Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
43
Wmmm
Hér getur þú séð hvað
gerir spariskírteini
ríkissjóðs að jafn góðri
fjárfestingu og raun ber
•
"Við keyptum
spariskírteini ríkis-
sjóðs vegna þess
að þau eru tekju-
og eignaskattsfrjáls
- og svo getum við
tvöfaldað höfuð-
stólinn á tíu árum"
Hafðu það í huga, að fyrir utan góða
raunvexti eru ýmis önnur atriði, sem
skipta miklu máli þegar þú ávaxtar
sparifé þitt.
Auk þess að vera tekju- og eigna-
skattsfrjáls bera spariskírteini ríkis-
sjóðs ekkert stimpilgjald.
Þótt láns- eða binditíminn sé ekki
útrunninn getur þú sclt spariskírteini
ríkissjóðs í gegnum Verðbréfaþing
íslands. Þannig getur þú losað fé þitt
með stuttum fyrirvara.
"Háir vextir og
stuttur lánstími
réðu úrslitum þegar
ég f járfesti í
spariskírteinum
ríkissjóðs"
Með nýjum spariskírteinum ríkissjóðs
bjóðast þér nú enn betri leiðir en áður
til að ávaxta sparifé þitt á öruggan og
arðbæran hátt.
Þú getur valið um spariskírteini sem
bera 7,2% til 8,5% ársvexti umfram
verðtryggirigu og lánstíminn er tvö,
fjögur eða sex ár.
"Mín reynsla er sú
að öruggt og traust
sparnaðarform sé
besta f járfestingin"
Spariskírteini ríkissjóðs eru ein
öruggasta fjárfestingin, sem völ er á í
dag. Þú finnur ekki traustari lántaka en
ríkissjóð því að baki honum stendur öll
þjóðin. Spariskírteini ríkissjóðs eru því
traust fjárfesting og þú tekur enga
áhættu með sparifé þitt.
Æm
"Égfór í bankann
minn og f járfesti í
þeim skirteinum
sem henta mér best.
Þægilegra getur
það varla verið"
Verðgildi spariskírteini ríkissjóðs er
allt frá 5.000 kr. og því ættu allir að
geta keypt skírteini.
Þú færð spariskírteini ríkissjóðs í
Seðlabanka íslands og hjá löggiltum
verðbréfasölum, sem m.a. eru viðskipta-
bankarnir, ýmsir sparisjóðir, pósthús
um Iand allt og aðrir verðbréfamiðlarar.
RIKISSJOÐUR ÍSLANDS
GOTT FÓLK / SÍA