Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 60
Bryggjuspjall
Giftusamleg nauðlending á Reykjavík;
Fokker-vél lenti
-á öðrum hreyfli
Kartöfluuppskera
um 5.000 tonnum
meiri en í fyrra
Kartöfluuppskera verður
líklega um 5.000 tonnum meiri í
en á síðasta ári. Gert er ráð
fyrir að heildaruppskeran á nýt-
anlegum kartöflum á þessu ári
verði um 18.000 tonn. Agnar
Guðnason yfirmatsmaður garðá-
vaxta sagði í samtali við Morgun-
blaðið að gera mætti ráð fyrir að
10.000 tonn seldust, en 8.000 tonn-
um yrði hent.
Agnar sagði að kartöfluneysla
hefði minnkað verulega hér á landi.
Menn hefðu haldið því fram að meðal-
neysla á kartöflum á mann hér á
landi á síðasta ári hefði verið 64 kíló,
en ef miðað er við heildarsöluna var
hún 47 kíló. í Bretlandi hefur kart-
öfluneysla aftur á móti aukist og er
um 105 kfló á hvem íbúa á ári.
Loftur Andri Jónsson bóndi á Bala
í Þykkvabæ sagði í samtali við Morg-
unblaðið að kartöfluuppskera hefði
aldrei verið meiri en nú og að kartöfl-
umar væru áberandi stærri en áður.
Hann ræktar kartöflur á um 20
hektara svæði ásamt öðrum bónda.
Þeir hafa þegar tekið upp 425 tonn
en eiga eftir að taka upp um 70 tonn
til viðbótar. Loftur Andri sagði að
menn væru langt komnir með að taka
upp. Hljóðið væri heldur dauft í
bændum. Þeir eru svartsýnir á söluna
og augljóst er að þeir þurfa að henda
. miklu magni af kartöflum.
„Við áttum auðvitað aldrei von á
að fá svona mikið. Ef hægt væri að
sjá það fyrir væri sett niður sam-
kvæmt því á vorin.“ Loftur Andri
skiptir við Þykkvabæjarkartöflur.
Fyrirtækið tekur við 1500 pokum,
eða um 75 tonnum frá hveijum
bónda. Síðan kaupir það eftir þörfum
frá bændum ákveðna prósentu af
birgðum.
TF-FLP, á Reykjavíkurflugvelli
á öðnun hreyfli. Engin slys urðu
á mönnum og tókst lendingin
eins og best var á kosið. Vélin
var að koma frá Akureyri og
voru 39 farþegar um borð.
Morgunblaðið náði tali af einum
farþega vélarinnar, Jóni Lárussyni
frá Akureyri. Hann sagði að um
hálftíma fyrir áætlaða lendingu
vélarinnar hefði flugstjóri hennar,
tilkynnt að annar hreyfillinn hefði
hitnað meira en góðu hófi gegndi
svo slökkt hefði verið á honum.
Jafnframt hughreysti flugstjórinn
farþegana og sagði að þetta „væri
ekkert stórmál". Jón sagði að far-
þegar hefðu haldið stillingu sinni,
en að vísu hefði farið um suma í
aðfluginu þegar hnykkir komu á
vélina.
Lendingin tókst giftusamlega og
renndi vélin að flugstöðvarbygging-
unni með eðlilegum hætti.
Flugvirkjar á Reykjavíkurflug-
velli kanna hreyfil vélarinnar.
Emil Ragnarsson bóndi á Sólbakka
hefur lokið við að taka upp og sagð-
ist hann hafa fengið samtals 315
tonn af kartöflum eða 115 tonnum
meira en í fyrra. Hann setti heldur
minna niður í vor en venjulega í því
skyni að reyna að minnka framleiðsl-
una. Emil sagði að margir bændur
hefðu hætt að taka upp vegna þess
að þeir voru búnir að fylla allar
geymslur. Hann hefur nægt húsnæði
og ákvað því að taka allt upp til að
geta valið úr það besta. Emil gerir
ráð fyrir að henda um helmingi upp-
skerunnar.
SKÖMMU eftir hádegi í gær
nauðlenti Fokker-vél Flugleiða,
Verðlækkmi á sjófryst-
um þorski í Bretlandi
Hefur áhrif á alla verðlagningu, segir framkvæmdastjóri dótturfyrirtækis SH
VERÐ á sjófrystum þorski á
Bretlandsmarkaði lækkar eftir
helgina. Iceland Seafood ltd.,
dótturfyrirtæki Sambandsins i
Hull, hefur ákveðið að lækka
verð á millistærð þorskflaka, sem
fryst eru um borð í togurum, um
rúm 4% að sögn Sigurðar J. Sig-
urðssonar framkvæmdastjóra.
Ingólfur Skúlason framkvæmda-
stjóri Icelandic Freezing Plants,
dótturfyrirtækis Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, staðfesti að á
mánudagsmorgun yrði verð SH
einnig lækkað. „Þetta hefur án
efa áhrif á verðlagningu alls
fisks, hvort sem hann er frystur
um borð eða í landi. Það hefur
ekki tíðkast að lækka verð á
þessum tíma. Þetta gæti dregið
dilk á eftir sér,“ sagði Ingólfur.
„Við erum að reyna að bregðast
við óskum markaðarins með því að
hagræða verðinu. Skæðustu keppi-
nautar okkar, Norðmenn, hafa lagt
þunga áherslu á að framleiða flök
í millistærð og liggja með miklar
birgðir sem ekki seljast," sagði Sig-
urður í samtali við Morgunblaðið.
„Verðlækkunin yfír heildina er
óveruleg, því að það eru aðeins sjó-
fryst flök sem vega 8-16 únsur sem
lækka. Aðrir þyngdarflokkar verða
áfram á sama verði."
„Þegar kominn er taugatitringur
í seljendur á þessum árstíma spyr
maður bara hvert stefni. Ef menn
eru hræddir núna þá á verðið eftir
að lækka enn frekar og hafa áhrif
á alla físksölu," sagði Ingólfur sem
kvaðst hafa frétt um verðlækkunina
á föstudagskvöld.
„Það er ljóst að markaðurinn er
ekki að stækka og þegar veiðist vel
verður erfíðara að selja aflann. En
ef aðrir lækka verðið á íslenskum
afurðum getum við ekki haldið
áfram að bjóða þær á hærra verði."
Sigurður sagði að landfryst
þorskflök væru enn ódýrari en þau
sjófrystu. Þvf mætti ekki álykta sem
svo að verðlækkunin gengi yfír
línuna. Verðmunur vinnsluaðferð-
anna færi óefað minnkandi, enda
hefði hann verið óraunhæfur.
Hann sagði að frystihús fram-
leiddu nú í auknum mæli fyrir
Bandaríkjamarkað. Minna framboð
í Bretlandi stuðlaði að því að verðið
héldist í skefyum.