Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 Eins og besta haustuppskera Morgunblaðið/Einar Falur Hjónin Guðjón Guðnason og Magnea Gestsdóttir við upptökuvélina. Kartöflumar vora óvepju stórar og fallegar miðað við árstíma. Rætt við Guðjón Guðnason kart- öf lubóndaí Þykkvabæ „ÞETTA er eins og besta haust- uppskera," sagði Guðjón Guðna- son á Háarima í Þykkvabæ er blaðamann og ljósmyndara Morgunblaðsins bar að garði í vikunni. Hann og fjölskylda hans voru að taka upp stórar og fal- legar kartöflur með nýrri upptökuvél sem hann fékk í fyrri viku. Guðjón og aðrir bændur sem skipta við fyrirtækið Þykkvabæjarkartöflur eru þessa dagana að taka upp kartöflur í smá skömmtum eftir því sem markaðurinn þarfnast. Guðjón ræktar kartöflur á um 12 hekturum. Hann ræktar einnig kom til sáðskipta til að bæta send- inn jarðveginn. Hann sló ekkert bygg í fyrra og sagðist ekki gera það núna heldur. „Það er ekkert hægt að gera við það,“ segir hann. „Ég læt það liggja og síðan eru kartöflumar settar niður í garðinn I DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR I DAG, 15.08.87 YFIRLIT á hódegi í gær: Yfir Grænlandi og skammt austur af Jan Mayen eru 1022ja mb hæðir, en 1000 mb nærri kyrrstæð lægð um 600 km suðsuðaustur af Hornafirði, grynnist. Víðáttumikil 985 mb lægð um 1400 km suösuðaustur af Hvarfi þokast norðaustur. Hiti breytist lítið. SPÁ: Breytileg átt, viðast gola. Skýjað að mestu og sums staðar smáskúrir við austurströndina en víða bjartviðri í öðrum lands- hlutum. Hiti 8 til 18 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA SUNNUDAGUR OG MÁNUDAGUR: Suðaustan átt, víða rigning eða súld sunnan- og austanlands en að mestu þurrt í öðrum lands- hlutum. Hiti 10— 14 stig um sunnan- og austanvert landið en ívið heitara í öðrum landshlutum. x Norðan, 4 vindstig: r Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. / / / / / / / Rigning / / / * / ■* r * r * Slydda / * / * * * * * * * Snjókoma * * * 10 Hitastig: 10 gráður á Celsius SJ Skúrir * V E' = Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —J- Skafrenningur Þrumuveður »■ r:,Á Mfl m F \ / VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hltl veAur Akureyrl 14 lóttskýjað Reykjavík 13 mistur Bergen 14 súld Helsinki 14 skýjað Jan Mayen S skýjað Kaupmannah. 19 skýjað Narasarssuaq 8 þoka Nuuk 6 þoka Oaló 15 alskýjað Stokkhólmur 17 skýjað Þórshöfn 10 rigning Algarve 2S þokumóða Amsterdam 19 alskýjað Aþena 29 léttskýjað Barcelona 28 mistur Berlln 19 þokumóða Chicago 23 þrumuveður Feneyjar 25 léttskýjað Frankfurt 23 skýjað Glasgow 16 skúr Hamborg 19 skýjað Las Palmas 26 léttskýjað London 22 skýjað LosAngeles 17 súld Lúxemborg 20 skýjað Madrld 34 alskýjað Malaga 26 rykmlstur Mallorca 35 heiðsklrt Montreal 19 alskýjað NewYork vantar Parfs 25 hálfskýjað Róm 31 léttskýjað Vín 17 þrumuveður Washington 21 léttskýjað Winnlpeg 16 úrkoma næsta vor.“ En þrátt fyrir einmuna veður- blíðu í sumar og góðar uppskeru- horfur eru kartöflubændur í Þykkvabæ ekki allt of bjartsýnir. „Það gengur ekki vel að selja og sumir hafa þurft að henda töluverðu magni af kartöflum. Sjálfur þurfti ég ekki að henda nema um 15 tonn- um í vor, en ég talaði við einn sem henti um 100 tonnum. Þegar nýjar kartöflur eru komnar á markað vill enginn þær gömlu og það er mjög skiljanlegt. En menn virðast ekkert hafa sett minna niður þrátt fyrir þetta því alltaf er óvíst hvemig uppskeran verður. Raunar er þessi óvissa verst. Það er aldrei að vita hvemig sprettur og einnig eru óskir neytendanna svolítið breytilegar. Eitt árið vilja þeir rauðar kartöflur og annað árið líta þeir ekki við þeim. En ég tel það sjálfsagt að fara eftir óskum neytendanna eins og reynt hefur verið að gera undan- farin ár. Það er erfitt þegar afkoman er svona ótrygg því hér er að engu öðm að hverfa. Áður fyrr var kúa- búskapur mikið stundaður hér en smám saman hafa bændur verið að losa sig við kýmar og snúa sér alfarið að kartöflurækt. Þetta hefur orðið til þess að hér hafa menn engan fullvirðisrétt. Mitt búmark er til dæmis 1,3 ærgildi vegna þess að ég lagði inn einn hrút fyrir nokkrum árum. Við fórum fram á það við landbúnaðarráðuneytið að fá fullvirðisrétt en því hefur ekki verið svarað. Hér er aðeins eitt kúabú og það verður lagt niður í haust. Maður á þá ekki von á að sjá mjólkurbílinn eftir það, nema hann villist." Guðjón sagði að það gæfi auga- leið að mjög erfitt væri fyrir tæplega 300 manna byggðalag að halda uppi skóla og heilsugæslu. En hefur verið reynt að skapa önn- ur atvinnutækifæri í Þykkvabæ? „Ekki veit ég til þess,“ sagði hann. „Eini iðnaðurinn sem hér er stund- aður er kartöfluverksmiðjan og svo er rekið sláturhús á staðnum." Eins og áður sagði var Guðjón að fá nýja upptökuvél. Hún er vest- ur-þýsk af gerðinni Wuhlmaus. En hvetju breytir þessi nýja upptöku- vél? „Bætt meðferð á kartöflunum er helst kostur hennar. Það verður svo til ekkert fall frá þvi að kartöflum- ar koma upp úr moldinni og þar til þær lenda ofan í pokunum," sagði Guðjón. „Það er þá helst þegar þær detta ofan í pokana. Þetta gerir það að verkum að þær verða miklu bet- ur famar og lítil sem engin hætta á að þær springi. Auk þess tekur vélin upp til hliðar við sig og hjólin fara aldrei í garðinn og minnkar þá enn hættan á skemmdum“. Við víkjum aftur að góða veðr- inu. Guðjón sagði að á þessum slóðum væri oft mikið rok en í sum- ar hefði verið besta veður í manna minnum og óvenju mikið logn. Bytj- að var að taka upp kartöflur 12. júlí. Áður hefur verið byijað svona í kringum 10. ágúst. En kartöflum- ar sem eru teknar upp núna í byijun ágúst eru mjög stórar og á við bestu haustuppskeru. Venjulega tekur það Guðjón og fjölskyldu hans um hálfan mánuð að taka upp af 12—13 hekturum. „Það er svo einkennilegt að það byijar oft að frjósa nákvæm- Iega 20. september. Þess vegna keppast allir við að vera búnir að taka upp fyrir þann tíma.“ ÁH Bessastaðakirkja: Kvartett frá Winnipeg GUÐSÞJÓNUSTA verður í Bessastaðakirkju sunnudaginn 16. ágúst kl. 11.00 fyrir hádegi. Við guðsþjónustuna mun kvart- ett frá Winnipeg syngja og Stewart Thomson leika forleik á orgel. Þessi hópur er hluti af kór frá Winnipeg sem dvelur hér á landi um þessar mundir. Að öðru leyti mun kór annast þjónustu undir stjóm Þorvaldar Bjömssonar organista. Séra Bragi Friðriksson prófastur messar. Hluti messunnar mun fara fram á ensku. Jón B. Jónsson skrifstofustjóri í sjávarútvegsráðuneytinu: Kippum okkur ekki upp við upphlaup Skúla Firra að pólitískar hvatir liggi að baki Þau místök áttu sér stað við umbrot Morgunblaðsins í gær, að vitlaus texti kom aftan við upphaf viðtals við Jón B. Jóns- don. Jón og aðrir lesendur blaðsins eru beðnir velvirðing- ar á þessum mistökum, en viðtalið fer hér á eftir í heild. „ÞETTA upphlaup Skúla gefur ekki ástæðu til neinna viðbragða af hálfu ráðuneytisins, en ef hann getur innan kærufrestsins komið fram með einhver þau gögn, sem sýna að ráðuneytið hefur rangt fyrir sér, mun það að sjálfsögðu falla frá kæru og upptöku afla,“ sagði Jón B. Jóns- son skrifstofustjóri f sjávarút- vegsráðuneytinu f samtali við Morgunblaðið f tilefni af þeim ummælum Skúla Alexandersson- ar alþingismanns og fram- kvæmdastjóra Jökuls á Hellis- sandi, að úrskurður ráðuneytis- ins um kvótasvindl væru árásir á sig. Sagði Jón að þeir hjá ráðu- neytinu yrðu ánægðir, ef ekki þyrfti að gera afla upptækan. Jón hafnaði því alfarið sem al- gerri firru, að úrskurður þessi væri á nokkum hátt sprottinn af pólitísk- um hvötum. Um þau ummæli Skúla, að nýting afla væri miðuð við meðalskussa, sagði Jón að unnið væri eftir mjög nákvæmum stuðlum, sem samdir hefðu verið með hliðsjón af tölum sölusamtaka, framleiðenda véla og stuðlum í sambandi við verðlags- ákvarðanir. „Það komu upp umræður um stuðulinn, þegar skoð- unin átti sér stað og enginn mótmælti, enda vissu menn að í þeim stuðli væri mjög mildilega tekið á framleiðendum." Um þá fullyrðingu Skúla, að þessi ákvörðun ráðuneytisins hefði verið tekin án þess að málið væri rannsakað til hlítar, sagði Jón að ráðuneytið hefði rannsakað öll þau gögn sem það hefði fengið aðgang að. „Plöggunum bar ekki saman og við fengum ekki þær skýringar sem við óskuðum eftir, heldur skæt- ing frá Skúla.“ Um aðferðina sem viðhöfð væri almennt, sagði Jón að hún gæti svo sem verið umdeilanleg, en sam- kvæmt lögum hefði ráðuneytið heimild til þess að gera upptækan ólöglegan afla. „Þessi réttur hefur hingað til ekki verið vefengdur hjá dómstólum," sagði Jón að lokum. aamSamUímmmSt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.