Morgunblaðið - 01.08.1987, Blaðsíða 27
^onf T8Ú0Á r ÍÍUOAnHAOTJÁJ (TTOTA TÍTWTJ03OM 0S
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. ÁGÚST 1987 27
SALA á kjúklingum virðist vera
heldur að aukast þessa dagana
eftir dræma sölu að undanförnu,
samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið fékk hjá nokkrum
kjúklingaframleiðendum. Þeir
voru á einu máli um að salan
hefði minnkað í kjölfar mikillar
umfjöllunar fjölmiðla um sýking-
ar af völdum salmonellu bakte-
ríunnar. Þeir lögðu allir áherslu
á að brýna þyrfti fyrir fólki að
rétt matreiðsla og meðhöndlun
hráefnisins skipti mestu máli.
„Kjúklingasala hefur aukist aftur
hægt og sígandi, sérstaklega í
síðustu viku", sagði Jónas Hall-
dórssonar í Sveinbjamargerði í
Eyjafírði, en hann er jafnframt
formaður Félags kjúklingabænda.
„Einhliða umfjöllun fjölmiðla á stór-
an þátt í að kjúklingasala drógst
mikið saman undanfarna tvo mán-
uði. Ég er afar óhress með umfjöll-
unina til þessa. Það ætti að leggja
aðaláherslu á meðhöndlun kjúkl-
inga og matreiðslu" sagði Jonas.
I Sveinbjamargerði eru nú til um
tveggja mánaða birgðir, en nú hef-
ur verið bmgðið á það ráð að hætta
framleiðslu í bili til að minnka þær.
Ásgeir Eiríksson framkvæmda-
stjóri Klettakjúklings sagði að sala
á kjúklingum væri nú að aukast
aftur. Hjá Klettakjúklingi eru til
eins til tveggja mánaða birgðir og
að sögn hans er það svipað og ver-
ið hefur. Ásgeir taldi söluna ekki
hafa minnkað eins mikið úti á landi
Fógetaréttur Isafjarð-
arsýslu:
Lögtaksgerð
nær ekki til inn-
heimtulauna
FÓGETARÉTTUR ísafjarðar-
sýslu úrskurðaði nýverið á þá
lund, að þegar um lögtakshæfa
kröfu væri að ræða, væri ekki
unnt að krefjast lögtaks til trygg-
ingar greiðslu innheimtulauna
lögmanns eða vegna lögtaks-
kostnaðar.
Atvik máls þessa eru með þeim
hætti, að Ríkisútvarpið óskaði lög-
taks hjá Mikael Á. Guðmundssyni
fyrir eftirtöldum gjöldum: Afnota-
gjaldi, vöxtum af höfuðstóli og
innheimtukostnaði lögmanns og
vegna lögtaksbeiðni. Mikael mót-
mælti kröfu Ríkisútvarpsins um
kostnað vegna innheimtulauna og
lögtaksbeiðni.
Um þetta sagði Þuríður Kr. Hall-
dórsdóttir fulltrúi bæjarfógeta, sem
kvað upp úrskurðinn: „Kröfur þær,
sem lögtaksrétt hafa, eru aðfarar-
hæfar án undanfarandi dóms eða
sáttar. Ákveðnum kröfum er veittur
lögtaksréttur, m.a. til þess að auð-
velda innheimtu þeirra, en jafn-
framt til að halda innheimtukostn-
aði í lágmarki. Lögtaksréttur er því
settur báðum aðilum til hagsbóta.
Með því að veita kröfum þessum
lögtaksrétt er gagngert ætlast til,
að kröfuhafi snúi sér gagngert til
fógeta með lögtaksbeiðni. Að því
búnu framkvæmir fógeti lögtakið
og þarf eigi frekari atbeina kröfu-
hafa við. Vilji kröfuhafi hins vegar
hafa þann hátt á, að fela lögmanni
innheimtu lögtakskræfrar kröfu
með lögtaki, er honum það að sjálf-
sögðu fijálst, en ekki verður talið,
að kostnað við það sé heimilt að
leggja á skuldara. Verður kröfuhafí
að bera þann kostnað sjálfur, þar
sem hann gat beðið beint um lög-
tak, sem ekki hefði haft slíkan
aukakostnað í för með sér.“
Niðurstaða fógetaréttar var því
sú, að hin umbeðna lögtaksgerð var
ekki látin ná fram að ganga að því
er varðaði innheimtulaun lögmanns
og kostnað vegna ritunar lögtaks-
beiðni.
og á höfuðborgarsvæðinu. „En það
liggur við að manni detti í hug að
það eigi að leggja greinina í rúst
með öllu þessu einhliða umtali,"
sagði hann. „Það hefur ekki verið
lögð áhersla á grundvallaratriðið.
Nefnilega að það er alveg sama
hvort fólk borðar mat á íslandi eða
í útlöndum, alltaf skal aðgát í mat-
argerð höfð í heiðri. Það þarf að
kenna fólki upp á nýtt að matreiða
því aðalatriðið er að fólkið haldi
heilsu".
Alfrep Jóhannsson framkvæmda-
stjóri ísfugls sagði að sala á
kjúklingum í þessum mánuði væri
meiri en hann átti von á, en áður
hafði hún minnkað mikið í kjölfar
umræðunnar um salmonellusýking-
ar. Aðallega hefði sala á heilum
kjúklingum minnkað. „Hér var ver-
ið að gera úlfalda úr mýflugu,"
sagði Alfreð. „Það komu sýktir
fuglar frá einum litlum framleið-
anda sem selur vöru sína undir
merkinu ísfugl. Nú er fyrir löngu
búið að hreinsa þetta kjöt út af
markaðinum og eyða því. Vandinn
er sá að vegna þess að við erum
búnir að lenda í þessu þá erum við
alltaf ásakaðir ef svona kemur upp
aftur. En nú eru sýni tekin daglega
úr kjúklingum í sláturhúsinu frá
ölium framleiðendunum og eftirlitið
því orðið mjög gott," sagði Alfreð.
„Okkur sýnist saian vera viðun-
andi miðað við ástandið," sagði
Bjarni Ásgeir Jónsson fram-
kvæmdastjóri Holtabúsins. „Salan
í júlí er betri en í júní, sem alltaf
hefur verið frekar erfiður mánuð-
ur“. Bjami sagðist vera nokkuð
bjartsýnn enda benti allt til þess
að um 30 tonn af kjúklingum hefðu
selst í júlí, en meðalsala hjá Holta-
búinu á mánuði er um 35 tonn.
Bjami sagði að það ætti eftir að
reynast erfítt að beijast við salmon-
ellu bakteríuna. Hún væri til staðar
hér á landi og ef marka mætti
reynslu nágrannaþjóða okkar þyrfti
ekki að búast við að hægt verði að
ráða niðurlögum hennar. íslending-
ar þyrftu að læra að lifa með þessu
og leggja mikla áherslu á rétta
meðhöndlun og matreiðslu.
ARGERDIRNAR
FRÁ MITSUBISHI
í bílunum frá MITSUBISHI þarf ekki að hafa áhyggjur af
„aukabúnaði“. — Hann fylgir með í veröinu.
Hjá okkur fá allir bíl við sitt hæfi.
Það borgar sig að bíða eftir bíl frá MITSUBISHI
HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500