Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 64

Morgunblaðið - 12.09.1987, Side 64
Framtíð ER VIÐ SKEIFUNA aana ^gmi » suzuki LAUGARDAGUR 12. SEPTEMBER 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Hallormsstaður: Tíu tonnaf arinvið til veitingahúsa UM TÍU tonn af arinvið úr Hall- ormsstaðarskógi eru seld til veitingahúsa i Reykjavík á mán- uði og er þetta ný tekjulind fyrir Skógrækt ríkisins. „Það eru „pizza“ húsin svoköll- uðu sem hafa opnað þennan nýja markað fyrir arinvið," sagði Jón Loftsson skógarvörður í Hallorms- stað. „Til að pizza standi undir nafni verður hún að vera bökuð í stórum ofni við opinn eld. Þá er birkiviður mjög gott brenni. Fyrst var birkið flutt inn en síðan hafa menn uppgötvað að íslenska birkið er jafn gott. Hafi menn verið að velta því fyrir sér fyrir íjórum til fímm árum hvað gera ætti við allan þennan birkivið hefði engum dottið þessi möguleiki í hug.“ Á undanfömum árum hefur skógræktin að auki haft tekjur af jólatrés- og plöntusölu auk arin- viðar sem er seldur í handhægum umbúðum á bensínstöðvum, bygg- ingavöruverslunum og í einstaka blómaverslun. Gjöfultár Árið hefur verið sjómönnum ákaflega gjöfult. Hér má sjá sjómenn á Bíldudal þvo fisk og stafla í kar. Morgunblaðið/Snorri Snorrason Mikil óvissa um áfram- haldandi fijálst fiskverð SH o g SÍF fylgjandi framlengingu reynslutímans FYRSTI fundur um fiskverð síðustu 3 mánuði ársins verður haldinn í Verðlagsráði sjávarút- vegsins á mánudag. Fiskverð hefur verið fijálst frá 15. júní sl., en mikil óvissa ríkir um hvort fulltrúar í Verðlagsráði komist að samkomulagi um að svo verði áfram til áramóta, enda skoðanir skipar um ágæti þessa fyrir- komulags. Af hálfu fiskvinnsl- unnar hafa verið uppi efasemdir um fijálsa verðlagningu og reyndar meðal útgerðarmanna líka, en að sögn Óskars Vigfús- sonar, formanns Sjómannasam- bands ísland, munu fulltrúar Umferðarslys í Mosfellsbæ: Níu ára drengur lést BANASLYS varð í umferðinni i MosfeUsbæ í gær. Níu ára dreng- ur, tíl heimilis þar í bæ, lést þegar hann varð fyrir sendibifreið. Slysið varð á Vesturlandsvegi á mót-s við Álafossveg laust eftir klukkan 15 í gær. Drengurinn, sem var hjólandi ásamt tveimur félögum sínum, náði ekki að stöðva og hjól- aði í veg fyrir sendibifreið, sem ók norður Vesturlandsveg. Ekki er unnt að birta nafn drengsins að svo stöddu. sjómanna leggja eindregið tii, að fijálst fiskverð verði reynt áfram. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins mun stjóm Sölusambands íslenskra fiskframleiðenda hafa ákveðið að reyna áfram fijálst fisk- verð og stjóm Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna samþykkti á fundi sínum í gær að fallast á áframhaldandi ftjálst fiskverð til áramóta til frekari reynslu. Friðrik Pálsson, forstjóri SH, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi, að stjómin hefði tekið þessa ákvörðun á fundi sínum í gær eftir miklar umræður, enda hefðu verið uppi skiptar skoðanir um ágæti fijálsrar verðlagningar í sum- ar. Meirihluti stjómarinnar hefði þó verið þeirrar skoðunar að ekki væri fullreynt um ágæti eða galla þessa fyrirkomulags, enda tíminn, sem fijálst verð hefði verið í gildi of stuttur til að draga ályktanir þar að lútandi. Óskar Vigfússon, formaður Sjó- mannasambandsins, sagði í samtali við Morgunblaðið að sjómenn væm almennt þeirrar skoðunar að reyna ætti fijálst fískverð áfram. „Við munum leggja mjög mikla áherslu á framhald á þessu. Þrír mánuðir yfir sumartímann segja ekkert. Menn verða að sjá hvemig þetta kemur út á ölium vertíðum. Fyrr geta menn ekki dregið neinar álykt- anir af þessu fyrirkomulagi," sagði Óskar. Utanríkismála- nefnd í fyrsta sinn til útlanda Utanríkismálanefnd Alþingis fer í heimsókn til Strassborgar og Brussel 14.-18. september nk. í boði þings Evrópubandalagsins. Þetta er í fyrsta skipti í 60 ára sögu nefndarinnar sem hún fer til útlanda. Nefndin mun m.a. eiga fundi með Lord Plumb forseta Evrópuþingsins og þingmönnum þess og einnig með Willy de Clercq, sem fer með ut- anríkis- og utanríkisviðskiptamál bandalagsins, um samskipti EB og EFTA og íslands og EB. Þá verður fundað með Cardoso e Cunha, sem fer með sjávarútvegs- mál, um stefnu EB í sjávarútvegs- málum og með Lord Cockfíeld, varaforseta framkvæmdastjómar, um innri markað EB og áætlun um að koma honum á fót fyrir árslok 1992. I Brussel munu nefndarmenn hitta að máli yfírmenn ýmissa helstu deilda framkvæmdastjómar Evrópubandalagsins. I lok ferðar sinnar mun utanríkis- málanefnd heimsækja höfuðstöðvar Atlantshafsbandalagsins. Þorskurinn fór í 72 krónur Fiskmarkaðurinn í Hafnarfirði: Meðalverð á þorski 45,83 krónur, sem er hæsta meðalverð frá upphafi MJÖG gott verð fékkst fyrir þorsk á Fiskmarkaðinum hf. í Hafnarfirði i gær en þá voru seld 8,5 tonn af þorski fyrir 45,83 króna meðalverð á kílóið. Það er hæsta meðalverð sem fengist hefur þar frá upphafi. Hæsta verð fyrir þorskinn var 72 krónur kílóið. Kvaðst Einar Sveinsson, framkvæmdastjóri, ekki hafa heyrt um hærra verð fyrir þorsk hér á landi. Kaupand- inn var Sigurður Garðarsson, útgerðarmaður í Vogum. Hann sagði í samtali við Morgunblaðið að fiskurinn yrði unninn i dag og sendur út samdægurs með flugi til Hollands. Sigurður keypti um hálft tonn á þessu verði og auk þess 2,5 tonn fyrir 43 krónur kíló- ið. Hann kvaðst hafa kaupanda að fiskinum í Belgíu og væri gert ráð fyrir að fískurinn yrði kominn til neytenda þar á mánudags- morgun. Það var snurvoðabáturinn Sandafell HF, sem sló metið í Hafnarfirði í gær, er hann seldi þetta hálfa tonn af þorski fyrir 72 krónur kílóið. Alls hafa verið seld 14,7 tonn af þorski á Fisk- markaðnum í Hafnarfirði í þessari viku. Er meðalverð 43,74 krónur, sem er óvenju hátt, að sögn Ein- ars Sveinssonar, framkvæmda- stjóra Fiskmarkaðarins hf. Einar sagði að alla þessa viku hefði einnig fengist mjög gott verð fyrir ódýrari fisktegundir, svo sem karfa, ufsa, steinbít og hlýra. Alls voru seld um 407,5 tonn af fiski í þessari viku í Hafn- arfirði fyrir um 10,8 milljónir króna. Þar af var karfi 253,3 tonn. Var hæsta verð fyrir hann 25,50 og meðalverð 22,49 krónur sem er óvenju hátt. Sömu sögu er að segja um ufsa, en í þessari viku voru seld 89,2 tonn af ufsa, fyrir 26,23 krónur að meðalverði. Fór hæsta verð yfír 30 krónur á kíló- ið. Megnið af ufsanum, sem fór á þessu góða verði var smár milli- ufsi. Meðalver steinbíts og hlýra var 20 krónur kílóið þessa viku.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.