Morgunblaðið - 27.08.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
57
núna, í fjórðu tilraun. Vegimir,
landslagið og rómantíkin í kringum
rallið er ævintýri líkust. Bíllinn er
betri en síðast og við skulum í
mark,“ sagði Philip.
18. Andy Basset/Alan Roberts,
Fiat 131 Racing, 130 hestöfl.
„Leiðimar eru góðar en erfíðar og
krefjast fullrar einbeitingar. Það er
auðvelt að lenda í óhappi, vegimir
eru mjög misjafnir og maður verður
að halda vöku sinni," sagði Andy.
19. Eiríkur Friðriksson, Datsun
160, 90 hestöfl. „Hef gaman af
rallinu og reyni að vinna minn vélar-
flokk," sagði Eiríkur.
20. Guðmundur Jónsson/
Sæmundur Jónsson, Nissan 240
RS, 220 hestöfl. „Förum varlega
af stað, sjáum svo stöðuna þegar á
líður. Vonast til að ná í verðlauna-
sæti,“ sagði Guðmundur.
21. Jón S. Halldórsson/Guð-
bergur Guðbergsson, Porsche
911,165 hestöfl. „Ætlum að vinna.
Keyrum keppnina eins og um stutta
keppni sé að ræða, hratt en ömgg-
lega. Bíllinn nýyfírfarinn og traust-
ur,“ sagði Jón.
22. Arni Sæmundsson/Sæmund-
ur Eiríksson, Mazda 323 4x4, 150
hestöfl. „Flokkasigur er okkar
vænting. Eigum ekki möguleika í
stóru bílana og ætlum okkur því
sigur í flokki óbreyttra bíla,“ sagði
Ami.
24. Birgir V. Halldórsson/Ind-
riði Þorkelsson, Mazda 323 4x4,
150 hestöfl. „Sigur í flokki
óbreyttra bfla er á stefnuskránni.
Það verður hörð keppni og fjöldi
bíla. Undirbúningur kemur til með
að skipta verulegu máli. Við ætlum
okkur flokkadollumar."
25. Halldór Gíslason/Einar Þór
Magnússon, Chevette, 150 hest-
öfl. „Keppnin ætti ekki að vera
vandamál. Mér líst vel á þetta og
ætla að keyra fyrir skemmtunina.
Ætli ég sé ekki maðurinn sem ætl-
ar ekki að vinna, hinir eru svo
margir," sagði Halldór.
26. Sigurður B. Guðmundsson/
Amar Theódórsson, Lancer. „Bfll
okkar er dæmigerður Ljómarallbfll,
sterkur og ólseigur. Ég held að við
getum orðið framar en fólk býst
við, bfllinn er í góðu standi. Verst
hvað hann er ljótur...“ sagði Sig-
urður.
27. Ólafur Baldvinsson/Hilmar
Héðinsson, Lada, 80 hestöfl. „Að
klára keppnina eru mínar bjartsýn-
ustu vonir. Ég hef áður farið í þessa
keppni en ekki komist á leiðar-
enda,“ sagði Ólafur.
28. Michael Reynis/Magnús
Emanúelsson, Ford Escort. „Nú
skulum við ljúka keppni. Það hefur
gengið erfíðlega en áhuginn er allt-
af fyrir hendi. Bfllinn er í nokkuð
góðu lagi og leiðimar skemmtileg-
ar. Þetta verður §ör og vonandi
óhappalaust."
29. Gunnlaugur Ingvarsson/
Ingvar Ingvarsson, Toyota
Corolla, 150 hestöfl. „Ég vonast
til að komast lengra en í síðustu
keppni, þar sem við vorum strand
við rásmarkið," sagði Gunnlaugur.
30. Þórunn _ Guðmundsdóttir/
Guðný H. Úlfarsdóttir, Toyota
Corolla, 124 hestöfl. „Pabbi sendi
mig í þetta ... Ég ætla að reyna
að klára með Þórunni og að sjálf-
sögðu að vinna Helgu og Lám. Ég
er svolítið kvíðin og spennt, þori
sjálfsagt ekki að sofa nóttina fyrir
keppni."
31. Kristján Kristjánsson/
Jóhann Jónsson, Subaru, 82
hestöfl. „Reynum að vinna stand-
ardflokkinn, byrja nógu stórt en
þetta er fyrsta keppni okkar sem
ökumenn," sagði Jóhann.
32. Helga Jóhannsdóttir/Lára
Ómarsdóttir, Subaru, 82 hestöfl.
„Ég fer með til gamans og til að
ljúka keppni eins og undanfarin ár.
Það ætla allir að verða fyrstir, ein-
hver verður að vera síðastur. Það
er sama á hvorum endanum maður
er,“ sagði Helga.
33. Birgir Vagnsson/Gunnar
Vagnsson, Toyota Corolla, 150
hestöfl. „Við leigðum bíl á mánu-
daginn, gátum ekki horft á lengur
eftir tveggja ára fjarveru. Fyrsti
dagurinn fer í að læra á bflinn, svo
sjáum við til. Við höfum ekkert
skoðað leiðir," sagði Birgir.
Akstursleiðir (sérleiðir) i Ljóma-
rallinu og tímasetningar.
Fimmtudagur:
12.00 Ræsing við Hótel Loftleiðir.
12.15 Reykjavíkurflugvöllur.
13.10 Uxahryggjaleið.
13.42 Kaldidalur.
15.11 Gijótháls.
15.30 Svartagil.
16.11 Viðgerðarhlé á Kleppjárns-
reykjum.
16.41 Bær, Borgarfirði.
17.30 Uxahryggir.
18.09 Lyndalsheiði.
19.47 Lyngdalsheiði.
20.45 Esjuleið.
21.08 Keldnaholt.
Næturhlé við Hótel Loftleiðir.
Föstudagur:
6.00 Ræsing við Hótel Loftleiðir.
7.33 Heklubraut (Gunnarsholt).
8.11 Dómadalsleið (Landmanna-
leið).
9.08 Fjallabaksleið nyrðri.
10.39 Eldhraun.
11.01 Viðgerðarhlé á Kirkjubæjar-
klaustri.
14.35 Meðalland.
15.20 Fjallabaksleið.
16.39 Dómadalsleið.
17.31 Heklubraut.
20.00 Næturstopp við .Hótel Loft-
leiðir.
Laugardagur:
6.52 Lyngdalsheiði.
7.55 Lyngdalsheiði.
8.44 Esjuleið.
9.59 ísólfsskáli.
11.05 Stapafell.
11.38 ísólfsskáli.
15.00 Endamark við Hótel Loft-
leiðir.
SUMIR ERU ALLTAF AÐ
SKIPTA
Ác^a& ^tda^a^oH
við Miklatorg sími 15014 -17171
Gólfefni í
miklu úrvali
n
VATNSÞYNNANLEG EPOXY-GÓLFEFNI.
Asamt flotgóiflagnarefnum og viðgerðarefnum
fyrir gólf. Höfum verktaka á okkar snærum víða
á landinu.
Reykjavíkurvegi 26-28. Símar 52723/54766. '
220 Hafnarfirði.
Afmæliskveðja:
Ágúst Lárusson
Stykkishólmi 85 ára
Hann á afmæli í dag. Langur og
mikill starfsdagur að baki. Hann
hefír kynnst öllum þjóðfélagsbreyt-
ingum þessarar aldar. Fengið að
taka þátt í athafnalífinu bæði til
sjós og lands. Oft tekið á í átökum
líðandi stundar og haft sigur í þeim
átökum. Erfíðleika og mótlæti hefur
honum tekist að halda í hæfílegri
fjarlægð. Var alinn upp við að
geyma aldrei til næsta dags það sem
hægt væri að gera í dag og það
strik hefír hann haldið. Reikningar
liggja aldrei lengi ógreiddir á borð-
inu hans. Minni hans er gott. Kynni
hans við ótal menn í ótal viðskiptum
eru mörg og ættir man hann og
það sem hann hefír lesið um dagana
virðist létt að rifja upp. Útvarp og
sjónvarp notar hann á hagkvæman
hátt. Þar útilokar hann hismi, háv-
aða og hégóma. Sem sagt hann er
einn af eldri kynslóðinni sem tók
guð og góða menn alvarlega.
Ágúst er fæddur 1902 í Stykkis-
hólmi. Móðir hans var þá vinnukona
hjá Samúel Richter sem þá stýrði
Gramsverslun. Hún hét Kristín Lár-
usdóttir. Fárra daga gamall fór
hann til ömmu og afa að Hrísum
og þeirra bama. Ommu naut hann
til 11 ára aldurs, en afí hans dó
fermingarárið 1916. Séra Sigurður
Gunnarsson fermdi hann og þessar-
ar stundar minnist Ágúst alla tíð.
Á 15. ári fór svo Ágúst til vanda-
lausra. Hann var 5 ár á Kárastöðum
og þá aftur 5 ár í Hrísum og Hrísa-
koti. Þá gerðist hann lausamaður.
Fór að Fjarðarhomi og var þar í 4
ár en þá hóf hann búskap að Bú-
landshöfða með konu sinni, Ástrósu
Halldórsdóttur. Þar bjuggu þau í
14 ár en fluttust þá að Kötluholti
í Fróðárhreppi, þar sem þau bjuggu
í 29 ár og vom þar seinustu ábúend-
ur. Þá fluttust þau hjónin tii
Stykkishólms og þar hefir Ágúst
átt heima síðan. Konu sína missti
hann 1979 og höfðu þau eignast 4
böm og komið öllum til manns.
Ágúst stundaði jöfnum höndum sjó
og búskap um 60 ára skeið. Hann
var 16 ára þegar hann fór fyrst á
áraskip og 76 ára þegar seinasta
sjóferðin var farin. Hann reri í eyj-
um Breiðafjarðar og 10 ár var hann
á vertíð í Grindavík, stundaði sjó á
róðrabátum, opnum og þaðan er
margs að minnast. Enn hefír hann
samband við formanninn sinn frá
þeim tímum sem nú lifír hress, 96
ára að aldri, en þeir em nú tveir
eftir af 11 manna áhöfn. í Vest-
mannaeyjum reri hann 2 ár með
góðum formönnum og margar ver-
tíðir stundaði hann sjó við Breiða-
fjörð, bæði í Eyrarsveit og Óiafsvík.
Éinnig við fiskvinnslu í landi. Þann-
ig hefír hann kynnst flestum
aðferðum og vinnubrögðum til sjós
og gat jafnan tileinkað sér nýjustu
tilfæringar.
í hreppsnefnd Eyrarsveitar var
hann 4 ár og í Fróðárhreppi í 28
ár og þar af oddviti í 24 ár. I sýslu-
nefnd starfaði hann í 8 ár og
mörgum öðmm opinbemm störfum
hefir hann sinnt um dagana.
Ágúst á margar minningar um
samleið sína með litríku fólki á leið
lífsins. Einna fjölbreyttastar og
skemmtilegastar og bestar segir
hann mér að séu tengdar nafni eins
húsbónda síns, Ólafs Jónssonar frá
Elliðaey. Það vom dýrðar dagar
þrátt fyrir allt og við lærðum margt
hvor af öðmm. Fleira væri gaman
að minnast á en þá veit maður ekk-
ert hvar skal stansa, segir Ágúst
og líklega er það rétt.
Við Agúst eigum mörg áhugamál
saman, bæði að kynna okkur
mannlíf, ættir, sagnir og ljóð og
þvf hittumst við oft. Þetta er gróði
beggja. Fyrir rúmum 5 ámm fékk
Ágúst meinsemd í fótinn og varð
að taka hann af fyrir ofan hné.
Þetta var mikið áfall en það bugaði
hann ekki því hann fékk sér grind
til að styðjast við. Hendumar em
sterkar, harkan enn í hámarki og
með hjálp góðra manna fer hann
það sem hugurinn gimist og er það
mörgum undmnarefni. Og þátt í
hinu daglega lífí tekur hann. Ég lét
leggja til hans síma áður en ég
yfirgaf stöðvarstjórastarfíð og er
hann nú hans önnur hönd, tengilið-
ur milli skyldmenna og vina. Það
er ekki svo lítið og hann er vel
nýttur. Fylgist vel með þróun
tímans. Frá æsku hefír hann fylgt
sjálfstæðisstefnunni, þeirri gömlu
og góðu sem tók mið af hinu sterk-
asta í lífi hvers manns og örvaði
athafnamanninn til dáða.
En Ágúst heldur áfram þrátt
fyrir mikinn missi seinustu ár. Og
hann ætlar að taka á móti gestum
sínum á Hótel Stykkishólmi kl. 3 á
laugardaginn 29. þ.m. og minnast
þá liðinna stunda, en nú sem stend-
ur er hann með kvikmyndaleik-
hópnum út í Flatey að taka þátt í
að koma myndinni af Nonna og
Manna til skila. Er þar í einhveiju
hefðarsæti. Þetta átti hann þá eft-
ir. Vonandi verður hann hress á
laugardaginn kemur og getur bros-
að framan í vini og vandamenn.
Um leið og ég óska honum allrar
blessunar guðs í komandi framtíð
vil ég þakka honum margar góðar,
athyglisverðar og bjartar stundir.
Og við hjónin sendum honum í okk-
ar ágæta blaði kærar kveðjur.
Árni Helgason
DRÁTTARBEISLI
Eigum fyrirliggjandi sérhönnuð dráftar-
beisli og króka fyrir Volvo 200 og 700.
Beisli á Volvo 200
frá árg. '81 kr. 5.887,-
Beisli á Volvo 700
frá árg. ’82 kr. 6.872,-
Skjót ísetning ef óskað er.
\JI52l53I>
Varahlutadeild.Suðurlandsbraut 16. Sími: 91-691600.