Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 15.08.1987, Blaðsíða 36
Dagvist hvítasunnusafnaðarins: Fær 1500 þús. kr. styrk Morgunblaðið/KJ S Talsverður mannfjöldi var samankominn tíl að hlusta á hljómsveitírnar flytja lög í göngugötunni í fyrra- kvöld. Upphitun hafin í göngugötunni BÆJARSTJÓRN hefur ákveðið að úthluta hvitasunnusöfnuðinum 1500 þúsundum króna á árinu til byggingar dagvistarheimilis við Skarðshlíð og að sögn Varðar L. Traustasonar, forstöðumanns safnaðarins, vantar um þijár millj- ónir króna til að ljúka verkinu. Vörður L. Traustason sagði í sam- tali við Morgunblaðið fyrir skömmu að eftir væri að ganga frá lóð og innréttingum og sagði hann þá hvíta- sunnumenn stefna að því að taka dagvistina í notkun í kringum ára- mótin. HUÖÐBYLGJAN AKUREYRI 10.00 Barnagaman. Þáttur fyrir yngstu hlustendurna, tónlist og viðtöl. Umsjón Hanna B. Jónsdóttir og Rakel Braga- dóttir. 12.00 í hádeginu. Þáttur í umsjón Pálma Guðmundssonar. 13.00 Fréttayfirlit á laugardegi I umsjón Friðriks Indriðasonar, fréttamanns Hljóöbylgjunnar. 14.00 Uf á laugardegi. íþróttaþáttur í umsjón Marínós V. Marínóssonar. 16.00 Al /örupopp. Tónlistarþáttur í um- sjón Ingólfs Magnússonar og Gunn- laugs Stefánssonar. 19.00 Létt og laggott. Þáttur í umsjón Hauks Haukssonar og Helga Jóhanns- sonar. 23.00 Næturvakt Hljóðbylgjunnar. SVÆÐISÚTVARP AKUREYRI 18.00 (þróttir helgarinnar á Norðurlandi. Þörf á dagvistarrými fyrir böm á Akureyri er nú talsverð, og hátt á þriðpa hundrað böm em á biðlistum. Pláss verður fyrir 78 böm hálfan daginn á dagvist hvítasunnusafnað- arins, sem jafnframt verður fyrsti kristni leikskólinn í landinu, eins og Vörður orðaði það. „Ástæðan fyrir því að farið var af stað með að reisa þessa dagvist var sú að við vildum gefa fólki kost á að senda bömin sín á leikskóla þar sem kristnifræðsla færi fram,“ sagði Vörður. „Það þýðir þó ekki að þar verði einungis starfandi ofsatrúar- fólk, heldur gemm við einungis kröfttr um að þeir séu kristnir ein- staklingar og hafi sömu menntun og kröfur em gerðar um á öðmm leik- skólum," sagði hann. Vörður var að því spurður hve hár kostnaður við bygginguna væri orð- inn og sagði hann að búið væri að leggja um 10 milljónir króna í hana nú þegar. „Við höfum gert þetta að miklu leyti í sjálfboðavinnu síðan hafíst var handa 1980, og höfum reynt að haga framkvæmdum þannig til að við skuldum ekkert," sagði Vörður, en þeir hvftasunnumenn ætla síðan að halda áfram og byggja við leikskól- ann kirkju, en þama verða þeirra aðalstöðvar í framtíðinni. Áður en hvítasunnusöfnuðurinn fær þessu fé úthlutað verður að ganga frá samstarfssamningi milli bæjarins og safnaðarins um rekstur dagvistarinnar. FYRSTA uppákoman á pallinum í göngugötunni var i fyrrakvöld á vegum Hljóðbylgjunnar, sem útvarpaði allri dagskránni beint. Talsverður fjöldi var samankom- inn til að fylgjast með dag- skránni, sem hófst klukkan 20 og stóð fram eftir kvöldi. Dagskráin samanstóð af ýmsu efni. Hljómsveitimar Sniglabandið, Apex og Bítlavinafélagið komu fram, svo nokkuð sé nefnt, og einn- ig birtust fallhlífarstökkvarar ofan úr himinhvolfínu, en þeir freistuðu þess að lenda á sjálfum pallinum. Pallurinn í göngugötunni er öll- um til frjálsra afnota, fram að afmælishaldinu 29. ágúst, sem vilja standa fyrir einhveijum skemmtun- um, en meiningin var að með því móti gætu bæjarbúar hitað upp fyrir hátíðarhöldin. NEFND um húsnæðismál Nátt- úrufræðistofnunar Norður- lands skilaði tillögum sínum í vikunni, en i tilefni af form- legri sameiningu Náttúrugripa- safnsins og Lystigarðsins um næstu áramót var ákveðið í bæjarstjórn að láta fara fram könntm á húsnæðisþörf hennar með tilliti til þeirra hugmynda sem fram hafa komið um hlut- verk hennar. Tillögur nefndar- innar eru tvennskonar; í fyrsta lagi er lagt til að reist verði 2400 fermetra hús vestan Lysti- garðsins og í öðru lagi er gert ráð fyrir að teknar verði upp viðræður við ríkisvaldið um þátttöku þess í rekstri stofnun- arinnar og að lagður verði grundvöllur að vísinda- og gagnamiðstöð á Akureyri, sem samtals verði um 4400-4800 fermetrar að stærð. Þá tekur nefndin undir hugmyndir sem fram hafa komið um að tengja stofnunina minningu Jónasar Hallgrimssonar, þjóðskáids og náttúrufræðings, og miða framkvæmdir við að hún verði tekin í notkun árið 1995, á 150 ára ártíð hans. Verkefni neftidarinnar var tvíþætt; að kanna húsnæðisþörf Náttúrufræðistofnunar Norður- lands og í annan stað að kanna möguleika á samstarfí við aðra aðila um rekstur stofnunarinnar. í greinargerð nefndarinnar segir að ljóst sé að húsnæðisþörf stofn- unarinnar ráðist m.a. af því hvers konar og hversu víðtæk samvinna takist á milli hennar og annarra aðila. Tómas Ingi Olrich, formaður nefndarinnar, kynnti niðurstöður Tómas Ingi Olrich hennar á miðvikudaginn á blaða- mannafundi og sagði hann að lagðar hefðu verið fram tvær til- lögur á vegum nefndarinnar. Fyrri tillagan felur í sér að reisa sérstakt hús yfír Náttúrufræði- stofnun Norðurlands og er gert ráð fyrir að það verði um 2400 fermetrar að flatarmáli, og er jafnframt bent á lóð vestan Lysti- garðsins sem hentugan kost fyrir slíka byggingu, en hún þykir hafa þann kost að vera rúmgóð og bjóða upp á talsverða stækkunar- möguleika á húsinu í framtíðinni. I hinni tillögunni er lagt til að bæjarstjóm Akureyrar skipi þriggja manna nefnd sem hafí það hlutverk að taka upp viðræður við ríkisvaldið um þátttöku þess í rekstri náttúrufræðistofnunarinn- ar, og jafnframt á hún að leita leiða, í samvinnu við ríkisvaldið, til að leggja grundvöll að vísinda- og gagnamiðstöð á Akureyri, sem Verði um 4400-4800 fermetrar að stærð, og er í þeirri tillögu einnig bent á lóðina vestan Lystigarðsins sem kjöma fyrir slíka miðstöð, en lóð þessi er í eigu menntaskólans. í seinni tilögunni segir nefndin að gert verði ráð fyrir eftirtöldum stofnunum og húsrými í vísinda- og gagnamiðstöðinni auk hinnar Náttúrufræðistofnun Norðurlands: Lagt til að byggt verði vestan Lystigarðsins Kortið sýnir lóðina vestan Lystigarðsins, þar sem nefndin leggur tíl að Náttúrufræðistofnun Norðurlands rísi og að vísindastarf- semi og gagnavinnsla í samstarfi við ríkið verði komið á fót. Morgunblaðið/KJS eiginlegu Náttúmfræðistofnunar Norðurlands: Kennslustofur í náttúrufræðum; 275 fermetrar, bókasafn og gagnamiðstöð; 600-1000 fermetrar, fyrirlestra- salur og ráðstefnusalur; 900 fermetrar, og þijár íbúðir, sam- tals 200 fermetrar að stærð, fyir húsvörð og gestkomandi vísinda- menn. í hugmyndinni um 600-1000 fermetra bókasafn og gagnamið- stöð felst það að þar verði Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri, Háskólinn á Akureyri, Mennta- skólinn á Akureyri og verk- menntaskólinn með sameiginlegt bókasafn, auk þess sem það verði einnig bókasafn Náttúrufræði- stofnunar Norðurlands. Nefndin bendir á að á sviði náttúruvísinda hafí einstaklingar á Norðurlandi unnið mikið verk, og að hér hafí myndast hefð á þessu sviði og skapast verðmæti, sem beri að hlúa að og varðveita. Þá bendir nefndin á í tillögum sínum að það vísindastarf, sem fram að þessu hefur farið fram í tveimur stofnunum, þurfi að efla, og telur hún góðar líkur á að styrkja megi samstarfsgrundvöll náttúrufræðistofnunarinnar og ýmissa fyrirtækja, einkum opin- berra, sem að náttúrufræðirann- sóknum starfa, eða umhverfísmál- um og heilbrigðis- og menningarmálum. Tómas Ingi Olrich benti sér- staklega á það á blaðamanna- fundinum að málefni háskóla á Akureyri væru í deiglunni á sama tíma og verkefni og húsnæðismál Náttúrufræðistofnunar Norður- lands væru til umræðu, og sagði hann því nú gefast tíma til að taka ákvörðun um hvemig haga skyldi framkvæmd þessa máls, en ekki síðar, þar sem nú væri verið að vinna að uppbyggingu rann- sókna- og menntastofnana samtímis hér á Akureyri. Sagði hann því kjörið tækifæri vera fyr- ir hendi til að nýta sem best mannvirki og tækjakost með því að stofna vísinda- og gagnamið- stöð sem þjónaði öllum þeim menntastofnunum og fyrirtækjum sem hag hefðu af slíkri miðstöð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.