Morgunblaðið - 27.08.1987, Qupperneq 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. ÁGÚST 1987
. **
JÓN RAGNARSSON, ÍSLANDSMEISTARII RALLAKSTRI, SKRIFAR
Menn verða að passa að
æsa sig ekki úr hófi fram
Þegar flaggið á fyrstu sérleið
fellur, gleymist amstur und-
anfarinna daga, undir stýri í
bílnum er maður nánast kom-
inn í annan heim, fjarri
daglegum vandamálum.
Síðustu daga fyrir keppni
kemur alltaf rót á hugann,
ósjálfrátt. Maður sefur ekki
eins vært og áður, hefur verið
að spá í möguleikana að degi
til og á næturnar heldur und-
irmeðvitundin áfram verkinu.
Hverjir eru líklegustu keppi-
nautarnir, ereinhver betri,
hvar eru vondar leiðir? Millj-
ón hugsunum skýtur upp. Um
leið og flaggið birtist í upp-
hafi keppni hverfur óróleik-
inn. Málið er að keyra sig í
stuð.
Ljómarallið er geysilega erfið
keppni. Það þarf að aka hratt
en samt fara vel með bílinn — en
ekki samt svo vel að tímamir verði
hroðalega lélegir samanborið við
tíma andstæðinganna. Það er líka
stórt mál að láta ekki tíma ann-
arra keppenda pirra sig of mikið.
Menn verða að passa að æsa sig
ekki úr hófi fram. Það er nægur
tími í þriggja daga langri keppni
til að endurmeta stöðuna — oftar
en einu sinni. Best er að komast
í ákveðinn takt, keyra þétt en
örugglega.
Eg bytja keppnina með rás-
númer eitt, ég kann ekkert of vel
við þetta númer, Rúnari finnst að
vísu flott að ræsa fyrstur. Það
ganga margir með það í maganum
að þetta sé gott rásnúmer, en það
skiptir ekki máli hvort maður er
númer eitt eða fimm. Toppbílamir
eru ekkert að þvælast hvor fyrir
öðrum, það er ekki fyrr en aftar
kemur að ástandið versnar og
vegurinn líka. Ég læt það ekki
fara í taugamar á mér þó ég verði
ekki forystubíll fyrir síðasta dag-
inn. Keppni er aldrei búin, fyrr
en hún er búin.
Hugsun rallökumanna, eða mín
öllu heldur, á sérleið er marg-
þætt. Það sem ég forðast mikið
er að aka þannig að hætta sé á
að sprengja dekk, það er betra
að fara aðeins hægar yfir og
Morgunblaöið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
„Maður verður að ná tökum á bílnum smám saman, smá auka hraðann. Það er betra en að æða af stað, gera
svo mistök, missa bílinn útaf eða fá óvæntan skell," segir Jón Ragnarsson í grein sinni um eigin þátttöku í Ljóma-
rallinu. Hér er Jón á Escort-bíl sínum á Kjalvegi.
einbeitinguna. Mér finnst þetta
ríkt í mörgum íslenskum öku-
manninum.
Sigurvegari Ljómarallsins verð-
ur sá sem skilar sér áfallalausum
í gegnum keppnina og hefur góð-
an undirbúning. Ég hef sloppið
við bilanir í keppni að mestu leyti
og því er viðgerðarliði mínu að
þakka. Vitneskja um trausta
menn á bakvið sig veitir manni
aukið sjálfstraust, trú á bíl og
sigurmöguleika. Slík sálfræði
skiptir verulegu máli. Það er gott
að geta keyrt sérleið á fullu,
stokkið, lent í hvörfum og notað
bílinn stíft, vitandi að í enda leið-
ar bíða traustir menn. Maður
kemur kófsveittur af leiðinni og
þá taka vanar hendur við bílnum.
Ég hefði ekki náð toppnum án
þessara manna og með hugann
sífellt við viðgerðir á bílnum.
Ég býst við öllu í Ljómarallinu.
Ég get tapað fyrir mörgum. Finn-
inn Miko Torilla á Audi er óþekkt
stærð, líka Bretinn Ivor Clark á
Talbot. Hafsteinn Aðalsteinsson,
Hjörleifur Hilmarsson, Jón S.
Halldórsson, Steingrímur Inga-
son, Asgeir Sigurðsson og Birgir
Þór Bragason verða allir skæðir
keppinautar. Allt góðir ökumenn.
Jón S. Halldórsson og Guðbergur Guðbergsson á Porsche 911.
sleppa við dekkjasprengingu. Ég
hef líka aðeins einu sinni sprengt
dekk, (7-9-13). Maður verður að
ná tökum á bflnum smám saman
í hverri keppni, smáauka hraðann.
Það er betra en að æða af stað
og gera svo mistök, missa bflinn
útaf eða fá óvæntan skell. Slíkt
gerir ökumenn stundum hrædda
og þeir minnka ósjálfrátt hraðann.
Maður getur ekki orðið betri en
maður er, óðagot gagnar engum.
Ég tek mistökum sjálfur með
jafnaðargeði ef þau koma upp.
Það þýðir ekki að naga sig í hand-
arbökin, það hef ég lært. Maður
Hjörleifur Hllmarsson og Sigurður Jensson á Talbot Lotus.
verður að horfa fram á veginn,
gleyma beygjunum fyrir aftan.
Það eru endalaus „ef“ til staðar,
ef maður vill; „ef ég hefði náð
þessari beygju betur, ekki klikkað
þarna.“ Slíkt gengur bara ekki í
rallakstri og bætir hvorki hugar-
farið né sjálfstraustið. Það truflar
Guðmundur Jónsson gæti orðið
litríkur, en vantar að Iosna við
„ef-in“, sem ég talaði um áðan.
Einhver þessara manna vinnur
rallið, að mér meðtöldum. Hraði
með yfirvegun mun gilda. Ég mun
gera mitt besta og það er talsvert
mikið . ..
KNATTSPYRNA / GETRAUNIR
Getrauna- spá MBL. «o 5 (0 X1 c 3 o> o 5 > o Tíminn c ^c > 5* Dagur Ríkisútv. c « "3 >* m OJ s 0) c ■ c « œ Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS
1 X 2
Fram-Víðlr 1 1 1 2 2 1 1 1 1 0 0 7 0 2
Arsenal — Portsmouth 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 9 0 0
Charlton — Man. United 2 2 2 2 2 2 2 2 X 0 0 0 1 8
Chelsea — Luton X 1 X X 1 1 1 1 1 0 0 6 3 0
Coventry — Liverpool 2 2 2 X 2 1 X X 2 0 0 1 3 5
Derbv — Wimbledon 1 1 1 1 1 X 1 1 X 0 0 7 2 0
Everton — Sheff. Wed. 1 1 1 1 1 1 1 1 1 0 0 9 0 0
Newcastle — Nott’m Forest X X X 1 X 1 X X X 0 0 2 7 0
Southampton — Q.P.R. X X 2 X 2 1 1 1 2 0 0 3 3 3
Watford — Tottenham 2 2 2, 2 2 2 2 1 X 0 0 1 X 7
West Ham — Norwich 2 1 1 1 X X 1 1 1 0 0 e 2 1
Ipswich - Stoke 2 1 X 1 1 1 1 X X 0 0 5 3 1
Getraunir með
breyttu sniði
Bikarleikur Fram og Víðis á íyrsta seðlinum
NYTT starfsár er byrjað hjá
íslenskum getraunum og eru
seðlarnir fyrir fyrstu leikviku
komnir á sölustaði um allt land,
en leikirnir fara fram um helg-
ina.
Getraunirnar eru mjög mikil-
vægar fyrir íþróttahreyfíng-
una í landinu — starfsemin skilaði
um 40 milljónum króna til hennar
á síðasta ári og munar um minna.
Eftir að lottó byrjaði hefur sam-
keppnin aukist mjög mikið, en til
að auka enn áhugann á getraunun-
um, verða þær nú með breyttu sniði.
1. vinningur aðeins fyrir 12
rétta leiki
Fyrsti vinningur verður aðeins
greiddur, komi fram röð eða raðir
með 12 leikjum réttum; annars flyst
hann áfram til næstu leikviku.
Spennan verður meiri fyrir vikið og
þeir heppnu mega eiga von á hærri
vinningi nokkrum sinnum á starfs-
árinu.
Stefnt verður að því að hafa sem
flesta laugardagsleiki á seðlinum
og reynt verður að fara yfir seðlana
strax og úrslit leikja liggja fyrir.
Um kvöldmatarleytið á laugardög-
um á því vinningsupphæð að liggja
fyrir og eins hvort tólfa hafi komið
fram eða ekki. En engin regla er
án undantekninga og á fyrsta seðl-
inum verður bikarúrslitaleikur
Fram og Víðis, sem fer fram á
sunnudaginn.