Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 12.09.1987, Blaðsíða 17
V»QOr <Jr7faiKr3rVnrJO or aTT*^A(rTC A T nTfJ A T<7TATT»'\<7/'Mi«r MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 ff SVIPMYNDIR ÚR BORGINNI / Ólafur Ormsson Á útborgnnardegi Tíminn líður, langt liðið á sumar, komið fram í septembermánuð og allra veðra von. Fyrsti dagur hvers mánaðar er eins og kunnugt er út- borgunardagur hjá megin þorra launþega og þá í mörgu að snúast í bönkum og lánastofnunum. Fyrsta dag septembermánaðar bar upp á þriðjudag, og góður vinur, Guðni Már Henningsson, kom í heimsókn á bíl sínum, tékkneskum Skoda, í tilefni dagsins, og kvað haustið leggjast ágætlega í sig, beijatínsla, réttir og tilheyrandi og stórkostleg bókmenntahátíð í Reykjavík. Guðni er rétt rúmlega þrítugur og gæslu- maður á Kópavogshælinu, með laun sem eru engan veginn mannsæm- andi, innan við fjörutíu þúsund krónur á mánuði, og hann gerir varla meira en að draga fram lífið í starfí sem einungis góðir drengir og stúlk- ur taka að sér. Hann er samt nokkuð ánægður með tilveruna enda á hann ótal áhugamál og hefur löngum gert góðlátlegt grín að lífsgæðakapp- hlaupinu. Nægir að eiga tóbak í pípuna, góðar bækur, plötur, föt og fyrir fisk í soðið. Svo hefur hann frumlegan húmor sem er bráðnauð- synlegur á alvörutímum i lífi ein- staklinga og þjóða. Á útborgunar- dögum um mánaðamót veit hann fátt skemmtilegra en að skoða mannlífið og ekur þá oft á bíl sínum niður Laugaveginn. Hann bauð mér í slíka skoðunarferð fyrsta dag sept- embermánaðar. Það 'voru rigning- arskúrir af og til, mild veður og ekið framhjá veðdeild Landsbank- ans, Alþýðubankanum, Samvinnu- bankanum. Á gangstéttum hópur fólks og Kringlan búin að opna með tilheyrandi hátíðarhöldum. Guðni Bragason fréttamaður Sjónvarpsins á gangi á homi Laugavegar og Vit- astígs, í ljósum regnfrakka með bros á vör og við búðarglugga, fólk að spá í verðlag og gæði vöru. Einar Már Guðmundsson rithöfundur þó í engum slíkum hugleiðingum að sjá þar sem hann kom upp Bankastræ- tið með unga dóttur sína í fanginu og kinkaði kolli til kunningja og aðdáenda, yfirvegaður og stressið vfðs §arri. Guðni Már er ekki einn um að gera góðlátlegt grín af lífsgæða- kapphlaupi okkar Islendinga. Maður kominn á sextugsaldurinn sem er svo hógvær og lítillátur að hann vill alls ekki láta nafns síns getið er kominn í trillubátaútgerð og rær með öðrum manni á nálæg mið hér út af Gróttu. Hann er búinn að eiga mörg áhugamál um dagana. Nú á trillubátaútgerðin hug hans allan. Hann var með golfdellu, skákdellu og ótal aðrar dellur. Hann var ein- mitt að fjárfesta í trillu, einn útborgunardag hér fyrr í sumar, ásamt Lalla vinnufélaga sínum og vini, og nú borga þeir af trillunni og hver mánaðamót allt fram til áramóta. — Ég skal segja þér að ég veit fátt skemmtilegra en að róa á miðin eftir fiski. Og frekar fæ ég mér góða trillu en að eyða mánaðakaup- inu inni á einhveijum stórmarkaðin- um, í tómt glingur, sagði hann við mig um daginn. Þetta gerði maður svo sem. Kom heim um hver mánað- mót með alls konar vaming og hlóð upp í íbúðinni og átti það til að festa það á filmu. Nei. Ég á allt af öllu. Er með tvo fugla í búri, kött, mynd- segulband, sjónvarp eins og lög gera ráð fyrir og auðvitað útvarp, hljóm- flutningstæki, nú teppi á gólfum, nýja ryksugu, nýjan ísskáp og var farinn að fjárfesta í verðbréfum þar til ég áttaði mig á því að þetta er allt saman hégómi. -Ég var satt að segja stöðugt að safna að mér ein- hveijum hlutum. Það vantaði samt eitthvað í líf mitt eftir að konan hljóp frá mér með manni til útlanda. Þá var það að við Lalli ákváðum að kaupa trillu. Hann er einnig fráskil- inn. Trillubátaútgerðin getur verið skemmtilegt sport svona með prent- verkinu. Það var hér eina helgi, á laugardegi, að við komum úr róðri að bryggju inn í Sundum, með ýsu og þorsk, ein fjögur tonn. Við vorum að byija að landa þegar niður á bryggjuna gengur kona sem fékk nú hárin á höfðinu á mér til að rísa og eru þau nú ekki mörg. Hún er líklega eitthvað á fertugsaldri, ljós- skolhærð og var í kjól sem náði henni varla niður fyrir hné. Hún gekk til okkar og spurði um aflann. Eg varð fyrir svörum: — Það er mesta furða hvað hægt er að draga upp úr sjónum. Við erum hér með vænan fisk, væna ýsu og þorsk. Ég verð að segja að ég hefði nú gjaman viljað fá jafn myndarlega ýsu og þig á öngulinn. Við þessi ummæli brá konunni. Hún var næst- um dottin þama á bryggjunni. Lalli var kominn upp úr bátnum og greip hana í fallinu. — Þú spriklar eins og ýsan, sagði hann. Það var svolítið slor þama á bryggjunni og konan á þannig skóm að enginn vandi var að hrasa. Hún þáði nú síðar físk hjá okkur í soðið. Við Guðni Már fórum í Skoda bifreiðinni um Lækjargötu, Pósthús- stræti og við Hótel Borg gekk Ingi Bjöm Albertsson, alþingismaður, yfir götu áleiðis að Dómkirkjunni, í ljósum regnfrakka með skjalatösku í hendi, svona til að minna á tilveru Borgaraflokksins. Góður kunningi sem þarf stundum nokkuð að nota síma í heimahúsi fékk um daginn símareikning sem hljóðaði upp á 133 þúsund og 900 krónur. Hann var gjörsamlega miður sín og skildi ekkert í því hvað reikn- ingurinn var hár. Hélt þvi fram að hann hefði kannski gengið um í svefni sem hann á nú til og óvart hringt til útlanda. Kannski talað við helstu stjómmálamenn samtímans í svefni. Hann var eiginlega friðlaus í nokkra daga uns hann fékk annan seðil, leiðréttingu og sá símareikn- ingur hljóðaði upp á 1390 krónur. Á einhvem óskiljanlegan hátt höfðu orðið alvarleg mistök í útsendingu fyrri reiknings. Hann hafði gert at- hugasemd um leið og fyrir seðillinn kom og var síðan beðinn afsökunar á leiðum mistökum ... HAUSTSALA A HEL GARFERDUM TIL FIMU BORGA ÍEVRÓPU' LONDON Fjórir dagar - þrjár nœtur. Gisting í tueggja manna herbergi m/morgunverði. Verð frá kr. 17.227 Gildir frá 15. sept. CLASCOW Fjórir dagar - þrjár nœtur. Gisting í tveggja manna herbergi m/morgunverði. 15.362,-t Gildir frá 15. sept. LUXEMBORG AMSTERDAM Tvœr til þrjár nœtur. Gisting í tveggja manna herbergi m/morgunverði. 14.894,- Sérstakt tilboð í október og nóvember. ATH! Bjóðum einnig Glasgowferðir frá þriðjudegi til laugardags. Fimm dagar - fjórar nœtur. Gisting í tveggja manna herbergi m/morgunverði. 16.370. - Gildir frá 15. sept. Þrír dagar - tvœr nœtur. Gisting í tveggja manna herbergi m/morgunverði. 17.130.- Gildir frá 1. okt. KAUPMANNA- 00 HOFN Fjórir dagar - þrjár nœtur. Gisting í tveggja manna herbergi m/morgunverði. . 21.100.- Gildir frá 15. sept. FERÐASKRIFSTOFAN URVAL - fólk sem kann sitt fag! Pósthússtrœti 13 - Sími 26900
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.