Morgunblaðið - 27.08.1987, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
15
legur eru í honum myndir sem
vekja athygli. Fyrmefnd líking um
spangólið til dæmis og ekki síst
það sem stendur um heilann í öðr-
um kafla: „heilinn sviflétt eyja/ á
svölu vatni heilabúsins/ ég“. Und-
irritaður hefði sleppt næstsíðasta
orðinu hefði hann mátt ráða. Og
það er nokkuð slitið sem segir um
blóðið og fyrr var vitnað til.
Það er í hinum tilfínningasömu
ljóðum sem Jóhann árelíuz nær
bestum árangri. Eitt þeirra nefnist
fíngumæmar nætur:
fingumæmar nætur
ég fer höndum um líf þitt
viðkvæmt vandfarið flókið
eiturgræn skelin
húðin leiftrandi perla
hvítt bein úr sjó
hratt tifa sekúndur mínútur stundir
hjartsláttur klukknahljómsins
faðmur þinn bjóðandi heitur
augun giampandi kastljós
blá eins og blátt eitt getur verið
fer höndum um líf þitt
grasgrænn skuggi myrkurs
elska þig oft og aftur
augun þín blá
augu þín afar blá
fingumæmar nætur
Jóhann árelíuz
Þetta er að vísu ekki alveg galla-
laust ljóð, en í því skemmtileg
hrynjandi og endurtekningum beitt
smekklega.
Annað tilfinningasamt ljóð er
Milli trjánna. I því er skírskotun til
ljóðs eftir Snorra Hjartarson og á
öðrum stað í bókinni skírskotar
Jóhann árelíuz til Tómasar Guð-
mundssonar. Út af fyrir sig eru það
ekki tíðindi að skáldið segist elska
storminn, úfið vorlauf tijánna og
fleira í náttúrunni. Það er meira
um vert að Ijóðinu tekst að sýna
fram á „fijómagnað líf milli
trjánna". Yfirlýsingar fara yfirleitt
illa í skáldskap, geta verið gamal-
dags. Ljóð sem eru laus við þessa
annmarka heppnast líka betur hjá
Jóhanni árelíuzi, samanber stutt
ljóð eins og blár fífill í hvítu túni,
Eggtíð, Naflajón, Ó og líf.
Prósaljóðin eru hressileg, en dá-
lítið skipulagslaus, enda vandi að
yrkja slík ljóð. Ég hafði gaman af
þeim, ekki síst Apríl, Ævintýri á
gönguför og Hvorki Né. Þessi ljóð
eru raunsæileg og svona eins og
samfélagið komi hinu rómantíska
skáldi við. Í Hvorki Né eru þessar
línur: „Flugurnar hans Hamsun
suða í gluggum minninganna en
íslenska alþjóðin suðar andstutt og
andvarpandi í sjón- og útvörpunum
en tími innri speki að því virðist
endanlega úr liði."
Nú er það skáldsins að huga að
myridefnum morgundagsins þar
sem það situr baðað morgunljóma
í grasi gróinni tíð og trúir á ást sem
fýrirgefur allt og svíkur ekki.
Þeir fiskar sem synt hafa inn í
ljóðheim Jóhanns árelíuzar lofa
góðu.
AUS
ALÞJOÐLEG UNGMENNASKIPTI
Julio Rivera er skiptinemi frá Costa Rica, styrktur
til náms á íslandi.
A.U.S. eru að leita að fjölskyldu sem Julio getur
dvalið hjá í vetur.
Nánari upplýsingar á skrifstofunni milli kl.
13.00-16.00, sími 24617.
GimiuaND
18.SEPTEMBER n.k. verður farin 3ja vikna ferð
til Grikklands.
Norðurhlutinn, sem verður skoðaður að þessu
sinni, er frábrugðinn suðurlandinu að mörgu
leyti og býður upp á annarskonar tækifæri til að
kynnast Grikklandi.
Undir traustri fararstjórn Kristjáns Árnasonar
háskólakennara kynnumst við og skoðum m.a.
Olympiu, Mykenu, Nafjlon, Spörtu, Korfu,
Kastoriu, Þessaloniku, Meteoru, Kalamböku,
Delfí, Aþenu.
Feíöaskrifstofan
Ifanndi
Vesturgötu 5. Reykjavík.
v 62 24 20
uos
GUFA
NUDD
Furugrund 3, Kópavogi.
afsláttur á saltkjötí og súpukjö
Nú eru sprengidagar framundan.
Farðu út í næstu matvörubúð og fáðu þér saltkjöt og súpukjöt frá Sláturfélaginu með 15% afslætti
á meðan tækifæri gefst.
<
C/5
2
Þ
SLÁTURFÉLAG
SUÐURLANDS