Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
23
Þroskahjálp:
Happdrættis-
almanak fyr-
ir árið 1988
komið út
ALMANAK Landssamtakanna
Þroskahjálpar fyrir árið 1988 er
komið út. Almanakið er jafn-
framt happdrættismiði, sem er í
gildi allt árið og eru vinningar
dregnir út mánaðarlega. í vinn-
ing eru þijár Toyota Corolla
1300 LX bifreiðar og níu Sony-
sjónvarpstæki.
Almanakjð er unnið í samvinnu
við félaga í íslenskri grafík og prýða
það þrettán grafíkmyndir eftir
íslenska listamenn, ein fyrir hvem
mánuð og ein á forsíðu. Myndimar
eru allar litprentaðar, utan ein, sem .
er svarthvít. Listamennimir em
Baltasar Samper, Ingiberg Magn-
ússon, Halldóra Gísladóttir, Daði
Guðbjömsson, Björg Þorsteinsdótt-
ir, Rut Rebekka, Þórður Hall,
Sigrún Eldjám, Elín Perla Kðlka,
Jenný E. Guðmundsdóttir, Ásdfs
Sigurþórsdóttir, Eyþór Stefánsson
og Jón Reykdal.
Landssamtökin Þroskahjálp hafa
starfað í 11 ár, en þau vom stofnuð
árið 1976 í því skyni að sameina í
eina heild þau félög sem vinna að
málefnum fatlaðra. Nú em aðildar-
félög Þroskahjálpar 26. Almanaks-
happdrættið er helsta fjáröflunar-
leið samtakanna og í fréttatilkynn-
ingu frá Þroskahjálp segir, að
vonadi taki fólk vel á móti sölu-
mönnum, sem munu ganga í hús
um land allt á næstu vikum.
öaf
meginþorra
þjóðarinnar
daglega!
Auglýsinga-
síminn er22480
Námskeið fyrir sjúkra-
flutningamenn
Rauði Kross íslands
NÝLEGA var haldið í tíunda sinn
námskeið Rauða kross íslands
og Borgarspítalans fyrir sjúkra-
flutningamenn. Námskeiðin voru
fyrst haldin árið 1979 og hafa
alltaf verið vel sótt af sjúkra-
flutningamönnum alls staðar að
af landinu.
Sjúkraflutninganámskeiðin hafa
til þessa verið haldin einu sinni á
ári og þá á vorin en í ár var aðsókn-
in á vomámskeiðið svo mikil að
halda varð annað námskeið ( haust.
Næsta námskeið verður næsta vor
og fer það nú þegar að verða full-
bókað. Námskeiðið stendur yfír í
tíu daga frá klukkan 8 á morgnana
og stendur yfír til klukkan 17—18.
Á námskeiðunum eru fyrirlestr-
ar, m.a. um líffæra- og lífeðlisfræði,
bráða bamasjúkdóma, geðsjúk-
dóma, hjartasjúkdóma, sár og
sárameðferð, bmna, kal, ofkælingu
og fæðingarhjálp. Einnig er ieið-
beint með réttar starfsstellingar og
líkamsbeitingu, flutning og burð,
að ná slösuðum út úr bílflökum og
margt fleira. Verklegar æfíngar em
um það bil helmingur kennslustund-
anna en kennslustundir em alls
104.
Kennarar á námskeiðunum em
30 og em þeir ýmist læknar, hjúkr-
unarfræðingar og annað sérhæft
starfsfólk Borgarspítalans og ann-
arra stofnana.
Efsta röð frá vinstri: Ágúst Birgisson, Vestmannaeyjum, Jón H. Hafsteinsson, Hafnarfirði, Jóhann Þor-
leifsson, Kirkjubæjarklaustri, Bragi Þórhallsson, Eskifirði, Haraldur Eggertsson, Hafnarfirði, Oddur
Hallgrímsson, Reykjavik, Lárus Petersen, Reykjavík, Páll R. Guðjónsson, Reykjavík, Þór Aðalsteinsson,
Hellissandi. Miðröð frá vinstri: Sigurður Sveinsson, varðstjóri, Bergur Sigurðsson, Hafnarfirði, Sigurður
P. Guðmundsson, Patreksfirði, Magnús Kolbeinsson, Selfossi, Haukur Helgason, Reykjavík, Jónas Jónas-
son, Skagaströnd, Þórður Andrésson, ísafirði, Þorsteinn Karlsson, Hafnarfirði, Sveinbjöm Dúason,
Akureyri, Friðrik Þorsteinsson, varðstjóri. Fremsta röð frá vinstri: Ólafur Z. Ólafsson, læknir, Sigriður
Hjaltadóttir, deildarstjóri slysadeild, Kristinn Guðmundsson, læknir og forstöðumaður námskeiðanna, Lilja
Harðardóttir, hjúkrunarstjóri slysadeild, Amaldur Valgarðsson, læknir, Þórarinn Sigurgeirsson, verk-
stjóri tæknideildar.
fai'ai'bixxldi
IBM ÞERSONAL SYSTEM/2 TÖLVUR
:YRIR ÞÁ SEM GERA KRÖFUR UM:
★ Nýjustu tækni
★ Örugga fjárfestingu
★ Góða þjónustu
jj «»* ^
liniiiiil
Hagstæðir samningar
gera okkur kleift að
bjóða lægra
Tökum eldri IBM PC - XT - AT tölvur ^ Vefð
upp í andvlröi nýrrar IBM PS/2 tölvu
SÖLUAÐILAR:
SKRIFSTOFUVELAR H.F.
rn
■i
GISLI J. JOHNSEN
.Hvertisgótu 33, simi: 62-37-37
Akureyri:Tölvutæki-Bókval
Kaupvangsstræti 4, simi: 26100
Nýbýlavegi 16, Kópavogi Sími 641222
Bjóðum eigendum stærri IBM tölvukerfa nýja hagstæða magnkaupasamninga