Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 71
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
71
KNATTRSPYRNA / MEISTARAKEPPNI UEFA
Liverpool
afturá
toppinn
LIVERPOOL hendurheimti
efsta sætið í ensku 1. deild-
inni í gærkvöldi er liðið vann
Watford 4:0 á Anfield. Ll-
verpool hefur nú 37 stig eftir
15 leiki. Arsenal er í öðru
sæti með 35 stig eftir 16
leiki. John Barnes var maður
leiksins og lék fyrrum fólaga
sína hjá Watford oft grátt.
Hann lagði upp tvö marka
Liverpool og skoraði eitt
sjálfur.
Fyrri hálfleikur var slakur
að hálfu Liverpool. Watford
var þá sterkari aðilinn. Grob-^,
belaar markvörður varði þá oftjf
vel og eins bjarg-
aði Ronnie
Whelan tvívegis
á línu.
Síðari hálfleikur
var algjörlega eign Liverpool og
sýndi liðið þá meistaratakta.
Steve McMahon skoraði fyrsta
markið á 54. mínútu eftir undir-
búning Bames sem einnig var
maðurinn á bak við skallamark
John Aldridge. Ray Houghton
skoraði þriðja markið áður en
Bames bætti því fjórða við rétt _
fyrir leikslok.
Pimm leikir fór fram í skosku
úrvalsdeildinni í gærkvöldi.
Úrslit urðu sem hér segir:
Aberdeen—Hibemina
Dundee—Motherwell
Falkirk—Dundee United
Hearts—Dunfermline
Morton—Rangers
Frá
BobHennessy
i Englandi
morgunblaðiö/Bjarni
Þorsteinn Einarsson og Valdimar Ömólfsson virðast skemmta sér vel yfír fyrir-
lestri Jim Parry.
■ ÞAÐ fór heldur illa fyrir
Kristni Einarssyni leikmanni
Njarðvíkur í körfuknattleiknum.
Hann tók sér á dögunum stutt frí
frá körfuiðkun til að skreppa á síld
og missti tvo leiki úr vegna þessa.
Uti í hafsauga varð hins vegar það
slys, að Kristinn ökklabrotnaði við
störf og er ljóst að um frekari þátt-
töku hans í úrvalsdeildinni í körfu-
knattleik verður vait að ræða á
þessu tímabili.
MJIM Parry, welskur kennari og
fyrirlesari, hélt á laugardaginn fyr-
irlsetur hér á landi á vegum
fræðsluráðs olympiunefndar ís-
lands. Fyrirlestur Parry fjallaði um
Olympíuleikana fyrr og nú og kom
hann þar meðal annars inná áhuga-
mennsku í íþróttum, spuminguna
um einstaklinga og ríki og mikil-
vægi þess að vera með — eða vinna.
Parry varpaði fram mörgum spum-
ingum og það er óvnejulegt að
heyra menn ræða um Olympíuleik-
ana á þeim nótum sem hann gerði.
Ein spurningin sem hann varpaði
fram var hvort það væri óeðlilegt
að íþróttamenn fengju greitt fyrir
að keppa á leikunum á sama tíma
og allir aðrir sem nálægt leikunum
koma stórgræða. Svari hver fyrir
m FORRÁÐAMENN franska-
knattspymufélagsins Nice hafa
freistað þess að hressa upp á daufa
framlínu með því að taka Jules
Bocande á leigu frá Parísarliðini
St.Germain. Bocande þessi var
markhæstur í 1. deildinni frönsku
fyrir tveimur árum, þá leikmaður
með Metz. Hann skoraði þá 23
mörk í 26 leikjum, en í fyrra skor-
aði hann bara 5 mörk í sama
leikjafjölda fyrir St. Germain.
■ GARÐAR Eydal var liðsstjóri
GR-sveitarinnar, sem keppti í Alo-
ha-mótinu í golfi á Spáni sem er
nýlokið, ekki Björgúlfur Lúðvíks-
son, framkvæmdastjóri GR, eins
og sagði í frétt hér í blaðinu. Það
leiðréttist hér með.
■ KÍNVERSKUR Lyftinga-
maður að nafni He Zhouquiang
setti tvö heimsmet í fluguvigt í land-
skeppni í Kanton í Kína í fyrradag.
Metin tvö voru í snörun og saman-
lögðu. Snörunin var 117,5 kg, en
samtals lyfti kempan 265 kg, eða
2,5 kg meira heldur en þriggja ára
gamalt met Búlgarans Neno Terzi-
iski.
■ GEIR Karlstad, skautahlaup-
ari frá Noregi setti heimsmet í
5000 metra skautahlaupi á heims-
bikarmótinu í Heerenven í Holl-
andi í gær. Tími Karlstads var
6:45,44 mínútur, eða rúmlega sek-
úndu betri tími heldur en gamla
metið sem var raunar aðeins árs-
gamalt, sett af Hollendingnum Leo
Visser á sömu brautinni í Heeren-
ven.
H ÝMSIR eru nú orðnir bjart-
sýnir að enskum liðum verði hleypt
inn í Evrópumót félagsliða á nýjan
leik eftir nokkurra ára fjarveru sem
stafar af banni FIFA í kjölfarið á
harmleiknum mikla í Heyssel-leik-
vanginum í Brussel, er 40 manns
slétu lífíð í óeirðum fyrir leik Ju-
ventus og Liverpool í úrslitum
Evrópukeppni meistaraliða vorið
1985. Phil Carter, forseti ensku
deildarinnar og Everton, sagði í
gær að hann reiknaði með því að
banninu yrði aflétt á einhverju eða
öllu leyti fyrir næsta keppnistíma-
bil. „Hvemig eða hvenær veit ég
ekki, en mér hefur virts hugarfarið
innan FIFA að undanförnu vera
það jákvætt í garð okkar, að það
sé einungis tímaspursmál hvenær
okkur v erður hleypt aftur inn,“
sagði Carter.
Reuter
Gomes de Sousa leikmaður Porto setur hér fótinn
fyrir Dennis Bergkamp leikmann Ajax í leiknum í gær-
kvöldi.
Slgurmarklnu fagnað. Rui Barros skoraði eina mark
leiksins fyrir Porto á 5. minútu og var fögnuður sam-
hetjanna mikill eins og sjá má.
Barros var hetja
Porto gegn Ajax
- skoraði eina mark leiksins á 5. mínútu
PORTO sigraði Ajax 1:0 í fyrri
leik liðanna í meistarakeppni
UEFA (Super Cup) þar sem
Evrópumeistarar meistaraliða
og bikarhafa mættust í Amst-
erdam í gærkvöldi. Rui Barros
skoraði eina mark leiksins
strax á 5. mínútu. Seinni ieikur-
inn fer fram í Porto 13. janúar.
Leikurinn var frekar slakur enda
veður til knattspymuiðkunnar
ekki hið besta, mikill vindur og
kuldi. Barros skoraði markið er
iiann fékk boltann frá Sousa við
miðiínu vallarins lék í átt að mark-
inu og skoraði framhjá Stanley
Menzo, markverði. Leikmenn Porto
færðu sig aftar eftir markið og frei-
stuðu þess að halda fengnum hlut
og það gekk.
Ajax, sem er núverandi Evrópu-
meistari bikarhafa, tefldi fram
frekar ungu liði og var án lykil-
manna eins og Frank Rijkaard,
Marco van Basten og Sonny Silooy.
Liðið náði aldrei að bijóta niður
sterka vörn Porto og átti aðeins
eitt hættulegt marktækifæri í leikn-
um sem talandi er um. Það fékk
Aron Winter er hann átti skot yfir
úr góðu færi um miðjan seinni hálf-
leik. Porto var nær því að skora
sitt annað mark en Ajax að jafna.
Barros komst í gott færi á síðustu
mínútu leiksins en Menzo varði frá
honum.
Johan Cruyff, þjálfari Ajax, var að
vonum óánægður með úrslit leiks-
ins. „Það er alltaf erfítt að ná upp
einbeitingu gegn liði eins og Porto
eftir að hafa fengið á sig mark sv^.
snemma í leiknum," sagði Cruyff.
„Eg er mjög ánægður með úrslitin
en seinni leikurinn verður örugg-
lega ekki auðveldur þótt við höfum
náð hagstæðum úrslitum í kvöld,"
sagði Júgóslavneski þjálfarinn hjá
Porto, Tomislav Ivic, eftir leikinn.
Sex sundmenn reyna
við Ólympíulág-
SEX sundmenn, sem eru ekki
langt frá því að ná Olympíulág-
mörkunum - fyrir Seoul 1988,
fara til Svfþjóðar upp úr miðj-
um febrúar, til að reyna við
lágmörkin. Sundmennirnirtaka
þátt í móti í Vesteras.
Þir sem fara til Svíþjóðar eru
Hugrún Ólafsdóttir, Amþór
Ragnarsson, Bryndís Ólafsdóttir,
Ragnheiður Runólfsdóttir, Magnús
Ólafsson og Ragnar Guðmundsson.
íslenskir sundmenn taka ekki þátt
í Evrópubikarkeppninni sem fer
við
nhelður Runólfsdóttlr reynir
'lympíulágmarkið á móti í Svíþjóð.
fram í Monaco 12. desember. Keppt
verðúr þar í 25 metra sundlaug.
Þar sem árangur í svo lítilli laug
gildir ekki í sambandi við OL-
lágmörk, ákvað Sundsamband
íslands að senda sundmennina frek-
ar til Vesteraas, þar sem keppt
verður í 50 metra sundlaug.
SSÍ vonast til að sundmennimir nái
lágmörkunum í Svíþjóð, þannig að
sundmennimir geti farið sem fyrst
að undirbúa sig fyrir OL. Þeir sund-
menn sem ná ekki lágmörkunum í
Svíþjóð fara til Oslóar og taka þar
þátt í keppni um miðjan aprfl.
í kvöld
Haukar og Valur leika í 1.
deild kvenna í handknattleik
í íþróttahúsinu við Strandgötu
kl. 20.00 í kvöld.
Einn leikur verður í bikar-
keppni meistaraflokks karla í
handbolta í kvöld. Afturelding
og Víkingur leika að Varmá
kl. 21.20.
FÉLAGSLÍF
Herrakvöld
hjá Haukum
Herrakvöld Hauka verður haldið
í Iðnaðarmannahúsinu við Lin-
netstíg á föstudaginn. Húsið opnar
kl. 20.00 og borðhald hefst kl.
20.30. Ræðumaður kvöldsins verð-
ur Matthías Á. Mathiesen sam-
gönguráðherra og formaður
heiðursnefndar HM-94.
Miðar fást hjá Tryggva Ólafssyni
úrsmið, Strandgötu 17, í Haukahús-
inu og hjá stjómarmönnum hand-
knattleiksdeildar.
SUND / LANDSLIÐIÐ
KNATTSPYRNA / U-18 ARA
ENGLAND
mörkin í Svíþjóð
Piltalandslidið
til ísraels
Íslenska piltalandsliðið í knatt-
spymu, skipað leikmönnum 18
ára og yngri, tekur þátt í sterku
móti í ísrael um áramótin.
Keppt verður í tveimur 6-liða riðlum
og eru íslendingar í riðli með ísra-
el, Sviss, Kýpur, Ungveijalandi og
Póllandi. I hinum riðlinum eru
Malta, Lichtenstein, Irland, Dan-
mörk, Grikkland og Rúmenía.
íslendingar þurfa aðeins að greiða
ferðakostnað til Kaupmannahafnar.
Eftir það sjá ísraelsmenn alfarið
um liðið og borga fargjöld til og frá
Danmörku og einnig gistingu og
uppihald í ísrael.