Morgunblaðið - 27.08.1987, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
Aðalfundur Landssambands sauðfjárbænda:
Markaðs- og sölumál
mikið til umræðu
Eiðar.
AÐALFUNDUR Landssambands Eiðum. Fundinn sitja um 60 félag-
sauðfjárbænda stendur nú yfir á ar frá 22 aðildarfélögum.
Fáskrúðsfj örður:
Fimm ungmenni hand-
tekin vegna innbrots
Fáskrúdsfirði.
BROTIST var inn í söluskála Esso
á Fáskrúðsfirði síðastliðinn laug-
ardag. Voru þar að verki fimm
ungmenni sem aðsetur hafa á
Neskaupstað en eru flest aðkomu-
fólk þar.
Málsatvik eru þau að aðfaranótt
laugardagsins veitti lögreglan hér á
Fáskrúðsfirði torkennilegum bíl eftir-
tekt. Seinna á laugardeginum tóku
þeir eftir að rúða var brotin í sölu-
skála Esso og bíllinn sem þeir höfðu
veitt eftirtekt farinn úr bænum, því
höfðu þeir samband við lögregluna á
Eskifirði sem fór af stað og mætti
bflnum á Hólmahálsi, milli Eskiflarð-
ar og Reyðarfjarðar. Þar voru
ungmennin handtekin með góssið úr
söluskálanum í bflnum. Sum þessara
ungmenna hafa áður komið við sögu
lögreglunnar hér á Austurlandi.
Lögreglan á Fáskrúðsfirði er frek-
ar fámenn og verður þess þá sérstak-
lega vart þegar samkomur eru
haldnar. íbúar bæjarins telja sig eiga
meiri rétt á löggæslu en verið hefur
að undanfömu, e.t.v. er þetta fá-
menni liður í spamaðaráætlun
ijármálavaldsins.
— Albert
Markaðs- og sölumál hafa verið
mikið til umræðu á fundinum og
fjallað hefur verið um kjötmat
og samræmingu á því yfir landið
ásamt nýjum verðlagsgrundvelli.
Reglugerð um stjóm sauðfjárfram-
leiðslu á verðlagsárinu 1988—1989
verður tekin til umræðu á fundinum.
Einnig verður rætt um verðlagningu
sauðQárafurða og verðhlutföll á milli
flokka, lengingu sláturtíma og hvem-
ig eigi að koma í veg fyrir fram-
hjásölu kindakjöts.
Þá verður tekin afstaða til hug-
myndar um að Landsamband sauð-
flárbænda eigi og reki kjötmarkað
er geti verið leiðbeinandi um smásölu-
verð kindakjöts. Einnig verður tekin
afstaða til hugsanlegrar eflingar
Lífeyrissjóðs bænda er gerði fullorðn-
um bændum kleift að draga saman
í búskap án þess að rýra rétt jarðar-
innar til búvoruframleiðslu.
Fundinum lýkur í kvöld.
Bjöm
/ DAG kl. 12.00:
Heimild: Veðurstofa islands
(Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 27.08.87
YFIRLIT á hádegi í g»r: Á Grænlandssundi er 1000 mb laegð á
hreyfingu norðaustur en nærri kyrrstæður hæðarhryggur milli ís-
lands og Skotlands. Hiti breytist fremur lítið.
SPÁ: ( dag verður vestan- og suðvestan átt um land allt, víðast
gola eða kaidi. Rigning eða súld á suðausturlandi en smáskúrir á
stöku stað vestanlands og á annesjum fyrir norðan. Hiti á bilinu
10—16 stig.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA
FÖSTUDAGUR OG LAUGARDAGUR: Hæg vestanátt, víða skúrir
um vestanvert landið en þurrt og bjart austanlands. Hiti 7-12 stig.
x Norðan, 4 vindstig:
" Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
■j 0 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V E'
— Þoka
:= Þokumóða
’, 1 Súld
OO Mistur
—Skafrenningur
j-^ Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akureyri Reykjavík httl 14 12 veAur skýjað rigning
Bergen 14 alskýjað
Helslnki 14 alskýjað
Jan Mayen 6 skýjað
Kaupmannah. 17 skýjað
Narssarssuaq 8 þoka
Nuuk 7 skýjað
Osló 11 rigning
Stokkhólmur 15 þoka
Þórshöfn 13 léttskýjað
Algarve 27 Iðttskýjað
Amsterdam 15 skúr
Aþena 31 heiðskfrt
Barcelona 26 léttskýjað
Berlln 18 alskýjað
Chlcago 15 rigning
Feneyjar 23 láttskýjað
Frankfurt 18 skýjað
Glasgow 18 rigning
Hamborg 15 rigning
Las Palmas 26 léttskýjað
London 13 rignlng
LosAngeles 18 úrkoma
Lúxamborg 14 skýjað
Madrld 27 léttskýjað
Malaga 27 skýjað
Mallorca 29 léttskýjað
Montreal 10 skýjað
NowYork 17 skýjað
París 14 skúr
Róm 27 léttskýjað
Vln 20 hólfskýjað
Washington 22 rigning
Wlnnlpeg 9 skýjað
Blómadrottningin 1987, Elísabet Gunnarsdóttir.
Blómadrottning-
in úr Olfusinu
UNG stúlka úr Ölfusi, Elísabet
Gunnarsdóttir, var valin Blóma-
drottning 1987 á dansleik sem
haldinn var i íþróttahúsinu í
Hveragerði um síðustu helgi.
Árlega heldur Knattspymudeild-
in í Hveragerði svokallað Blómaball,
þar sem valin er blómadrottning
ársins. Að þessu sinni komu um 500
manns á dansleikinn og tóku átta
stúlkur þátt í keppninni. Blóma-
drottningin, Elísabet Gunnarsdótt-
ir, er frá Reykjakoti í Ölfusi, 17
ára gömul og starfar á Hótel Örk
í Hveragerði. Hún var krýnd af
drottningunni frá síðasta ári, Hörpu
Rós Björgvinsdóttur. Elísabet fékk
í verðlaun utanlandsferð frá ferða-
skrifstofunni Terrn og að auki
fengu allar stúlkumar blómvendi
og ilmvatn.
Sjö manna dómnefnd valdi
blómadrottninguna. Dómnefndina
skipuðu þau Sólveig Siguijónsdótt-
ir, formaður, Steinunn Gísladóttir,
Sölvi Ragnarsson, Anna Maria
Jensen, Garðar Gíslason, Lilja Guð-
jónsdóttir og Harpa Rós Björgvins-
dóttir.
Svefneyjamálið:
Bæjarfógeti ekki
í mál gegn RU V
„ÉG á síður von á að höfðað
verði meiðyrðamál af hálfu bæj-
arfógetaembættisins á hendur
ríkisútvarpinu vegna ummæla í
frétt sjónvarpsins af svokölluðu
Svefneyjamáli," sagði Már Pét-
ursson, bæjarfógeti í Hafnar-
firði.
í umdeildri frétt sjónvarpsins við-
hafði kona, sem ekki lét nafns síns
getið, miður fögur ummæli um sett-
an bæjarfógeta í Hafnarfírði. Már
Pétursson, bæjarfógeti, sagði að
málið væri enn í athugun hjá emb-
ættinu, en hann ætti ekki von á að
neitt yrði aðhafst. „Ég lít svo á að
í yfírlýsingum útvarpsstjóra og út-
varpsráðs um málið felist afsökun-
arbeiðni," sagði Már.
Sakbomingurinn í Svefneyjamál-
inu, sem grunaður er um kynferðis-
afbrot gegn bömum, hefur ákveðið
að höfða meiðyrðamál gegn ríkisút-
varpinu vegna ummæla sem viðhöfð
vom um hann í fréttinni.
Aðalfundur SSA
á Fáskrúðsfirði
Fáskrúðsfirði.
AÐALFUNDUR Sambands sveit-
arfélaga í Austurlandskjördæmi
hefst i dag, 27. ágúst, S félags-
heimilinu Skrúð á Fáskrúðsf irði.
Aðalmál fundarins verður: skipu-
lag heilbrigðiseftirlits á Austur-
landi, samgöngumál, samstarf ríkis
og sveitarfélaga og loks breytingar
á lögum sambandsins.
— Albert
Kraninn brotnaði ekki
í frétt Morgunblaðsins i gær af
slysi við Menntaskólann í
Reykjavík var sagt að orsök
slyssins mætti rekja til þess að
krani á körfubíl sem þrSr menn
unnu við hefði brotnað, en það
I/ mun ekki vera rétt. á; el L
Samkvæmt upplýsingum frá
Vinnueftirliti ríkisins er ekki ljóst
hvers vegna karfan með mönnunum
þremur féll niður, en orsök þess var
a.m.k. ekki brot á krananum. Enn
er unnið að rannsókn málsins.
f J í ‘ t.ii U ti' '» Li