Morgunblaðið - 10.10.1987, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987
Úr
tónlistarlífinu
Sigrún Davíðsdóttir
Svipmynd
úr sinfóníunni:
Szymon
Kuran ann-
ar konsert-
meistari
Jazz, klassísk tónlist,
samtímatónlist...
og innangengt á milli
Rekur einhver upp
stór augu ef hljóðfæra-
leikari úr sinfóníunni
er fenginn til að setjast
niður og segja fá
klassískri tónlist og jaz-
zi? Ætti svo sem ekki
að þurfa að koma á
óvart, en í kjölfar
nútíma dilkadráttarár-
áttu gleymist stundum
að það getur verið inn-
angengt milli grein-
anna. Og einn af þeim,
sem ferðast lipurlega
þarna á milli er annar
konsertmeistari hljóm-
sveitarinnar og fyrsti
konsertmeistari Isl.
óperunnar, Pólverjinn
Szymon Kuran. Það er
reyndar forvitnilegt að
gægjast yfir öxlina á
honum og horfa þaðan
á klassíska tónlist,
samtímatónlist og auð-
vitað jazzinn. Hér flétt-
ast allt saman og styður
hvað annað.
Szymon bjó í föðurlandinu fram
á fullorðinsárin, lærði þar og vann,
en brá sér þá til London til að víkka
sjóndeildarhringinn. Dvölin átti að
vera ár og það passaði þá ágætlega
að freista inngöngu í National for
Orchestral Studies. Þetta er hljóm-
sveit, þar sem ungt fólk er tekið inn
eftir prufuspil og því gefíð kostur
á reynslu og þjálfun í hljómsveitar-
leik. Framkvæmdastjóri er Basil
Tschaikov, eldhugi á sjötugsaldri
en einkar ungur f anda. Auk þess
var Szymon í fíðlutímum þjá Rodn-
ey Friend, konsertmeistara BBC-
hljómsveitarinnar og Michél
Schwalbe, konsertmeistara Karaj-
ans í 30 ár í Berlínar-fílharmóní-
unni, reyndar Pólveiji, og í
tónsmíðum var Kuran hjá Edward
Gregson. En eftir veturinn lá þó
leiðin ekki aftur heim, heldur bara
lengra í burtu, því Szymon sá aug-
lýsingu héðan um stöðu annars
konsertmeistara, prufuspilaði og
var ráðinn. Síðan eru þijú ár.
Og nú er Szymon ekki aðeins í
sinfóníunni, heldur kominn á kaf í
jazzlífíð, leikur með tveimur hópum.
Annar er Jazzkvintett sinfóníunnar,
ásamt Martial Nardeau, Áma
Áskelssyni, Reyni Sigurðssyni og
Þórði Högnasyni. Hinn gengur und-
ir því rammíslenzka og grámyglu-
lega nafni Súld, þar eru, auk
Szymors, Tryggvi Hiibner, Stein-
grímur Guðmundsson, Stefán
Ingólfsson og Lárus H. Grímsson.
Súld lagði land undir fót í sumar,
skundaði á jazzhátíðina í Montreal,
heljarskinns mikla hátíð, þar sem
er ekki sízt lögð áherzla á skapandi
jazz, ekki bara uppsuða á gömlu
■
efni, þó gott sé. í úttekt á hátíðinni
í kanadísku blaði eru nefnd sex
eftirminnileg nöfn og Szymon þar
á meðal. Og að úr tónlistinni og
tónlistarmönnunum þurfí að koma
þetta sérstaka og óvænta og enn
er Szymon nefndur til. Ekki ónýt
ummæli eftir hátíð sem bauð upp
á jafnmikið úrvalslið og þama var
og þar sem áheyrendur skipta
hundmðum þúsunda.
En hvers vegna fylgir Szymon
ekki nútíma sérhæfingu og heldur
sig við klassíkina eingöngu, hvað
lokkar hann að jazzinum?
„Ég hef alltaf hrifist af tónlist
með sveiflu og hún er nú einu sinni
meginatriði í jazzi. Fljótlega eftir
að ég fór að spila, fann ég svo að
ég átti auðvelt með að impróvísera,
spinna. Og þetta tvennt er mjög
mikilvægt I jazzi, sveiflan og
spuninn.
í jazzi gefst mikið frelsi, en samt
krefst hann skipulags, þess að sjá
leikinn fyrir fram í tímann. Það er
ekki óalgengt að klassískir hljóð-
færaleikarar afneiti jazzi og öfugt,
sem er synd og skömm. Líkt og
jazz á vel leikin klassík að hljóma
eins og hún sé að verða til, áreynslu-
laust, en því miður heyrist slíkt of
sjaldan.
Spunalistin er oft ranglega álitin
eitthvert léttmeti, tengd jazzi og
poppi, álitin eiga að vera eitthvað
sniðugt. Það er eins og það vilji
gleymast að spuni hefur alltaf til-
heyrt klassískri tónlist. Bach fór
létt með að spinna fúgur og Moz-
art gat setið og spunnið tfmunum
saman. En það era þó til skólar,
sem kenna undirstöðureglur í spuna
einstakra stíltegunda. í Póllandi er
jafnvel til orgelhátíð, sem byggir
eingöngu á spuna. Þá era lagðar
fyrir línur og spunnið út frá þeim.
En spuni heyrist því miður sjald-
an í klassískri tónlist. Á tónleikum
er sótzt eftir þekktum verkum,
áheyrendur þekkja þau af plötum
og búast við þeim alltaf eins. Hluti
af sérhæfíngu 20. aldar felst í
þessu. í Póllandi gerði ég heilmikið
af spuna og lék þá með ýmsum hér
og þar, komumst gjaman að í kirkj-
um. Þá var efnisskráin engin,
heldur eingöngu spunnið, ekki jazz
heldur í hefðbundnum stíl. Það er
ótrúlega spennandi að vinna saman
á þennan hátt, fylgjast hver með
öðram og elta uppi. Næstum dulúð-
ug reynsla, eins og af öðram heimi.
Meðan ég var í skóla, var ég einu
sinni að spila eitthvað á fíðluna þar
sem fleiri vora og fékk þá svar frá
píanói. Við lékumst á stutta stund,
ég og píanóleikarinn, áður en við
heilsuðumst. Hann heitir Waldemar
Malicki, spilar orðið víða og kemur
vonandi einhvem tímann hingað.
Við fóram meðal annars í skóla og
héldum tónleika án efnisskrár, lét-
um krakkana leggja fyrir okkur
línur, sem við spunnum svo í ýmsum
stíltegundum, allt frá barokki til
samtímans. Með þessu sýndum við
þeim, að það er hægt að gera margt
í tónlistinni."
En hvað er að segja um jazz og
klassíska tónlist, saman og sitt í
hvora lagi?
í svokallaðri klassískri tónlist,
sem getur verið býsna fjölbreytileg,
þarf flytjandinn fyrst og fremst að
virða tónskáldið, þarf að hugsa um
stfl þess og tíðaranda, en ekki um
sjálfan sig. Tónskáldið og verk hans
kemur fyrst, síðan flytjandinn sem
gæðir það lífi. Annars er yfírleitt
of mikið gert úr andstæðum þess-
ara tveggja greina, klassískrar
tónlistar og jazz. í spuna, ssem
ætti að tilheyra báðum greinunum,
er svo hægt að koma sínu að.
í samtímatónlist vill oft verða
• svolítið annað uppi á teningnum.
Mikið af henni er með mikilli for-
skrift, þar sem tónskáldið gefur
flytjendunum eins miklar upplýs-
ingar og mögulegt er. Þá verður
flytjandinn bara að hlýða, eigi flutn-
ingurinn að verða í samræmi við
verkið og fyrirætlanir tónskáldsins.
Vandamál þessarar tónlistar er ein-
mitt að hluta til að margt í henni
er of nákvæmt, hún lítur stundum
út eins og tölvuforskrift. Slík tón-
list hentar mér illa.
Því hefur verið varpað fram að
nú um stundir sé oftlega skrifuð
tónlist, sem sé hægt að hnika til á
ýmsan hátt, sleppa úr henni, án
þess að eftir því sé tekið. Það er
þá slæm tónlist, ef samhengið
skaddast ekki, þó fellt sé úr henni.
En þó alltaf sé gott innan um, era
of margir sem skrifa á þennan hátt.
Það er nauðsynlegt fyrir tónskáld
að gera sér grein fyrir hvað hljóm-
sveit er og þekkja einstök hljóðfæri.
Þannig er hægt að hafa ekki aðeins
tök á fallegum hljómum, heldur
ekki síður þeim ljótu. Ekki minnsta
málið, því harka og ljótleiki er áber-
andi í samtímatónlist, eins og
annarri 20. aldar list, en það er
annað mál. Það er ergilegt fyrir
hljómsveitina að fá verk, sem ganga
ekki upp.“
Talandi um samtímatónlist, þá
læturðu ekki nægja að spila, jafn-
vel þó þú hafír bæði jazzinn og
klassíkina undir, heldur semurðu
líka. Hvað dregur þig að tónsmíð-
um?
„Leiðimar í tónsmíðunum era
jaftimargar og tónskáldin sjálf. í
raun era spuni og tónsijiíðar nokk-
um veginn það sama fyrir mér, þó
framkvæmdin sé önnur, tónsmíð-
amar nokkurs konar spuni, þvl ég
set á blað það sem ég heyri, en
áður en ég get skrifað, verð ég að
heyra klárlega hvað ég ætla að
skrifa. Svo er hægt að leggja verk-
ið til hliðar og athuga það síðar, en
í spunanum gildir staður og stund
og tónlistin er slðan horfin nema
hún hafí verið tekin upp, sem er
allt annað.
En hugmyndimar koma bara og
ég losna ekki við þær, heldur verð
að skrifa þær niður. Þær era lengi
að vaxa innra með mér, en ég
skrifa þær ekki niður fyrr en þær
era fullmótaðar. Slðan vil ég láta
verkið liggja og skoða það svo með
gagnrýni, líkt og gengur fyrir sig
I öðram listgreinum. Ég skrifa
meira hefðbundna tónlist, llklega
bæði vegna þess að ég spila á fíðlu
og er I hljómsveit, sé viðfangsefnin
svolltið frá þessari hlið.
En ég er ekki atvinnutónskáld,
lifí ekki á tónsmíðum, en það er
nauðsynlegt fyrir tónskáld að geta
heyrt verk sín flutt. Það er auð-
velt, þegar er unnið með litlum hóp
eins og Súld að fá öll verk sín flutt
strax. Þar reynum við að bijóta upp
hefðbundið jazzform, spilum mest
frumsamið efni, viljum reyna eitt-
hvað nýtt, þó við getum líka spilað
þekkt lög. Okkur var boðið að vera
með á tónleikum Musica Nova
síðastliðið vor, fluttum þar verk
eftir mig. Það var okkur mjög
ánægjulegt að fá að hitta samtíma-
tónlistina fyrir á þennan hátt."
Nú fæstu við margt, hvemig viltu
helzt skipta tíma þínum niður?
„Síðan ég kom til íslands hef ég
haft óhemju mikið að gera. Það er
að vissu leyti gott, en 1 framtlðinni
vonast ég til að fá meiri tíma fyrir
tónsmíðar og fíðluna mína. En þetta
er bara spuming um að ltta I eigin
barm, hugleiða hvað manni hentar
bezt og fylgja því eftir.
En ef væra frístundir?
Þá vildi ég verða milljónamær-
ingur I frístundunum, en aðeins I
einum tilgangi: Til að geta snarlega
byggt fallegt, alvöra tónlistarhús
handa Sinfóníuhljómsveit íslands.
Hún þarf sannarlega á þvl að halda
... en einkum og sérflagi, þá á hún
það skilið!
Brids
Amór Ragnarsson
Bridsfélag Reyðar-
fjarðar/Eskifjarðar
Homfirðingar komu I heimsókn
um síðustu helgi. Spiluð var sveita-
keppni og tvímenningur. Úrslit I
sveitakeppninni urðu, að gestgjafar
sigraðu 99 gegn 51.1 tvímennings-
keppninni varð lokaröð efstu para
þessi:
Bemhard Bogason —
Pétur Sigurðsson BRE 271
Gísli Gunnarsson —
Kolbeinn Þorgeirsson BH 262
Einar Sigurðsson —
SigurðurFreyssonBRE 253
Jónas Jónsson —
Kristján Bjömsson BRE 236
Bragi Bjamason —
Óm líagnarsson BH 227
Úrslit I undankeppni BRE til
Austurlandsmóts (þriðja kvöldið):
Ásgeir Metúsalemsson —
Friðjón Vigfússon 182
Ámi Helgason —
Þorbergur Hauksson 180
Aðalsteinn Jónsson —
Sölvi Sigurðsson 172
Og staða efstu para, að loknum
þremur kvöldum:
Aðalsteinn Jónsson —
Sölvi Sigurðsson 722
Ásgeir Metúsalemsson —
Friðjón Vigfússon 683
Ámi Helgason —
ÞorbergurHauksson 657
Búi Birgisson —
Haukur Bjömsson 650
Jónas Jónsson —
Guðmundur Magnússon 647
Einar Sigurðsson —
Sigurður Freysson 634
Og minnt er á skráninguna I
Firmakeppni Austurlands, sem lýk-
ur 10. október. Skráð er hjá félög-
unum á svæðinu.
Austurlandsmótið I tvímenning
verður (að venju) spilað fyrstu helgi
1 nóvember. Er það keppni 36 para,
eftir barometer-fyrirkomulagi. Spil-
að verður á Egilsstöðum.
Bridsfélag-
Breiðfirðinga
Magnús Oddsson og Jón Stefáns-
son sigraðu I hausttvímenningi
Morgunblaðið/Amór
Sigurvegaramir i hausttvímenningi Bridsfélags Breiðfirðinga, Magn-
ús Oddsson og Jón Stef&nsson, spila gegn Birgi Sigurðssyni og Hirti
Eiríkssyni. Talið frá vinstri: Magnús, Birgir, Jón og Hjörtur.