Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987
-+■
HANDKNATTLEIKUR / STULKNALANDSLIÐIÐ
Svar HSÍvið skýringum IHF:
IHF vfsaði íslenska stúlkna-
landsliðinu úr HM að beiðni
þýska handknattleikssambandsins
ÁGÆTU íþróttafréttamenn
Morgunblaösins. Stjórn HSÍ
fagnar áhuga ykkar á málefni
stúlknalandsliðs okkar og ósk
ykkar á skýringum frá Al-
þjóðahandknattleikssam-
bandinu (IHF) á því hvers
vegna stúlknalandslið íslands
var dœmt úr forkeppni HM
og vestur-þýska stúlkna-
landsliðinu dæmdur sigur og
rétturtil þátttöku í HM. í
Morgunblaðinu í gær (14.
ágúst) birtist þýdd greinar-
gerð frá IHF um rök þeirra
fyrir því að dæma íslenska
stúlknalandsliðið úr keppn-
inni. Landsliðsnefnd kvenna
og þjálfari stúlknalandsliðs-
ins eru að vinna að ítarlegri
greinargerð sem svar við
grein þessari frá IHF og mun
hún verða send ykkur innan
skamms svo og til IHF. í grein
IHF koma fram ýmis ósann-
indi og rangfærslur ásamt
tilvitnunum í telex, þar sem
aðeins eru teknar setningar
sem virðast passa inn f mál-
flutning IHF fþessu máli. Þá
er athyglisvert að lesa sífelld-
ar afsakanir IHF í greinar-
gerðinni.
Stjóm HSÍ vill að svo stöddu
aðeins koma á framfæri til
lesenda Morgunblaðsins, sem
áhuga hafa á þessu máli, eftirfar-
andi atriðum. ítarleg greinargerð
verður send síðar:
Meirihluti íslenska stúlkna-
landsliðsins í stúdentaferð
eftlr 20. maí 1987
í lok mars síðastliðnum tilkynnir
Jón Erlendsson, starfsmaður HSÍ,
í símtölum bæði við ritara þýska
handknattleikssambandsins, Bir-
kenfeld, og framkvæmdastjóra
IHF, Bahrke, að eftir 20. maí
fari meirihluti íslenska stúlkna-
landsliðsins í hefðbundna sum-
arfrísferð með skólum sínum að
loknu stúdentsprófi. HSÍ óski þess
vegna eftir og gerir kröfur til
þess að minnsta kosti annar leik-
urinn við Vestur-Þjóðveija fari
ffarn fyrir 20. maí, sem er á því
tímabili, sem leikimir áttu að fara
fram.
í greinargerð IHF er sagt að þess-
ar upplýsingar hafi fyrst komið
fram 20. maí. Það er ósatt.
Bahrke vissi vel um þessar ástæð-
ur okkar löngu áður. Það er alveg
ljóst frá öllum telexum þýska
handknattleikssambandsins og
samtölum við ritara þess, Birken-
feld, að Þjóðveijar leggja alla
áherslu á að leika báða leikina
við íslensku stúlkumar eftir 20.
maí.
í telexi frá Þýska handkanttleiks-
sambandinu 30. mars 1987 kemur
ljóslega fram að þeir gera sér
grein fyrir erfiðleikum HSÍ að
leika eftir 20. maí. En þar segja
þein
„Við vitnum í símtal vegna HM
1987 og tilkynnum yður eftirfar-
andi, eftir að hafa farið nákvæm-
lega yfir málavexti: Við höfum
fullan skilning á vandamálum
ykkar, ef leikimir fara fram í júní.
Aftur á móti verðum við enn einu
sinni að staðfesta, að þrátt fyrir
besta vilja, er ekki mögulegt fyrir
okkur vegna meistarakeppni og
landsleikja að keppa leikina í apríl
eða maí, eins og þið leggið til.
Þess vegna endurtökum við til-
lögu okkar:
6.-8. júní — leikur á íslandi
26.-28. júní — leikur í Þýskalandi
IHF gaf HSÍ ákvörðunarrétt
um leikdaga fyrir helmalaik
stúlknalandsllðsins
í telexi frá HSÍ til IHF þann 23.
apríl er óskað eftir að ísland
ákveði leikdag fyrir fyrri leik land-
anna á fslandi á tímabilinu 16.-21.
maí og Þjóðveijar fyrir seinni leik-
inn og leikið verði í Vestur-Þýska-
landi 19.-21. júní eð 26.-28. júní
eins og Þýska sambandið óski
eftir. I telexi frá IHF 30. apríl
segir orðrétt (sjá meðfylgjandi
telex):
Til handknattleikssambanda ís-
lands og Vestur-Þýskalands:
Efni: Forkeppni stúlknalandsliða
Það er skilningur okkar frá hinum
ýmsu samskiptum ykkar á milli,
að þið getið ekki komist að sam-
komulagi um leikdaga. IHF
ákveður þess vegna, að það er
íslands að ákveða leikdag fyrir
leik þeirra gegn Vestur-Þýska-
landi (samkvæmt mótteknu telexi
á tímabilinu 16.-21. maí). Það er
Vestur-Þýskalands að ákveða
leikdag fyrir leik þeirra gegn ís-
landi (samkvæmt upplýsingum í
telexi, 26.-28. júní). Við vonumst
eftir samþykki ykkar og sendum
ykkur okkar bestu kveðjur.
Alþjóða handknattleikssam-
bandið Curt Wadmark,
formaður tækninefndar.
Joerg Bahrke, framkvæmda-
stjóri
Það er alveg ljóst af þessu telexi
IHF, að það er HSÍ að ákveða
dagsetningu á heimaleik stúlkna-
landsliðsins á tímabilinu 16.-21.
maí 1987. HSÍ ákveður þess
vegna leikdag 16. maí en var
reiðubúið til að fresta leiknum til
19. maí. Og var þýska samband-
inu og IHF tilkynnt þetta í telexi
4. maí. Þjóðveijar hafna leik-
dögum HSI og leita allra leiða til
að fá fyrri leiknum frestað fram
yfír 20. maí, þegar þeir vita að
meirihluti íslenska stúlknalands-
liðsins er erlendis í stúdentaferð.
Tækninofnd IHF gengur að-
eins að kröfum ÞJÓðverja
IHF samþykkir þrátt fyrir telex
sitt 30. apríl beiðni Þjóðveija um
að fresta heimaleik íslands. f af-
sökunargreinargerð sinni í
Morgunblaðinu 14. ágúst segir
IHF, að þeir hafi þegar í mars
1987 samþykkt keppnisferð þýska
stúlknalandsliðsins til Banda-
ríkjanna 5.-17. maí. Kemur þetta
svona eftir á mjög spánskt fyrir
sjónir, því í telexi IHF til HSI og
Þýska handknattleikssambands-
ins 30. apríl, skylda þeir Þjóðveija
til að leika á íslandi á tímabilinu
16.-21. maí 1987. Þegar IHF
(Curt Wadmark) gengur svona
gjörsamlega á bak við ákvörðun
sína frá 30. apríl óskar HSÍ þess
vegna eftir að leika báða leikina
í september 1987, sem Þjóðveijar
hafna.
IHF hðtar að útiloka íslenska
stúlknalandsliðlð
Að morgni 22. júní berst HSÍ telex
frá IHF með tilkynningu um að
lið íslands verði dæmt úr keppni,
gangi HSÍ ekki að þeim leik-
dögum, sem Þjóðveijar og IHF
hafí nú ákveðið. Svar skuli berast
skrifstofu IHF fyrir kl. 13 (svissn-
eskum tíma) eða kl. 11 að íslensk-
um tíma. Formaður HSÍ leit við
á skrifstofu HSÍ kl. 11.30 af til-
viljun og sá þá þetta telex IHF.
Að höfðu samráði við landsliðs-
nefnd kvenna er IHF svarað með
telexi 22. júní sem berst skrif-
stofu IHF kl. 14.02 eða kl. 12.02
að íslenskum tíma. Gengið er að
síðustu ósk Þjóðveija um að leika
báða leikina í Vestur-Þýskalandi
4.-5. júlí 1987, heldur en að láta
dæma stúlknaliðið úr keppninni.
Þá er farið fram á að þýska sam-
bandið greiði 50% af ferðakostn-
aði íslenska liðsins, þar sem þeir
losni við að koma til íslands.
Bemhard Thile og Þýska
handknattlelkssambandlð
kreQast þess að IHF vísl
íslenska stúlknalandsllðinu
úr HM forkeppnlnnl
Sama dag kl. 15.50 (13.50 að
íslenskum tíma) berst HSÍ telex
frá Þýska handknattleikssam-
bandinu, sem er afrit af telexi
þeirra til IHF og þar sem farið
er fram á að IHF vísi íslenska
stúlknalandsliðinu úr keppninni,
þar sem svar HSÍ hafi ekki borist
skrifstofu IHF fyrir kl. 13.00.
í greinargerð IHF til Morgun-
blaðsins er ekki minnst einu orði
á þessa beiðni Þýska sambands-
ins, þar segir aðeins:
„22. júní Telex HVÞ til IHF.
tS’t lt 1t u*"t*"í*Ií«"d tó ,h» >*•» th«r#/or» doc14o>
tr”f"V * " 'p ,l»- rorrlvrd o*r1od°a<ý l*r."»i|, to
t|». iófe'jm *«".<I*5I °f ,h*,r ••,ch lcolood ( «rrordlra to
Jo- r« b4kr>> ■ ðlrorlor
Telex-skeytin sem vitnað er í í grein-
inni
Upplýsingar um að lýstum flár-
kröfum HSÍ fyrir því að leika
báða leikina í Vestur-Þýskalandi
sé ekki hægt að ganga að.
Ágætu íþróttafréttamenn og
áhugamenn um handbolta og
þetta mál. í greinargerð IHF sem
birtist í Morgunblaðinu 14. ágúst
er IHF sífellt að geta þess að
formaður Þýska handknattleiks-
sambandsins, Bemhard Thile,
hafi ekki komið nálægt því að
vísa íslenska stúlknalandsliðinu
úr keppninni, en þessi Thile á
einnig sæti í Tækninefnd IHF með
Curt Wadmark og Qórum öðrum,
Erik Larsen frá Danmörku,
Fredrich Duscha, frá Austurríki,
Lucian Grigorescu frá Rúmeníu
og Alexander Kozhukov frá Sov-
étríkjunum."
HSÍ óskar eftir að ljósrit af ofan-
nefndu telexi verði birt, þannig
að sjá má hlut Bemhard Thile og
IHF í þessu máli. Telex þetta
hljóðar annars þannig:
„Telex nr. 0064 22.06.87 15.50
Deutscher Handball Bund.
Til upplýsinga fyrir HSÍ. Heims-
meistarakeppni stúlknalandsliða
1987 — forkeppni.
Ágætu handknattleiksvinir.
Við vitnum í viðtöl þann 21. júní
í sambandi við ofannefnt málefni
milli Rinkenburger, Hahn og
Bahrke svo og Thile, Glock og
Birkenfeld og leggjum til eftirfar-
andi:
1. HSÍ tók ekki fyrr en kl. 14.00
þann 22. júní afstöðu til hinna
umdeildu _ útsláttarleikja, þó
svo að HSÍ hafi fengið úrslita-
frest frá IHF (Bahrke fram-
kvæmdastjóra) til kl. 13.00 og
hótun um útilokun ella.
2. Fjárhagslegar kröfur HSÍ get-
um við ekki uppfyllt, þannig
að það er eftir sem áður spurn-
ing hvort leikimir geti farið
fram.
3. Við gefnar kringumstæður er
ekki (samkv. upplýsingum frá
Bahrke) lengur hægt að draga
að taka endanlega ákvörðun.
4. Það átti að gerast fyrir kl.
15.00 þann 22. júní samkvæmt
yfírlýsingu fulltrúa IHF í
Strassburg.
Við gefnar kringumstæður teljum
við framkvæmd útsláttarleikj-
anna, samkvæmt reglugerðum
vegna tímaskorts, ekki mögulega,
eftir að HSÍ hefur hvað eftir ann-
að ekki haldið tímamörk, sem IHF
hefur gefið og við göngum út frá
því að íslenska liðið verði útilokað
og þýska liðið komist því beint
áfram.
Skeyti sent samtímis til IHF.
Með vinarkveðjum,
Handknattleikssamband
Vestur-Þýskalands,
Frank Birkenfeld, ritari."
Af þessu telexi kemur greinilega
í ljós að Bemard Thile, nefndar-
maður í tækninefnd IHF hefur
verið með um að leggja á ráðin
að vísa íslenska stúlknalandslið-
inu úr keppninni.
Tók Curt Wadmark elnn ák-
vöröunina um að vfsa
íslenska stúlknalandsliöinu
úr keppnlnnl?
IHF vísar til þess í greinargerð
sinni í Morgunblaðinu að meiri-
hluti tækninefndar IHF hafí verið
því fylgjandi að vísa íslenska
stúlknalandsliðinu úr keppninni.
í símtali við Erik Larsen, ritara
danska sambandsins, 14. ágúst,
þá staðfestir hann, að ekki hafi
verið haft samband eða samráð
við hann um þetta málefni og
enginn fundur hafi verið haldinn
hjá tækninefnd IHF um þetta
málefni 22. júní eða á öðrum tíma.
Það er því ljóst að þetta er ákvörð-
un Curt Wadmarks að beiðni
Bemards Thile, formanns Vest-
ur-þýska handknattleikssam-
bandsins og nefndarmanns í
tækninefnd IHF.
Lokaorð
HSÍ hefur mikinn áhuga á að efla
iðkun handknattleiksíþróttarinnar
meðal stúlkna og íþróttaanda í
alþjóðlegum samskiptum þjóða í
milli. Því mun stjom HSI ekki
sætta sig við óíþróttamannslegan
yfirgang tækninefndar IHF imdir
forystu Curt Wadmarks. HSÍ hef-
ur oft þurft að standa upp á
þingum IHF og veija yfirgang
IHF gagnvart smáþjóðum. HSI
hefur einnig lagt til gagngerar
breytingar innan IHF sem njóta
ekki fylgis ýmissa stjómarmanna
IHF, sérstaklega Curt Wadmarks
og Bemards Thile, t.d. í sambandi
við félagsskipti milli landa og fyr-
irkomulag heimsmeistarakeppni
og forkeppni fyrir Ólympíuleika.
Stjóm HSÍ mun leita réttar síns
í þessu máli, hafa samband við
stjómarmenn IHF og þá sérstak-
lega aðila í tækninefnd IHF og
vinna að því, að Curt Wadmark
verði ekki áfram í stjóm IHF.
Reykjavík 14.08.1987
Jón Hjaltalín Magnússon,
formaður HSÍ.
KR-dagurinn
ídag
Hinn árlegi KR-dagur verður á
svæði félagsins við Frostaskjól
í dag og hefst dagskráin klukkan
12 með tveimur leikjum í úrslita-
keppni íslandsmóts 3. flokks
kvenna í knattspymu.
Leikir verða í 3.-7. flokki karla í
knattspymu, Jón Páll og fleiri
kraftakarlar sýna listir sínar, glíma
er á dagskránni svo og fímleikar,
borðtennis, badminton og poka-
hlaup milli deildarstjóma.
KR-konur annast kaffíveitingar í
félagsheimilinu og em allir vel-
komnir, en forráðamen ungra
KR-inga em sérstaklega hvattir til
að koma og kynna sér æskulýðs-
starfið.
Víkingar
með skóla
Víkingar verða með handbolta-
skóla fyrir 7-13 ára krakka
næstu tvær vikurnar í Réttar-
holtsskóla. Kennarar verða
landsliðsmennirnir Þorsteinn
Jóhannesson og Inga Lára Þór-
isdóttir. Innritun verður nú um
helgina íVíkingsheimilinu.
GOLF
Hitatchi
mótið í dag
HITATCHI mótið í golfi verður
haldið á Svarf hólsvelii á Sel-
fossi í dag, 15. ágúst.
Mót þetta hefur alltaf verið
eitt það §ölmennasta á Sel-
fossi og er búist við góðri þátttöku.
Ræst verður klukkan 8.30. Mjög
góð verðlaun em að vanda, þeirra
á meðal litsjónvarp og vídeó fyrir
að fara holu í höggi.
Sveitakeppni
unglinga
NÚ um helgina fer fram sveita-
keppni 16-21 árs unglinga í
golfi á Garðavelli, Akranesi.
Amótinu keppa margir af
fremstu golfleikuram lands-
ins. Meðal þeirra verður nýkrýndur
íslandsmeistari, Úlfar Jónsson,
Golfklúbbnum Keili.
Læknamót
Oopinbert íslandsmót lækna í
golfi, Toro-mótið, verður á
Nesvellinum á mánudaginn og verð-
ur ræst út klukkan 14-15. Öllum
læknum er heimil þátttaka, en mó-
tið fór fyrst fram í fyrra.
HANDBOLTI
Stjaman
með skóla
Stjaman Garðabæ starfrækir
handknattleiksskóla fyrir
drengi og stúlkur á aldrinum 6-16
ára dagana 17.-31. ágúst og fer
kennsla fram í íþróttahúsinu Ás-
garði. Skipt verður í hópa eftir getu
og aldri, farið verður í flest atriði
handknattleiks og landsliðsmenn
koma í heimsókn. Veittar verða
ýmsar viðurkenningar og þá verða
myndbandaupptökur og sýningar.
Aðalkennarar verða Magnús Teits-
son, Logi Ólafsson og Gunnar
Einarsson. Skólinn hefst í Ásgarði
á mánudaginn klukkan 9, en nán-
ari upplýsingar fást í síma 41451.