Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
KRÆKIBER
Þegar ég var barn á Seyðisfirði var venja okkar barnanna á Búðareyrinm að fara upp í Botna
2. ágúst og tína ber. Fyrr mátti alls ekki fara. Okkur fannst þetta eins konar helgidagur. Oft voru
þau ber, sem við tíndum þennan dag, smá og óþroskuð, en við létum það ekki á okkur fá. Við
borðuðum berin með áfergju og okkur þótti þau býsna góð, þótt fullorðna fólkið fussaði og segði
að berin væru römm. í Botnunum voru bara krækiber, og þurftum við að fara upp í fjallið og
yfir klettabelti. Vorum við misdugleg við að klifra klettana. Ég var ekki kjarkmikil og mjög oft
hrædd í klettunum. Það fór svo að um það bil, sem berin hefðu orðið fullþroska í Botnunum, voru
börnin á Búðareyrinni og börn víðar í bænum búin með þau. Inni í landi var aftur á móti mikið
af blábeijum og aðalblábeijum auk krækibeija, en þangað var farið síðar. Var oft tekinn vörubíll
á leigu. Fór hann með okkur inn eftir að morgni og sótti okkur síðan að kvöldi. Við krakkamir
sátum á pallinum. Fallegt er inni í landi á Seyðisfirði, kjarri- og lyngivaxnar hlíðar og mikið af
eini. Margir fallegir fossar í Fjarðaránni sem f ellur þar fram. Við íjarðarsel var stífla, sem við
klifruðum yf ir. Var það iqjó renna og var ég ef satt skal segja alltaf dauðhrædd að fara yfir hana,
en einhvem veginn var það svo, að berin handan við ána vom eftirsóknarverðari.
Enn held ég þeim sið að fara til
beija og fmnst það alltaf jafn
gaman, og dásamleg tilfinning
að sjá röð af flöskum með beij-
asaft og krukkum með sultu á
búrhillunni. Beijagrautur og sætsúpa er
engin fantafæða, en ótalmargt annað er
hægt að gera við berin en nota þau í súpu,
graut, saft og sultu. Mörgum finnst líka
gott að drekka saftina, enda er hún mög
holl og C-vítamínrík og ómenguð úr beijum
úr okkar hreina landi. í þessum þætti eru
líka uppskriftir að kökum og ábætisréttum
með krækibeijum, en krækiber henta mjög
vel í þá og ef hugmyndaflugið er látið ráða
eru möguleikamir næstum óþijótandi.
Krækiberjahlaup
með eplum
Ábætisréttur
1 lítri krækiber
■Ádl vatn
1 dl sykur
Vdítri eplasafi
3 epli
10 blöð matarlím
1. Þvoið og hreinsið berin. Setjið þau
síðan í pott ásamt vatni og sjóðið við hæg-
an hita í 10-15 mínútur. Meijið berin með
kartöflustappara meðan á suðu stendur.
2. Hellið beijunum á sigti og meijið saf-
ann úr. Setjið ásamt sykri í pott.
3. Setjið matarlímið í bleyti í kalt vatn
í 10 mínútur.
4. Hitið saftina í pottinum. Vindið mat-
arlímið upp úr vatninu. Takið pottinn með
saftinni af hellunni og bræðið matarlímið í
heitri saftinni.
5. Setjið eplasafa út í saftina.
6. Afhýðið eplin, stingið úr þeim kjam-
ann. Skerið síðan í litla bita og setjið út í
safann.
7. Hellið í hringmót. Látið kólna að mestu
á eldhúsborðinu, en setjið síðan í kæliskáp
og látið stífna alveg. Það tekur um 5-6 klst.
8. Skerið niður með brúnunum á mótinu.
Dýfið því augnablik í sjóðandi vatn og hvolf-
ið á fat.
9. Berið bananaijóma eða eggjasósu
með. Sjá uppskriftir hér á eftir.
Bananarjómi
1 peli ijómi
3 stórir bananar
1. Þeytið ijómann. Látið hann ekki verða
mjög stífan.
2. Meijið bananana með gaffli. Gætið
þess að hræra ekki i þeim.
3. Setjið bananana út í ijómann. Blandið
lauslega saman, annars verður þetta seigt.
Eggjasósa
1 peli mjólk
1 peli kaffíijómi
3 msk. sykur
4 eggjarauður
1 peli ijómi
1 dl sherry
1. Setjið kalt vatn í eldhúsvaskinn. Hafið
hann hálffullan.
2. Hitið mjólk og kaffujóma.
3. Hrærið saman sykur og eggjarauður
þar til það er ljóst og létt. Hellið ögn af
ijómablandinu út í. Setjið síðan eggjahrær-
una út í pottinn. Setjið hann aftur á helluna
og hitið að suðumarki. Hrærið stöðugt í þar
til þykknar.
4. Takið pottinn af hellunni, setjið ofan
í vatnið í eldhúsvaskinum. Hrærið þar til
mesti hitinn er rokinn úr. Kælið síðan alveg.
5. Setjið sherry út í.
6. Þeytið ijómann og setjið út í um Ieið
og sósan er borin fram.
Athugið: Hægt er að nota vanillu í stað
sherrys. Einnig er hægt að sleppa þeytta
ijómanum.
Krækiberja/sítrónubúðing-
ur
(Handa 6)
'Alítri krækiber
400 g skyr (2 litlar dósir)
1 peli ijómi
1 pk. Royal-sítrónuhlaup (lemon gelatin
dessert)
1 dl sjóðandi vatn
1 dl kalt vatn
1. Hitið vatn. Setjið hlaupduftið á skál.
Setjið síðan 1 dl af sjóðandi vatni út í. Lát-
ið duftið leysast vel upp. Setjið síðan 1 dl
af köldu vatni út í. Setjið skálina í kæliskáp-
inn og látið kólna án þess þó að hlaupa
saman.
2. Þeytið ijómann. Blandið saman skyri
og þeyttum ijóma. Setjið það síðan út í
sítrónulöginn. Hrærið saman með gaffli.
3. Setjið hrein berin út í.
4. Setjið í skál. Setjið síðan í kæliskáp
og látið stífna í 3-4 klst.
Haframj ölskossar
með krækiberjum
og banönum
(20 stk.)
2 dl sykur
'Adl sýróp
IV* dl (150 g) brætt smjör eða smjörlíki
2 dl haframjöl
2 dl hveiti
Vítsk. lyftiduft
1 tsk. vanillusykur
2 pelar ijómi
1 pottur krækiber
3 stórir bananar
1. Setjið sykur og sýróp í skál. Bræðið
smjörlíki, kælið síðan örlítið og setjið út í.
Hrærið saman.
2. Setjið haframjöl, hveiti, lyftiduft og
vanillusykur út í. Hrærið saman.
3. Hitið bakaraofn í 200°C, blástursofn
í 180°C.
. 4 Setj ið bökunarpappír á bökunarplötur.
5. Setjið deigið á plötumar með teskeið.
Ein tsk. í hverri köku. Smyijið síðan út
með hníf, þannig að þetta verði u.þ.b. 8 cm
í þvermál. Kökumar renna örlítið út. Hafið
bil á milli.
6. Setjið plötuna með kökunum í miðjan
ofninn og bakið í u.þ.b. 12 mínútur. Fylgist
með bakstrinum. Kökumar eiga að brúnast
örlítið og falla saman.
7. Takið kökurnar af papþímum og kæ-
lið.
8. Þeytið ijómann. Takið örlítið frá af
honum og setjið í sprautupoka
9. Meijið bananana með gaffli. Hrærið
banana og ber lauslega út í ijómann. Ef
mikið er hrært verður þetta seigt og leiðin-
legt. Takið nokkur ber frá til að skreyta með
10. Leggið kökurnar saman tvær og tvær
með ijómanum á milli.
11. Sprautið smátopp ofan á kossana með
ijómanum í pokanum. Stráið síðan nokkrum
beijum ofan á ijómann.
Krækibeijadrykkur
Vzlítri beijasaft (sjá hér á eftir)
2 litlar femur ananassafi
1 flaska sódavatn
nokkur græn vínber
ísmolar (klaki)
1. Skerið vínberin í tvennt og takið úr
þeim steina.
2. Blandið saman kaldri beijasaft og
köldum ananássafa.
3. Setjið sódavatnið saman við.
4. Setjið vínberin og klakann út í.
5. Hellið drykknum í glös, setjið sogrör
í glösin.
Krækiberjahlaup
1 lítri hreinn krækibeijasafi
1 kg sykur
safi úr 1 sítrónu
hleypiefni (Pectinal, magn skv. leiðb. á
pakkanum)
1. Setjið krækibeijasafa og sítrónusafa
í pott. Látið sjóða upp. Setjið hleypiefni út
í og sjóðið eins lengi og segir á umbúðunum.
2. Takið pottinn af hellunni og hrærið
sykurinn út í. Hrærið svo vel að sykurinn
leysist vel upp. Setjið pottinn ekki aftur á
helluna. Mjög áríðandi er að setja sykur í
á eftir hleypiefni.
3. Hellið í hreinar kmkkur. Látið kólna.
4. Klippið smjörpappírshring og leggið
ofan á krukkumar, setjið lok eða tvöfalda
plastfilmu yfir krukkumar og geymið á
köldum stað.
5. Merkið með innihaldi og dagsetningu.
Soðin krækibeijasaft
5 kg krækiber
500 g sykur í hvem lítra af safa
1 msk. uppleyst vín- eða sítrónusýra í hvem
lítra af safa.
1. Hreinsið og þvoið berin, hakkið þau
síðan í beijapressu eða hakkavél. Ef þið
hakkið berin í hakkavél, þarf að sía á grisju,
en í beijapressu skilst saftin að.
2. Mælið safann, setjið í pott ásamt
sykri. Sjóðið við hægan hita í 10-15 mínútur.
3. Hellið vínsýru út í.
4. Hellið saftinni á vel hreinar flöskur
og lokið vel. Ef þið eruð með flöskur undan
sterku áfengi er óþarfi að þvo flöskumar.
5. Merkið með innihaldi og dagsetningu
og geymið á köldum stað.
Athugið: Vínsýra er ekki alltaf seld í
uppleystu formi. Hún er stundum seld í
duftformi og er þá yfirleitt 50 g í pakkning-
um. Þetta magn er hæfilegt að leysa upp í
7 dl af heitu vatni.
Ef þið hafið ekki góða geymslu þarf að
setja rotvamarefni saman við sultu og saft.
Algengasta rotvarnarefnið er Benso-nat.
En leiðbeiningar þess em ékki nógu skýrar.
Skolið ílátið að innan með rotvamarefninu.
Setjið síðan */*-l msk. af því í kíló af sultu
eða saft. Setjið rotvarnarefni í rétt eftir að
þið takið pottinn af hellunni. Það á ekki
að sjóða.