Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
45
Þrjár litlar bæk-
ur um eðli
drykkj uskapar
eftír Steinar
Guðmundsson
Sl. mánuði hefir mér tekist að
koma í band þremur bókum um
hugðarefni mitt, alkóhólisma.
Að efni til eru bækur þessar frá-
brugðnar þvi sem birtist í bók minni
„Furðuheimar alkóhólismans" að
því ieyti til, að þar var um fræði-
lega túlkun á viðfangsefninu að
ræða, en hér félagslega.
Reynslan segir mér að þeir menn
sem ætla má að helst þurfí að lesa
sér til um eðli diykkjuskapar forðist
slíkan lestur, en nái þeir að tileinka
sér eitthvað pínulítið í þá áttina þá
skilji þeir manna best hvað við er
átt. Með þessa skoðun að leiðarljósi
ákvað ég að reyna heldur að senda
frá mér nokkrar handhægar litlar
bækur frekar en eina stóra. En
áætlun varð ég að gera, um annað
var ekki að ræða, því vel gat svo
farið, að ég gæti ekki stoppað. Úr
þulunni tók ég því litróf regnbogans
til viðmiðunar og ákvað að setja
saman eina gula, eina rauða, eina
græna og eina bláa.
Nú eru fyrstu þtjár bækumar
komnar út, en sú gula varð óvart
brún og heitir „365 afréttarar" (385
bls. í sálmabókarbroti). Hér er ekki
um heillega frásögn eða frásagnir
að ræða, heldur svolítil skot sitt úr
hverri áttinni og langt frá því að
vera blaðsíðufyliir á hveiju blaði.
Önnur bókin er í rauðri kápu
(224 bls. í sálmabókarbroti) og heit-
ir „Þú getur hætt að drekka". í
þessari bók kíkti ég svolítið inn í
persónulega reynslu mína af eigin
viðbrögðum bæði á meðan ég var
og hét, og eins þegar ég var að ná
af mér grímunni eftir ballið.
Sú þriðja er í grænni kápu, en
allar eru j)ær hlífðarkápulausar, og
heitir „Ur flötrum" (256 bls. í
sálmabókarbroti), en að losna úr
Qötrum er mjög sennilega ofarlega
á óskalista hvers ósvikins felu-
drykkjumanns.
Steinar Guðmundsson
Þótt sú bláa sé ekki komin út
ennþá er rétt að ég geti hennar því
eins og hinar þá fékk hún sinn titil
þegar ég forðum leit til regnbogans
í hugarheimi mínum. Hún á að
heita: „Til nýliða í drykkjumanna-
stétt“ og kemur út strax og
aðstæður leyfa, og verður auðvitað
i sama brotinu og hinar því auðveld-
ara er að sofna út frá lítilli bók og
líka fljótlegra að stinga henni í
vasann ef svo ber undir.
Vegna þess hversu lítið upplag
er af hverri bók treysti ég mér ekki
til að koma þeim í allar bókabúðir,
en ætla mér að vera fljótur til ef
einhveijir kynnu að vilja vera með,
en sími minn er 24036. Ég tel að
mér hafí tekist að stilla verði bók-
anna í hóf með því að tölvusetja
sjálfur og bijóta um og búa til
prentunar, auk þess sem ég læt
mig hafa það að sjá að öllu leyti
um útgáfuna þótt kunnátta til þess
sé af skomum skammti.
Höfundur hefur unnið að ráðgjöf
fyrir áfengjssjúklinga íáraraðir.
Frá Áfengisvamaráði:
Hvernig byrjar
eyðni í Svíþjóð?
Með áfengum bjór
Morgunblaðinu hefur borizt
eftirfarandi frá Áfengisvarna-
ráði:
Sú er a.m.k. skoðun aðalritstjóra
stærsta blaðs Svía, Dagens Nyhet-
er. Nafn hans er Svante Nykander
og hann skrifaði í sumar leiðara
þar sem hann bendir á að vegna
ofsahræðslu við eyðni hafi baráttan
gegn bjómum fallið í skuggann.
Fyrirsögn leiðarans er „Olögleg
vímuefni, lauslæti og eyðni em í
beinum tengslum við áfengi."
Leiðarinn er ritaður vegna þess
að fram er komin tillaga um að
heimila að nýju sölu milliöls en hún
var bönnuð 1977. (Það er víðar en
á íslandi barist um bjórinn.) Tillögu-
menn leggja til að milliölið verði
einungis selt í áfengisverslunum og
á vínveitingastöðum.
Nykander telur að bmggarar
sæti nú færis þar eð umræður snú-
ast nú einkum um eyðni og ólögleg
vímuefíii — og sjái sér nú leik á
borði að auka gróða sinn.
En hann bendir á að ekki er allt
sem sýnist. „Óbein tengsl emu milli
áfengis og eyðni,“ segir hann. „Ef
fólk byijar að drekka snemma á
ævinni dregur úr varfæmi í kynlífí
og forvitni um önnur vímuefni
eykst. Áfengi kennir fólki að leita
gervigleði. Menn stökkva ekki beint
frá engu yfir í heróínneyslu."
Svante Nykander bendir á að
þeir unglingar, sem bjnja bjór-
drykkju, hverfi fljótlega að ólögleg-
um vímuefnum, sleppi fram af sér
beislinu í kynferðismálum og séu
því tilvalin bráð fyrir eyðniveimm-
ar. Hann segir: „Erfiðleikamir
þessu viðvíkjandi (þ.e. vömum gegn
eyðni) em þeir að kynhegðun er
ekki einangrað fyrirbæri heldur
hluti heildar. Lauslæti ungs fólks
er yfirleitt afleiðing lífsstíls sem
einnig hefur aðrar hættur í för með
sér.“
TOLLSKJOL
BREYTING í TOLLAMÁLUM KALLAR Á NÝJA MEÐFERÐ TOLLSKJALA
í tilefni breytinga í tollamálum mun Stjórnunarfélag íslands
halda námskeið um nýja meðferð tollskjala.
Námskeiðin verða í tveimur hlutum: A og B.
Kynningarnámskeið (yfirlitsnámskeið) í nýjungum tollamála.
Fjallað er um tollalög, tollverð og tollverðsákvörðun,
EUR-reglur, nýjar aðflutningsskýrslur, nýja tollskrá (H:S) o.fl.
Mestur tími fer í fræðslu um nýja aðflutningsskýrslu.
ÞÁTTAKENDUR: Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem
þekkja til tollamála og vinna við tollskýrslugerð.
LEIÐBEINENDUR: Guðrún Ásta Sigurðardóttir, lögfræðingur, Karl Garðarsson,
viðskiptafræðingur og Sveinbjörn Guðmundsson,deildarstjóri.
TÍMIOG STAÐUR: Námskeiðið verður haldiðþrisvar: 7. og 8. des. kl. 14.00-18.00,
9. og 10. des. kl. 8.30-12.30 og 9. og 10. des. kl.14.00-18.00
að Ánanaustum 15.
4 framhaldsnámskeið, sem skipt er niður eftir vöruflokkum.
Nánar verður farið í einstaka flokka nýrrar tollskrár
og H:S númerakerfið.
B 1 MATVÖRUR OG KEMÍSK EFNI. T
LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson og Páll Franzson.
TÍMI OG STAÐUR: 16. og 17. des. kl. 8.30-12.30 að
Ánanaustum 15. ________ ____
16.12.
B-HLUTI:
A-HLUTI:
7.12.
B2 TEXTÍL, SKÓFATNAÐUR OG
HÖFUÐFATNAÐUR.
LEIÐBEINANDI: Sveinbjörn Guðmundsson.
TÍMIOG STAÐUR: 16. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15.
B3 VÉLAR OG T/fKI.
LEIÐBEINENDUR: Reynir Haraldsson og Kristján Halldórs-
son.
TÍMI OG STAÐUR:
18. og 19. des. kl. 14.00-18.00 að Ánanaustum 15.
B4 ÝMSAR VÖRUR.
LEIÐBEINENDUR: Friðjón Margeirsson,
Páll Franzson og Sveinbjörn Guðmundsson.
TlMI OG STAÐUR: 18. og 19. des.
kl. 8.30-12.30 að Ánanaustum 15.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
Stjórnunarfélag íslands
- Ánanaustum 15 Símr 6210 66 '
c Q I c PIOIMEER 3JÓNVÖRP