Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987 -- rokksíðan Umsjón: Árni Matthíasson Sykurmolarnir fara brattan Ammæli lag vikunnar í Melody Maker Þær fregnir bárust frá Bret- landi að lag Sykurmolanna Birthday, sem hét Ammæli er það var gefið út á íslandi, hefði verið valið lag vikunnar í breska tóniistartímaritinu Melody Maker. Ekki er hægt að segja að það hafi komið svo mjög á óvart, því flestir vita að tónlist Sykurmolanna er á heimsmæ- likvarða og vel það. Samt er það alltaf svo að mönnum þyk- ir mikið koma til upphefðar sem þessarar þegar tekið er tillit til þess að á Bretlandi er gefinn út grúi laga í viku hverri. Síðustu fregnir af Sykurmol- unum eru síðan þær að sveitin flaug til Bretlands í síðuviðtal við Melody Maker og fleri blöð. Vonandi verður þetta ti! að ýta Molunum hressilega uppávið í Bretlandi. Ekki er síðan langt í frekari útgáfu á Sykurmolatónlist á Bretlandi, en vart þarf að bíða eins lengi eftir næstu plötu og á eftir Ammæli. í kjölfar þess aukna áhuga Breta á Molunum hefur nokkr- um tónleikum á Bretlandi verið bætt á dagskrá fyrirhugaðrar Evrópuferðar. Ljósmynd/BS Sykurmolarnir, „stærsta bílskúrshljómsveit landsins", f bílageymslu ríkisútvarpsins í Efstaleiti. Frð vinstri: Egill B. Hreinsson píanó, Oliver Manouray bandoneon, Birgir Baldursson trommur, Tóm- as R. Einarsson kontrabassi. Dragspil í Heita pottinum Aðstandendur heita pottsins eru greinilega ófeimnir við að leyfa tilbreytingunni að ráða ferð- inni þegar um er að ræða hvaða tónlist erflutt og hvernig. Undan- farnir þrennir tónleikar hafa sýnt það og sannað að bandoneon- hljóðfæriö er vel til þess fallið að spila jass á það. Þar hefur franski bandoneon- leikarinn Oliver Manouray verið á ferðinni með tríói sem skipað er þeim Tómasi R. Einarssyni bassaleikara, Birgi Baldurssyni trommuleikara og Agli B. Hreins- syni píanóleikara. Þeir Oliver hafa leikið klassískan og hálf- klassískan jass í Heita pottinum þrjú kvöld, og síðasta sunnu- dagskvöld voru síðustu tónleikar þeirra að sinni. Tónleikarnir á sunnudags- kvöldið voru ágætlega heppnað- ir, stemmningin góð og minnti óneitanlega á franska uppá- komu. íslendingarnir sem þarna spiluðu sýndu svo ekki varð um viilst aö jasstónlist á Islandi vex ásmegin. Að vísu má segja að vissa ögun hafi vantaö sums staðar. En sé gengið á röðina þá var gaman aö heyra Egil sýna á sér betri hliðina þetta kvöld og hann hefur fest sig í sessi sem jasspíanisti af betri gerðinni. Tómas sýndi það einnig að hann er enginn aukvisi á bassa og stóð fyllilega fyrir sínu. Birgir kemur á óvart hvað varðar tækni og þétt- leika og hann og Tómas héldu bandinu vel saman. Eiga þeir heiður skilinn fyrir það. Þá er það Frakkinn Oliver Manouray sem lék af mikilli innlifun og tilfinningu og ætti hann að láta fleiri njóta bandoneon-leiksins. P.E.P. LjÓ8mynd/BS Oliver Manouray þenur drag' spilið í Heita pottinum. Foringjarnir í Evrópu. Morgunblaðift/Þorkell Af tónleikum Sfðasta fimmtudagskvöld voru þrennir tónleikar f Reykjavík, Gildran hólt tónleika í Duus og Foringjarnir í Evrópu. Þessu til viðbótar hélt nýstofnuð blússveit Bobby Harrison, sem ber heitið Bobby Blues Band, tónleika f Hótel Borg. Blússveit Bobby var skipuö ein- valaliði, en einhver kvartaði yfir því aö meðlimir hennar væru of góðir hljóðfæraleikarar til aö spila blús, þeir væru full kaldir. Það á sjálf- sagt eftir aö breytast með meiri spilamennsku. Foringjarnir spiluðu í Evrópu og spiluðu sitt „happy" rokk. Söngv- arinn var þó illa upp lagður, með einhverja slæmsku í hálsi, og svo fór að hann missti röddina. Ekki létu menn þó deigan síga, því gítarleikari sveitarinnar tók að sér sönginn í hans stað og fórst það vel úr hendi. Gildran var í Duus og lék þar fyrir vel fullu húsi. Glöggir hafa sjálfsagt tekið eftir því að á síðustu Rokksíðu var staðfræði nokkuð brengluð og hér skal upplýst að Gildrusveinar eru ekki lengra að komnir en úr Mosfellsbæ. Hvað sem því líður þá var Gildran í mikl- um ham þetta kvöld og ætlar að spila stíft á næstu vikum. í kvöld verða Bleiku bastarnir eina rokksveitin sem heldur tón- leika, en það verður í Casablanca. Ekki sakar að geta þess að Bleiku bastarnir vöktu mikla athygli á Rykkrokktónleikunum fyrir skömmu og er sveitin á meðal efni- legustu sveita landsins. Jassinn verður síðan á sínum stað í Heita pottinum á sunnudag- inn og þar leika þeir Árni Scheving, Kristján Magnússon, Tómas R. Einarsson og Birgir Baldursson. Bleiku bastarnir á Rykkrokki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.