Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. ÁGÚST 1987 49 Minning: Sölvi M. Sigurðs- son frá Undhóli Fæddur 3. október 1897 Dáinn 20. júní 1987 Mig langar til að minnast afa míns Sölva með nokkrum línum þótt ekki verði hér rakið allt sem vert væri um ævi hans og störf. Fyrir mig var hann fyrirmynd, sem aldrei mun gleymast, traustur og einlægur vinur, auk þess að vera mér hugljúfur afi, sem ég gat alltaf komið til og rætt málin við fram til hins síðasta. Hann var ætíð tilbúinn til að hlusta og fræða og öllum vildi hann gott gera er hann hafði samskipti við. Þar sem afi hafði alltaf gaman af ljóðum finnst mér vel viðeig- andi að hafa yfir eftirfarandi ljóðlínur, sem eiga svo vel við um hann: „Og er það ekki mesta gæfa manns, að milda skopi slys og þrautir unnar, að finna kímni í kröfum skaparans, og kankvís bros í augum tilverunnar." Þannig orkti Öm Amarson. Afi kynntist mörgu á langri ævi og þurfti oft að takast á við tilver- una, sem ekki var alltaf blíð og góð við hann. Einkum var það honum mikið áfall að missa sjónina á góðum aldri, en einmitt þá, þeg- ar á móti blés, sýndi hann hvað best hve sterkur hann var og hve fjarri það var honum að gefast upp, það var eins og hvert mót- læti efldi hann og rósemin var alltaf hin sama. Aðeins nokkmm dögum fyrir andlátið talaði hann um hvenær hann gæti aftur farið að vinna, en hann starfaði við burstagerð hjá Blindravinafélaginu eins og heilsan leyfði fram að síðustu spítalavist. En þrátt fyrir erfið- leika, kom alltaf fram kímni hans, stundum með hnyttnum tilsvömm og jafnvel í bundnu máli. Mér er sagt að fyrr á ámm er hann bjó í Skagafirði hafí hann starfað mikið að ýmsum félags- málum í sveit sinni, m.a. lengi í hreppsnefnd Hofshrepps, og hafi verið vandfundnir menn, sem gegnt hefðu slíkum störfum með meiri vandvirkni og trúmennsku en hann gerði. Afí Sölvi fæddist á Spáná í Unadal, sem liggur upp frá Höfða- strönd í Skagafírði, þann 3. október 1897, og var næstelstur sjö systkina. Foreldrar hans vom hjónin Margrét Baldvinsdóttir og Sigurður Ólafsson, sem þar bjuggu. Hann var Skagfirðingur í báðar ættir og fór hann aldrei leynt með hve vænt honum þótt um Skagafjörðinn og norðlenskar byggðir. Þessi vísa er úr kvæði er hann orkti um æskustöðvamar: Horfi ég hátt í norður um heiðar og fjallaskörðin í blámóðu sé ég blika á blessaðan SkagaQörðinn. Fimm ára að aldri fór hann í fóstur til Jóhönnu Jónasdóttur og Jóhannesar Eyjólfssonar, sem þá bjuggu á Undhóli í Óslandshlíð og ólst hann upp hjá þeim, þar til hann fór í bændaskólann á Hólum í Hjaltadal, en þaðan útskrifaðist hann árið 1919. Eins og margir af aldamótakynslóðinni átti afi sína drauma um frjálst land og umbætur í íslensku þjóðlífí. Hugur hans stóð til að læra meira, en efnin vom lítil og því var ekki um frekari skólagöngu að ræða, og réð hann sig því til starfa á bænda- býli á eyju við vesturströnd Noregs. í Noregi dvaldi hann um fimm ára skeið og starfaði á búgörðum, og kynntist þar mörgu sem nýstár- legt var fyrir íslendinga. Þegar heim kom starfaði hann um skeið við Vífílsstaðabúið, en síðar lá leið hans aftur til Norðurlands því þangað leitaði hugurinn alltaf. Starfaði hann um tíma við Hóls- búið á Siglufírði, en þar kynntist hann ömmu, Halldóm Guðnadótt- ur, sem var ekkja er starfaði við matseld og þjónustu fyrir báta sem gerðu út fra' Siglufírði. Þau giftust 5. nóvember 1929 og fluttu_ á æskuheimili afa á Undhóli í Ós- landshlíð og tóku þar við búi. Tvö börn Halldóm frá fyrra hjónabandi, Auður og Ragnar, fluttu þangað með þeim og ólust þar upp til fullorðinsára. Afi og amma bjuggu á Undhóli í 30 ár. Þau eignuðust einn son, Jóhannes Gísla, en mörg böm dvöldu hjá þeim um lengri eða skemmri tíma. Gestkvæmt var á Undhóli, einkum á sumrin, enda er mér sagt að öllum hafi verið tekið þar opnum örmum, og ætíð reynt að veita sem best hveijum sem að garði bar. Þegar afi var um sextugt fór sjónin að bila og varð það til þess að hann brá búi og flutti til Reykjavíkur 1959. Hann starfaði um nokkurra ára skeið í ísbirninum á Seltjamamesi en síðan lá leiðin í vinnustofu Blindravinafélags Islands í Ing- ólfsstræti og starfaði hann þar í næstum 20 ár. Amma dó 2. júní 1969 og var það honum mikill missir, því þau voru mjög samrýnd og höfðu kom- ið sér upp hlýlegu heimili á Holtsgötu 31 í Reykjavík. Nú þeg- ar afi er horfinn, lifír minning um góðan mann, sem víða lagði hönd á plóginn. Ég held að fáir hafí þann and- lega styrk sem hann hafði og þennan óbilandi vilja til að sigrast á erfiðleikunum. Það þarf þrek og þor til að ferðast einn og blindur til New York þegar hann var orð- inn áttræður, og að fara á hveiju sumri um langt árabil norður til æskustöðvanna að heimsækja vini og kunningja. En einmitt þetta var honum svo mikils virði — að vera þátttakandi í lífí og starfi og vinna þannig bug á þeim annmörkum, sem tilveran hafði fléttað inn í líf hans. Um leið og ég kveð afa minn með þessum fátæklegu kveðjuorð- um, vil ég þakka honum það veganesti, sem hann gaf mér og svo mörgum öðrum, með því að vera sú fyrirmynd í lífi og starfi sem prýða myndi flesta — maður sem vann störf sín af samvisku- semi, einbeitni og æðruleysi. Far þú í friði, friður guðs þig blessi. Hafðu þökk fyrir allt og allt. (V. Briem.) Helga Jóhannesdóttir ORÐSENDING FRÁ IÐNLÁNASJÓÐI UM BREYTT ÚTLÁNAKJÖR Frá og med 15. ágúst kemur til framkvæmda breyting á útlánakjörum Iðnlána- sjóðs og eru þau sem hér segir: Vélalán háð lánskjaravísitölu 7,5% vextir Byggingarlán háð lánskjaravísitölu 8,5% vextir Útlán bundin gengi SDR 8,5% vextir Lán vöruþróunar- og markaðsdeildar háð lánskjaravísitölu 5,0% vextir Byggingarlán undir kr. 5.000.000,00 eru háð lánskjaravisitölu en yfir kr. 5.000.000,00 bundin gengi SDR. Vélalán undir kr. 250.000,00 eru háð lánskjaravísitölu, en vélalán yfir kr. 1.000.000,00 bundin gengi SDR. Við töku vélalána þar á milli getur lántaki valið hvor útlánakjörin hann tekur. Samsvarandi breyting verður á útistandandi lánum, þar sem ákvæði skuldabréfa heimila slíkt. IÐNLÁNASJÓÐUR IÐNAOARBANKINN LÆKJARGÖTU 12, 101 REYKJAVlK, SÍMI 691800
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.