Morgunblaðið - 12.09.1987, Page 11

Morgunblaðið - 12.09.1987, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 11 verksins trúanlega, nema að vissu marki, því að víst er að hann verður á jafn skömmum tíma úreltur og bylgjan gengur yfir. Og fáar liststefnur hafa verið jafn klisjukenndar og nýja mál- verkið enda mála fulitrúar þess um allan heim, af ólíkum þjóð- ernum og kynþáttum ákaflega svipað og mjög fáir búa yfir persónulegum tjákrafti og hvað þá menntun í málverkinu til að koma hugmyndum sínum og draumum í sannverðugan bún- ing. Myndrænan búning, sem " byggist á allt annarri tækni en yfirborðsleikni, fáfengilegum brellum og brögðum. Það eru að mínu viti einmitt myndir hnitmiðaðra vinnu- bragða, hreinnar og beinnar lifunar inn í myndefnið svo sem „Sjálfsmynd" (14), „Nótt“ (18), „Sjálfsmynd með vasa á höfði“ (20), „Hið eilífa ferðalag" (25) „Vorvindar“ (34) og „Uppstill- ing í landslagi" (39), sem eru þróttmesta framlag Helga Þorg- ils til íslenzkrar myndlistar, svo og aðrar í líkum dúr. Alltof oft koma fram laus, kæruleysisleg klastursvinnu- brögð, er ganga eins og fleinn í annars ágætar myndheildir. í heild ber þessi sýning vaxandi listamanni vitni. Eitt langar mig til að benda á að lokum og það er að í þessu tilviki sem mörgum öðrum njóta myndimar sín best í dagsbirtu að morgni dags og ljósi á kvöld- in en síður eftir að kveikt hefur verið á ljósum er skyggja tekur er mætast náttúru- og gervi- birta. Hví ekki að breyta opnun- artíma Kjarvalsstaða þannig að fóik fái tækifæri til að njóta náttúrubirtunnar, sem er eina1 eðlilega birtan fyrir málverk? Loka kannski fyrr á kvöldin eða á sama tíma og veitingabúð — hafa þó opið nokkur kvöld í viku og þá veitingabúðina einn- ig... ÓFRESKIR DRAUMAR Myndlist Bragi Ásgeirsson Myndlistarmaðurinn Helgi Þorgils Friðjónsson telst einn helsti fulltrúi nýja málverksins svonefnda hér á landi. Hann er með sýningarglöðustu fulltrúum yngri kynslóðar (f. 1953) enda afkastamikill og fylginn sér. Um þessar mundir eru tvær sýningar í gangi á verkum hans, önnur á Kjarvalsstöðum en hin í Gallen Svart á hvítu við Óðin- storg. í Kjarvalssal sýnir Helgi 43 máiverk, sem flest virðast vera máluð á þessu ári og með tilliti til þess að mörg eru þau stór en fæst lítil eru afköstin gríðarleg en það eru nú einmitt einkenni nýbylgjumálaranna. Hér skilur Helgi sig þó úr að því leyti að hann stendur, að því er ég best veit, einn að verki en þeir ytra hafa margir hveijir og þá einkum hinir þekktari nokkra aðstoðarmenn við strengingu lérefta, undirbúning og efnisinn- kaup, — geta því alfarið einbeitt sér að útfærslu og mótun sjálfra verkanna. Nýbylgjumálverkið í hinum ýmsu myndum á miklu fylgi að fagna hér á landi um þessar mundir og virðist síður en svo á undanhaldi líkt og víðast hvar ytra. Fágaðri og hnitmiðaðri vinnubrögð ásamt lengri yfirlegu yfír hveiju verki virðist vera það sem nú sækir á, — jafnvel flatarmálsmálverkið gamla hefur verið endurlífgað undir nýjum formerkjum og nefnist „Neo Geo“. En það er eins með flatarmálverkið og fígúruna; hvorugt listformið hvarf af sjónarsviðinu heldur lifði góðu lífi og var vel ræktað af áhengendum þess alla tíð þótt minna bæri á því opinber- lega. Listbylgjumar sem ganga yfir halda að vissu marki lífí í rök- fræði og rannsóknum á mögu- leikum myndlistarinnar en eru langt í frá algildar um það, hvað helst sé að ske á listasviðinu hveiju sinni, — einungis hvað efst sé á baugi. * Málverk Helga Þorgils koma mér fyrir sjónir að vera undarleg blanda af ófreskum, bemskum draumum þar sem bókmennta- leg frásagnargleðin gengur á fullu, nostalgía aldamótaáranna (Belle Epoque) svífur yfír vötn- um ásamt kynlífsórum goð- sagnalegrar forskriftar. Helgi leitar víða fanga í listasögunni svo og nútímanum að myndefni og hrærir saman svo að á köflum finnst áhorfandanum sem hann sé að rýna í myndasögu þar sem sjálf frásögnin sé allyfirgnæf- andi meginás. En svo einfalt er þetta ekki því að þótt Helgi máli hrjúft og afneiti staðfastlega fagurfræði- legum hugleiðingum í tilurð málverka sinna; telji sig vilja afmá úr myndum sínum allt sem minnir á „gott málverk" að sígildum skilningi — þá bera hans bestu málverk ríkulegan og máski ósjálfráðan keim af þessum almennu lögmálum. Ymsir nafnkenndustu fulltrú- ar nýja málverksins svo sem Sandro, Chia, Anselm Kiefer og Rainer Fettig búa einmitt yfir innsærri tækni og málunar- leikni, sem er öfundsverð og kostar gríðarlega vinnu að þróa. Þannig séð er mjög varhuga- vert, að taka hráan boðskap og rökfræði fulltrúa nýbylgjumál- Hverjir gáfu í Kínaspilinu? Erlendar baekur Jóhanna Kristjónsdóttir John Ehrlichman: The China Card Útg. Corp Books 1987 Ehrlichman var iðulega í fréttum, þegar Watergate-hneykslið kom uppá. Hann var helzti ráðgjafi Nix- ons í innanríkismálum og varð að segja af sér eins og forsetinn og fleiri. Um hríð heyrðist lítið frá honum, en fyrir nokkrum árum sendi hann frá sér bókina Witness to Power: The Nixon Years og seinna tvær skáldsögur. Sennilega má fullyrða, að engin bókanna hefur vakið jafn almenna athygli í Bandaríkjunum og sú, sem hér er fjallað um. Eins og titillinn gefur til kynna er höfundur að skrifa um aðdraganda þess, að Kína var opnað Bandaríkjamönnum. Hvemig að því var staðið. Því að fæst er sem sýnist. Ehrlichman set- ur þetta upp í skáldsöguformi og getur þar af leiðandi leyft sér að blanda saman staðreyndum og skáldskap. Gerir það með ágætum. Raunar svo, að maður freistast til að halda, að þannig hafi Kínaspilið verið leikið. Matthew Thompson er ungur lögfræðingur, og hann fær vinnu á lögfræðiskrifstofu Richards Nixons. Árið er 1966 og flest bendir til að Nixon muni fara í forsetaframboð. Það er vegna persónulegra kynna Nixons og föður Matthews, að ungi maðurinn fær starfið. Pilturinn er fæddur í Kína, þar eð foreldrar hans bjuggu þar árum saman fyrir stríð. Foreldrar hans höfðu haldið við mandarin kínversku, svo að hann skilur hrafl í málinu. Það kem- ur sér vel síðar. í Kína fer menningarbyltingin eins og logi yfír akur um þessar mundir. Stjómleysið er algert í stór- um hlutum landsins, og þeir Mao formaður og Chou En-lai forsætis- ráðherra mega hafa sig alla við. Því að Lin Piao, varnarmálaráð- herra, þótt veikur sé og hrumur, er ekki af baki dottinn. Einn af þeim mætu mönnum sem hafði verið sendur í „endurhæfingu“ er Teng fyrrum starfsmaður í ut- anríkisráðuneytinu. Hann er nú kvaddur til Peking og leiddur á fund Chou forsætisráðherra. Teng hafði í gamla daga verið kunnugur föður Matthews. Og nú er sem sagt meiningin að hann hafi samband við piltinn og fái hann í lið með Chou og Mao. Því að Chou hefur afráðið - þótt það skýrist ekki fyrr en löngu síðar í bókinni - að Nixon verði forseti Bandaríkjanna og hann hefur sömuleiðis séð út leiki til að Nixon taki upp samskipti við Kínverska alþýðulýðveldið og láti Taiwan fara fyrir lítið. Matthew fyllist áhuga á því verk- efni, sem kynnt er honum: að stuðla að því að samskipti Bandaríkjanna og Kína geti ekki bara orðið eðli- leg, heldur vinsamleg. Höfundur ætlar honum bókina út í gegn, aldr- ei aðrar hvatir en góðar og aldrei fellst Matthew á að réttlætanlegt sé, þegar fram í sækir, að setja hann á bekk með njósnurum. Matthew fer nokkrar ferðir til Kína, allt verður það að vera með mestu leynd, en eftir að Nixon hef- ur verið kosinn, er Matthew ráðinn til starfa í Hvíta húsinu. Og Kínveij- um er vitaskuld akkur í að fá allítarlegar lýsingar á því sem menn eru að bauka þar. Þeir sjá alltaf nokkra leiki í spilinu, áður en Bandaríkjamenn koma auga á þá. En Matthew lendir einnig i háska; þegar Lin Piao hefur fregnir af John Ehrlichman áformum Maos og Chous að ving- ast við Bandaríkin, bregst hann hinn versti við. Meðal annars gerir hann tilraun til að láta ræna Matt- hew í einni Kínaferðinni, þótt það ævintýri fari vel að lokum. Lin Piao er ekki á þeim buxunum að gefast upp og ásamt yfirmönnum flug- hers, sem hann virðist hafa í hendi sér, skipuleggur hann samsæri gegn Mao. En Chou er honum klók- ari. Og kenning Ehrlichmans er sú, að Lin Piao er skotinn til bana með konu sinni þegar þau eru á leið úr elskulegu kvöldverðarboði hjá form- anninum. Smám saman hafa þeir félagar Teng kínverski og Matthew banda- ríski komið því í kring, að löndin eru farin að skiptast á leynilegum orðsendingum og það kemur að því að farið er að tala um að banda- rískur fulltrúi fljúgi til Kína og ræði málin. Það verður Henry Kiss- inger, sem laumast þangað í fyrstu heimsóknina. Allt hefur þó, án vit- undar Kissingers, verið fastmælum bundið fyrir löngu. Matthew hefur orðið ástfanginn af kínverskri stúlku Li-fa, sem er hægri hönd Chous. Það er ekki reiknað með slíkri uppákomu í Kínaspilinu og Matthew teflir sjálf- um sér og stúlkunni í hættu. Sennilega hefðu Matthew betur haldið sér við Glennu eða Mary. Þær eru bandarískar, sætar stúlk- ur, sem vilja óðar og uppvægar giftast honum. Ehrlichman lýsir flestum í starfsliði Nixons með sínum réttu nöfnum. Að vísu er enginn Ehrlich- man í hópnum. Það er freistandi að ætla að Ehrlichman vilji líta á sig sem Matthew, altjent hvað hug- sjónimar snertir. Kissinger og Álexander Haig fá ekki par góða útreið í bókinni. Þótt Matthew finn- ist Nixon með ljótari mönnum, verður vart ákveðinnar virðingar í 'nans garð. Chou En-lai er greini- lega meistarinn í spilinu og aðdáun á snilli hans fer ekkert á milli mála. Þótt það komi fram, að auðvitað svífst hann einskis, frekar en aðrir stjórnmálamenn, þegar á reynir. Ehrlichman hefur hér skrifað töluvert merkilega bók, þar sem einlægninni er stillt upp versus makki og undirferli pólitíkusa vítt um verold. Hvort sem sagan styðzt við raunveruleika eða ekki er hún lærdómsrík og fróðleg. Byijunin er dálítið þunglamaleg, en þegar hún hefur verið yfírstigin og persónum- ar hafa verið leiddar fram á sviðið og spilið er hafið er líka óhætt að segja að ég átti skemmtilegar stundir á næstu sex hundruð síðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.