Morgunblaðið - 10.10.1987, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987
20. þing Alþýðusambands Norðurlands:
Sameiginlegoir líf-
eyrissjóður fyr-
ir alla félaga
- í stað hátt í fjörutíu smærri sjóða nú
TUTTUGASTA sambandsþing
Alþýðusambands Norðurlands
hófst í gær á Akureyri. Helstu
mál þingsins eru lífeyrissjóða-
mál, kjaramál og atvinnumál auk
hefðbundinnar dagskrár. Rétt til
setu á þinginu hafa um 90 fulltrú-
ar innan sambandsins, en eitt-
hvað mun veðurfar og
samgönguleiðir hafa staðið í vegi
fyrir að allir fulltrúar gætu
mætt. Þinginu lýkur annað kvöld
með afmælishófi í Svartfugli, þar
sem sambandið heldur upp á 40
ára afmæli sitt. Forseti ASÍ Ás-
mundur Stefánsson er gestur
þingsins.
Þóra Hjaltadóttir formaður Al-
þýðusambands Norðurlands sagði í
samtali við Morgunblaðið að lífeyr-
issjóðamálin brynnu mest á fulltrú-
um þingsins að þessu sinni og myndi
miðstjóm leggja fram tillögu um
sameiginlegan lífeyrissjóð fyrir alla
félaga innan sambandsins. „Laun-
þegar á Norðurlandi greiða nú í
hátt í 40 smáa sjóði. Þessu viljum
við vitanlega breyta, en við viljum
fá að ráða sjálf hvemig sameining-
in fer fram í stað þess að fá fyrir-
skipanir að sunnan. Hinsvegar
gemm við okkur grein fyrir því að
við emm ekki einráð þar sem at-
vinnurekendur hafa fulltrúa í öllum
þessum sjóðum og hafa þeir vissu-
lega sitt að segja um málið."
Þóra sagði að umræðan um líf-
eyrissjóðina hefði í raun hafíst fyrir
um tíu ámm, þegar 18 manna
nefndin svokallaða var sett á lagg-
imar. Sú nefnd skilaði af sér áliti
sl. vor og er afraksturinn drög af
frumvarpi um starfsemi lífeyris-
sjóðanna, sem er m.a. í starfslýs-
ingu ríkisstjómarinnar. Þessi
fmmvarpsdrög fela í sér að lífeyris-
sjóðimir verða að fá sérstakt
starfsleyfí. Ef þeir aftur á móti
þykja of smáir eða á annan hátt
þykja ekki hæfír til að starfa sjálf-
stætt, verður þeim veitt bráða-
birgðastarfsleyfi, sem þýðir að þeir
verða að sameinast öflugri sjóðum.
„Við emm á móti slíkum aðferðum,
við viljum sjálf fá að ráða því hvem-
ig sameiningunni er háttað."
Þóra sagði að þeir félagar, sem
væm ófaglærðir, greiddu flestir í
sjóði sem hefðu aðsetur norðan-
lands, en faglærðir greiddu í sjóði
fyrir sunnan. Fýrsta skrefíð væri
því að sameina norðlensku sjóðina
og síðar væri draumur sambandsins
að sjá sunnlensku sjóðina sameinast
þeim.
Þóra bjóst við að einhver umræða
færi fram á þinginu um innflutning
á erlendu vinnuafli til landsins.
Ný þjónustustöð við Leiruveg
Olhifélagið hf. hefur nýlega opnað þjónustustöð við Leiruveg á Akureyri, en það er fyrirtækið
Höldur hf. sem rekur stöðina. Um er að ræða bensínstöð, sjoppu og veitingastað á efri hæð. Nætur-
sala er til 4.00 á næturaa.
Samherj amenn íhuga
kaup á Reynsatindi
Skipið er 2.500 tonna frystitogari 1 eign Færeyinga
Útgerðarfjnrirtækið Samheiji
hf. á Akureyri ihugar nú kaup á
stærsta frystiskipi Færeyinga
Reynsatindi. Af kaupum getur
hinsvegar ekki orðið fyrr en
nýtt kvótakerfi lítur dagsins Ijós
hér heima, að sögn Þorsteins
Más Baldvinssonar fram-
kvæmdastjóra Samheija hf.
Hvað gera stjórnvöld?
„VIÐ bíðum fyrst og fremst eftir
því að sjá nýja fískveiðilöggjöf svo
við vitum hvemig við getum hagað
okkar veiðum í framtíðinni. Á með-
an maður veit ekki hvemig stjóm-
völd hugsa sér að stjóma fískveið-
um næstu ijögur árin, er vita
vonlaust að skipuleggja rekstur út-
gerðarfyrirtækja. Væntanlega
kemur nýtt fmmvarp fram í nóvem-
ber eða desember og skýrast þá um
leið málin hjá okkur viðvíkjandi
hugsanlegum kaupum," sagði Þor-
steinn Már.
Gjaldþrota útgerðar-
fyrirtæki
Útgerðarfyrirtæki Reynsatinds
varð gjaldþrota fyrir skömmu. Nýtt
fyrirtæki var stofnað til að halda
rekstri skipsins áfram, en nú mun
það vera til sölu, að sögn Þor-
steins. Samherji hf. gerir nú út
frystitogarana Akureyrina EA og
Margréti EA. Auk þess á fyrirtæk-
ið hlut í Oddeyrinni EA og keypti
nýlega Sveinborgu frá Siglufírði og
fær hana afhenta eftir helgi. Svein-
borg, sem er 300 tonna togari, er
að koma úr söluferð frá Englandi
og gerði Þorsteinn ráð fyrir að
henni yrði áfram haldið á ísfískveið-
um, að minnsta kosti á meðan
fískveiðistefna næstu ára lægi ekki
ljós fyrir. Hugmyndin væri síðan
að selja hana ásamt öðru skipi fyrir-
tækisins í skiptum fyrir Reynsatind
ef af kaupunum yrði.
2.500 tonna skip
Stærsta frystiskip íslendinga er
sem stendur Sléttbakur EA sem er
í eigu Útgerðarfélags Akureyringa.
Hann hefur verið í Slippstöðinni á
Akureyri í tæpt ár og verður vænt-
anlega afhentur um næstu mán-
aðamót sem rúmlega 1.000 tonna
frystiskip. Reynsatindur er hinsveg-
ar meira en helmingi stærri, eða
2.500 tonn.
íþróttafélögum synj-
Morgunblaðið/GSV
Ætli þetta sé allra meina bót? Frá æfingu í Félagsborg.
að um gossjálfsala
Starfsmannafélag sambandsverk-
smiðjanna:
- segir formaður íþróttaráðs Akureyrar
íþróttaráð Akueyrar hefuF lögunum þar í bæ um uppsetn-
hafnað beiðnum frá íþróttafé- _ ingu sjálfsala fyrir svaladrykki
JWtrjgmiriM&W§>
Akureyri
óskar eftir fólki á öllum aldri til að
bera út Morguriblaðið strax og það
* kemuríbæinn.
„Hressandi morgunganga"
Hafið samband!
Hafnarstræti 85, Akureyri,
sími 23905.
„ Allra meina bót“
sýnt í Félagsborg
í íþróttamannvirkjum sínum.
Þá hefur iþróttafélaginu Þór
verið gert að fjarlægja gossjálf-
sala úr Glerárskóla sem komið
var þar fyrir án þess að til þess
hafi verið veitt leyfi.
Sigbjöm Gunnarsson formaður
íþróttaráðs sagði í samtali við
Morgunblaðið að glapræði væri að
veita öllum þeim félögum, sem
sótt hefðu um leyfí, heimild til að
setja upp slíka sjálfsala. Það þýddi
að 5-6 sjálfsölum yrði komið fyrir
í sundlauginni til dæmis og álTÍTt
slíkra sjálfsala eða að Iþrótta-
bandalag Akureyrar, sem er
sameiginlegur vettvangur þeirra,
myndi sækja um leyfí til uppsetn-
ingar þeirra. „Ég á alls ekki von
á að félögin geti komið sér saman
um þetta, en víst er að við getum
alis ekki mismunað þeim með því
að veita einu heimild en hinu ekki."
Starfsmannafélag verksmiðja
SÍS á Akureyri sýnir leikinn
„Allra meina bót“ á laugardag
og sunnudag í Félagsborg og
hefst sýningin klukkan 20,30.
Verkið er eftir þá Jón Múla Áraa-
son, Jónas Árnason og Stefán
Jónsson. Leikstjóri er Skúli
Gautason og undirleikari Árai
Ingimundarson.
Leikurinn var saminn um 1960
og var fyrst sýndur af Sumarleik-
húsinu, sem var útibú frá Leikfélagi
Reykjavíkur. Mikill leiklistaráhugi
vaknaði hjá starfsmannafélaginu
fáum árum eftir stofnun verksmiðj-
anna. Á árunum 1941 til 1946 voru
sýnd tólf leikrit, m.a. Hreppstjórinn
á Hraunhamri, Húrra krakki, Ráðs-
kona Bakkabræðra, Karlinn í
kassanum og fleiri. Með sýningunni
á „Allra meina bót“ er ætlunin að
endurvelqa áhuga á leiksýningu
innan SVS og hugmyndin er að
sýna eitt leikrit á ári.
Þátt taka í leiknum sjö starfs-
menn SÍS. Leikendur eru: Sveinn
Ævar Stefánsson, Arnar Pétursson,
Elín Kjartansdóttir, Eiður Stefáns-
son, Baldvin Hreinn Eiðsson,
Sigríður Þorkelsdóttir og Hólmfríð-
ur María Hauksdóttir.