Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 53 ^ Morgunblaðið/Ámi Sæberg Ahöfnin í gæslufluginu I gær við komuna til Reykjavíkurflugvallar. Frá vinstri: Tómas Helgason flug- maður, Guðjón Jónsson flugstjóri, Vilbergur Magni Óskarsson stýrimaður, Jón E. Björnsson loftskeyta- maður og Omar Karlsson stýrimaður. Þriggja áratuga far- sælt gæsluflug að baki Guðjón Jónsson við stjórnvölinn á Fokkerflugvél Landhelgisgæslunn- ar i síðustu ferð sinni. Guðjón Jónsson flugstjóri hjá Landhelgisgæslunni fór í sitt síðasta flug fyrir hana í gær og kvaddi fyrirtækið eftir rúmlega þriggja áratuga farsælt starf. Við komuna til baka á Reykjavík- urflugvöll var tekið höfðinglega á móti honum af samstarfsmönnum hans í Landhelgisgæslunni. Var Guðjón hylltur með dynjandi lófa- taki er hann steig frá borði og flugmenn gæslunnar skipuðu sér í heiðursröð fyrir framan landgang- inn. Búið hafði verið til veislu í flugskýli Landhelgisgæslunnar. Gunnar Bergsteinsson forstjóri hennar hélt stutta tölu og þakkaði Guðjóni störf hans við uppbyggingu flugdeildar Landhelgisgæslunnar, sem hann ætti stóran hlut í. Kvaðst hann ætla að Guðjón væri frum- heiji sem lengi yrði minnst. Guðjón þakkaði sýndan hlýhug, samstarfs- mönnum sínum samstarfið um árin og Pétri Sigurðssyni fyrrum for- stjóra Landhelgisgæslunnar fyrir að hafa sýnt sér það traust að ráða sig í upphafi. Páll Halldórsson yfir- flugstjóri Landhelgisgæslunnar bar því næst Guðjóni þakkir samflug- manna hans hjá gæslunni fyrir samstarfið og og kvaðst aðeins eiga bjartar minningar um það. Færði hann Guðjóni gjöf frá flugmönnum og blómvönd. Guðmundur Ingi- marsson, elsti starfandi flugvirki Landhelgisgæslunnar, þakkaði að lokum Guðjóni samstarfið um árin fyrir hönd flugvirkjanna og færði honum gjöf og blóm frá þeim. Var síðan gengið til borðs. Hefur starfað síðan reg’lubundið gæsluflug hófst Guðjón hefur starfað hjá Land- helgisgæslunni síðan reglubundið gæsluflug á hennar vegum hófst árið 1955, þegar fyrsta flugvélin var keypt, TF-RÁN, sem var flug- bátur af gerðinni Catalina. Flugmannsskírteinið fékk Guðjón árið 1947 að loknu námi við Spart- an School of Aeronautics í Tulsa, Oklahoma í Bandaríkjunum. Hann kom heim og kenndi fyrsta árið hjá flugskólanum Pegasus, eða til vors 1949. Þá réð hann sig á björgunar- flugvél á Keflavíkurflugvelli. Á þeim tma var flugvöllurinn undir umsjón bandarísks einkafyrirtækis, fram til ársins 1951, þegar banda- ríski herinn tók við vellinum. Guðjón réðst þá til Flugmálastjómar og vann við flugumsjón þar til hann hóf störf hjá Landhelgisgæslunni árið 1955. Talsvert erfiðara en venjulegt farþegaflug Guðjón verður sextugur síðar í þessum mánuði. Reglum sam- kvæmt eiga flugmenn Landhelgis- gæslunnar að hætta störfum við þau tímamót, en geta fengið undan- þágu til 63 ára aldurs. Guðjón sagði í samtali við blaðamann að það hvarflaði ekki að sér að sækja um það. Því fyrr sem menn færu úr starfí því meiri möguleika hefðu þeir á að finna sér eitthvað annað að gera. Sextugsaldur væri ekki ýkja hár og það væri ekki hægt að setjast í helgan stein á þeim aldri. Hann gerði því ráð fyrir að fínna sér eitthvað annað að vinna að loknu sumarfríi, sem hann færi í nú. Starfsemi við flug gæslunnar hefur farið fram í sömu skýlunum á Reykjavíkurflugvelli síðan 1958 að sögn Guðjóns. Aðspurður hvem- ig tilfínning það væri að vinna sinn síðasta vinnudag eftir þrjátíu ára starf á sama stað, sagði Guðjón að allt væri það nú heldur óraunveru- legt fyrir sér ennþá. Af sínum langa starfsferli segist Guðjón ekki hafa frá neinum svaðil- fömm að segja. Hann hafí ekki lent í neinum óhöppum og aldrei verið í lífshættu svo hann vissi. „Það er ekki svaðilför þegar maður kemur til baka á réttum tíma,“ segir hann. Hann ætlar alveg að hætta að fljúga nú, segist vera orðinn þreyttur eftir svo mörg ár hjá Landhelgisgæsl- unni. „Þetta er allt annað en farþegaflug," segir hann, „talsvert erfíðara. Við fljúgum nær alltaf lágflug. Þá er ókyrrð oftast nær meiri í loftinu og því erfiðara að fljúga. Við þurfum líka oft að fljúga við slæm skilyrði og maður verður þreyttur með ámnum.“ Aðspurður segist Guðjón eiga um 14300 flug- stundir að baki. Oskalistinn langnr eftir tækjum Flugfloti Landhelgisgæslunnar telur nú eina Fokkerflugvél og tvær franskar þyrlur af Dolphin og Ec- ureuil gerð. Aðspurður hvort gæslan sé nógu vel tækjum búin segir Guðjón að við séum fáir og smáir og verðum að sníða okkur stakk eftir vexti. Óskalistinn sé langur. Bæði vanti ýmis tæki og mörg þurfí að endumýja. Sem dæmi nefnir hann radarinn í Fokkervél gæslunnar sem hafi aðeins 120 gráðu sjónsvið framfyrir vélina, en þyrfti að ná yfír 360 gráður. Guðjón er að lokum spurður hvort hann vilji koma einhverju á fram- færi á þessum tímamótum. „Ég þakka öllum sem ég hef starfað með héma,“ segir Guðjón. „Ekkert hefði gengið upp nema með mjög góðu samstarfí þeirra sem hér vinna. Áhöfnin hefur alltaf unnið sem einn maður. Og starf Landhelgisgæslunnar gengi ekki nema menn væru í þessu starfí af áhuga, ekki bara í vinnunni. Hér hafa menn alltaf reynt að leysa málin eins og best var hægt hverju sinni." Landspítalinn: Kiwanishreyf- ingin styður ung- lingageðdeildina Söfnuðu rúmum 6,5 milljónum KIW ANISHRE YFIN GIN hefur formlega afhent Unglingageð- deild Landsspitalans uppgjör vegna söfnunar á K-daginn 18. október, en þann dag seldu Kiw- anismenn og fjölskyldur þeirra, K-lykilinn undir kjörorðinu „Gleymum ekki geðsjúkum". Söf- uðust samtals 6.539.894,24 sem rann óskipt til unglingageðdeild- arinnar. í frétt frá geðdeild Landsspítal- ans segir að: „Vegna framlags Kiwanismanna tókst að ljúka þeim hluta unglingageðdeildarinnar sem þegar hefur verið tekin í notkun, nokkru fyrr en áætlað hafði verið. Stofnun unglingageðdeildarinnar mætir brýnni þörf unglinga til greiningar og meðferðar á geðkvill- um hvers konar, þar með talin misnotkun áfengis og annarra vímuefna. Miklar væntingar eru bundnar við unglingageðdeildina um að þar megi greina og lækna ýmsa geðkvilla áður en í svo mikið óefni er komið að ekki ráðist við neitt." Þá kemur fram að Kiwanishreyf- ingin hefur stutt með fjárframlög- um á undanfömum árum, endurhæfíngu geðsjúkra um allt land. Með það í huga hefur söfnun- arfénu verið beint til þjálfunar- vinnustaða, húsnæði fyrir endurhæfingastöðvar og nú síðast til unglingameðferðar. Þrátt fyrir að stærstu átök Kiwanishreyfíngar- innar hafí verið í þágu geðsjúkra hefur hún einnig stutt aðrar fram- kvæmdir innan heilbrigðiskerfísins, eins og kaup á eldvamarkerfí fyrir Kópavogshæli. (Úr fréttatilkynningu) Veislu-fiskbúðingur. Heimalagaður fiskbúðingur Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Veislu-fiskbúðingur 500 g fískflök, helst ýsa IV2 tsk. salt dál. pipar 2 dl sýrður ijómi 2 dl ijómi V2—1 dl graslaukur Fiskurinn skorinn í bita og síðan tættur sundur í blandara eða með hrærivél. Egg, sýrður ijómi og ijómi sett saman við og hrært vel, kryddað að smekk og síðast er brytjaður graslaukurinn settur saman við. Ef hafa á með fyrmefnt góðmeti, rækjur eða reyktan lax, er hægt að setja það í lag í miðjum búð- ingnum eða ofan á. Aflangt form er smurt, fyllt að hálfu og lax- sneiðar eða rækjur settar yfir, síðan það sem eftir er fisksins þar ofan á. Búðingurinn soðinn í vatnsbaði í ca. 1 klst. Aðeins látið ijúka áður en hvolft er úr form- inu. En búðinginn má einnig bera fram kaldan með sósu. Sósan: 1 dl sýrður rjómi 1 dl fínt brytjuð steinselja 1- 2 tsk. appelsínusafi 2- 3 matsk. rifin piparrót Kryddað að smekk. Fiskbúðinugr I 500 g fiskflök, ýsa eða þorskur 2 egg 4 matsk. bráðið smjör 5 dl bland, ijómi og mjólk til helm- inga IV2 matsk. kartöflumjöl salt og pipar Fiskurinn hakkaður (2-3 sinn- um) eða tættur í sundur og hrærður í vél. Eggin em þeytt áður en þau em sett saman við ásamt bráðnu köldu smjöri, ijómablandi, kartöflumjöli og kryddi. Ef notaður er blandari er best að setja helming vökvans fyrst í ásamt helmingi físksins, tæma blandarann og setja svo hinn helminginn. Að því loknu er sett saman við allt farsið það sem fara á í. Sett í smurt form og soðið í vatnsbaði í pönnu eða ofni við 200°C í um það bil 1 klst. Fiskbúðingur II 500 g hakkaður fískur (ýsa eða þorskur) 3-4 soðnar kartöflur 2 matsk. hveiti 1 matsk. kartöflumjöl ca. V2 tsk. lyftiduft 1 egg salt og pipar Fiskurinn og kartöflumar í bit- um sett í hrærivélarskál, hrært hveiti, kartöflumjöli og lyftidufti sáldrað yfir. Egg og krydd sett saman við ásamt dál. mjólk ef þurfa þykir. Farsið sett í smurt form og soðið í vatnsbaði, í pönnu eða potti, í ca. 1 klst. Ef búin er til tvöföld uppskrift er hægt að steikja búðinginn í sneiðum síðar og er þá allfrábrugðinn matur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.