Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
7
Á æfingu í gærmorgun: Pétur Jónasson, Mist Þorkelsdóttir og Joaquin Rodrigo. Morgunbiaðið/BAR
Sinfóníuhljómsveit íslands:
Frumflutt verk eftir
Mist Þorkelsdóttur
Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljóm-
sveitar Islands á morgun, fimmtu-
dag, verður frumflutt nýtt
íslenskt verk eftir Mist Þorkels-
dóttur. Pétur Jónasson gítarleik-
ari leikur einleik i spænsku verki
og frumflutt verður hérlendis
Sinfónía nr. 1 eftir William Wal-
ton. Stjórnandi verður Frank
Shipway, sem stjórnað hefur
tvennum tónleikum hljómsveitar-
innar í haust, auk þess sem hann
stjórnaði við útvarpsupptökur í
síðustu viku.
í fréttatilkynningu frá Sinfóníu-
i hljómsveitinni segir m.a.: „Verk
Mistar heitir Fanta — Sea og þar
er leikið með tóna rétt eins og leikið
er með orðin í nafni verksins. Mist
hefur vakið athygli fyrir tónsmíðar
sínar og hlaut hún meðal annars 2.
verðlaun í samkeppni Ríkisútvarps-
ins fyrir ung tónskáld 1985. Þetta
verk er fyrsta verk hennar fyrir full-
skipaða sinfóníuhljómsveit.
Pétur Jónasson gítarleikari leikur
í fyrsta skipti á tónleikum með Sin-
fóníuhljómsveitinni en hann lék með
henni í sjónvarpsupptöku 1982. Pét-
ur Jónasson lærði gítarleik hérlendis
og erlendis, í Mexíkó og á Spáni.
Hann hefur víða komið fram og
haldið fjölmarga tónleika. Hann hef-
ur hlotið margháttaða viðurkenn-
ingu og styrki, m.a. frá „Sonning"-
sjóðnum í Danmörku. I fyrra var
hann valinn ásamt ellefu öðrum úr
stórum hópi gítarleikara hvaðanæva
úr heiminum til þess að leika fyrir
Andrés Segovia á námskeiði sem
haldið var í Los Angeles í Banda-
ríkjunum.
Pétur leikur á þessum tónleikum
„Fantasia para un gentilhombre"
eftir spænska tónskáldið Joaquin
Rodrigo.
Joaquin Rodrigo er fæddur 1902
og samdi tvo gítarkonserta og er
þetta annar þeirra. Miklar kröfur eru
gerðar til einleikarans í þessu verki
og stundum er eins og það sé leikið
af fíngrum fram, en um leið er yfír
því þjóðlegur, spænskur blær.“
holemmtun. foö&biha orj ipennúnÁ
(fL&vjjaz ipuZrthvfCZ ojivih
Trivial Pursuit
Fæst í bóka- og leikfanga-
verslunum um land allt.
\ "TmT \ • n .. jg|
**“^£2?***<»'*m-
il
.Trivial Pursuit" er skrásett vörumerki. Dreifing á Islandi: Eskifell hf.,
s. 36228. Leikur frá Horn Abbot. Gefinn út meö leyfi Horn Abbot Intl.
Ltd.
HAFÐU ALLT Á
HREINU
FÁÐU ÞÉR
OTDK
lt«nUot \ S,i/ns %
(r , ‘n,ossi 1. , fur
‘ Vn»illíu . J r>
arH»l
y»g<i-
20q
gr.
Síríus
Kbnsum
suóusúkkulaói
Gam/a góða Síríus Konsum
súkkulaðið er í senn úruals
suðusúkkulaði og gott til átu. Það
er framleitt úr bestu hráefnum, er
sérlega nærandi og drjúgt til suðu
og í bakstur, enda jafnuinsælt í
nestispökkum ferðamanna og
spariuppskriftum húsmæðra.
Síríus Konsum er uinsælast hjá
þeim sem uelja bara það besta.
JMOÍl