Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 Vill Sovétsljórnin nýjan leiðtogafund? Moskvu, Reuter SOVÉTSTJÓRNIN hefur gefið í skyn, að hún sé reiðubúin til nýs leiðtogafundar þeirra Mikhails Gorbachevs Sovétleiðtoga og Ron- alds Reagans, Bandaríkjaforseta. Sagði talsmaður Sovétstjómar- innar, Gennady Gerasimov i gær, að möguleikarair á fundi leiðtoganna yrði ræddur á fundi utanríkisráðherranna, Eduards Shevardnadze og George Shultz, um miðjan september nk. Af hálfu Bandaríkjastjómar var Gerasimov, að Sovétstjómin hefði frá því skýrt í gær, að viðræður utanríkisráðherranna myndu standa yfir í þrjá daga frá 15. - 17. september nk. og fara fram í Washington. Ekkert var hins veg- ar sagt um efni viðræðnanna. *A fundi með fréttamönnum í Moskvu í gær sagði Gennady mikinn áhuga á því, að á næstu vikur yrðu notaðar til „ítarlegrar könnunar á grundvallaratriðum í gagnkvæmum samskiptum okkar við Bandaríkin." Aðal vettvangur slíkrar könnunar ætti að vera af- vopnunarviðræðumar, sem nú standa yfír í Genf. Júgóslavía: Ný skriða verðhækkana Belg7*að. Reuter. NÝ skriða verðhækkana gengur nú yfir Júgóslavíu og var verð- bólgan þó þungbær fyrir, eða yfir 100% á ári. Hækkanirnar ná tíl nauðsynjavara eins og brauðs, kola og rafmagns, að þvi er hermt var í gær. Dagblaðið Vecemje Novosti í Belgrað sagði, að verð á brauði hefði sums staðar hækkað um 75 til 130% og kol og rafmagn um rúmlega 40%. Áætlað er að hækka fargjöld með jámbrautum um 48% á morgun, að sögn blaðsins. Miklar verðhækkanir á flugfar- gjöldum á innanlandsleiðum, vindl- ingum, olíu, vöxtum og áfengi gengu í gildi í júlíbyijun. Vecemje Novosti sagði, að verð á fatnaði mundi hækka um 300-500% í haust, og bætti við, að eftir það yrði það flestum Júgóslöv- um um megn að kaupa sér frakka fyrir ein mánaðarlaun. Auk verðbólgunnar verður Júgó- slavía að standa undir um 20 milijarða dollara skuldabyrði og framleiðni 5 landinu er lítil. Miklar verðhækkanir hafa orðið í Júgóslavíu á þessu ári og mikil ólga verðið meðal verkafólks, sem krafist hefur kauphækkunar og verðstöðvunar á nauðsynjavörum. Reuter Þróun sósíalismans Austur-þýskir landamæraverðir hreinsa til við Berlínarmúrinn eft- ir að reist hefur verið ný og væntanlega háþróuð gerð af varðtumi. Til vinstri sést tum af gömlu gerðinni, til hægri sá nýi. Rómaborg: Prílað á Colosseum Rómaborg, Reuter. SJÖTUGUR ellilífeyrisþegi klæddi sig upp sem róm- verskan fótgönguliða og sveiflaði sér síðan í reipi utan á Colosseum-hringleikahús- inu í Róm í gær, við gífurleg- an fögnuð hundruða ferðamanna. Sá gamli, Anrigo Ambrosi, ætlaði að láta sig síga alla leið niður á leikvanginn frá brún áhorfendapallanna, í um 57 metra hæð. Á leiðinni flæktist hann hins vegar í reipinu og hékk hjálpar- vana í tuttugu metra hæð við ennþá meiri fagnaðarlæti útlend- inganna. Er hjálpsamir slökkviliðsmenn höfðu náð Ambrosi niður úr flækj- unni, var hann færður til geð- rannsóknar. í ljós kom að prílið átti ekki að vera neitt skemmtiat- riði, heldur ætlaði hann að vekja athygli á fjölskylduvandamálum sínum. Colosseum var byggt á fyrstu öld af Flavíusi keisara í Róm. Það var notað í fjórar aldir til skylm- ingaleika og annarra opinberra skemmtana, en hefur sjaldan orð- ið vettvangur leikfimisæfinga á borð við þær sem hinn aldni Ambrosi sýndi. Leitað að tundurduf lum á Persaflóa: ERLENT Fá Bandaríkjamenn aðstoð við slæðinguna? Washington, Reuter. Bandarískir embættismenn irtektir bandamanna sinna við kváðust í gær ánægðir með und- beiðni um aðstoð við að slæða Bandaríkin: Öldungadeildin vill bera Sovétmenn út tundurdufl á Persaflóa. Frönsk herskip með 3000 manns innan- borðs stefna nú í átt til Persafióa. „Við eigum í viðræðum við ríkis- stjómir í mörgum bandalagsríkjum okkar og fyrstu viðbrögðin lofa góðu,“ sagði bandarískur embættis- maður, sem ekki vildi láta nafns síns getið. Bandaríkjastjóm hefur farið fram á aðstoð Breta, Frakka, Vestur-Þjóðveija, ítala og Hollend- inga við tundurduflaslæðinguna og er búist við, að Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, láti . ekki dragast úr hömlu að svara beiðninni. Bretar og Frakkar eiga marga tundurduflaslæðara og Hol- lendingar hafa orð á sér fyrir að vera sérstakir kunnáttumenn á þessu sviði. Franskt flugmóðurskip og þrjú fylgdarskip em á siglingu í átt til Persaflóa en stjómvöld í Frakklandi hafa ekki skýrt frá því hvemig skip- unum verður beitt, hvort þau verða látin fylgja frönskum kaupskipum eða höfð á Indlandshafi til að bytja með. Bandarísk herþyrla hrapaði í gær í sjóinn á Persaflóa þegar hún ætl- aði að lenda á La Salie, flaggskipi bandarísku flotadeildarinnar á Persaflóa. Af níu mönnum um borð fómst líklega fjórir. Hefur lfk eins þeirra fundist en hinna þriggja er saknað. Washington, Reuter. ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings tók í gær undir kröfur um að Sovét- menn verði bornir út úr hinni nýju sendiráðsbyggingu sinni í Was- hington. Því hefur verið haldið fram að sovéskir njósnarar noti bygginguna tíl þess að hlera simtöl embættismanna Bandaríkjastjómar. Jldungadeildin samþykkti í at- sjávarmáli á einum hæsta stað í borg- kvæðagreiðslu með nafnakalli álykt- un, þar sem til þess er mælst, en þó ekki fyrirskipað, að utanríkisráðu- neytið semji við Rússa um að flytja úr sendiráðsbyggingunni, sem stend- ur á Alto-hæð, um 350 metra yfir inni. Talið er að þessi staðsetning gefi Sovétmönnum möguleika á að hlera Qarskipti í borginni. „Ég segi að við eigum bara að fleygja ódámunum út, ef þeir em að hlusta á fjarskipti okkar,“ sagði AP Hin nýja sendiráðsbygging Sovétríkjanna í Washington. Verður henni breytt í hótel? Steve Symms, öldungadeildarþing- maður og helsti stuðningsmaður ályktunarinnar í gær og stakk síðan upp á því að sendiráðsbyggingunni yiði breytt í hótel. Bandarílqamenn létu Sovétmönn- um í té lóð á Alto-hæð árið 1969, þrátt fyrir að Sovétmenn hefðu þá kosið frekar annan stað, sem liggur miklu lægra. Staðarvalið var ákveðið á sama tíma og Bandaríkjamenn fengu nýja sendiráðslóð í Moskvu. Sú stendur lágt og er umkringd byggingum á alla vegu, þannig að ómögulegt er að nota hana til njósna á sama hátt og þá sovésku í Was- hington. Sovétmenn hafa ekki fengið að taka byggingu sína formlega í notk- un og fá ekki fyrr en Bandaríkja- menn hafa lokið byggingu nýja sendiráðsins í Moskvu og gengið úr skugga um að það sé ekki yfirfullt af hlemnartælqum KGB, en þeir hafa sakað Rússa um að hafa komið slíkum tækjum fyrir. Sovéskar flölskyldur em þó fluttar inn í nýbygginguna, sem stendur ekki §arri Hvíta húsinu í Washing- ton. Við tundurduflaslæðinguna á Persaflóa nota Bandaríkjamenn átta Sea Stallion-þyrlur af Sikorsky-gerð. Eins og sjá má dregur þyrlan á eftir sér einhvers konar búnað, sem gefur til kynna hvar tundur- duflin eru.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.