Morgunblaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
43
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Málarameistari
getur bætt við sig vinnu.
Upplýsingar í síma 641356.
Byggingariðjan hf.
óskar eftir manni til viðhalds- og suðuvinnu.
Upplýsingar í síma 36660.
SVÆÐISSTJÓRN MÁLEFNA FATLAÐRA
REYKJAVlK
Nýtt sambýli
Nýtt sambýli í Breiðholti óskar eftir þroska-
þjálfa (70% starf) og starfsmanni (65% starf).
Vaktavinna (síðdegis, kvöld og helgar).
Við óskum eftir áhugasömu og duglegu fólki
sem vill byggja upp með okkur ytra og innra
starf heimilisins.
Allar upplýsingar gefur Kristín í símum 79978
og 30635.
Blikksmiðjan
vill ráða blikksmíðameistara til starfa sem
fyrst til að annast faglegan rekstur fyrirtækis-
ins. Góð laun fyrir góðan mann.
Umsækjendur sendi umsókn sína til fyrirtæk-
isins fyrir 1. desember.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál og öllum umsóknum verður svarað.
Góður vinnustaður
Óskað er eftir verkamanni í þrifalega vinnu.
Aðeins reglusamur og snyrtilegur maður
kempr til greina. Tilvalið fyrir fullorðinn mann
við góða heilsu.
gfVETTVANGUR
STARFSMIÐIUN
Skólavörðustíg 12, sími 623088.
Tækniteiknun
Starf tækniteiknara á góðum vinnustað í
miðborginni er laust. Reynsla í faginu nauð-
synleg. Góð laun fyrir gott fólk.
VETTVANGUR
STARFSMIÐLUN
Skólavörðustíg 12, simi 623088.
BUmtSWIflJflH Ht
Höfðatúni 9.
Enskur ritari
Innflutningsfyrirtæki, vel staðsett, vill ráða
ritara til að annast enskar bréfaskriftir og
telex. Góðrar starfsreynslu krafist. Ekki
nauðsynlegt að viðkomandi skilji íslensku.
Laun samningsatriði.
Eigin umsóknir er tilgreini aldur, menntun
ásamt starfsreynslu sendist skrifstofu okkar
fyrir 20. nóv. nk.
Guðnt Tónsson
RÁÐCJÖF &RÁÐNI NCARÞjÓNUSTA
TUNGÖTU 5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SÍMl 621322
Frystihússtjóri
í Noregi
Fiskvinnslufyrirtæki í Norður-Noregi óskar
eftir reyndum fiskiðnaðarmanni/fisktækni til
að annast daglegan rekstur og vinnslustjórn.
Starfið heyrir undir íslenskan framkvæmda-
stjóra. Góð laun og frítt húsnæði. Kunnátta
í Norðurlandamáli mikilvæg.
Áhugasamir vinsamlega sendi nafn og síma-
númer á auglýsingadeild Mbl. merkt:
„F - 2807“ fyrir 21. nóvember.
Kennarar
Snælandsskóla í Kópavogi vantar kennara
frá næstu áramótum í eftirtaldar stöður:
1. íslenskukennara í unglingadeildir fyrir
hádegi. 15 stundir í viku til loka skólaársins.
2. Myndmenntakennara í 20 stundir á viku
í fjóra mánuði.
3. Tvo almenna kennara í yngri deildir eftir
hádegi í fjóra mánuði.
4. Kennara vegna tilfallandi vinnu íforföllum.
Upplýsingar veita Reynir Guðsteinsson,
skólastjóri og Birna Sigurjónsdóttir, yfirkenn-
ari, í síma 44911 á skólatíma.
Skólastjóri.
Framreiðslumaður
Hótel utan Reykjavíkur óskar eftir að ráða
vanan framreiðslumann til starfa sem fyrst.
Góð vinnuaðstaða, mikil vinna. Góð laun í
boði fyrir hæfan mann.
Umsóknir ásamt upplýsingum um starfsferil
óskast sendar auglýsingadeild Mbl. fyrir 19.
nóvember merktar: „Þjónn - 4816“.
Leikskólinn Álfta-
borg, Safamýri 32,
vantar starfsmann til uppeldisstarfa eftir
hádegi. Viðkomandi má hafa með sér barn
á leikskólaaldri.
Upplýsingar gefurforstöðumaður í síma 82488.
Starfsfólk óskast
1. Á húsgagnalager okkar í Fellsmúla. Vinnu-
tími frá kl. 08.00-18.30.
2. Sölumaður í húsgagnadeild. Vinnutími frá
kl. 13.00-18.30. Æskilegur aldur 20-40
ára.
Upplýsingar gefur verslunarstjóri í verslun-
inni Kringlunni 7.
Hjúkrunarfræðingur
Innflutnings- og framleiðslufyrirtæki, á sviði
lyfja, vill ráða sölufulltrúa til starfa upp úr
áramótum.
Leitað er að hjúkrunarfræðingi (B.S.),
lífefnafræðingi eða lyfjafræðingi.
Þjálfun í upphafi starfs heima og erlendis.
Tungumálakunnátta nauðsynleg.
Umsóknir og fyrirspurnir trúnaðarmál.
Laun samningsatriði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun og fyrri
störf sendist skrifstofu okkarfyrir 22. nóv. nk.
QjðntIónsson
RÁÐGJÖF &RÁÐN1NGARÞJÓNUSTA
TÚNGÖTU5. 101 REYKJAVÍK — PÓSTHÓLF 693 SlMI 621322
Starfsfólk óskast
til vinnu á Flugbarinn, Reykjavíkurflugvelli.
Um er að ræða vaktavinnu.
Nánari upplýsingar gefur Rúnar í síma 12940
eða á staðnum.
Flugbarinn, Reykjavíkurflugvelli.
RIKISSPITALAR
STARFSMANNAHALD S. 29000
Sjúkraliði - Sótt-
hreinsunardeild
Sjúkraliði óskast á sótthreinsunardeild
Landspítalans. Dagvinna.
Upplýsingar veitir hjúkrunarframkvæmda-
stjóri í síma 29000-508 og hjúkrunarforstjóri
í síma 29000-487.
Fóstrur
- Starfsmenn
Erum að opna tvær nýjar deildir og vantar
því fóstrur og starfsmenn til starfa strax á
Sólhlíð við Engihlíð.
Upplýsingar gefur Elísabet Auðunsdóttir i
síma 29000-591 eða heimasíma 612125.
Reykjavík 15. nóvember 1987.
RÍKISSPÍTALAR
Ríkisspitalar eru stór og fjölbreyttur vinnustaöur og þar starfa um
3.000 manns; viö rannsóknir, lækningar, hjúkrun, endurhæfingu
og aðstoð við sjúklinga og aðstandendur þeirra. Starfsemi Ríkis-
spítala fer fram á nokkrum stöðum á höfuðborgarsvæðinu; á
Landspítala, Kleppsspitala, Vifilsstööum, Kópavogshæli, auk
hjúkrunarheimila víðs vegar i Reykjavík. Kristnesspftali og
Gunnarsholt eru einnig rekin af Rikisspitölum.
Bifvélavirki
trésmiður - vélvirki
Stórt deildaskipt þjónustufyrirtæki, með
starfsemi á landsbyggðinni, vill ráða í eftirtal-
in störf, sem fyrst, en hægt er að bíða smá
tíma eftir réttum aðila.
Bifvélavirki
til starfa við almennar viðgerðir og viðhald
á verkstæði. Yfirvinna fyrir hendi.
Vélvirki
til starfa á verkstæði við viðgerðir á tækjum
og búnaði. vinna úti á landi annað slagið.
Mikil vinna.
Trésmiður
almenn vinna á verkstæði, sjá um viðhald
og viðgerðir á eigum fyrirtækisins, m.a. á
landsbyggðinni.
í öllum þessum störfum eru miklir tekju-
möguleikar fyrir hendi.
Umsóknir merktar viðkomandi starfi er til-
greini aldur og fyrri störf sendist skrifstofu
okkar fyrir 21. nóv. nk.
Guðni Tónsson
RÁÐGJÖF & RÁÐN l N GARÞJÓN U STA
TÚNGÖTU 5, 101 REYKJAVÍK - PÓSTHÓLF 693 SÍMI 621322