Morgunblaðið - 10.10.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 10. OKTÓBER 1987
45
ég að láta þessi ljóð til útgáfu hjá
„Bonniers forlag" í Stokkhólmi vor-
ið 1944, til að sýna bæði dönsku
fólki og féndum okkar, — já því
ekki einnig sænsku fólki, að skáld
verða ekki drepin með því að myrða
þau.
Ame Sörenáen hittir naglann á
höfuðið með þessum orðum. Rödd
Kaj Munks er ekki þögnuð ennþá
og skáld sem eru til þess kjörin að
vera spámenn með þjóð sinni lifa í
orðum sínum.
Ég held áfram að taka upp orð
Arne Sörensens, nú úr minningar-
grein er hann ritaði um Kaj Munk
rúmlega ári fyrr, eða í janúar 1944.
„Hinir dánu eru vamarlausir.
Maður getur tekið sér fyrir hendur
að lagfæra skipulega allt mögulegt
í fari látins manns, telja upp góða
eiginleika hans jafnt sem hina lak-
ari, leita og skoða hans innri mann,
sem eins og innbrotsþjófur, sem er
að verki í húsi, þar sem íbúamir
em fjarri, á ferðalagi.
Hugarheimur Kaj Munks gæti
freistað slíkra innbrotsþjófa. Gallar
hans héngu og dingluðu utan á
honum, svo að þeir sáust langt að,
oft slógu gallarnir hring um hann
og börðu stórar tmmbur, svo að
heyra mátti um sjö sóknir. Hve oft
hefur hann ekki hávæmm rómi
sagt eitthvað um stúlkur, sem við
hinir karlmennimir hefðum áreið-
anlega viljað segja, en þegum yfir,
þar eð við sitjum í sóknamefnd, já,
eða á þinginu.
Nú er Kaj Munk látinn og þar
með svo vamarlaus. En — á samri
stundu og við heyrðum lát hans,
reis ósýnilegur varnarmúr kringum
hann og hlífir honum svo enginn
innbrotsþjófur fær brotist inn í
hjarta hans. Hverskonar vöm og
hlíf? Við, sem þekktum hann héld-
um e.t.v. eitt andartak að það væri
minning um óþreytandi gæsku. Við
sáum nefnilega fyrir okkur stóm,
góðu augun hans, sem geisluðu mót
okkur með umhyggju og kærleika
í svo ríkum mæli, við heyrðum
hjartanlegan hlátur hans, og þetta
tvennt sló vopnin úm höndum okk-
ar, eins og svo oft á meðan hann
lifði. Allir gallamir geta barið
tmmbur, eins og þeir vilja, við get-
um bara ekki heyrt til þeirra. En
við finnum sömu virðingu og kær-
leika til hins látna Kaj Munks hjá
mörgum sem aldrei hittu hann eða
kynntust honum. Já, hjá þvflíkum
fjölda, að við komumst að því að
öll þjóðin hefur slegið um hann
vöm.
Daginn sem við dönsum á mal-
bikinu fram í dagrenningu, af
fögnuði yfir að féndur okkar em
famir úr landinu, þá munu tárin
allt í einu taka að renna, af því að
við minnumst bifreiðar, sem í svart-
nætti ók í átt til Silkiborgar. Guði
sé lof að þjóðin getur grátið." Til-
vitnun lýkur.
Skammt frá ströndinni sem ég
lýsti hér að framan, kom ég í litla
gamla kirkju. Hún heitir Vedersö
kirkja.
Þetta var kirkjan hans Kaj
Munks. Hér flutti hann orðið, sem
Guð fól honum að flytja. Ég gekk
inn í kirkjuna og nam staðar fyrir
framan predikunarstólinn. Það
snart mig djúpt að standa á þessum
stað. Kaj Munk kunni þá list að
tala svo að eftir væri tekið.
Fólk hneykslaðist oft, mörgum
þótti hann of orðhvatur, en hann
var sjáandi meðal þjóðar sinnar og
auðmjúkur var hann frammi fyrir
Drottni.
Úti undir kórveggnum er leiði
hans og á legsteininum er látlaus
áletrun. Við hlið þessa leiðis er
annað með samskonar steini, Aletr-
unin er svona: Kaj Munk — Helge
Munk. Helge Munk var sonur Kaj
Munk.
Hér við leiðin tvö, blasir við natni
og umhyggja. Danskir kirkjugarðar
eru mikið augnayndi, hvort heldur
er í fámennri sveit eða bæjum.
Við leiðið og í kirkjunni var mér
efst í huga þakklæti fyrir að þeir
þjónar eru til, sem þora að kannast
við trú sína eða trúleysi, ákalla
drottin í auðmýkt, þora að flytja
orðin sem þeim er ætlað, jafnvel
þótt það kosti líf þeirra.
Höfundur er smtðakeunari.
NIPPARTS
Það er sama hverrar
þjóðar bíllinn er.
Við eigum varahlutina.
EIGUMÁ LAGER:
KÚPLINGAR, KVEIKJUHLUTI/BREMSUHLUTI,
STARTARA, ALTERNATORA, SÍUR,AÐALLJÓS,
BENSÍNDÆLUR, ÞURRKUBLÖÐ ofl.
KREDITKORTA ÞJÓNUSTA
Úrvals varahlutir
BÍLVANGUR Sf=
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
DAIHATSliyCHARADE
3JA KYNSLÓÐIN KOMIN AFTUR
Nú um helgina kemur þriðja sendingin á einum mánuði af hinum glæsilega,
nýja DAIHATSU CHARADE, sem við lofuðum þeim, er urðu frá að hverfa eftir
að fyrstu 500 bílamir seldust upp á tæpum 2 mánuðum fyrr í sumar.
DAIHATSU CHARADE
hefur síðastliðinn áratug verið fyrirmynd annarra bifreiðaframleiðenda í hönTiun_________--
sparneytinna,enöflugraoghagnýtrafjölskyldubifreiða. ,-"TTT^TúrvaV
l pnim ðö »8 nnw
DAIHATSU CHARADE \ * nj>ea». m'u5o”ö
er í fremstu röð hátæknibifreiða af minni gerð l oWHÁTSU 9/!?
og á einstaklega hagstæðu verði: \ urnýjunar a o
viðstóptavina okkar.
Sveifflanleg
greiðsiukiör.
sðstwn
wusnw»
frá kr. 365.600.-
DAIHATSU CHARADE:
ÚRVALS VARAHLUTA- OG VERKSTÆÐISÞJÓNUSTA
GULLTRYGGIR HAGSTÆÐA FJÁRFESTINGU.
DAIHATSUUMBOÐIÐ, Ármúla 23 s. 685870 - 681733.