Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
31
Verdens Gang
George Visser var tekinn að hressast er þessi mynd var tekin af
honum á sjúkrahúsi á Svalbarða í gær. A borðinu hjá honum er
stytta af dýrategundinni, sem honum er tæplega nokkuð óskaplega
hlýtt til þessa dagana.
Svalbarði:
Oður ísbjöm ræðst
á tvo vísindamenn
Osló, frá Jan Enk Laure, fréttaritara Morgunblaðsins.
TVEIR hollenskir vísindamenn
voru aðeins hársbreidd frá dauða
sínum er óður ísbjörn réðist á
þá á Edge-eyju við Svalbarða nú
í vikunni. Eftir árás bjarnarins
lágu mennirnir særðir og blóðug-
ir í skýli sínu í þijá sólarhringa
áður en hjálp barst.
Vísindamennirnir reyndu að fæla
ísbjöminn burt er hann réðist á
skýli þeirra og gúmbát. Rándýrið
stökk á annan þeirra, Pete Oster-
feldt, sló hann niður og beit hann
í höfðuðið.
„Hann fláði af honum höfuðleð-
rið,“ sagði hinn vísindamaðurinn,
Georg Visser. „Ég kveikti á lukt
og reyndi að bjarga Pete. Ég hélt
hann væri dáinn, en vildi hindra
bjöminn í að éta hann.“
Visser barðist langa stund við
bjöminn og hlaut mörg bit og risp-
ur. Á meðan rankaði Osterfeldt við
sér og tókst að skríða inn í skýlið.
Visser flúði á eftir honum, og félag-
amir kúldmðust særðir og óvopnað-
ir í kofa sínum, sambandslausir við
umheiminn. Þeir áttu hins vegar
von á hollenskum báti, sem átti að
sækja þá þremur dögum síðar.
Báturinn kom eins og um var
samið. Áhöfnin heyrði hróp félag-
anna í kofanum og sá bjöminn, sem
enn æddi um fyrir utan skýlið.
Norska landstjóranum á Svalbarða
var gert viðvart og þyrla send frá
Longyearbyen. ísbjöminn var skot-
inn á færi og Hollendingunum
komið í sjúkrahús.
Líðan vísindamannanna þykir
góð eftir atvikum. Osterfeldt verður
þó að fara í margar plastskurðað-
gerðir áður en hann verður eðlilegur
útlits aftur. Það mun taka langan
tíma fyrir sárin á höfði hans að
gróa saman.
Persaflói:
De Cuellar
ræðirvið
Iransstjóm
Teheran, Reuter.
í GÆR kom Perez De Cuellar,
framkvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, til Teheran, höfuð-
borgar írans. Tilgangur farar-
innar er að reyna til þrautar að
fá írani til þess að fallast á
vopnahléskröfu Öryggisráðs SÞ.
Fyrstan hitti De Cuellar Ali Ak-
bar Velayati, utanríkisráðherra
Irans, en frekari fundahöld með
írönskum stjómvöldum eru fyrir-
huguð í dag og á morgun.
Þá fer De Cuellar áleiðis til Bag-
dað, höfuðborgar íraks, þar sem
hann mun dvelja í tvo daga. Eftir
viðræður við þarlend stjórnvöld er
ráðgert að hann haldi til New
York-borgar á ný til skrafs og ráða-
gerða við Öryggisráðið.
Bandaríkin:
V öruskiptahalli
aldrei verið meiri
Washington, Reuter.
VÖRUSKIPTAHALLI Banda-
ríkjanna í júlí nam 16,47 miHjörð-
um Bandaríkjadala og er það enn
eitt metið, sem slegið er á þessu
sviði á árinu. Fyrra met var frá
júní og var hann þá 15,71 millj-
arðar. Talið er að Bandaríkjadal-
ur muni lækka í verði i kjöifar
þessa.
Reyndar hafði verið búist við því
að hallinn kynni að eitthvað hærri
en í júlí, en ekki hafði verið búist
við því að hann yrði jafnmikill og
raun bar vitni.
Halli þessi þykir ekki góður af-
spumar í Washington og ekki bætir
úr skák að forsetakosningar eru
framundan á næsta ári. Þá hefur
Bandaríkjaþing nú frumvarp til
umræðu þar sem lagt er til að
vemdarstefna verði á ný tekin upp
í milliríkjaverslun þó í takmörkuð-
um mæli verði. Talið er að ofan-
greindar hagtölur muni hafa áhrif
á brautargengi frumvarpsins.
Nálega þriðjungur viðskiptahall-
ans er vegna Japansviðskipta, en
hallinn á þeim er talinn nema um
160 milljörðum Bandaríkjadala ár-
lega. Frumvarpið beinist einkum
gegn óheftum innflutningi frá Jap-
an og er m.a. ætlað að þrýsta á
stjómvöld í Tókíó um að láta af
alls kyns viðskiptahömlum sem
gera innflutning á bandarískri vöru
til Japans illkleifan og kostnaðar-
saman.
í síðustu viku ákvað Seðlabanki
Bandaríkjanna að hækka vexti um
*/2% í von um að styrkja gengi dals-
ins gagnvart öðmm gjaldmiðlum,
en jafnframt til þess að slá á ótta
við að verðbólga kunni að fara af
stað á ný. Nú er hætt við að þessar
ráðstafanir hafi haft lítið að segja.
Noregur:
Hver bar byssurnar
í sendiráðstökunni?
Reuter
Tveir sendiráðstökumanna á svölum sendiráðsins sl. fimmtudag.
Ósló, Reuter.
GETUM er nú að því leitt að
byssumar, sem sáust og heyrðist
í við töku sendiráðs írana í Ósló,
hafi ekki verið f höndum töku-
manna eins og fyrst var álitið.
Þegar hinu þriggja tíma langa
umsátri lauk á fimmtudag með
uppgjöf ellefu iranskra kommún-
ista fundust engar byssur á þeim,
en sendiráðsmenn írans neituðu
lögreglunni um frekari aðgang
að sendiráðsbyggingunni og
höfnuðu aukin heldur beiðni lög-
reglunnar um að skrá vitnisburð
sendiráðsstarfsmanna.
Á fímmtudag, skömmu áður en
árásarmennimir gáfust upp, heyrðu
blaðamenn, sem staddir voru utan
við sendiráðið, byssuskot inni í því
og lögreglan sagðist hafa séð til
vopnaðra manna í gluggum þess.
Þegar lögreglan var spurð hvort
verið gæti að sendiráðsmenn hefðu
verið vopnaðir vildi talsmaður henn-
ar ekki tjá sig um málið. Per Paust,
KONA frá Leningrad, sem
greindist með alnæmi, hefur
undirritað skjal þess efnis að hún
muni ekki hafa kynmök næstu
fimm árin.
Konan, sem er 28 ára, sam-
þykkir þetta í ljósi laga frá því í
ágúst. Að sögn Tass-fréttastofíinn-
blaðafulltrúi utanríkisráðuneytis-
ins, sagði í viðtali við Reuters að
samkvæmt alþjóðlegum samþykkt-
um kæmi það Norðmönnum ekki
við hvort sendiráð hefðu vopn eða
annan búnað innan vébanda sinna.
ar fékk konan að yfírgefa sjúkra-
húsið sem hún dvaldi á eftir að hún
skrifaði undir. Konan er sögð eina
manneskjan í Leningrad sem
greinst hefur með sjúkdóminn. Að
sögn heilbrigðisyfirvalda í Sovét-
ríkjunum hafa 102 einstaklingar
greinst með sjúkdóminn, þar af eru
80 útlendingar.
Ekki náðist í neinn sendiráðs-
starfsmann til þess að tjá sig um
málið, en sendiráðunauturinn Mo-
hammed Hadi Ardebili, sem varð
fyrir hnífsstungu á fímmtudag,
sagði í viðtali við norska ríkisút-
varpið af sjúkrabeði að engar
byssur væru í sendiráðinu. „Við
höfum engin vopn í sendiráðinu og
getum ekki varið okkur." Hann
gagnrýndi lögregluna jafnframt
harðlega fyrir framgöngu sína. Ut-
varpið í Tehran tók í sama streng
og sagði að lögreglan hefði brugð-
ist við „innrás hryðjuverkamann-
anna af miklu ábyrgðarleysi."
Að beiðni sendiráðsins hefur ör-
yggisgæsla um það verið mjög hert
og í Teheran var gæsla við norska
sendiráðið einnig efld, þó svo að
norsk stjómvöld hefðu ekki æskt
þess.
Alnæmissjúklingur
hættir kynlífi í 5 ár
Moskvu, Reuter.