Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987
Landsfundur Borgaraflokksins:
Búist við að Albert Guð-
mundsson verði formaður
LANDSFUNDUR Borgara-
flokksins verður haldinn á Hótel
Sögu dagana 24.-26. september.
Á fundinum verður kosið í helstu
stöður flokksins og sagði Júlíus
Sólnes formaður undirbúnings-
nefndar í samtali við Morgun-
blaðið, að hann gerði ráð fyrir
þvi, að Albert Guðmundsson
gæfi kost á sér i formannskjörinu
og Ásgeir Hannes Eiríksson
hefði lýst áhuga sínum á að verða
varaformaður. Júlíus sagði, að
búist væri við 3-400 manns á
landsfundinn.
„Landsfundurinn hefst með
Sektir fyrir umferða-
brot hafa stórhækkað
SEKTIR við brotum á umferðar-
lögum hafa stórhækkað. Ríkis-
saksóknari gaf nýlega út
leiðbeiningar til lögreglu um
upphæðir sekta og hafa þær í
sumum tilfellum hækkað um
100%.
Sem dæmi um sektarupphæðir
nú má nefna, að sé helstu stjóm-
tækjum bifreiðar áfátt, svo sem
stýrisbúnaði eða hemlum, þarf eig-
andi að greiða 2000 króna sekt.
Ef ökutæki er verulega áfátt hækk-
ar þessi upphæð í 3000 krónur.
Þeir sem aka fram úr þar sem bann-
að er þurfa að greiða 3000 króna
sekt og sömu upphæð ef þeir aka
gegn rauðu ljósi. Ef ökumenn virða
ekki almennan umferðarrétt, bið-
skyldu eða stöðvunarskyldu kostar
það þá 3000 krónur. Ef ekki er
numið staðar eða hægt á ferð við
merktar gangbrautir varðar það
3000 króna sekt. Þeir sem aka of
hratt greiða einnig sektir, misháar
eftir því hve langt yfir leyfilegan
hámarkshraða þeir fara. Ekki er
óalgengt að lögreglan þurfi að hafa
afskipti af ökumönnum sem aka
allt að 30-40 kflómetrum of hratt
og skulu þeir þá greiða 5000 króna
sekt. Til viðbótar því eiga þeir á
hættu að verða sviptir ökuréttind-
um.
Hæstar sektir liggja við því ef
öxulþungi er umfram leyfílegt hám-
ark. Ef hann er 10% umfram
hámark skal greiða 4000 krónur,
8000 krónur ef hann er 20% of hár
og 12000 ef öxulþungi er 30% of
mikill. Sé hann meiri eða brot ítrek-
að sætir málið dómsmeðferð, líkt
og einnig gerist í öðrum tilvikum.
Hallvarður Einvarðsson, ríkis-
saksóknari, sagði að hann vonaði
að þessi hækkun hefði tilætluð
áhrif, en alltaf væri umdeilanlegt
hvað væri hæfíleg upphæð. Leið-
beiningar til lögreglu um sektar-
upphæðir væru yfirleitt endurskoð-
aðar á 1-2 ára fresti. „Ég á von á
að þessar tölur verði endurskoðaðar
þegar ný umferðlög taka gildi í
byijun næsta árs,“ sagði Hallvarð-
ur. „Þá er vert að benda á það
sérstaklega að ef um fleiri en eitt
brot er að ræða, til dæmis ekið of
hratt og yfír á rauðu ljósi, þá getur
það leitt til hærri sektarviðurlaga
en gildir um hvert brot.“
Ökumenn ættu þó að hafa hugf-
ast að þegar þeir brjóta umferðar-
reglumar er ekki einungis líklegt
að þeir þurfí að greiða nokkur þús-
und krónur, heldur auka slík brot
verulega hættuna á að slys verði.
Sú staðreynd ætti að vega miklu
þyngra en peningar.
borgarafundi á Hótel Sögu fímmtu-
daginn 24. september," sagði Júlíus
Sólnes í samtali við Morgunblaðið.
„Þessi fundur verður opinn öllum
þeim sem vilja sækja hann og munu
þingmenn Borgaraflokksins sitja
þar fyrir svörum. Reglulegur lands-
fundur hefst svo daginn eftir og
mun hann standa fram á laugar-
dagskvöld.
Við vitum ekki gjörla hversu
margir munu taka þátt í lands-
fundarstörfum því stefnt er að því
að allir flokksmenn eigi seturétt á
landsfundi. Við höfum þó giskað á
að um 3-400 manns muni koma á
fundinn."
Fyrsta verkefni landsfundar
Borgaraflokksins verður að af-
greiða skipulagsreglur flokksins.
Síðan munu taka við hefðbundin
landsfundarstörf. Flutt verður
skýrsla bráðabirgðaframkvæmda-
stjómar og starfræktar málefna-
nefndir.
Á laugardeginum verða síðan
kosnir helstu embættismenn og
stjóm flokksins. Formenn kjördæ-
misstjóma taka sjálfkrafa setu í
aðalstjóminni en til viðbótar verða
kosnir fjórir í aðalstjórn. Einnig
verður kosinn formaður, varaform-
aður og ritari.
Hundasýning
Hundaræktarfélag íslands
heldur hundasýningu í Reið-
höllinni i Viðidal í dag. Tiu
hundakyn verða dæmd og byij-
ar dagskráin kl. 9.00 með
dómum á íslenskum fjárhund-
um.
Dómari á sýningunni verður
Öivind Asp frá Noregi. Hann er
alþjóðlegur hundadómari og hefur
rétt til að dæma öll hundakyn.
Heiðursgestur sýningarinnar er
Davíð Oddsson borgarstjóri.
Dagskrá sýningarinnar hefst
eins og áður segir á dómum á
íslenskum ijárhundum kl. 9.00
árdegis. Síðan fara fram dómar á
eftirfarandi hundakynjum: Irskur
setter kl. 10.40 til 11.40, enskur
Cocker Spaniel, Springer Spaniel,
Pug, Malteser og Greifingjahund-
ur kl. 11.40 til 12.00. Afkvæma-
sýning fer fram frá 12.00 til 12.15
og síðan gert matarhlé til kl.
13.00. Þá hefst dómur á Labrador
ti! kl. 14.00, Golden Retriever frá
14.00 til 16.00 og Poodle hundar
frá 16.00 til 16.30.
Sýningunni lýkur kl. 17.30 er
úrslit verða kynnt og borgarstjór-
inn afhendir verðlaun fyrir besta
hund sýningarinnar.
Heimsmarkaðsverð á rækju
hefur fallið um 20% síðan í maí
Rækjuverksmiðjur hætta yfirborgunum á smárækju
MIKIL verðlækkun hefur orðið á
rækju á heimsmarkaði að undanf-
örnu og hefur verðið fallið um
20% síðan í máímánuði síðastliðn-
um. Af þessum sökum hafa
íslenskir rækjuframleiðendur
farið fram á lækkað verð á smá-
rækju til seljenda, það er útgerðar
og sjómanna, og hefur gætt nok-
kurrar óánægju í röðum hinna
siðarnefndu vegna þessa.
Að sögn Guðmundar Stefáns
Marí-
ussonar, framkvæmdastjóra Félags
rækju- og hörpudiskframleiðenda,
hafa í þessari grein, eins og öðrum,
alltaf verið tengsl milli hráefnisverðs
til sjómanna og heimsmarkaðsverðs
og því eðlilegt af hálfu rækjufram-
leiðenda að fara fram á lækkun nú
í samræmi við lækkunina á heims-
markaðsverði.
Rækjuverð, sem Verðlagsráð sjáv-
arútvegsins ákvað í maí sl., var 63
krónur á kflóið fyrir stærstu rækj-
una, það er 230 eða færri í kílói,
52,50 krónur fyrir 231 til 290 í kílói
og 45 krónur fyrir smæstu rækjuna,
291 til 350 í kflói. Guðmundur Stef-
án sagði að í raun hefðu verið
greiddar 63 krónur á kílóið fyrir alla
rækju, þar sem rækjuverksmiðjur
hefðu, allt frá því í fyrrasumar, viljað
að útgerðin nyti þess einnig að mark-
aðsverð var þá mjög gott á pillaðri
rælq'u, og þar af leiðandi greitt hærra
verð en lágmarksverð sagði til um.
„Nú er staðan hins vegar þannig
að við teljum ekki grundvöll til að
greiða yfírverð fyrir smárækjuna
heldur viljum við borga eftir talningu
eins og ákvörðun Verðlagsráðs segir
til um, enda ekki æskilegt að bátar
liggi í smárækju," sagði Guðmundur
Stefán. Varðandi lækkunina á heims-
markaðsverði sagði hann að til
samanburðar mætti geta þess að í
íslenski ullariðnaðurinn:
Grundvallarbreytingar verð-
ur að gera á atvinnugreininni
— segir í áliti bandarísks ráðgjafarfyrirtækis
Ullariðnaðurinn á
krossgötum
„RAÐGJAFARNIR telja að
íslenski ullariðnaðurinn eigi ein-
hverja von um viðreisn, en aðeins
að því tilskyldu að gerðar verði
grundvallarbreytingar í atvinnu-
greininni,“ sagði Jón Sigurðar-
son, framkvæmdastjóri
iðnaðardeildar Sambandsins,
þegar hann var inntur eftir nið-
urstöðum skýrslu bandarísks
ráðgjafarfyrirtækis á stöðu og
framtíð íslenska ullariðnaðarins.
Viðræðum um sam-
einingu hraðað
íslenski ullariðnaðurinn hefur
verið rekinn með miklu tapi í að
minnsta kosti tvö ár og er nú svo
komið að ýmis fyrirtæki innan hans
standa illa og eru sum að hætta
starfsemi. Framkvæmdasjóður ís-
lands, sem er aðaleigandi Álafoss
hf., og iðnaðardeild SÍS á Akur-
eyri, fengu bandaríska ráðgjafar-
fyrirtaékið, Boston Group of
Consuitans, til að meta stöðuna. Jón
Sigurðarson segir að verkefni þeirra
hafí verið að veita svör við tveimur
spumingum: Á íslenskur ullariðnað-
ur framtíð fyrir sér? og Er líklegt
að aukin samvinna eða sameining
fyrirtækjanna geti gert vonimar
bjartari?
Jón sagði að aðilar hefðu komið
sér saman um að veita ekki aðrar
upplýsingar upp úr skýrslunni en
þær sem að framan greinir. Hann
sagði þó ljóst að þær breytingar sem
gera þyrfti vörðuðu bæði fjárhags-
lega uppbyggingu fyrirtækjanna og
markaðsmál. Hann sagði að sam-
komulag væri um að halda viðræð-
um áfram og reyna að hraða þeim,
helst að ljúka þeim fyrir 1. októ-
ber. Guðjón B. Ólafsson forstjóri
SÍS og Jón Sigurðarson verða ftill-
trúar Sambandsins í viðræðunum.
og útlendum, sem ekki hefðu kunn-
að aðra leið til að selja sína vöm
en að bjóða hana á lægra verði en
önnur íslensk fyrirtæki.
fyrra hefði cif-verðið farið yfir 500
krónur á kílóið, í maí síðastliðnum
hefði það verið um 420 krónur, en
nú væri það komið niður í 340 til
350 krónur að meðaltali. Hvað smá-
rækjuna varðaði væri verðið komið
niður fyrir 300 krónur. „Það sem
gerði okkur kleift að borga aðeins
hærra fyrir smárækjuna í fyrra, þeg-
ar verðið var í hámarki, var að þá
var ekki mikill verðmunur á stórri
rækju og hinni smærri, sem var mjög
óvenjulegt ástand. Nú er bilið hins
vegar orðið mun breiðara."
Aðspurður sagði Guðmundur Stef-
án að ástæðan fyrir hinni miklu
lækkun á heimsmarkaðsverði nú
væri fyrst og fremst of hátt verð í
fyrra, sem dregið hefði mjög úr eftir-
spum. Hann sagði hins vegar að
verðsveiflur á rækju væm ekki óal-
gengar og nefndi sem dæmi að verðið
hefði verið mjög hátt 1983, en síðan
hmnið í lok ársins 1983 og farið þá
mun neðar en það er nú, eða niður
fyrir 270 krónur á kílóið miðað við
núverandi gengi.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Fiskifélags íslands var rækjuveiði í
ágústmánuði síðastliðnum um 600
tonnum minni en í ágúst í fyrra, en
alls veiddust í ágúst í ár 4.963 tonn,
en 5.555 í ágúst í fyrra. Heildarafli
það sem af er þessu ári er hins veg-
ar tæp 26 þúsund tonn, en var um
21 þúsund tonn á sama tíma í fyrra.
í samtali við Morgunblaðið um
vanda ullariðnaðarins sagði Jón að
þessi atvinnugrein stæði nú á kross-
götum. Taldi hann að það myndi
ráðast á næstu 6 til 12 mánuðum
hver framtíðin yrði. Hann sagði að
aðalástæðan fyrir erfíðleikunum
væri gífurleg misvísun á kostnaði
og tekjumöguleikum. Framleiðslu-
kostnaðurinn hefði hækkað um 25%
að meðaltali. Tekjumar hefðu aftur
á móti staðið í stað þar sem gengið
væri óbreytt og ekki hefði heldur
tekist að fá umtalsverðar hækkanir
á vörunum erlendis. Hann sagði að
ástæður vandans væru fleiri. Fyrir-
tækjunum hefði ekki tekist að þróa
vöru eftir þörfum kaupenda, auk
þess sem fyrirtækin hefðu haft
„sjálfseyðingarstefnu" í innbyrðis
samkeppni á mörkuðunum. Margir
markaðir hefðu verið eyðilagðir af
„töskuheildsölum", bæði íslenskum
Verð á fiskmörkuðum
Vegna mistaka birtist í laugardagsblaðinu fiskverðstafla frá
fimmtudegi. Hér birtist rétt tafla frá föstudegi.
Fiskverð á uppboðsmörkuðum 11. september
FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði
Hœsta Lægsta Meðal- Magn Heildar-
verð verð verð (lestir) verð (kr.)
Þorskur 72,00 39,50 45,83 8,5 388,855
Ýsa 67,00 42,00 56,06 4,7 263.920
Karfi 23,50 20,50 21,88 101,7 2.224.939
Koli 40,50 35,00 39,25 2,0
78,980 Ufsi 30,50 24,50 26,12 24,3 635.934
Hlýri 24,50 24,50 24,50 7,4 207.168
Langa 31,50 23,50 28,08 7,4 207.168
Lúða 120,00 50,00 96,76 1,2 116.319
Annaö 36,33 0,4 13.145
Samtals 26,17 151,1 3.955.057
Aflinn á föstudag var úr Karlsefni RE 57 tonn, Eini HF 23 tonn,
Aöalvík KE 18 tonn, Krossnesi SH 30 tonn og úr ýmsum bát-
um. Á mánudag veröa boöin upp um 60 tonn úr aöalvík KE,
mest karfi og auk þess bátafiskur, ýsa og fleira.