Morgunblaðið - 15.11.1987, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. NÓVEMBER 1987
SKI-DOO ESCAPADE***^^
Frábær fjöðrun. Rotax motor 500 cm, nýja stillanlega TRA
kúplingin sem slær allt út, rafstart. Góður 2 manna sleði.
SKI-DOO STRAT0S’,'«*^SaaJ?
Sama góða fjöðrunin. Rotax motor 500 cm. Nýja TRA
stillanlega kúplingin.
SKI-DOO
FORMULA MX FORMULA PLUS
Frægur sleði fyrir frábæra útkomu. Rotax motor 462 cm.
Mjög skemmtileg fjöðrun, langt belti, TRA stillanlega kúpl-
ingin sem þýðir næstum ekkert slit á reimum. 40 lítra
bensíntankur. Einnig stóri bróðir Formula Plus, sami búnað-
ur en 521,2 cm Rotax motor._90 hö.
SKI-DOO SAFARI 37/ h ™
Frábærlega léttur, Ijúfur og hress sleði. 368 cm Rotax
motor. Sjálfvirk olíublöndun. Rafstart.
SKI-DOO
SAFARI 503 R LANGUR
(áður Skandic)
Frægur sleði fyrir dugnað og áreiðanleika. Afturábakgír,
500 cm Rotax motor, langt belti, sjálfvirk olíublöndun, TRA
stillanlega kúplingin, 2 manna sleði með farangursgrind.
AKTIVA ALASKA
Lengsti og duglegasti sleðin. Lengd 397 cm, breidd 41 cm.
503 cm Rotax motor, hátt og lágt drif, afturábakgír, rafst-
art, hátt litað gler, hituð handföng, rafgeymir 28 AH, stórt
farangursrými.
Erum einnig með ýmiskonar aukabúnað á
góðu verði, eins og farangursþotur, böggla-
bera, króka, hjálma, galla, vettlinga og margt
fleira.
Gísli Jónsson og Co. hf.
Sundaborg 11, sími 686644.
Nýjar vörur frá
BettyBarday
Nýir réttir
Við á Sjanghæ höfumfengið til liðs
við okkur gestakokk frá Kína.
Hann hefur átt stóran þátt í því að gera
nýja matseðilinn okkar fjölbreyttari og
jafnvel enn vinsælli en áður. Zhao De Feng
hefur sérhæft sig í réttum frá Peking.
Ennfremur bjóðum við framandi rétti frá
Indónesíu og Malaysíu.
Verið velkomin
Sjanghæ,
i Kínverska veitingahúsið. El
Laugavegi 28b, sími 16513.
— =~“=íl
Jólakort
Hringsins
JÓLAKORT kvenfélagsins
Hringsins eru komin út. Þau eru
i tveimur litum, blá og rauð og
hönnuð af Guðrúnu Geirsdóttur.
Kortin eru seld á ýmsum stöðum,
t.d. hjá félagskonum, í bókabúðum
og blómaverslunum. Auk þess
ganga böm í hús og selja kortin.
Allur ágóði af sölu kortanna
rennur til tækjakaupa fyrir Bama-
spítala Hringsins.
Ný bók
eftir Enid
Blyton
KOMIN er út hjá Iðunni ný bók
eftir Enid Blyton um félagana
fimm og nefnist hún Fimm og
leynihellirinn. Þetta er sjálfstæð
saga en söguhetjurnar eru þær
sömu og f fyrri bókum þessa
bókaflokks.
Um efni bókarinnar segir: „Fé-
lagamir fimm ætla sér ekki að lenda
í neinum ævintýrum í páskaleyfinu.
Þau fá það hlutverk að líta eftir
Vilmundi, ungum dreng sem hefur
einstakt lag á dýrum, og hann og
Tommi verða góðir vinir, Georgínu
til mikillar gremju. En ævintýrin
virðast elta félagana fímm uppi.
Þau taka á leigu bát ... og lenda
á Hvískurey. Þar eru gamlar kast-
alarústir og þar hafa orðið dularfull-
ir atburðir. Brátt kemur í ljós að
enn er eitthvað undarlegt á seyði á
eynni. Það er meira að segja skotið
á Tomma. Fyrr en varir komast
krakkamir að því að hér eiga þau
í höggi við hættulegan glæpaflokk
sem einskis svífst."
Bókina þýddi Sævar Stefáns-
son.
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingarmðill!