrifstofunni Úrval í Pósthús- stræti, en það fyrirtæki stendur að hlaupinu ásamt Fijálsíþróttasam- bandi íslands, Reykjavíkurborg, Flugleiðum, HENSON íþróttavöru- verksmiðjunni, Morgunblaðinu og Rás tvö. Sjálft maraþonhlaupið er opið hlaupurum af báðum kynjum, 16 ára og eldri, en hálfmaraþonið og skemmtiskokkið er öllum opið. Hlaupið hefst á hádegi sunnudaginn 23. ágúst í Lækjargötu. í fyrra luku tæplega 1.000 hlaupar- ar keppni í hlaupunum þremur, sem ræst voru samtímis af stað. Tals- vert er farið að berast af þátttöku- tilkynningum og er talið að fleiri keppi nú en í fyrra. Þátttakendum hefur fjölgað ár frá ári. Verðlaunapeningar verða veittir öll- um sem ljúka hlaupi. Sigurvegarar, karla og kvenna, fá verðlaunabik- ara og dregið verður um Qölda aukaverðlauna, þar sem allir kepp- endur standa jafnt að vígi. Keppt | þriggja manna svéitakeppni. Geta I sveitanna og fyrstu sveit veittur er í fímm aldursflokkum karla og því vinnufélagar eða félagasamtök veglegur bikar. Karlar og konur ?órum kvennaflokkum. myndað sveitir til þátttöku. Dregið geta myndað sveit saman. skemmtiskokkinu er boðið upp á | verður um sérstök verðlaun úr hópi | KlippíÖ Vinsamlegast skriíiÖ með prentstöíum l l 1 1 1 l l l l 1 1 l 1 i Skráningareyðublað l 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 l l | | | | NAFN 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 l I i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i t HEIMILI PÓSTNÚMER SlMI 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 FÆÐINGARDAGUR ÁR Ég skrái mig til þáttlöku 1 MARAÞONHLAUPI □ HÁLFMARAÞONHLAUPI □ SVEITAKEPPNI f SKEMMTISKOKKI □ (3 í SVEIT) SKEMMTISKOKKI □ Náfn sveitar I. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.