Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 40
4é
Stórefnilegnr bassaleikari
TÓMUST
Jón Ásgeirsson
Hávarður Tryggvason kontra-
bassaleikari og Brynja Guttorms-
dóttir píanóleikari héldu tónleika
í Norræna húsinu sl. föstudag
og fluttu verk eftir Koussevitzky,
Bottesini, Michel Zbar, Massenet,
Faure og Popper. Einleikskonsert
á kontrabassa er ekki hversdags
viðburður, því eins og hljóðfærið
er mikilvægt í samspili, þarf ein-
leikari að ráða yfír þeirri tækni
er gerir honum fært að yfirvinna
ýmsa agnúa hljóðfærisins. Þessir
agnúar koma einna best fram í
liðlegu tónferli og tónmyndunar-
tækni sem óhjákvæmilega hlýtur
ósanngjaman samburð við það
sem gerist að vera á selló.
í fyrsta verkinu sem var kon-
sert eftir Koussevitzky mátti
greina óstyrkan leik en í heild
var verkið samt vel leikið. í öðru
verki tónleikanna, sem var Elegia
eftir Bottesini, var leikur Hávarð-
ar kominn í gott jafnvægi. Hann
hefur mjög fallegan tón og leikur
Hávarður Tryggvason kontra-
bassaleikari og Brynja Gutt-
ormsdóttir píanóleikari.
með hann á einkar músíkalskan
máta og í nútímaverki eftir Zbar
(franskt nútímatónskáld) lék
hann sér að ýmiskonar skemmti-
legum og vel útfærðum „tón-
myndunartrikkum“, sem eru
fastir liðir í hefðbundinni skóla-
tónlist nútímans.
Eftir hlé skiptust viðfangsefn-
in í tvo flokka. Fyrst er að nefna
Meditation eftir Massenet og
Apres un réve eftir Faure, þar
sem frábærlega fallegur og
syngjandi tónninn hjá Hávarði
naut sín mjög vel. Seinni flokkur-
inn voru virtúósa stykki eins og
Fantasie Sonnambula eftir Bott-
esini og sú fræga ungverska
raspsódía eftir Popper. Þar sýndi
Hávarður að hann er á góðri leið
með að verða frábær bassaleik-
ari, sérstaklega í sellóverki
Poppers. Hávarður er sannarlega
efnilegur bassaleikari og verður
fróðlegt að heyra hann að námi
loknu og eftir að hann hefur orð-
ið sér úti um meiri þjálfun í
tónleikahaldi. Brynja Guttorms-
dóttir studdi vel við leik Hávarð-
ar, jafnvel þar sem ákafinn hjá
einleikaranum losaði um hryn-
festuna.
TIL SÖLU
Vegna endurskipulagningar á bílakosti Hjálparsveitar skáta í Hafn-
arfirði eru þessar bifreiðar til sölu:
1. Chervolet Suberban Silverrado diesel, árg. 1982, ekinn
45000 km.
2. Pinzgauer árg. 1981, 3 hásinga, ekinn 29000 km.
3. International 1100, árg. 1974, ekinn 16400 mílur.
Upplýsingar gefur Þorvaldur Hallgrímsson í síma 651022 milli kl.
9.00-16.00.
Nr. Flytjandi—titill venjul. verð afslverö
1. MichaelJackson-Bad 719
2. TerenceTrent D'Arby- Intro. >49 674
3. Madonna - Who’s That Girl 674
4. Cock Robin—After Here Through Midland 674
5. Echo And The Bunnymen 674
6. Deacon Blue - Raintown >43 674
7. Stuðmenn - Á gæsaveiðum >90 719
8. Suzanne Vega - Solitude Standing >43 674
9. Látúnsbarkarnir ■?9Ö 719
10. Cars-DoorToDoor 740. 674
11. Bubbi og MX 21 - Skapar fegurðin hamingjuna ina 404
12. Dio—DreamEvil 740i 674
13. Greifamir—Sviðsmynd •990. 539
14. Úr mynd-LaBamba 740 674
15. Hooters - One Way Home -749 674
16. Fleetwood Mac - Tango In The Night -740 674
17. Stuðkompaniið—Skýjum ofar -S09l 539
18. Pat Metheney - Still Life (Talking) 049. 674
19. Úr mynd - Beverly Hills Cop 049. 674
20. SimpleMinds—Live 7*90 989
Þú gerir ekki betri kaup!
Munið Rem — Doculments á tilboðsverði þessa viku kr. 599,-
stdnofhf
Austurstræti, Glæsibæ, Rauðarárstig, Strandgötu
Póstkröfusími 11620 og 28316 (símsvari).
MEÐEINUSÍmU
er hœgt að breyta innheimtuaö-
ferðinni. Eftir það verða áskri
mTvmr;trn.T»
viðkomandi greiðslukortareikn-
SÍMINN ER
691140
691141
I dag kl. 16.00. Hártískan ’88
ARgTÓKRATllNN kynnir nýjustu hárlínuna
Hveragerði