Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 1
64 SIÐUR
205. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vegabréfsáritanir til Frakklands:
Vilja Evrópuráð-
ið frá Strassborg
Strflsshnrff Rpiiter ^ *
Strassborg, Reuter.
HÓPUR þingmanna beitir sér nú
fyrir því að fundarstaður Evr-
ópuráðsins verði fluttur frá
Strassborg í Frakklandi þar til
frönsk stjórnvöld fallast á að
endurskoða reglur um vega-
bréfsáritanir. Yfirvöld í Frakk-
Frakkland:
Sovétmenn
fylgjast með
heræfingum
París, Reuter. V—7
SENDIMENN frá Sovétríkjunum
og öðrum ríkjum Varsjárbanda-
lagsins munu i fyrsta skipti
fylgjast með æfingum franskra
hersveita, sem hefjast á mánudag.
Er þetta í samræmi við samkomu-
lag Stokkhólmsráðstefnunnar um
traust milli þjóða, sem undirritað
var i september á síðasta ári.
Æfíngar þessar ganga undir
kenniheitinu „Crevecoeur" og munu
þær standa yfír í viku. 25.000 menn
munu taka þátt í þeim og munu þeir
hafa 800 brynvarða bíla og 48 þyrlur
sér til fulltingis.
A mánudag komu eftirlitsmenn frá
ríkjum austan Jámtjaldsins til Vest-
ur-Þýskalands til að fylgjast með
æfíngum þar. Fulltrúar NATO hafa
fylgst með nokkrum æfíngum her-
afla Varsjárbandalagsríkjanna á
þessu ári. Samið var um eftirlit þetta
á ráðstefnu 35 ríkja í Stokkhólmi og
er því ætlað að draga úr líkum á
átökum.
Reuter
Ráðherra
á uppleið
Manfred Wörner, varnar-
málaráðherra Vestur-Þýska-
lands og frambjóðandi til
embættis framkvæmdastjóra
Atlantshafsbandalagsins, lét
ekki sitt eftir liggja í gær er
haldin var bamaskemmtun í
Bonn. Brá hann sér á fjaðra-
dýnu fimleikamanna, sem
fengnir höfðu verið til að
skemmta ungviðinu, og lék
listir sínar. Svipur ráðherrans
lýsir einbeitingu en viðstaddir
höfðu allnokkra skemmtan af
þessu athæfi hans.
landi ákváðu að gera erlendum
ferðamönnum skylt að útvega
sér vegabréfsáritanir eftir mikla
sprengjuherferð öfgamanna á
síðasta ári.
Ferðamenn frá aðildarríkjum
Evrópubandalagsins eru undan-
þegnir þessum reglum en hins vegar
þurfa fulltrúar frá sjö ríkjum að
sækja um vegabréfsáritanir hyggist
þeir sitja fundi Evrópuráðsins. Þessi
ríki eru ísland, Danmörk, Svíþjóð,
Austurríki, Malta, Kýpur og Tyrk-
land.
12 þingmenn frá Danmörku,
Noregi, Svíþjóð, Austurríki, Tyrk-
landi, Bretlandi, Vestur-Þýskalandi
og Ítalíu hafa lagt fram tillögu þess
efnis að fundir Evrópuráðsins fari
fram utan Frakklands þar til yfír-
völd þar hafa fallið frá þessari
tilskipun. I tillögunni segir að
ákvörðun Frakka feli í sér mismun-
un gagnvart aðildarríkjum Evrópu-
ráðsins. Er hvatt til þess að fulltrúar
ríkjanna komi saman til funda í
Lúxemborg þar til Frakkar hafa
gripið til viðeigandi ráðstafana.
Onafngreindur franskur embætt-
ismaður sagði í gær að yfírvöldum
væri fullkunnugt um óánægju til-
tekinna ríkja og unnið væri að lausn
málsins.
Reuter
Páfi fundar með leiðtogum gyðinga
JÓHANNES Páll páfí II, sem nú heiðrar Bandaríkja-
menn með nærveru sinni átti í gær fund með
leiðtogum bandarískra gyðinga og fór hann fram í
Miami. Fór vel á með þeim og sögðu leiðtogamir
að heimsókn páfa kynni að marka tímamót. Páfí
kvað bæði gyðinga og Palestínumenn eiga rétt á
eigin heimalandi. Hins vegar vakti það athygli er
páfí varði framgöngu Píusar páfa XII á árum síðari
heimsstyrjaldarinnar en sumir sagnfræðingar hafa
gagnrýnt hann fyrir að hafa þagað um helför nas-
ista gegn gyðingum. Myndin sýnir Mordechai
Waxman rabbía ávarpa páfa í upphafí fundarins.
Sjá einnig „Páfi berorður um ...“ á bls. 30.
Afvopnunarviðræður risaveldanna:
Bandaríkjastjóm tilbúin
til að undirrita samning
— segir George Shultz utanríkisráðherra
Washington, Paris, Bonn, Reuter.
GEORGE Shultz, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagði í
viðtali við Reuters-iréttastofuna
i gær að Bandaríkjastjórn væri
tilbúin til að undirrita samkomu-
lag um upprætingu skamm-
drægra og meðaldrægra
kjamorkuflauga. Sagði hann
stjórnina geta fellt sig við þau
samkomulagsdrög sem fyrir
liggja eftir fundi samninga-
manna risaveldanna i Genf. Kvað
hann Sovétstjórnina sífellt setja
fram ný skilyrði fyrir samkomu-
lagi. Vladimir Petrovsky, aðstoð-
arutanrikisráðherra Sovétríkj-
anna, sem staddur er í
Vestur-Þýskalandi, sakaði
bandarísk stjórnvöld um slíkt hið
sama og sagði að enn væru ýmis
ágreiningsmái óleyst.
George Shultz sagði Sovétmenn
sífellt setja fram nýjar kröfur og
vísaði til ummæla Viktors Karpov,
helsta sérfræðings Sovétmanna í
afvopnunarmálum, sem segir Sov-
étstjómina kreQast þess að Banda-
ríkjamenn eyði öllum kjamaoddum
í eldflaugar af gerðinni Pershing
1A bæði í Vestur-Þýskalandi og í
Bandaríkjunum. Sovétmenn höfðu
áður krafist þess að samkomulag
risaveldanna tæki einnig til Pers-
hing lA-fiauga í eigu Vestur-Þjóð-
veija. Bandaríkjamenn og aðild-
arríki Atlantshafsbandalagsins
voru sammála um að vísa bæri þess-
ari kröfu á bug þar eð eldflaugamar
tilheyrðu þriðja ríki. Nýlega lýsti
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, yfír því að stjórn hans
væri reiðubúin að uppræta eldflaug-
amar eftir að stórveldin hefðu
undirritað samkomulag. Voru vonir
bundnar við að þetta gæti liðkað
fyrir samkomulagi en undanfarna
daga og vikur hafa sovéskir emb-
ættismenn sagt að þetta sé ekki
fullnægjandi trygging fyrir því að
kjamaoddar í flaugamar verði eyði-
lagðir auk þess sem þeir hafa
krafist þess að Bandaríkjamenn
eyði einnig kjamaoddum í Persh-
ing-flaugamar sem geymdir eru í
Bandaríkjunum.
Eduard Shevardnadze, utanríkis-
ráðherra Sovétríkjanna, kemur til
Washington á sunnudagskvöld og
mun hann eiga viðræður við Shultz
og Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seta. Vænta menn þess að þar verði
gengið frá lokadrögum samkomu-
lags, sem unnt verði að undirrita á
þessu ári. Aðspurður kvaðst George
Shultz telja að Sovétstjómin vildi
ná samkomulagi og hann væri
reiðubúinn til að hlusta á sjónarmið
Shevardnadzes.
Fréttir af gangi samningavið-
ræðnanna í Genf eru nokkuð
ósamhljóða. Bandarískir embættis-
menn segja að helsta óleysta
ágreiningsefnið varði eftirlit með
því að ákvæði samkomulagsins
verði virt. Sovéskir starfsbræður
þeirra segja á hinn bóginn að Pers-
hing-flaugamar í Vestur-Þýska-
landi og kjarnaoddar, sem unnt er
að koma fyrir í þeim, standi í vegi
fyrir samkomulagi.
Grænlandsmála-
ráðuneytið lagt af
Nuuk, frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunbladsins.
Grænlandsmálaráðuneyti
dönsku ríkisstjórnarinnar hef-
ur verið lagt niður í kjölfar
myndunar nýrrar ríkisstjórnar
í Danmörku. Ákveðið hafði ver-
ið að leggja ráðuneytið niður
um næstu áramót en þá tekur
grænlenska heimastjórnin við
rekstri heilbrigðiskerfisins á
Grænlandi.
Ákvörðun þessi kom Grænlend-
ingum stórkostlega á óvart. Þegar
Poul Schlúter, forsætisráðherra
Danmerkur, hafði lokið við að
mynda minnihlutastjóm sína
hringdi hann í Jonathan Motzfeld,
formann grænlensku heima-
stjómarinnar, og tilkynnti honum
að ráðuneytið hefði verið lagt nið-
ur. Motzfeld sagði í viðtali við
útvarpið í Grænlandi að hann
myndi eiga fund með danska for-
sætisráðherranum innan tíðar og
myndu þeir ákveða hvenær
heimastjómin yfirtekur ýmsan
rekstur sem nú er í höndum
danska ríkisvaldsins.
Danska heilbrigðismálaráðu-
neytið mun fara með heilbrigðis-
mál Grænlendinga fram að
áramótum. Námavinnsla á Grænl-
andi mun heyra undir danska
orkumálaráðuneytið en forsætis-
ráðuneytið mun annast önnur
samskipti ríkjanna líkt og það
gerir varðandi Færeyjar.