Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 ' 59 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 13-14 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Að fá skammtinn sinn Bjór framleiddur hjá Sana hf. Bréfritari er ekki ánægður með tak- markaðan aðgang landsmanna að þessum umdeilda drykk. Nýlega var frá því greint í Morg- unblaðinu að Flugleiðaþota á leið frá London hefði lent á Reykjavík- urflugvelli. Af þessu hlutust að sögn ýmis óþægindi fyrir farþegana, meðal annars fengu þeir ekki tollinn sinn. Og því auðvitað ekki hinn langþráða bjórskammt sem flestir rogast með frá Keflavík undir venjulegum kringumstæðum. Þessi ógæfa millilandafarþeg- anna vekur upp ýmsar spurningar um jafnrétti ferðamanna. Löggjaf- arvaldið ætlast til þess að farseðill til landsins jafngildi ávísun á bjór- skammt. Því má spyija hvers þeir eigi að gjalda sem ferðast til dæm- is frá Færeyjum eða Grænlandi til landsins og eru þess vegna yfirleitt dæmdir til þess að lenda á Reykjavíkurflugvelli, þar sem þessi réttindi eru einskis virt. Slíkir ann- ars flokks farþegar verða að sýna þá fyrirhyggju að burðast með öl- kassana á milli landa og greiða þá auðvitað í erlendum gjaldeyri í stað þess að kaupa til dæmis ágæta inn- lenda framleiðslu í fríhöfninni. Átakanlegt verður misréttið ef samanburður er gerður á aðstöðu tveggja ferðamanna. Annar er Keflvíkingur sem kemur frá Kaup- mannahöfn, hinn er Siglfirðingur á leið frá Þórshöfn í Færeyjum. Báð- ir hafa bjórkaupsrétt samkvæmt íslenskum lögum og eru kaupin auðveld fyrir Keflvíkinginn. Vesal- ings Siglfirðingurinn á erfiðara um vik. Hann fær „rúsdrekkaloyvi“ með því að fara á þijá staði í Þórs- höfn og festa þar með kaup á bjórkassanum. Þetta tekur tvo til þtjá daga, en er auðsótt mál að öðru leyti. Við heimferð fer kassinn í rútuna til Vestmanna, síðan í feiju og þá aftur í rútu eða leigubíl til flugvall- ar. Svo fylgir kassinn ferðatöskun- um á Reykjavíkurflugvöll, síðan aftur í flug til Sauðarkróks eða Siglufjarðar og síðasta spölinn aftur í bíl. Skyldi Siglfírðingurinn ekki fá leiðréttingu sinna mála fyrir Mannréttindadómstólnum? Með tilkomu flugstöðvar Leifs Eiríkssonar eru þó teikn á lofti sem benda til meiri hagræðingar á þessu sviði og vonandi aukins jafnréttis í náinni framtíð. Þeir sem versla í fríhöfninni kaupa nú einfaldlega ávísun á ölið sem síðan er afgreitt á neðri hæðinni við brottför úr hús- inu. Þetta er væntanlega gert starfsfóki til þæginda, að þurfa ekki að burðast með ölið upp á efri hæð til þess eins að farþegamir drösli því niður aftur. Nú blasir við næsta skref til hag- ræðingar í bjórmálum þjóðarinnar og er það jafnframt til þess fallið að við verðum síður erlendum ferða- mönnum til athlægis fyrir kassa- burðinn. Komið verði upp bjórgeymslum í umsjá tollgæslunn- ar á helstu þéttbýlisstöðum lands- ins. Við framvísun farseðils til útlanda á þessum stöðum fær far- þeginn afhentan bjórskammtinn sinn og þá stimplað á farseðilinn „bjór afgreiddur" samanber stimpil- inn „gjaldeyrir afgreiddur" í bönkum. Þetta mætti gera fyrir brottför eða eftir heimkomu eftir atvikum. Svipað kerfi er nú þegar í gildi í grannlöndum okkar eins Andrés Magnússon skrifar. I fimmtudagsblaði Morgunblaðs- ins er frétt á baksíðu um eiturlyfja- verslun íslendinga á erlendri grund. Þar er venju samkvæmt rætt um Kaupmannahöfn, (ekki Koben- havn), en heldur þótti mér verra að sjá staglast á nafninu Málmey þar sem át.t er við borgina Malmö. Vilji menn vera að íslenska nafnið á að sjálfsögðu að nota hið gamla heiti, Málmhaugar. Sumir kunna að segja að það nafn sé lítt þekkt, en þá á heldur ekki að vera rugla neitt með þetta og tala bara uin Malmö. Ruglingur- og til dæmis í Færeyjum þar sem vottorð skattstjóra samsvarar far- seðlinum okkar. Sérstök far- manna— og flugliðaskírteini verða gefín út og þau stimpluð hjá toll- vörðum við hvetja heimkomu handhafa. Til þæginda geta fluglið- ar sótt nokkra kassa í einu í bjórafgreiðsluna. í framhaldi af þessum hugleið- ingum um jafnrétti ferðamanna innbyrðis er þeirri spurningu að lokum beint til nýkjörinna þing- manna, hvort ekki sé nú tími til kominn að allir landsmenn fari að njótajafnréttis til öls. Áhugamaður um jafnrétti inn er að sjálfsögðu tilkominn vegna þess að einhver vitringurinn hefur ætlað að þýða ömefnið Malmö vit- andi það að ö á sænsku þýðir ey. í samhenginu Malmö er hér hins vegar um afbökun að ræða, enda ekki svo mikið sem tjamarhólmur til í Málmhaugum, hvað þá eyja. Það er einmitt með samskonar fræðimennsku sem Árósar eru öðm hveiju nefndir Árhús af íslensku, þar sem viðkomandi mannvits- brekka hefur rekið augun í að þessi höfuðstaður Jótlands heitir á dönsku Árhus. Kannski það sé framtíðin? Malmö, Málmey eða Málmhaugar Mál málanna Um fátt er rætt meira en um- ferðina. Það er að vonum enda er hún á meiri villigötum en flest ann- að í þessu þjóðfélagi og er þá mikið sagt. Nú er númer eitt, tvö og þijú að binda alla sem stíga upp í bíl og á það að leysa allan vanda í um- ferðinni. Vissulega getur niðurbind- ingin orðið til gangs en því miður líka til ógangs í öðmm tilvikum og valdið auknum slysum, en á það má ekki minnast, það hentar ekki áróðrinum. Kálcið í umferðarmálunum ríður ekki við einteyming. Á meðan um- ferðarráð fær samþykkt á Alþingi að allir verði að vera bundnir í bílum, eða greiða sektir ella, hefur það ekkert við það að athuga að hver einasta skepna á landinu er í fullum rétti á vegunum gegn bílstjómm og og bíleigendum bann- að að tryggja sig fyrir þeim óhöppum, sem það hefur í för með sér. Félag íslenskra bifreiðaeigenda er ekki þrýstihópur. Þá má ekki sama skráningamúmer fylgja bílnum frá því hann er skráður þar til hann er ónýtur, enda þótt slík vitleysta þekkist hvergi í heiminum. Áróðurinn er á því stigi að hann verður að teljast hlægilega vitlaus. Það er til að mynda talað um að niðurbindingin sé ódýr líftrygging og annað í sama máta, hvílíkt mgl. Fjöldi manns er tilbúinn að votta það, að litlar líkur séu til að þeir væm nú á lífí ef þeir hefðu verið bundnir þegar viss umferðaróhöpp urðu. Eigi hinsvegar að aka með allt öðmm hætti heldur en lög og regl- ur mæla fyrir um getur það komið fyrir að beltin bjargi, en það er ekki einhlítt, því miður. Ef það á að fara að stunda rallakstur á veg- unum þá kann að vera að í ein- hveijum tilfellum sé betra að vera í böndum. Ýmsir em að velta því fyrir sér hvað það var sem knúði Þingeyinga til að leyfa síðasta rall- akstur þar um slóðir. Mönnum þykir alveg nóg af slíkum akstri þar dag- lega þó ekki sé verið að safna saman einhveijum ökuskálkum til að æsa hina upp. Nú fer í hönd mikil um- ferðarhelgi og að líkindum fara umferðarráðsmenn senn í loftið til að sveima yfír. Þá ætti að vera tilva- lið að dreifa harðfiskinum yfir bílalestirnar, en í Suðurlandskjör- dæmi væri miklu betra og tákn- rænna að úða þær með kjöti af haugalömbum. Góða ferð. Ökuþór Leiðrétting I Velvakanda miðvikudaginn 29. júli sl. misritaðist nafn eins bréfrit- ara. Hið rétta er að Sigríður Bjamey Jónsdóttir ritaði greinina um ömggt leiguhúsnæði fyrir alla. Volta ryksugu með þér heim á sumartilboðsverði. Þú gerir ekki betri ryksugukaup! Volta U 268 elektronisk 1100 wött með ryksíu, stækkanlegt skaft, tískulitur, áhaldageymsla, inndregin snúra, sterk hjól. Fyrir aðeins 11.285. Útborgun 2000.- eftirstöðvar á 6 mánuðum. Einar Farestveit & Co.hf. Borgartúni 28, símar 91-16995, 91-622900. Ágætu ^tt viðskiptavinir Nýja símanúmerið okkarer % Nýttsímkerfi-aukinþjónusta!:
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.