Morgunblaðið - 08.09.1987, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1987
SIEMENS
Fjölhæf hrærivél frá SÍGtTIGnS
Blandari, grænmetiskvörn og hakkavél fylgja með!
•Allt á einum armi.
• Hrærir, hnoðar, þeytir, blandar, brytjar,
rífur, hakkar og sker — bæði fljótt og vel.
• ítarlegur leiðarvísir á íslensku.
\ i
Smith & Norland
Nóatúni 4 — s. 28300
„Laugavegurinn er
uppáhaldsgatan mín“
Gott er að hvíla lúin bein
DAVÍÐ Oddsson borgarstjóri
opnaði formlega síðast liðinn
laugardag þann hluta Laugaveg-
arins sem endurbyggður var sem
göngugata í sumar, kaflann á
milli Klapparstígs og Skólavörð-
ustígs.
Athöfnin hófst með því að Sig-
urður E Haraldsson, kaupmaður,
flutti stutt ávarp. Síðan hélt borgar-
stjóri stutta ræðu við gatnamót
Laugavegar og Frakkastígs þar
sem borði hafði verið strengdur
þvert yfír Laugaveginn. Hann ósk-
aði Reykvíkingum til hamingju með
daginn og sagði að þennan dag
yrðu einnig tekin formléga í notkun
370 bílastæði á hafnarbakkanum
við Faxaskála. Á næstunni stæði
til að fjölga enn frekar bílastæðum
í gamla miðbænum. Borgarstjóri
lauk ræðu sinni með því að segjast
nú ætla að gerast “skæruliði" og
klippti á borðann við fagnaðarlæti
manníjöldans sem safnast hafði
saman á gatnamótunum. Síðan tók
Davíð sér far með strætisvagni nið-
ur á Lækjartorg.
Guðlaugur Bergmann, formaður
samtakanna Gamli miðbærinn, var
viðstaddur opnun Laugavegarins.
Aðspurður kvaðst hann vera á-
nægður með breytingamar á göt-
unni og sagðist vona að samtökin
yrðu höfð með í ráðum varðandi
frekari breytingar á gamla mið-
bænum.
Fjöldi borgarbúa lagði leið sína
á Laugaveginn í tilefni opnunarinn-
ar. Kaupmenn og fleiri buðu gestum
upp á ýmiss konar vörur, þjónustu
og skemmtiatriði. Til dæmis lék
hljómsveitin Centaur nokkur lög
fyrir framan hljómplötuverslunina
Fálkann og Bjami Tiyggva kynnti
þar óútkomna hljómpíötu sína.
í góða veðrinu seldi Logi Helga-
son ávexti fyrir utan matvömversl-
un sína Vínberið á Laugavegi 43.
Er hann var spurður hvort viðskipt-
in hefðu ekki minnkað með tilkomu
Kringlunnar sagði hann svo ekki
vera og til dæmis hefði verið versl-
að hjá honum eins og venjulega
sama dag og Kringlan var opnuð.
Hún væri ekki “högg á Laugaveg-
inn“, eins ogtalað hefði verið um.
Á Laugavegi 29 er til húsa jám-
vöruversiunin Biynja sem er að
sögn eigandans, Bjöms Guðmunds-
sonar, elsta starfandi verslun við
Laugaveginn. Verslunin var stofn-
sett árið 1919 á Laugavegi 24 en
var flutt í núverandi húsnæði árið
1929. Þar hitti blaðamaður fyrir
KÚPLINGSPRESSUR
KÚPLINGSDISKAR
KÚPLINGSLEGUR
Fyrir flestar tegundir
evrópskra og japanskra
fólks- og vörubifreiða.
Útvegum í allar helstu tegundir
fóiks- og vörubifreiða.
Þekking Reynsla Þjónusta
Svipmynd frá dagskránni. Ungt barn í gömlum bíl
Lúðrablásarar skemmtu gestum á Laugaveginum