Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 35 Var sviptur byggingarmeistaraleyfi: Fagna ákvörðnninni, hún sýnir röggsemi - segir Ólafur S. Björnsson húsasmíðameistari Morgunblaðið/Ol.K.M Mynd sem tekin var með einnota vél í Austurstræti í gær. Einnota myndavél HJÁ Ljósmyndavörum í Austurstræti fæst einnota myndavél eða filma með linsu. Hver filma er með 24 litmyndum og er ætluð til myndatöku utanhús. Að sögn Einars Öms Sigurdórssonar verslunarstjóra er linsan um 35 mm, ljósop er 11 og hraðinn 1:60 sek. Hann sagði að vélin hent- aði best til myndatöku í nokkuð björtu veðri. „Þetta er tilvalin vél fyrir þá sem fara á útiskemmtanir og vilja taka með sér myndavél án þess að eiga á hættu að tapa verðmætum," sagði Einar. „Þá má benda á að ungir krakkar sem eru að byija að taka myndir geta haft gaman af vélinni." Meðalland: Mikið um ferðamenn „ÉG FAGNA fyrst og fremst þessari ákvörðun byggingar- nefndar því hún sýnir að yfirvöld ætli að taka á sig rögg og af- greiða mál á hreinan og kláran hátt, á það hefur skort“ sagði Ólafur S. Björnsson húsasmíða- meistari, sem sviptur var Ieyfi til að starfa sem byggingarmeist- ari vegna brota á byggingar- reglugerð á fimmtudag. „Mér er lítil eftirsjá í þeim réttindum að skrifa upp á teikningar. Þau hef ég ekki notað í eina 18 mánuði hvort eð er. Ég er tilbúinn að axla mína ábyrgð en ég á eftir að skoða nánar skilyrði sem sett voru í samþykkt byggingar- nefndar.“ Forsaga málsins er að hlutafélag- ið Uppbygging sem Ólafur stofnaði ásamt skyldmennum sínum tók að sér framkvæmdir við Hamarshúsið að Tryggvagötu 4-6. Innréttaðar voru íbúðir í húsinu og seldar áður en að uppdrættir höfðu hlotið sam- þykki byggingamefndar. Á miðju ári 1984 var samþykkt bókun á fundi byggingarnefndar Reykja- víkur þar sem Ólafur og eigandi Hamarshússins eru átaldir fyrir slík vinnubrögð. Umsókn um breytingu MIÐVIKUDAGINN 5. ágúst kl. 23.03 að islenskum tíma verða liðin nákvæmlega 42 ár síðan kjarnorkusprengjunni var varp- að á japönsku borgina Hirosíma. Á því augnabliki hófst kjamorku- Leiðréttíng Prentvilla varð í frétt Benedikts á Staðarbakka í Miðfirði í blaðinu síðastliðinn fímmtudag. Þar er sagt frá hestamóti á Gnúpstaðamelum, en átti að vera Krókstaðamelum. Villan mun komin inn vegna mis- heymar i síma og er beðizt velvirð- ingar á mistökunum. á útliti hússins var síðan samþykkt í lok ársins 1984. Samkvæmt úttekt byggingarfull- trúa var vikið frá samþykktri teikningu í veigamiklum atriðum. Fjórum íbúðum í austurenda húss- ins hefur verið breytt þannig .að stofa er gerð að sjálfstæðri einstakl- ingsíbúð. Til hliðar við þær hefur rými verið innréttað í trássi við teikningu og gert að íbúð. í áliti skrifstofustjóra borgar- verkfræðings sem greint var frá í blaðinu í gær kemur fram að ekki sé ljóst hvort kaupendum hafi verið gerð grein fyrir því að um ósam- þykktar breytingar væri að ræða. Þá sé ókannað hvort Byggingar- sjóður ríkisins hafi lánað út á íbúðimar eða hvaða gögn hafi fylgt umsóknum. „Það hefur enginn verið blekktur út af þessum breytingum. Þeir sem keyptu ósamþykktar íbúðir vissu allan tímann að hvetju þeir gengu. Ég kem ekki auga á glæpinn, í Reykjavík em án efa hundruð íbúða sem ekki em í samræmi við bygg- ingamefndarteikningar,“ sagði Ólafur. „Ég hef engar kvartanir fengið frá íbúum í húsinu eftir að byggingamefndin svipti mig rétt- indum. Raunar hefur enginn íbúa öld og íbúar Hirosíma flúðu hana með þvf að kasta sér logandi í fljót- ið sem rennur um borgina. Þvf minnast Japanir þessa atburðar með því að fleyta logandi kertum á vatni á þeirri stundu er sprengjan féll, segir í frétt frá Samstarfsnefnd friðarhreyfinga. Þessi siður hefur breiðst út um heiminn og því efna íslenskar frið- arhreyfingar til kertafleytingar á Reykjavíkurtjöm á miðvikudags- kvöldið. Safnast verður saman við tjömina klukkan 22.30. Valinn verður góður staður þar sem vindur stendur út á tjömina, ef ekki verð- ur logn. Vandalaust verður að finna staðinn því þar verða kerti til sölu. haft samband við mig svo mánuðum skiptir. Það tók byggingaryfírvöld fjórt- án mánuði að taka ákvörðun um hvort veitt yrði leyfí fyrir breyting- unum. Við stóðum frammi fyrir því að hlutafélagið Uppbygging yrði gjaldþrota eða að standa við samn- inga sem við vomm búnir að gera. Mikil ásókn var í íbúðimar og ekki þýddi að seija þær í hráu húsi, held- ur þurfti að ganga frá sameign og öðm. Ég tel að það hafi komið kaupendum íbúðanna betur að verkið yrði klárað en að fyrirtækið legði upp laupana. Ef ég stæði frammi fyrir því að taka þessa ákvörðun aftur myndi ég sennilega hegða mér eins," sagði Ólafur. Hann kvað hlutafélagið Upp- byggingu nú févana. Hefði hann greitt úr eigin vasa ýmsan kostnað vegna Hamarshússins að undanf- ömu. Aðspurður hvort farið yrði að kröfum byggingamefndar um breytingar á húsinu og lóð til sam- ræmis við samþykkta teikningu, sagði Ólafur að hann ætti eftir að skoða hver væri ábyrgð hlutafélags- ins Uppbyggingar, byggingarleyfis- hafans Hamars og hans. „Byggingamefnd hefur svo oft hótað dagsektum séu ekki gerðar lagfæringar á húsnæði, en þær hafa síðan aldrei verið mkkaðar inn. Að sjálfsögðu axla ég mína ábyrgð og geri það sem mér ber. En það þýðir ekki að iofa mér bygg- ingarmeistaraleyfínu aftur gangi ég að einhveijum skilyrðum," sagði Olafur. Hann benti á að erlendis væri stór atvinnuvegur að breyta at- vinnuhúsnæði í gömlum borgar- hlutum í íbúðir. Hérlendis skorti ákvæði í byggingarreglugerð um slíkar framkvæmdir, þar væri að- eins fjallað um nýbyggingar. „Þegar verið er að breyta verslunar- húsnæði í iðnaðarhúsnæði eða öfugt, eins og dæmi em um í Arm- úlahverfinu til dæmis, em aldrei nein vandræði. Þegar skrifstofu- húsnæði er breytt í íbúðir eins og í þessu tilfelli koma vandamálin upp. Enginn var neyddur til að kaupa íbúðir í Hamarshúsinu. Á fólk ekki að ráða því sjálft hvemig það býr og eiga þess kost að allir gluggar snúi í norður ef því býður svo ?“ spurði Ólafur. Hnausum í Meðallandi. Á föstudag fyrir verslunamanna- helgi var ágætur þurrkur og var svo einnig á fimmtudag. Sumir í Meðallandi em að verða búnir með heyskap. Sérstaklega á það við um þá sem em með súr- þurrkun. Ekki á þetta við um alla og er víða ósleigið. Hafa verið óþurrkar undanfarið og sumstaðar til fjalla verið skúrir þegar þurrkur var í lágsveitum. Ferðafólk hefur verið margt hér undanfarið. Hefur héraðið upp á margt að bjóða ferðamönnum. Mun varla annarsstaðar um meiri fjöl- breyttni að ræða og svo er hér einna hlýjast á iandinu. Á Kirkjubæjarklaustri er skipu- legt hátíðarhald um verslunar- mannahelgina „Klausturslíf ’87“. Katla hristi sig aðeins nú á dög- unum og minnti menn á að hún er til. Ég hafði samband við Einar H. Einarsson á Skammadalshól. Hann segir að enn sé vottur af ókyrrð á Kötlusvæðinu. Vilhjálmur Kertafleyting á Reykj aví kurtj örn . Morgunblaðið/JÚUus Ellefu erlend rannsóknar- skip íhöfninni Opin almenningi í eftirmiðdag ELLEFU erlend rannsóknarskip liggja við festar í Reykjavíkurhöfn um þessar mundir. Þau taka þátt í sameiginlegum leiðangri sex NATO-ríkja um Norður-Atlants- hafíð. Leiðangursmenn hafa meðal annars kannað eiginleika sjávar og gert bergmálsmælingar á hafsbotninum. Í Reykjavík hvílast áhafnirnar og taka vistir. Haldið verður úr höfn að nýju á mánudagsmorgun. Skipin sigla undir fána ítalfu, Frakklands, Bretlands, Þýskalands, Hollands og Danmerkur. Hluti flot- ans eru herskip en einnig eru sérbúin hafrannsóknarskip í leiðangrinum. í dag gefst almenningi kostur að fara um borð f skipin sem liggja við Faxagarð og skoða þau. Taka skip- veijar á móti gestum milli kl. 14.00 og 17.00. Þá munu skipherrar frönsku skipanna leggja blómsveig að leiði franska sjómannsins í kirkju- garðinum við Suðurgötu kl. 11.00.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.