Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
Framfærsluvísitalan hækkaði um 1,13% í ágúst:
Vísitalan 5,65% hærri
en reiknað var með
í kjarasamningfum
Launanefndir taka afstöðu til vísi
tölubóta á næstu tveimur vikum
Óskar Guðmundsson fisksali í Sæbjörgu
Morgunblaðið/Sverrir
Höfuðborgarsvæðið;
Vinnutími f isksalanna
hefur styst um þriðjung
VÍSITALA framfærslukostnaðar
hækkaði um 1,13% frá því í byij-
un ágiístmánaðar fram í byrjun
september og er nú 210,38 stig.
Umreiknað til eins árs jafngildir
þetta 14,4% verðbólgu á ári, en
undanfarna tólf mánuði hefur
visitala framfærslukostnaðar
hækkað um 20,3%. Undanfarna
þijá mánuði hefur visitalan
hækkað um 5,5%, sem jafngildir
23,7% verðbólgu á heilu ári.
Af þessari 1,13% hækkun stafa
um 0,1% af hækkun á verði mat-
vöru, um 0,3% stafa af hækkun á
verði fatnaðar og um 0,7% stafa
af hækkun ýmissa vöru og þjón-
Athugasemd:
AÐSTOÐAR póst og símamála-
stjóri Guðmundur Björnsson bað
um að eftirfarandi athugasemd
yrði komið á framfæri í blaðinu.
Vegna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um bilanir í stafræna símakerf-
inu og beiðni samgönguráðherra
um kröfu til framleiðanda varðandi
tafarlausar úrbætur af hálfu selj-
anda vil ég taka fram: Ég tel fulla
ástæðu til að gæta réttar stofnunar-
innar og þar með símnotenda ef
um það er að ræða. Það er alls
ekki ótímabært á nokkurn hátt.
ustuliða, segir í fréttatilkynningu
frá Hagstofu íslands.
Hækkun framfærsluvísitölunnar
frá því í maímánuði er samtals
5,65% meiri en miðað var við í
kjarasamningum ASÍ og VSÍ/VMS
í desember á síðasta ári. Það er á
valdi launanefndar aðila að úr-
skurða um það hvort þessi hækkun
vísitölunnar verður bætt launþeg-
um, en við mat sitt ber nefndinni
að taka tillit til þróunar kaupmáttar
og breytinga á efnahagslegum for-
sendum. Umsamin 1,5% áfanga-
hækkun launa kemur til
framkvæmda um næstu mánaða-
mót og gætu því laun samtals
Við hjá Pósti og síma gerum
okkur fyllilega grein fyrir alvöru
þessa máls, þótt síðar verði að koma
í ljós hvort grundvöllur sé fyrir
sskaðabótakröfu. í bréfi ráðherra
til okkar er ekkert fullyrt um það
heldur bent á að athuga þurfi hvort
um hugsanlega skaðabótaábyrgð
hins erlenda framleiðanda geti verið
að ræða.
Verið er að ganga frá bréfi til
framleiðanda og vonast ég til að
hægt verði að póstleggja það fyrir
helgi.
hækkað um 7,23% 1. október, verði
sú niðurstaða nefndarinnar að bæta
hækkun framfærsluvísitölunnar að
fullu.
Pjórir menn eiga sæti í launa-
nefnd ASÍ og VSI/VMS, tveir frá
hvorum aðila, og fer ASÍ með odda-
atkvæði í nefndinni verði ágreining-
ur um úrskurðinn. Hingað til hefur
ætíð orðið samkomulag um að bæta
hækkun framfærsluvísitölunnar að
fullu, en í þau skipti hefur vísitalan
farið miklu minna fram úr því sem
ráð var fyrir gert en nú.
Óskipað er í tvö sæti í nefnd-
inni. Bjöm Bjömsson, hagfræðing-
ur, sem sat í nefndinni af hálfu ASÍ
ásamt Hólmgeir Jónssyni, hefur
látið af störfum hjá samtökunum
og ''/ilhjálmur Egilsson, hagfræð-
ingur, sem átti sæti í nefndinni af
hálfu Vinnuveitendasambandsins
ásamt Ólafi Davíðssyni, hefur hafíð
störf hjá Verslunarráði íslands.
Skipað verður í þessi tvö sæti strax
eftir helgina. Urskurður nefndar-
innar á að liggja fyrir 25. þessa
mánaðar.
Auk launanefndar ASÍ og VSÍ/
VMS em Samband bankamanna
og félög opinberra starfsmanna og
ríkið einnig með launanefndir á
sínum snæmm.
Leiðrétting
Þau mistök urðu í inngangi að
greinaflokki um helstu dánarorsak-
ir í C-blaði Morgunblaðsins í gær
að tölur um látna hér á landi og
fjölda þeirra þar sem dánarorsökin
var einn þeirra fímm sem algeng-
astar em féllu niður. Nýjustu tölur
sem fyrir liggja em frá árinu 1985
og taka til áranna 1981-84. Þá dóu
að meðaltali um 1.600 Íslendingar
á ári, og þar af 1.260 af ofangreind-
um orsökum. Síðari talan skiptist
þannig að 480 dóu úr hjartasjúk-
dómu, 160 úr heilablóðfalli, 160 úr
lungnasjúkdómum, 370 úr krabba-
meini og 90 fómst í slysum.
„Fiskmarkaðimir i Reykjavík
og Hafnarfirði hafa stytt vinnu-
tíma hins almenna fisksala í
Reykjavík um tuttugu til þijátíu
prósent,“ segir Öskar Guð-
mundsson fisksali í Sæbjörgu á
Grandagarði, sem á og rekur
fiskbúðirnar á Bragagötu 22 og
Dunhaga 18 i Reykjavík.
Óskar sagði í viðtali við Morgun-
blaðið að áður en Faxamarkaður
hf. í Reykjavík og Fiskmarkaðurinn
hf. í Hafnarfírði vom opnaðir, hafí
físksalar á höfuðborgarsvæðinu
jafnvel þurft að bíða eftir físki upp
úr bátum í Grindavík, Sandgerði
og Keflavík til klukkan átta á kvöld-
in. Fiskurinn hafí þá stundum ekki
verið kominn í hús hjá þeim fyrr
en klukkan ellefu á kvöldin. Hins
vegar kaupi físksalar nú almennt
fiskinn í fiskmörkuðunum.
„Það er einnig þægilegra að
skipta við fiskmarkaðina heldur en
að vera með föst viðskiptasambönd
við báta því að í fískmörkuðunum
er hægt að kaupa hvort heldur sem
er eitt eða fimm tonn af físki hveiju
sinni. Nú emm við einungis í föstum
viðskiptum við einn bát, Rúnu RE
150, en sennilega kaupum við físk
af útgerðarfélaginu Þorbimi hf. í
Grindavík næstu vetrarvertíð,"
sagði Óskar að lokum.
Ráðherrar
kynna sér
Blönduvirkjun
ÞORSTEINN Pálsson for-
sætisráðherra og Friðrik
Sophusson iðnaðarráðherra
skoðuðu framkvæmdir við
Blönduvirkjun í boði Lands-
virkjunar í gær.
Með þeim í ferðinni vom
Jóhannes Nordal stjómarform-
aður Landsvirkjunar, Halldór
Jónatansson forstjóri Lands-
virkjunar og Jóhann Már
Maríusson aðstoðarforstjóri.
Ferðin var farin til að kynna
ráðhermnum framkvæmdir við
Blönduvirkjun.
Tímabært að gæta
réttar símnotenda
- segir aðstoðar póst og símamála
stjóri um biluðu símstöðvarnar
Brids
Arnór Ragnarsson
Sumarbrids ’87
Metþátttaka var í sumarbrids sl.
þriðjudag. 66 pör mættu til leiks
og var salurinn í Sigtúni 9 fullskip-
aður. Sumarbrids ’87 lýkur nú á
fímmtudaginn, en næstu þriðjudaga
verður boðið upp á haustbrids, þ.e.
eins kvölds keppnir með sama fyrir-
komulagi og í sumarbrids. Húsið
verður opnað kl. 17.30 á þriðjudög-
um og hefst spilamennska í hveijum
riðli um leið og hann fyllist.
Úrslit sl. þriðjudag urðu:
A Stig:
Óli Bjöm Gunnarsson —
Ragnar Haraldsson 199
Guðlaugur Sveinsson —
Magnús Sverrisson 177
Guðmundur Kr. Sigurðsson —
Steingrímur Steingrímsson 170
Gunnar Þorkelsson —
Lárus Hermannsson 170
Nanna Agústsdóttir —
Sigurður Amundason 170
B Stig:
Huida Hjálmarsdóttir —
Þórarinn Andrewsson 191
Sig.ríður Ottósdóttir —
Ingólfur Böðvarsson 181
Bjöm Blöndal —
Magnús Torfason 181
Hörður Pálsson —
Þráinn Sigurðsson 178
Óskar Karlsson —
Þröstur Sveinsson 171
C Stig:
Guðlaugur Nielsen —
Guðmundur Thorsteinsson 200
Erlendur Björgvinsson —
Hallgrímur Mámsson 184
Gísli Þorvaldsson —
Reynir Bjamason 181
Asthildur Sigurgísladóttir —
Lárus Amórsson 180
Jónas Elíasson —
JónG.Jónsson 174
D Stig:
Jacqui McGreal —
Þorlákur Jónsson 208
Kristján Ólafsson —
Rögnvaldur Möller 184
Bemódus Kristinsson —
Þórður Bjömsson 181
Ragnar Bjömsson —
SævinBjamason 177
Guðni Hallgrímsson —
Helgi Samúelsson 164
E Stig:
Ármann J. Lárusson —
Steingrímur Jónasson 142
Ríkharður Steinbergsson —
Steinberg Ríkharðsson 130
Hermann Sigurðsson —
Jóhannes O. Bjamason 130
Sigurður Karlsson —
Sæmundur Jóhannsson 104
Og lokastaða efstu spilara í sum-
arbrids 1987 varð sú að Jacqui
McGreal sigraði glæsilega. Hún
hlaut 387 stig á 33 spilakvöldum,
sem er nýtt met í sumarbrids. Til
hamingju með sigurinn, Jacqui.
Röð efstu spilara varð: Sæti: Stig:
1. Jacqui McGreal 387
2.-3. Hulda Hjálmarsdóttir 370
2.-3. Þórarinn Andrewsson 370
4. Sveinn Sigurgeirsson 353
5.-6. Lárus Hermannsson 352
5.-6. Gunnar Þorkelsson 352
7. Þorlákur Jónsson 331
8. Jón Stefánsson 290
9. Þórður Bjömsson 277
10. Ragnar Jónsson 207
Alls hlutu 310 spilarar stig í sum-
arbrids 1987, sem einnig er nýtt
met. Meðalþátttaka var um 55 pör
á kvöldi eða 110 pör á viku, sem
einig er nýtt met í sumarbrids og
þó víðar væri leitað í Evrópu.
Eins og áður sagði, lýkur sum-
arbrids á fimmtudag, en næstu
þriðjudaga í haust og í vetur verður
Opið hús á þriðjudögum, eins kvölds
keppnir, opnar öllum. Umsjónar-
maður verður Ólafur Lámsson.
Úrslit í bikarkeppni
Bridssambandsins
Undanrásir í Bikarkeppni Brids-
sambands íslands verða spilaðar í
Sigrúni nk. laugardag. Þá spila
saman sveitir Ásgríms Sigurbjöms-
sonar frá Siglufirði gegn Sigurði
B. Þorsteinssyni, Reykjavík og hins
vegar sveitir Flugleiða, Reykjavík
gegn Emi Amþórssyni, Reykjavík.
Spilaðar verða 4x12 spila lotur og
hefst spilamennskan stundvíslega
kl. 13. Sigurvegaramir spila síðan
til úrslita á sunnudeginum á sama
stað og hefst spilamennska þá
stundvíslega kl. 10 árdegis. Keppn-
isstjóri verður Hermann Lámsson.
Góð aðstaða verður fyrir áhorf-
endur um helgina. Núverandi
bikarmeistari er sveit Samvinnu-
ferða/Landsýnar en meginuppi-
staða sveitar Flugleiða er einmitt
skipuð spilumm úr þeirri sveit.
íslandsmót kvenna/
yngri spilara í
tvímenning
Bridssambandið minnir á skrán-
ingu í íslandsmótið í tvímenning
kvenna og flokki yngri spilara,
fædda 1963 og síðar, sem haldið
verður í Sigtúni helgina 10.—11.
október. Skráningarfrestur rennur
út mánudaginn 5._ október. Skráð
er á skrifstofu BSI eingöngu.
Frá hjónaklúbbnum
Vetrarstarf félagsins hefst
þriðjudaginn 15. sept. í Hreyfils-
húsinu kl. 19.45, byijað verður á
eins kvölds tvímenningi, þann 29.
sept. hefst síðan 3ja kvölda
tvímenningur.
Stjórnin
Orðsending frá
Bridsfélagi Breiðholts
Við byijum vetrarstarfið þriðju-
daginn 15. september með eins
kvölds tvímenningi, einnig verður
eins kvölds tvímenningur á dagskrá
þriðjudaginn 22. september. En
þriðjudaginn 29. september hefst
þriggja kvölda hausttvímenningur.
Félagar em beðnir að mæta vel
og stundvíslega og setja kraft í fé-
lagsstarfið strax í bytjun, einnig
em nýir félagar velkomnir.
Spilað er í Gerðubergi kl. 19.30.
Stjórnin.
Frá Bridsfélagi
Hafnarfjarðar
Þann 31. ágúst kom nýkjörin
stjórn félagsins saman og var störf-
um skipt á milli stjómarmanna
samkv. lögum félagsins, á eftirfar-
andi hátt:
Formaður Einar Sigurðsson;
varaformaður Dröfn Guðmunds-
dóttir; gjaldkeri Ingvar Ingvarsson;
áhaldavörður Hulda Hjálmarsdóttir;
ritari Árni Hálfdanarson; blaðafull-
trúi Kristján Hauksson.
Ákveðið var að heija spila-
mennskuna mánudaginn 14. sept-
ember nk. og byija að venju á eins
kvölds tvímenningi með hefð-
bundnu sniði. Stjórn félagsins vill
hvetja alla félagana til að mæta til
leiks og hafa með sér sem flesta
nýja félaga. Spilað verður í vetur á
sama tíma og sama stað og í fyrra,
þ.e.a.s. hvern mánudag kl. 19.30 í
Félagsheimilisálmu íþróttahússins
v/Strandgötu.