Morgunblaðið - 12.09.1987, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
1
„Risar“ í görðum II
Við tökum nú upp þráðinn þar
sem frá var horfíð í síðasta þætti
og í kjölfar „risanna" verða nú
talin upp nokkur „hálftröll" sem
vel sóma sér í görðum og nota má
á ýmsa vegu en þó fyrst og fremst
sem „solitaire“-plöntur, þ.e. að láta
þær standa einar sér, t.d. á gras-
flöt eða í homi í garðinum. Tökum
t.d. JÖTUNJURT (Aruncus dioic-
us, A. vulgaris eða A. sylvestris)
sem er mjög glæsileg og getur við
bestu skilyrði náð allt að tveggja
metra hæð. Jötunjurtin gengur
einnig undir nafninu GEITA-
SKEGG og á Norðurlöndum er hún
kölluð FJERBUSK, Qaðrarunni, og
þó hún teljist ekki til eiginlegra
runna má segja að blómin sem hún
ber í stórum næstum hvítum skúf-
um minni talsvert á skrautfjaðrir.
Þetta er votlendisjurt sem þolir
nokkum skugga. Leggimir eru svo
stinnir að jurtin þarfnast ekki
stuðnings.
GULLKORNBLÓM (Centaurea
macrocephala) er fremur sjaldgæft
og ekki mikið í sviðsljósinu. Það
er blaðstórt og hefur stinna stöngla
sem verða á annan metra á hæð.
Blómkarfan er sérkennileg, reifa-
blöðin mynda brúnhreistróttar
kúlur á stöngulendunum en upp
úr þessum kúlum opnast síðan sól-
gullin blómkrónan, en það gerist
ekki fyrr en mjög seint á sumri
og tæplega nema í bestu tíð eins
og þeirri sem við höfum notið í
ríkum mæli þetta árið. Unir sér
sem önnur komblóm á sólríkum
stað, fremur þurrum.
Varla er unnt að nefna hávaxin
og tilkomumikil blóm í görðum án
þess að RIDDARASPORAR komi
þar við sögu. Um þá mætti segja
langa sögu, en því verður ekki
komið við að sinni, enda hefur
þeirra líka verið getið í þættinum
áður (grein nr. 17 — 23.8.1986).
Varla getur að líta meiri litauðgi
og fegurð en hjá þessum tígulegu
jurtum. Þó má e.t.v. nefna í sömu
andrá SKRAUTLÚPÍNUR (Russ-
els) en hjá þeim fer saman mikið
litskrúð og glæsileiki.
RANDAGRASIÐ (Phalaris ar-
undinacea) með sín grágræ/
hvítröndóttu blöð getur ekki státað
af litskrúði, þó er það býsna heill-
andi ekki síst síðsumars þegar
axið hefur náð fullri hæð og mikið
kann ég alltaf vel við skijáfíð í því
þegar um það leikur hæg gola.
En það er frekt til fjörsins og veit-
ir ekki af að hafa gát á að það
gerist ekki of heimaríkt og gott
er að gera sér að vana að snyrta
það og skera utan af því á hveiju
vori.
ÞYRNIKOLLUR (Echinops) er
stundum kallaður KULUÞISTILL:
Tilkomumikil jurt með stinna
stöngla, 100—150 sm á hæð. Á
stöngulendunum sitja smávaxin
blóm og mynda þéttar kúlur sem
eru harðar viðkomu. Það sama
má segja um blöðin, stór, gljáandi
og dálítið þymótt. Jurtin þarf djúp-
an jarðveg því rætumar eru
öflugar og leita langt niður. Þekkt-
astir í ræktun hér á landi eru
BLÁÞYRNIKOLLUR (E. ritro) og
GRÁKOLLUR (E. sphaerocoephal-
us).
Þessari sundurlausu og handa-
hófskenndu upptalningu lýkur með
því að minnast verður lítillega á
stórvaxna MJÓLKURJURT
(Euphorbia palustris). Hún getur
náð 150—180 sm hæð þegar hún
er búin að koma sér vel fyrir og
hefur náð fullum vexti en það get-
ur tekið hana alllangan tíma.
Blómin fagurgul að lit sitja á
stöngulendunum, í raun og veru
eru það ekki blóm heldur svokölluð
háblöð (sbr. jólastjömu, E. pulcher-
rima). Állt um það er jurtin væn
ásýndum og ánægjulegt að eiga
hana í garði sínum.
Þær jurtir sem taldar hafa verið
upp í þessum tveim þáttum um
„risa í görðum" hafa um langt
árabil verið ræktaðar hér á landi
með góðum árangri og geta því
sannarlega talist algengar. Þeim
má auðveldlega fjölga með skipt-
ingu og sumar hveijar þroska fræ.
Síðar verður e.t.v. getið fáeinna
tegunda sem fágætari eru.
ÁBj.
Þessi mjólkuijurt, Euphorbia polychroma, er aðeins 25-30 sm á
hæð, en blómskipun er mjög lík og hjá Euphorbia palustris, sem
getið er í greininni.
Alla daga vikunnar til Evrópu
Amarflug hefur nú náð þeim langþráða áfanga að flogið er alla daga vikunnar til Evrópu. ■ Við
fljúgum fimm sinnum í viku til Amsterdam og tvisvar í viku til Hamborgar. ■ Brottfarir eru þannig settar
upp að við lendum á Schiphol flugvelli í Amsterdam á hádegi. ■ Pá er einmitt besti tíminn til að
ná tengiflugi áfram, til allra heimshorna. ■ Hjá Arnarflugi fœrðu farmiða hvert sem er í heiminum.
I