Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 38

Morgunblaðið - 12.09.1987, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 Rófur Uppruni rófunnar er óljós, en talið er að hún sé bastarð- ur af næpu og káli, sennilega frá því á 17. öld. Rófan var þekkt á meginlandinu um aldamótin 1700, en hún kom frá Hollandi til Englands um 1755, og sennilega um svipað leyti til norðlægari landa. Lengi hefur rófan verið notuð sem skepnufóður, og hafa svín einkum verið fóðruð á henni. En á þessari öld hefur vegur hennar vaxið og fólk er farið að meta kosti rófunnar, hollustu og bragðgæði. Rófan hefur stundum verið kölluð „sítróna norðursins" vegna hins mikla C-vítamíninnihalds. Rófur þrífast vel á norðlægum slóðum, t.d. á ís- landi. Á ensku heita rófur Swede, og hefur mér dottið í hug að það nafn tengist á einhvem hátt Svíþjóð, sem á ensku heitir Sweden, en í Ameríku er rófan kölluð rutabaga, sem er dregið af nafninu rot- bagga, sem þýðir rót hrútsins. Ræktun á rófum hérlendis hefur aukist mjög hina síðari áratugi. Áður var meira ræktað af næpum. Það undarlega er, að nú sjást sjaldan næpur í verslunum, en böm í skólagörðum rækta talsvert af þeim. Næpur henta betur í kjöt- og fisksúpur heldur en rófur, þar sem rófur em heldur sætar, sérstaklega verða súpumar of sætar séu rófur soðnar með fiskinum eða kjötinu, og er ráð að sjóða þær sér, en bæta síðan í súpuna þegar þær era fullsoðnar. Ýmislegt er hægt að búa til úr rófum og ef þið eigið mikið magn af þeim, en hafið ekki góða geymslu, er upplagt að stappa soðnar rófur og geyma í frysti, búa síðan til ýmislegt að vetrinum úr stöppunni. Þunnar rófusneiðar era hentugar til að borða milli mála í stað sælgætis, bæði fyrir þá sem era í megran og eins böm og raunar alla. Agætt er að sneiða heila rófu þunnt niður, setja síðan í skál með köldu vatni í kæliskáp- inn. Þannig er gott að grípa til þeirra og borða í stað kexins sem liggur á eldhúsborðinu. En hvað kosta rófumar? „20 krónur kíló- ið,“ sagði kaupmaðurinn á hom- inu. Mér varð að orði: „Hlægilegt verð.“ „Já, það er sko spreng- hlægilegt verð,“ sagði kaup- maðurinn. En við skulum ekki hlæja, heldur kætast yfir að fá eitthvað ódýrt, og það hollan og góðan mat, og borða mikið af rófum. Steiktar rúllur úr rófum og skinku Handa 3 15 örþunnar skinkusneiðar 1 msk. ijómaostur án bragðefna V8 tsk. múskat 1 meðalstór rófa 2—3 dl saltvatn 1 egg + örlítið vatn 2 dl rasp 2 msk. matarolía + 1 msk. smjör til að steikja úr 1. Afhýðið rófuna, skerið síðan í 15 aflanga stafi, u.þ.b. 3 sm í þvermál. 2. Setjið saltvatn í pott og látið sjóða upp. Setjið síðan rófustafina í vatnið og látið sjóða í 7—10 mínútur. 3. Hellið rófustöfunum á sigti og látið renna af þeim. 4. Smyijið skinkusneiðamar þunnt með ijómaostinum, stráið síðan múskati yfir. 5. Leggið einn rófustaf á hveija sneið. Vefjið síðan upp. 6. Hitið smjör og matarolíu á pönnu. Hafið miðlungshita. 7. Setjið vatn saman við eggið og sláið sundur með gaffli. 8. Veltið skinkurúllunum upp úr egginu, síðan raspinu og steik- ið á öllum hliðum. Meðlæti: Soðið blómkál eða hvítkál eða hrásalat með sýrðum ijóma. Rófubakstur með gulrótum og maís Handa 4—5 750 g rófur Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON 250 g gulrætur saltvatn 1 lítil dós maís, 200 g 25 g smjör eða smjörlíki 2 msk. mjólk nýmalaður pipar 3 stórir tómatar V2 dl brauðrasp 1. Afhýðið rófumar, skafið gulrætumar, skerið í bita. 2. Hitið saltvatn og sjóðið rófur og gulrætur í því í 10 mínútur. Hellið þá á sigti og látið vatnið renna af. 3. Hellið maísnum á sigti og látið renna af honum. 4. Setjið rófur og gulrætur í hrærivél og hrærið vel í sundur, setjið síðan smjör og mjólk út í ásamt pipar. Setjið þá maís í. Rófubakstur með saltfiski Handa 4 V2 kg rófur saltvatn til að sjóða rófumar í V2 kg saltfiskur, afvatnaður 1 hvítlauksgeiri 3 msk. smjör eða smjörlíki 3 msk. hveiti 1 peli mjólk 3 egg V2 dl rasp smjör eða smjörlíki til að smyija mótið með 1. Setjið saltvatn í pott. Af- hýðið rófumar og skerið í bita. Sjóðið í vatninu í 10 mínútur, eða þar til þær era meyrar. 2. Sjóðið saltfiskinn, takið af honum roð og fjarlægið bein. 3. Setjið rófumar í hrærivélar- skál og hrærið vel sundur, setjið síðan saltfiskinn saman við og hrærið sundur. 4. Meijið hvítlauksgeirann og hrærið saman við. 5. Bræðið smjörið, setjið hveiti út í það, þynnið með mjólkinni og búið til uppbakaðan jafning. 6. Takið jafiiinginn af hellunni, hrærið síðan eggin út í hann. 7. Setjið jafninginn saman við rófu/fiskstöppuna. 8. Smyijið eldfasta skál, stráið raspi inn í hana, setjið síðan stöpp- una í skálina. Stráið raspi yfir. 9. Hitið bakaraofn í 190°C, blástursofn í 170°C. Setjið skálina f miðjan oftiinn og bakið í 30 mínútur. Meðlæti: Soðnar kartöflur. 5. Smyijið eldfasta kringlótta skál, setjið maukið í skálina. 6. Skerið tómatana í sneiðar og raðið ofan á skálina, stráið síðan raspi yfir. 7. Hitið bakaraofninn í 210°C, blástursofn í 190°C, setjið skálina í miðjan ofninn og bakið í 10—15 mínútur. Meðlæti: Ristað brauð. Rófubúðingnr Handa 4 1 kg rófur saltvatn til að sjóða rófumar í nýmalaður pipar Vs tsk. múskat 1 tsk. hunang 3 msk. brauðrasp 3 msk. ijómi 2 egg 20 g smjör 1. Afhýðið rófumar, skerið í bita og sjóðið í saltvatninu þar til þær era orðnar meyrar. 2. Hellið rófunum á sigti en geymið V2 dl af soðinu. 3. Setjið rófumar í hrærivélar- skál og hrærið í mauk. 4. Setjið V2 dl af rófusoði út í ásamt pipar, múskati, hunangi og ijóma. 5. Setjið eggin út f og hrærið vel á milli, setjið síðan raspið út í. Látið sfðan standa í skálinni í 10 mínútur. 6. Smyijið eldfasta skál, setjið maukið í skálina. 7. Bræðið smjörið og heliið jafnt yfir það sem er í skálinni. 8. Hitið bakaraofn í 180°C, blástursofn í 160°C. Setjið skálina í miðjan ofninn og bakið f 45 mínútur. Rófusalat með rúsín- um og appelsínum 1 stór rófa 2 appelsínur 1 di rúsínur 1. Afhýðið appelsínumar, sker- ið eina í smábita, en kreistið safann úr hinum tveimur. 2. Rífið rófuna gróft á riíjámi. 3. Blandið saman appelsfnubit- um, rófum og rúsínum. 4. Kreistið safann úr 2 app- elsínum, hellið yfir og blandið saman með tveimur göfflum. 5. Leggið plastfilmu yfir skál- ina og setjið í kæliskáp ef þið berið þetta ekki fram strax, er best er að bera salatið fram strax. Þannig fáum við mest C-vítamín. Athugið: Þetta salat er gott með kjöti, físki, kexi eða eitt sér. Rófustappa 1 kg rófur saltvatn til að sjóða rófumar í 15 g smjör (1 smápakki) V2 dl soð af rófunum Vs tsk. múskat 1. Afhýðið rófumar og skerið í bita, sjóðið síðan í saltvatni þar til þær eru orðnar meyrar. 2. Stappið síðan með kartöflu- stappara, setjið rófusoð, múskat og smjör út í. Hitið vel í pottinum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.