Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987
H
Metúsalem Þórisson talsmaður nýrra græningjasamtaka:
Leggjum áherslu á lífs-
fyllingu í stað hagvaxtar
SAMTÖK íslenskra grseningja
voru formlega stofnuð nú fyrir
skðmmu. Að samtökunum, sem í
eru um 300 manns, standa að milu
leyti fyrrum félagar í Flokki
mannsins og munu grseningjar
líklega að bjóða fram í næstu
sveitastjóma- og alþingiskosning-
um.
„Þeir sem standa að stofnun þess-
ara samtaka er fólk sem hefur verið
lengi að vafstrast í félagsmálum og
kemur stór hluti frumkvöðlanna úr
Flokki mannsins. Hann hefur þó ekki
verið lagður niður eftir því sem ég
veit best," sagði Metúsalem Þórisson,
talsmaður íslenskra græningja. „Þeir
í Flokki mannsins leggja áherslu á
mjög vítt svið. Við viljum beina okk-
ur að umhverfísvemd og friðarmál-
um. Við leggjum áherslu á að
markmið þjóðfélagsins verði að veita
þegnum sínum lífsfyllingu en ekki
einungis hagvöxt. Hagvöxtur er í
sjálfu sér aukaatriði. Aðalatriðið er
að hafa hreint loft og vatn fyrir okk-
ur og komandi kynslóðir og eru
græningjasamtök stofnuð í því skyni
að vinna gegn niðurrifsstefnu í þjóð-
félögum um allan heim. Sem dæmi
um mál sem snerta okkur íslendinga
eru hvalveiðamar og landbúnaður-
inn. Við viljum friða hvalinn og
stöðva þann uppblástur og þá lan-
eða þjóð þurfí þess með. En undir-
niðri líta þeir á sjálfa sig sem
einangruð fyrirbæri, verslunarvöru,
dauða hluti."
Metúsalem sagði íslensku græn-
ingjasamtökin vera í samskiptum við
erlenda græningja og hefðu íslend-
ingar sent fulltrúa á þriðja alþjóða-
þing græningja sem haldið var í
Stokkhólmi dagana 29.-30 ágúst.
Það var Davíð Jónsson sem sótti
þingið fyrir hönd íslenskra græningja
Morgunblaðið/PPJ
Morgunblaðið/KGA
Metúsalem Þórisson
deyðingu sem fylgir landbúnaðinum
í d_ag.“
í stefnuyfirlýsingu íslenskra
græningja segir m.a. að það sé sann-
færing græningja að örlög lífs á
jörðinni séu háð því að virðing sé
borin fyrir náttúrunni og lífinu yfír-
höfuð. Síðar segir: „Þeir sem koma
fram við náttúruna og fólk eins og
hluti standa í stöðugri baráttu til að
eignast „hluti" sem veita upphefð
og völd. Þeir réttlæta athafnir sínar
út frá eigpnhagsmunasjónarmiðum,
þeir sjálfír, þjóðfélagshópur þeirra
Fimmtug flugvél við
sjómengunareftirlit
GÖMUL flugvél af gerðinni
Douglas DC-3 Dakota frá flugfé-
laginu Air Atlantique í Bretlandi
hafði viðkomu á Reykjavíkur-
flugvelli fyrir skömmu á leið
sinni til Bandarikjanna. Það er i
sjálfu sér ekki i frásögur fær-
andi þótt Dakota-vél lendi hér,
því fjölmargar slíkar flugvélar
eru enn í góðu ásigkomulagi viða
um heim og lenda alltaf nokkrar
þeirra á Reykjavíkurflugvelli ár
hvert. Það sem er merkilegt við
þessa flugvél er það að hún er
nú, langt komin á fimmtugsald-
urinn, að fá nýtt hlutverk, sem
mun væntanlega lengja líf henn-
ar í háloftunum um nokkur ár.
Framvegis verður flugvél
þessi notuð við sjómengunar-
varnir við Bretlandsstrendur, en
til Bandaríkjanna var flugvélinni
flogið til að fá ísettan sérstakan
búnað sem sprautar kvoðu yfir
olíubrák í sjó.
Sex hempuklæddir
prestar í Ameskirkju
Prestarnir sex að aflokinni messu, talið frá vinstri: sr. Guðni Þór
Ólafsson prófastur Melstað, sr. Einar Jónsson Árnesi, sr. Baldur
R. Sigurðsson Hólmavik, sr. Ægir Sigurgeirsson Skagaströnd, sr.
Bjarni Rögnvaldsson Prestbakka og sr. Robert Jack Tjörn.
Árneii.
HÉRAÐSFUNDUR Húnavatns-
og Strandaprófastsdæmis var
haldinn hér í Árnesi laugardag-
inn 5. september sl. Fundinn
sóttu prestar, safnaðarmenn og
safnaðarfulltrúar, um 20 manns.
Þetta er í fyrsta sinn sem Héraðs-
fundur er haldinn í Ámesi, sem er,
eins og nýkjörinn prófastur, sr.
Guðni Þór Ólafsson á Melstað orð-
aði það, nyrsti útvörður kirkjulegs
starfs í prófastsdæminu.
Fundinum lauk svo með hátíðar-
messu og altarisgöngu í Ámes-
kirkju á sunnudagsmorgni.
Sóknarböm fjölmenntu til messu
og fylltu kirkjuna, enda ekki á
hveijum degi að sex hempuklæddir
prestar eru þar innan dyra.
Sr. Ægir Sigurgeirsson, nývígð-
ur prestur á Skagaströnd, prédik-
aði, en sr. Baldur Rafn Sigurðsson
á Hólmavík þjónaði fyrir altari.
Organisti var sr. Einar Jónsson
prestur í Ámesi, en enginn organ-
isti er í Ámessókn.
Eftir veglegan hádegisverð í boði
safnaðarformanns, Gunnsteins
Gfslasonar Norðurfírði, var komið
við að Krossneslaug og Eyri við
Ingólfsfjörð í glampandi sólskini.
Var það táknrænn og ánægjulegur
endir á góðum samvistum, sem
okkur heimamönnum var sómi að
gerr, og við munum búa lengi að.
— Einar.
Söfnuðurinn gengur Úr kirkju. Morgunblaðið/EinarJónsson