Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C o rtj mití ínb i STOFNAÐ 1913 191. tbl. 75. árg. FIMMTUDAGUR 27. AGUST 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsins Útrýming meðaldrægra kjarnafiauga: Reagan segir að ekkert geti nú tafið samninga Los Angeles, Reuter RONALD Reagan, Bandaríkjaforseti, hélt í gærkvöldi ræðu þar sem hann skoraði á Sovétríkin að tefja ekki lengur samkomulag um eyðingu meðaldrægra eldflauga og hvatti jafnframt til þess að hul- unni yrði svipt af umfangi herafla Sovétmanna. Forsetinn sagði að tilboð Kohls Þýskalandskanslara um að taka niður Pershing-flaug- arnar í Vestur-Þýskalandi hefði í raun „fjarlægt síðustu imynduðu hindrunina" úr vegi fyrir samkomulaginu og ekkert væri því til fyrirstöðu að það mætti nást á næstunni. „Við erum þess vegna vongóð | bak við orðagjálfur þeirra undan- um að Sovétríkin muni sýna að á | farið, sé raunverulegur vilji til að Mótmælendur ganga þúsundum saman til hallar Aquinos. Reuter komast að samkomulagi um meðal- dræg kjamorkuvopn," sagði Reagan og bætti við að ef svo væri, myndu Sovétmenn koma til móts við tillögur Bandaríkjamanna og hætta að setja ný skilyrði fyrir sam- komulagi. Reagan skoraði einnig í ávarpi sínu á Sovétmenn að minnka spenn- una á alþjóðavettvangi með því aflétta leyndinni, sem hvílir yfir umfangi herafla þeirra. Reagan ávarpaði Kremlarleiðtoga beint og sagði: „í fyrsta lagi, gerið opinber útgjöld ykkar til hermála — rétt eins og við gerum. í öðru lagi, birt- ið sovéskri alþýðu og öllum heimin- um upplýsingar um stærð og samsetningu herafla ykkar. í þriðja lagi, opnið umræður í Æðsta ráðinu um hermálastefnuna - á sama hátt og við.“ Forsetinn sagði að að þessurn skrefum stignum, myndi skilningur milli þjóðanna batna og einnig yrði mönnum betur ljós umbótavilji Sov- étmanna i hemaðar-’ og afvopnun- armálum. Ronald Reagan I ræðu Reagans kom einnig fram að hann teldi geimvamaáætlun Bandaríkjamanna hafa verið „rétta ákvörðun á réttum tíma“, og henni yrði haldið áfram. Vil hjálpa Bandaiíkjafor- seta að ná samkomulagi Þýskalandskanslari býðst til að taka niður Pershing-flaugarnar Bonn, Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands, tilkynnti á blaðamanna- fundi í gær að sjötíu og tvær Pershing 1 A-kjarnorkuflaugar, sem Vestur-Þjóðveijar hafa yfir að ráða, yrðu eyðilagðar ef risaveldin kæmust að samkomulagi um að banna allar skamm- og meðaldræg- ar kjarnorkuflaugar á þessu ári. Kohl sagði: „Afvopnunarviðræð- umar í Genf em nú á því stigi að þar kemur brátt að ákvarðanatöku. Það er þess vegna ljóst að Þýska Filippseyjar: Mestu verkfallsátök í valdatíð Aquínos Manila, Reuter. Manila, Reuter. ATHAFNALÍF í helstu borgum á Filippseyjum lamaðist að meira eða minna leyti í gær vegna verk- falla og mótmæla gegna olíuverð- hækkunum stjórnvalda. Lögregla beitti kylfum, vatnsslöngum og skotvopnum til að dreifa mótmæl- endum og talið er að tveir hafi fallið og fjöldi fólks særst í þess- um mestu verkfallsátökum sem orðið hafa í landinu frá því Aqu- ino forseti tók við völdum. Nánast allar opinberar samgöng- ur lögðust niður í Manila er strætis- vagnastjórar lögðu niður störf. Víða hættu verkamenn í verksmiðjum vinnu og nemendur í skólum mættu ekki í tíma. Sumar stjórnarskrifstof- ur voru einnig mannlausar, að sögn embættismanna. Það mun þó ljóst að vinstrisinnum hefur ekki tekist að fá tvær milljónir manna til þess að taka þátt í verkfallinu, eins og þeir hótuðu í fyrradag. Þúsundir manna gengu fylktu liði til hallar Aquinos í miðborg Manila, hrópuðu vígorð gegn forsetanum og sökuðu hana um að vera leikbrúðu í höndum erlendra auðhringa. Um 120 göngumenn voru handteknir. Vinstrisinnaðir verkalýðsleiðtogar sögðu að mótmælum yrði ekki hætt fyrr en olíuverðhækkunin, sem ákveðin var 14. þessa mánaðar, yrði dregin að fullu til baka. Einn þeirra, Crispin Beltran, sagði: „Við viljum minna Aquino forseta og embættis- menn hennar á það, að breyti þau ekki stefnu sinni, verður þeim komið frá völdum, rétt eins og Marcosi [fyrrum forseta]." sambandslýðveldið verður að gera allt sem það getur til þess að þar verði stigið tímamótaskref. Ég vil hjálpa Bandaríkjaforseta til þess að ljúka viðræðunum á árangursríkan hátt.“ Kohl setti nokkur skilyrði fyrir eyðingu Pershing-flauganna, auk þess að risaveldin kæmu sér saman um „tvöföldu núlllausnina". Þau eru: Að ágreiningur um eftirlit með af- vopnuninni verði leystur, að báðir aðilar staðfesti samkomulagið og að báðir haldi sig við tímamörk þau, sem samþykkt verða í samningnum. „Verði þessum skilyrðum fullnægt," sagði Kohl, „er ég tilbúinn til þess að lýsa því yfir í dag að við munum ekki endurnýja Pershing lA-flaug- arnar, heldur taka þær niður.“ Kohl sagðist hafa verið í sam- bandi við ráðamenn í Washington síðustu tvo sólarhringa og að sögn Marlins Fitzwater, talsmanns Hvíta hússins, vissu Bandaríkjamenn af fyrirætlunum Kohls í gær. Hann tók fram að Kohl hefði ekki verið undir neinum þrýstingi frá Bandaríkja- mönnum. Embættismenn í Washington, sem ekki vildu láta nafna sinna getið, sögðu þó í gær að frumkvæði Kohls hefði komið þeim mjög á óvart, og sögðu að þótt það gæti auðveldað risaveldunum að ná samningum, gæti það skapað fleiri vandamál en það leysti og veikt stöðu Bandaríkja- manna í afvopnunarviðræðunum. Sovéska Tass-fréttastofan sagði að yfírlýsing Kohls væri háð mörg- um skilyrðum og svo virtist sem henni væri ætlað að færa frá Bonn til Moskvu ábyrgðina á því að hugs- anlega slitnaði upp úr Genfarviðræð- unum. Moskvuútvarpið sagði tillögu Kohls skref í rétta átt, sem Sovét- menn myndu taka til athugunar. í gær lýsti Kohl því einnig yfir að Manfred Wörner, vamarmálaráð- herra, væri frambjóðandi þýsku stjórnarinnar til embættis fram- kvæmdastjóra NATO. Kohl sagði að framboð Wömers tengdist þó ekki tillögum sínum í afvopnunarmálum. Sjá einnig „Kohl tilnefnir Wömer . . .“ á bls. 26. Bandaríkin: Viðskiptahalli aldrei meiri Washington, Reuter. FRÁ því var skýrt í Washington í gær að viðskiptahalli Banda- rikjanna við útlönd hefði aldrei verið meiri en á öðrum fjórð- ungi þessa árs. Hallinn nam 39,53 miHjörðum Bandarilga- dala eða um 1580 milljörðum íslenskra króna. Fyrr í þessum mánuði skýrði bandaríska viðskiptaráðuneytið frá því að hallinn hefði aukist um 15,71 milljarð dala í júní, sem er mesta aukning á einum mánuði í sögu Bandaríkjanna. Þessar frétt- ir ollu gengisfalli dalsins á gjald- eyrismðrkuðum, en hann hafði verið í sókn um nokkurt skeið á undan. Hvíta húsið hafði spáð því að gengisfall dalsins myndi hjálpa til við að jafna viðskiptahallann, en nú spá efnahagssérfræðingar því að hallinn muni enn aukast í júlí og ágúst, ekki síst vegna hækk- aðs olíuverðs og aukins innflutn- ings Bandaríkjamanna á olíu. Svíar ganga ekki í EB Stokkhólmi, Reuter. Anita Gradin, utanríkisviðskipta- ráherra Svía, útilokaði í gær þann möguleika að Sviþjóð gengi í Evr- ópubandalagið og sagði það ekki geta samrýmst hlutleysi landsins. Helmingurinn af útflutningi Svía fer til markaða í EB-löndum og bæði ríkisstjómin og iðnfyrirtæki hafa ótt- ast að EB muni stórminnka viðskipti sín við Svía eftir að sameiginlegum markaði bandalagsríkjanna verður komið á árið 1992. Embættismenn EB hafa sagt að Svíar geti ekki búist við að vörur þeirra njóti tollfrelsis nema Svíar axli sömu ábyrgð og bandalagslöndin. Gradin sagði hins vegar í gær að Svíar hefðu gert ýmislegt til þess að bijóta niður tollmúra í viðskiptum við EB, og óréttlátt væri að halda því fram að Svíar nytu einir hlunnind- anna af þeim viðskiptum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.