Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 1
181. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
Prentsmiðja Morgfunblaðsins
Reagan slapp
naumlega
Santa Barbara, Reuter.
LITLL einkaflugvél hafði nærri
rekist á þyrlu Reagans Banda-
ríkjaforseta i Suður-Kalifomíu á
fimmtudagskvöld. Vélin flaug í
aðeins sjötíu metra fjarlægð frá
þyrlunni.
Reagan og aðrir farþegar um
borð í Marine One tóku ekki eftir
flugvélinni og engin hræðsla greip
um sig. Flugmaður þyrlunnar stýrði
henni örugglega frá litlu flugvél-
inni.
Reagan var á leið til búgarðs síns
nálægt Santa Barbara, en þar mun
hann dveljast í 25 daga í sumar-
leyfi. Nancy forsetafrú var ekki
með manni sínum í þyrlunni, heldur
hafði farið á undan.
Leyniþjónustumenn, sem yfir-
heyrðu flugmann einkaflugvélar-
innar, sögðu að hann hefði ekki
haft neitt iilt í huga, en ekki er ljóst
hvers vegna hann villtist inn á flug-
leið forsetans.
Sjá ennfremur „Flugmaðurinn
var á bannsvæði...“ á síðu 30.
Morgunblaðið/Svernr
ÚRSKORRADAL
Fulltrúar Norræna skógræktarsambandsins í gróðursælum trjálundi I Skorradal.
Sjá frásögn á bls. 16
Bandaríkin:
Mikill viðskipta-
halli í júnímánuði
Washington, Reuter.
í JÚNI var viðskiptahallinn í
Bandaríkjunum 15,71 milljarður
dollara, ef til vill sá mesti, sem
um getur. í maí var hann 14,04
Vestur-Þýskaland:
Nýjar reglur um með-
ferð sjávarafurða kynntar
EMBÆTTISMENN vestur-þýsku
stj ómarinnar efndu I fyrradag til
blaðamannafundar þar sem
kynntar voru nýjar reglur varð-
andi fiskinnflutning. Er þeim
ætlað að minnka ormamengun í
fiskinum. Markmið fundarins var
jafnframt að leggja áherslu á að
fískur væri hollustufæða og auka
álit almennings á fiskafurðum en
margfrægur sjónvarpsþáttur um
ormamengun hefur að undan-
förnu valdið stórum minni fisk-
neyslu i landinu en áður.
Reglurnar taka gildi í haust og
munu ná til fískiðnaðar í Vestur-
Þýskalandi en embættismennimir
skýrðu frá því að mælt yrði með
svipuðum reglum í öllu Evrópu-
bandalaginu. Nefnt var að Hollend-
ingar og Danir hefðu flutt
ormamengaðan fisk til landsins og
gæti ormurinn valdið manntjóni.
Fiskinnflutnings íslendinga var ekki
getið í þessu sambandi.
1 nýju reglunum getur m.a. að líta
eftirfarandi: 1. Fjarlægja skal öll
innyfli þegar í stað úr físki áður en
hann er frystur til að koma í veg
fýrir að þráðormar komist úr innyfl-
unum yfír í fískholdið. 2. Fjarlægja
skal þunnildi af stórvöxnum fiski og
sömuleiðis innyfli úr smærri fiskteg-
undum á borð við sfld og makrfl. 3.
Auknar varrúðarráðstafanir verða
gerðar I sambandi við meðhöndlun
og verslun með físk í vestur-þýskum
fiskvinnslustöðvum.
I þýskum blöðum var þess getið í
gær að aukinn fjöldi sela og annarra
sjávarspendýra gæti verið orsök auk-
innar ormamengunar í fiski er
veiddist í Norður-Atlantshafi.
milljarðar en í júni jókst innflutn-
ingur oliu og annarra vara um
tvo milljarða.
Viðskiptahallinn jókst þrátt fýrir
að viðskiptin við Kanadamenn séu
nú reiknuð á annan hátt en fyrr
og þannig, að hallinn gagnvart þeim
hefur lækkað. Ef gömlu reiknings-
aðferðimar hefðu verið notaðar
hefði hallinn í júnf verið 16,32 millj-
arðar dollara, sem er nýtt met. Það
fyrra er frá í júlí á síðasta ári þeg-
ar hallinn var 16,05 milljarðar.
Innflutningur í júní var 36,84
milljarðar dollara, 34,82 í maí, og
útflutningur jókst einnig en miklu
minna þó. Var hann 20,78 milljarð-
ar dollara í maí en 21,13 í júní.
Eins og oft áður var viðskipta-
hallinn í júní mestur gagnvart
Japan, 5,35 milljarðar dollara, en
gagnvart Vestur-Evrópuríkjunum
var hann 2,92 milljarðar. Á síðasta
ári var viðskiptahallinn í Banda-
rfkjunum 156,2 milljarðar dollara
en nú stefnir í að hann verði 166,3
milljarðar fýrir allt árið.
Þróunin til þessa hefur valdið
E1 Salvador:
Skæruliðar
samþykkja
viðræður
San Salvador, Reuter.
Vmstrisinnaðir skæruliðar i
Mið-Ameríku-lýðveldinu E1 Salv-
ador samþykktu í gær tilboð
Duartes forseta um að hefja fríð-
arviðræður í næsta mánuði.
Tilboð Duartes kom fram f ræðu
hans í þjóðþinginu í fyrrinótt.
Forystumenn skæruliðahreyfíng-
arinnar FMLN sögðust í gær vilja
hefla viðræður við ríkisstjómina 15.
september. Verða viðræðumar í
samræmi við samkomulag það sem
ijórir leiðtogar annarra Mið-
Ameríkuríkja ásamt Duarte gerðu
með sér 7. ágúst þar sem hvatt var
til vopnahlés innan níutíu daga í
borgarastyijöldum þeim er geisað
hafa í nokkrum löndum á svæðinu.
Þá var einnig ákveðið að bann yrði
lagt við utanaðkomandi aðstoð við
uppreisnarhreyfíngar.
Sjá síðu 29: „Reagan vill ... “
Persaflói:
Iranir vilja
slæða
tundurdufl
Furstadæmin
hafna aðstoð
Níkóstu, Reuter.
FLOTI iranskra herskipa
sigldi í átt að ströndum
furstadæmisins Oman í gær
til að vera reiðubúinn til að
aðstoða við tundurduflaslæð-
ingn við strendur landsins.
Oman er hluti Sameinuðu
furstadæmanna, ríkjasam-
bands á suðurhluta Arabíu-
skagans. Teheran-útvarpið
sagði að í liðsaflanum væru
stór og lítil skip, froskmenn
og ýmis tæki.
franir hafa kennt Bandaríkja-
mönnum þau tundurdufl sem
fundist hafa út af hafnarborg-
inni Fujairah í Sameinuðu
furstadæmunum en útgerðar-
menn telja að duflin séu írönsk.
íranir buðu fram aðstoð sína
á miðvikudaginn en í gær höfn-
uðu furstadæmin kurteislega
boðinu. I tilkynningu utanríkis-
ráðuneytis þeirra sagði að
strendur landsins væru nú svo
til lausar við tundurdufl; þeirra
eigin strandgæsla hefði séð um
það. Ennfremur sagði að gera
yrði gangskör að því að stöðva
stríðið milli írana og íraka.
Reagan
mörgum bandarískum hagfræðing-
um vonbrigðum enda höfðu þeir
búist við, að hún yrði orðin önnur
og betri um þetta leyti. Gengi doll-
arans hefur fallið um 50% á tveimur
árum en samt lætur viðskiptabatinn
enn biða eftir sér.
Þegar fréttin um viðskiptahall-
ann barst út féll dollarinn verulega
á gjaldeyrismörkuðum víða um
heim. Lækkaði hann um 2,25
pfennig gagnvart þýska markinu
og er nú tíu japönskum jenum ódýr-
ari en áður. Gullúnsan hækkaði um
rúmlega þrjá dollara og kostar nú
460,50 dollara.
Reagan-stjómin hefur reynt að
spoma við tollvemdarstefnu á
Bandaríkjaþingi en aukinn við-
skiptahalli gæti gert þá baráttu
erfíðari.