Morgunblaðið - 10.10.1987, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987
Hinn heimsþekkti
viðgerðarvír frá
Castolin
Afmælisblað
Æskunnar
BARNABLAÐIÐ Æskan varð 90
ára 5. október sl. Af því tilefni
var gefið út sérstakt afmœlis-
blað. Hilmar Jónsson stórtemplar
skrifar ávarp til lesenda í tilefni
afmælisins. Séra Björn Jónsson
á Akranesi ritar ítarlega grein
um Sigurð Júlíus Jóhannesson
lækni og skáld, sem var fyrsti
ritstjóri Æskunnar.
Aðalviðtölin í afmælisblaðinu eru
við tónlistarmennina Valgeir Guð-
jónsson og Bjama látúnsbarka
Arason. Valgeir talar um tónlistar-
störf sín, en Bjami um látúnsbarka-
keppnina og verðlaunaferð til
London seinni hluta sumars. Vegg-
mynd af Bjama fylgir blaðinu. — í
poppþættinum skrifar Jens Guð-
mundsson um Michael Jackson.
Fjallað er um bamadagskrár sjón-
varpsstöðva. Tveir verðlaunahafar
í samkeppni Æskunnar og Rásar 2
í fyrra fóru til Svíþjóðar í sumar
og lýsa ferðalaginu í máli og mynd-
DnOo
Ármúla 34-Pósthólf 8556-128-Reykjavik
91-689-100
Æskan og Rás 2 — í samvinnu
við Flugleiðir — kynna nýja verð-
launasamkeppni. Tveir verðlauna-
hafar hljóta ferð til Flórída.
Samkeppnin er tvíþætt, annars veg-
ar smásagnasamkeppni og hins
vegar tónlistargetraun. Skilafrestur
sagna og lausna er til 10. desember
nk.
Bamasögur em eftir Iðunni
Steinsdóttur og Jóhönnu
Steingrímsdóttur. Framhaldssög-
una hafa nemendur Húsabakka-
skóla í Þingeyjarsýslu samið. Margt
fleira er í blaðinu, svo sem penna-
vinadálkar, þrautir, skrítlur og
ýmsir fastir þættir.
Ritstjórar Æskunnar eru Eðvarð
Ingólfsson og Karl Helgason. Af-
mælisblaðið er 64 síður og prentað
í Odda hf. Útgefandi er Stórstúka
íslands.
SIMAR 21150-21370
Til sýnis og sölu meöal annarra eigna:
S0LUSTJ LARUS Þ VALDIMARS
L0GM J0H Þ0RÐARS0M H0L
Parhús í Smáíbúðahverfi
Efri hæð: 3 góö svefnh., baö og svalir. Neðri hæð: stofa, eldh., for-
stofa og snyrting. Kjallari: 2 rúmg. herb., sturtub., þvottah. og geymsla.
Bílsk. 24 fm nettó. Grunnfl. hússins er tæpir 60 fm nettó. Langtima-
lán kr. 1,9 millj. fylgir. Skipti æskil. á góöri 4ra herb. ib.
í Vesturbæ Kópavogs
á vinsælum stað. Steinh. á einni hæö 135 fm nettó auk bilsk. 26 fm
nettó. 4 góð svefnherb., falleg ræktuð lóö. Bein sala eöa skipti. Teikn.
á skrifst. Ákveðin sala.
Átta ára úrvalsíbúð
á 2. hæð v. Dalsel. 3ja herb. 89,9 fm nettó. Ágæt sameign. Suöursv.
Öll eins og ný (innr., tæki og teppi).
í Vesturborginni - hagkvæm skipti
Til sölu 3ja herb. suöuríb. á 4. hæö skammt frá Sundlaug Vesturb.
Skuldlaus. Mikiö útsýni. Skipti möguleg á 2ja herb. íb. helst í Vesturb.
eða Þingholtunum.
í Hafnarfirði - hagkvæm skipti
Til kaups óskast góö 4ra herb. íb. helst í Noröurbæ eða nágr. Skipti
mögul. á hæð og rish. í Kinnunum meö 6-8 herb. glæsil. íb. Svalir og
snyrt. á báöum hæðum. Rúmg. bílsk. Góö eign á sanngjörnu verði.
Óvenju margir
fjársterkir kaupendur hafa faliö okkur aö útvega góöar íbúðir, sér-
hæöir, raöhús og einbýlishús. Margir bjóða útborgun fyrir rátta eign.
Margskonar eignaskiþti möguleg.
Opið í dag laugardag
kl. 11.00til kl. 16.00.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAN
LAUGAVEG118 SÍMAR 21150 - 2137C
MmgíMiiiáD
Umsjónarmaður Gísli Jónsson 408. þáttur
Þá er að svara bréfí frá
áhugasömum menntaskóla-
nema, því sem birtist í síðasta
þætti: __
1. Oðru hvoru eða öðru
hverju. Erfítt er að segja að
annað sé réttara en hitt. A
þessu tvennu er ekki gerður
þvílíkur greinarmunur í Orða-
bók Menningarsjóðs. Hæpið
mun að greina þetta eftir því,
hversu oft eitthvað gerist, því
að tímaviðmiðunin í þessu er
svo afstæð.
2. Einstaka sinnum eða ein-
stöku sinnum. Hið fyrra er
óbeygjanlegt lýsingarorð, í
sama flokki og t.d. hissa,
klumsa, agndofa og gjald-
þrota. Síðari orðmyndin er af
samsvarandi beygjanlegu lýs-
ingarorði, einstakur. Hér er
líka hæpið að miða við eintölu
eða fleirtölu. Formlega séð er
hægt að segja frá hissa konum,
klumsa körlum og agndofa
börnum. í sambandinu ein-
stöku sinnum geri ég ráð fyrir
að m hafí dottið aftan af ein-
stöku.
3. Athyglisvert eða athygli-
vert, leikfimishús eða leik-
fimihús. Þessar orðmyndir eiga
ekki óskilið mál, því að athygli
hefur frá því í fomöld ýmist
verið hvorugkyns eða kvenkyns,
ekki síður hvorugkyns á árum
áður. Hvemig sem á er litið er
það smekksatriði hvort menn
segja athyglisvert, eins og
umsjónarmaður hefur vanist,
eða athyglivert.
í hinu dæminu vandast málið
svolítið meira, því að leikfimi
er víst alltaf kvenkyns. Þá verð-
ur að rifja upp að samsetningar
í íslensku em með þrennu móti.
Við getum samsett af stofni
(fast samsett), eignarfalli (laust
samsett) eða með bandstaf eða
tengistaf. Hið síðastnefnda er
sjaldgæfast, svo að miklu mun-
ar. Helstu bandstafír em i (eins
og í eldiviður) u (eins og í
ráðunautur) og s (eins og í
leikfimishús) ef við viljum svo
hafa. En við megum auðvitað
og ekkert síður búa til samsetn-
inguna leikfimihús, og verður
í þessu dæmi ekki greint á
milli, hvort það er stofnsam-
setning eða eignarfallssamsetn-
ing. Þetta er því aftur
smekksatriði.
Mjög er á reiki hvort menn
hafa bandstafínn s eða ekki til
þess að búa til samsetningar
af kvenkynsorðum sem enda á
i og em eins í öllum föllum.
Ráðandi er að segja landhelgis-
gæsla, enda mundi þykja stutt
á milli g-anna í *landhelgi-
gæsla. Þá munu flestir segja
skynsemistrú fremur en
*skynsemitrú. Óhætt er að
segja að fyrr á þessari öld hafi
menn fremur aðhyllst samsetn-
ingar með s-i en nú er orðið. í
Blöndalsorðabók má fínna
margar slíkar samsetningar,
svo sem guðfræðisdeild,
stærðfræðisuppdráttur og
verkfræðisnám. En þar em
líka samsetningar. eins og
stærðfræðilegur og verk-
fræðilegur. Fór þetta kannski
eftir því hvaða orðflokkur síðari
hlutinn var?
Skýrasta dæmi um breyttan
smekk er þó það, að í Árbókum
Háskóla íslands frá upphafí em
höfð deildaheitin guðfræðis-
deild, heimspekisdeild
o.s.frv., allar götur til námsárs-
ins 1954—1955. Þá er breytt
um og s-ið fellt úr öllum slíkum
samsetningum. Við skulum í
þessu efni reyna að treysta á
eigin smekk. Ef menn ætla sér
að breyta athyglisverður>
athygliverður og leikfimis-
hús> leikfímihús, þá þykir mér
það bera keim af ofleiðréttingu
(hypercorrection).
4. Jú, það er betra að segja
miklu betra en mikið betra,
einhverju minna en eitthvað
minna o.s.frv. Auðkenndu orð-
myndimar í þessum sambönd-
um standa í mismunarþágufalli
(abl. differentiae). Þetta mis-
munarþágufall lifír bestu lífi í
sambandinu sýnu betra, sýnu
minna o.s.frv. Sýnu merkir þá
„svo að sjónarmunur er á“.
Hvemig væri að íþróttafrétta-
ritarar segðu að hlaupari hefði
orðið sýnu fljótari en annar ef
sjónarmunur hefur verið á
þeim?
5. Nei, það á ekki frekar að
tala um vinstri fót en vinstra
fót. Við megum vel hafa hér
sama lag og í beygingu annarra
veikra lýsingarorða. Við sitjum
á gamla stólnum og lyftum
hægra fæti upp á háa garðinn.
6. íris er komið úr grísku
og merkir regnbogi. Erfitt er
að gefa fyrirmæli um beygingu
svo framandi orða. Mér þykir
þó hóti íslenskulegra að segja
um og frá Irisi heldur en sleppa
i-inu úr endingunni.
7. Þriggja stjarna hótel er
auðvitað rétt, „stjömu“ er ekki
eignarfall fleirtölu. Mætti ekki
kalla þriggja stjama hótel
þrístimi?
8. Þetta er mikið mál og flók-
ið og ég ætla að reyna að gera
það eins einfalt og mér er unnt
með því að fullyrða að sögnin
að þykja sé ekki alltaf óper-
sónuleg (einpersónuleg). Þegar
í fommáli sést hið gagnstæða.
í Völsungakviðu hinni fornu
stendur þetta:
Þykja-t mér góðir
Granmars synir.
Hér lagar sögnin sig í per-
sónu og tölu eftir frumlaginu
„synir“. Ég sé því ekkert at-
hugavert við mál mannsins í
útvarpinu: „Mér þykja þetta
vond dæmi.“ Ég myndi tala svo.
Ef menn vilja bíta í sig að
sögnin að þykja sé alltaf óper-
sónuleg eða „eigi“ a.m.k. að
vera það, þá segja menn auðvit-
að alltaf þykir í nútíð og þótti
í þátíð, hvað sem líður persónu
og tölu frumlags. En málið er
ekki svona einfalt. Þykja
mönnum þessi málalok viðun-
andi? Umsjónarmaður væri
feginn að fá ykkar álit á þessu
og öllum þeim vafaatriðum sem
hér var fjallað um. Að svo
mæltu þakkar hann bréf
menntaskólanema og vildi
gjarna fá fleiri frá fólki á því
reki.
☆
Og svo að lokum langar mig
til að spyrja ykkur hvaða ný-
yrði þið gætuð helst sætt ykkur
við í staðinn fyrir gallerí, kond-
itorí og havarí.
Bætur vegna óvátryggðra bíla:
Greiðsluskylda trygginga-
félaganna ekki skilyrðislaus
segir í tilkynningu Sambands íslenskra tryggingafélaga
MORGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi frá Sambandi
íslenzkra tryggingafélaga:
„í Morgunblaðinu miðvikudaginn
7. október sl. birtist frétt undir fyrir-
sögninni „Sjóður greiðir bpetur
vegna ótryggðra bíla“. Er.þar m.a.
vitnað til ummæla Rúnars Guð-
mundssonar, lögfræðings í Trygg-
ingaeftirlitinu. Af ummælum hans
og frágangi fréttarinnar yfirleitt
mætti ráða, að ætíð þegar vátrygg-
ing ökutækis er úr gildi fallin, og
þar með ábyrgð vátryggingafélags,
geti þeir, sem orðið hafa fyrir tjóni
af völdum óvátryggðs ökutækis,
fengið tjón sitt skilyrðislaust bætt
úr sjóði í vörslu Sambands íslenskra
tryggingafélaga. Frétt þessi hefur
þegar orðið tilefni misskilnings.
Það er vissulega rétt, að í gildi
eru reglur frá árinu 1970 um greiðsl-
ur bóta vegna tjóna af völdum
óþekktra og óvátryggðra ökutækja.
Samkvæmt þessum reglum geta bif-
reiðatryggingafélögin orðið að
greiða óskipt skaðabætur sam-
kvæmt skaðabótareglum umferðar-
laga og ríkjandi réttarvenju á
hveijum tíma, í tilvikum sem þess-
um. Kröfu af þessu tagi ber að beina
til Sambands íslenskra tryggingafé-
laga. Greiðsluskylda þessi er þó
engan veginn skilyrðislaus. Sé lit-
ið á tjón af völdum óvátryggðra
ökutækja, þar með ökutækja, sem
löggæslan hefur ekki flarlægt skrán-
ingamúmer af, gildir m.a. eftirfar-
andi um þessa greiðsluskyldu:
1. Bætur greiðast aðeins að því
marki, sem tjónið fæst ekki bætt
hjá þeim, sem ábyrgð ber á því.
Þetta þýðir, að tjónþoli verður
fyrst að leita eftir greiðslu bóta
hjá hinum bótaskylda. Aðeins
þegar sannanlega liggur fyrir,
að greiðslur fáist ekki hjá honum,
gæti tjónþoli snúið sér til Sam-
bands íslenskra tryggingafélaga.
2. Þegar hér er komið sögu er þó
greiðsluskyldan ýmsum takmörk-
unum háð. Þannig segir m.a.
efnislega í áðurgreindum reglum
frá árinu 1970, að bætur greiðist
ekki, ef mistök í starfi eða van-
ræksla opinberra starfsmanna
hafi orðið þess valdandi, að ekki
er fyrir hendi lögboðin ábyrgðar-
trygging.
Af ofanrituðu er ljóst, að miklu
varðar að löggæslan vanræki ekki
að fjarlægja skráningarmerki af
brifreiðum, eftir að tilkynning hefur
komið frá vátryggingafélagi um að
vátrygging ökutækis er úr gildi. Að
vísu er svo fyrir mælt, að ábyrgð
vátryggingafélags varir í 4 vikur frá
því að viðkomandi lögreglustjóri
fékk tilkynningu félags. Hafi þessi
4 vikna tími liðið án þess að löggæsl-
an hafi fjarlægt skráningamúmer
hins óvátryggða ökutækis og öku-
tækið veldur síðan tjóni, getur
vissulega sú staða skapast að tjón-
þoli fái ekki bætt tjón sitt samkvæmt
reglunum frá 1970, heldur verði að
beina kröfu sinni að hinu opinbera.
Mikilvægi skjótra viðbragða lögregl-
unnar vegna óvátryggðra ökutækja
er því aldrei ofbrýnt."