Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.1987, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1987 Bókmennta- hátíðín 1987 hefst 1 dag Bókmenntahátíðin 1987 verð- ur formlega opnuð í Norræna húsinu í dag klukkan 16.00 með því að Knut Ödegárd, forstjóri Norræna hússins, Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráð- herra og skáldin Sigurður Pálsson og Sara Lidman flytja ávörp. Þá mun flautuleikarinn Robert Aitken einnig leika. Heiðursgestur Bókmenntahátíð- arinnar er Halldór Laxness. Eftir opnunina verður móttaka fyrir höfundana hjá menntamála- ráðherra og í kvöld er fyrsta bókmenntadagskrá hátíðarinnar. Verður hún í Norræna húsinu og hefst klukkan 20.30. Þetta fyrsta kvöld koma fram skáldin Johan Bargum frá Finnlandi, Dorrit Will- umsen frá Danmörku, Jon Michelet Námsstefna um forvarnir gegn fíkniefnaneyshi bama Frá ráðstefnunni i gærmorgun. Foreldrasamtökin Vímulaus æska héldu í gær námsstefnu i Borgartúni 6 um vímuefni og forvamir gegn fíkniefnaneyslu barna og unglinga. „Kjörorð okkar er að vímuefna- varnir hefjast heima, við teljum foreldra færasta um að sjá um böm sín,“ sagði Ragnheiður Guðnadóttir varaformaður sam- takanna í samtali við Morgun- blaðið. Foreldrasamtökin um vímuefnalausa æsku voru stofnuð fyrir einu ári og eru um 8.000 félagar í þeim. „Eitt markmiðanna með þessari námsstefnu er að reyna að ná til tengiliða og virkja Morgunblaðið/SveiTÍr fólk hvert á sínum stað. Það er ekki síst markmið foreldrasam- taka sem þessara að fólk sé virkt á sem flestum stöðum." Um hundrað manns sóttu námsstefnuna en meðal þess sem þar var rætt voru leiðir til for- vama, meðferð á unglingum, vandi foreldra og aðstandenda. Einnig vom kynnt ýmis verkefni sem í gangi em á vegum foreldra- samtakanna, menntamálaráðu- neytisins og Lionshreyfingarinn- ar. Námsstefnustjóri var Aldís Ingvadóttir nýráðinn námsstjóri í vímuefnavömum. frá Noregi, Regin Dahl frá Færeyj- um og Einar Már Guðmundsson og Þórarinn Eldjárn frá íslandi. Bókmenntahátíðin 1987 stendur til laugardagsins 19. september og verður boðið upp á bókmenntadag- skrá hvert kvöld í Norræna húsinu um ýmsa þætti skáldskapar. Að- gangur er ókeypis á alla bók- menntadagskrá Bókmenntahátíð- arinnar 1987. Auk Knuts Ödegárds sem er framkvæmdastjóri hátíðarinnar, starfa í framkvæmdanefnd hennar þau Ámi Siguijónsson, Einar Kárason, Halldór Guðmundsson, Ingibjörg Bjömsdóttir, Sigurður Valgeirsson, Thor Vilhjálmsson, og Ömólfur Thorsson. Vemdari Bókmenntahátíðarinnar er Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands. íslenska sjávarútvegssýningin 1987: Svæðisútvarp BBC með beinar útsending- ar til Grimsby og Hull Heildarsýningarsvæði 11-12.000 fermetrar ÍSLENSKA sjávarútvegssýning- in 1987 verður haldin í Reykjavík dagana 19.-23. sept- ember. Reiknað er með að 2-3000 útlendingar komi hingað til lands vegna þessarar sýning- ar en hún er sú stærsta sem nokkurn tímann hefur verið haldin á íslandi. Þetta er jafn- framt stærsta sjávarútvegssýn- ing sem haldin er í heiminum á JÓN Sigurðsson viðskiptaráð- herra hefur undanfarna daga rætt við fulltrúa þeirra, sem gert hafa tilboð í hlutabréf ríkis- ins f Útvegsbankanum hf. Ákveðið er að halda formlegan fund þessara aðila klukkan 11 á mánudagsmorgun en Jón bjóst ekki við að úrslit í málinu fengj- ust þá. Jón sagðist ekki vera svartsýnni en hann var á að samkomulag þessu ári. Sýningin er haldin af fyrirtækinu Intemational Trade Fairs, ITF, í samvinnu við umboðsaðila þess hér á landi, Alþjóðlegrar vörusýningar hf. Heildarsýningarsvæðið 11-12.000 fermetrar. Tvö tjöld hafa verið reist við hlið Laugardals- hallarinnar og eru þau samtals svipuð að stærð og Laugardals- höllin. Sýning af þessari stærðar- geti tekist um sameiginleg kaup tilboðsgjafanna á hlutabréfunum en vildi engu spá um iyktir máls- ins. Hann sagði að kannaðar hefðu verið ýmsar leiðir í þessu sam- bandi síðan þesir aðilar hittust síðasta föstudag, og einnig hefði verið kannað viðhorf ýmissa banka um víðtækara samstarf. Jón vildi ekki útiloka að slíkt yrði raunin þótt sjálfsagt væru margar hliðar á því máli okannaðar enn. gráðu vekur eins og gefur að skilja mikla athygli og verður m.a. svæð- isútvarp BBC fyrir svæðið í kring- um Grimsby og Hull með beinar útsendingar frá Islandi. „Þetta er í annað skipti sem þessi sýning er haldin héma en fyrra skiptið var árið 1984. Við stefnum að því að hún verði haldin hér þriðja hvert ár í framtíðinni," sagði Þórleifur Ólafsson, sem er umboðsmaður ITF á íslandi ásamt Eiríki Tómassyni, í samtali við Morgunblaðið. „Sýningin tókst mjög vel þegar við héldum hana 1984. Þá var hún mun minni í snið- um og tóku þátt um 200 sýnendur í 120-130 básum. Núna verða þeir 4-500 í 226 básum. Forsaga þessa máis er sú að árið 1983 hitti ég í Kaupmanna- höfn John Legate forstjóra ITF í Bretlandi og ámálgaði þá við hann hvort ekki væri möguleiki að halda sjávarútvegssýninguna á íslandi. Skömmu síðar skrapp hann til ís- lands að skoða aðstæður og fljót- lega fengum við frá honum þau skilaboð að við ættum að láta til skarar skríða. Þótt sú sýning væri mun minni í sniðum en sú sem nú verður haldin var Laugardalshöllin alltof lítil fyrir hana og þurftum við að setja upp tvö aukatjöld við hlið hennar. Þau voru mun minni en þau sem nú er verið að setja upp. Þá sóttu sýninguna 6-800 út- lendingar en nú verða þeir 2-3000 frá flestum heimsálfum, m.a. kem- ur hópur frá Kína. Þetta er lang- stærsta sýning sem haldin hefur Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra: Rætt um víðtæk- ara samstarf í Ut- vegsbankamálinu Morgunblaðið/RAX Sýningarsvæðið við Laugardalshöll. Á myndinni sjást tjöldin tvö sem reist hafa verið vegna sýningarinnar, en þau er samanlagt á stærð við Laugardalshöllina. verið á íslandi og rétt á mörkunum að við ráðum við þetta. Sem dæmi má nefna að allt hótelrými er upp- pantað í Reylq'avík sem og á öllum hótelum í grennd við höfuðborgina s.s. í Borgamesi, Hveragerði, Sel- fossi og Keflavík. Einnig mun fjöldi manns gista á einkaheimilum." Sýningar af þessari stærðar- gráðu vekja eins og gefur að skilja mikla athygli og má nefna að svæð- " isútvarp BBC fyrir svæðið í kring- um Grimsby og Hull verður með beina útsendingu frá opnun sýning- arinnar. Samtals mun BBC senda út um 8-10 klukkustundir frá ís- landi meðan á sýningunni varir. Sýningin opnar laugardags- morguninn 19. september klukkan 10 og stendur til miðvikudagsins 24. september.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.