Morgunblaðið - 25.11.1987, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1987
Siðanefnd Blaðamannfélags Islands:
Fréttastjóri sjón-
varps braut siða-
reglur í umfjöllun
um Svefneyjarmálið
SIÐANEFND Blaðamannafélags
íslands hefur úrskurðað að Ingvi
Hrafn Jónsson fréttastjóri hafi
gerst sekur um alvarlegt brot í
umfjöllun sjónvarpsins um
Svefneyjamálið svokallaða
mánudaginn 17. ágúst 1987.
Brotið varðar við 3. og 4. gr. siða-
reglna blaðamanna.
Siðanefnd Blaðamannafélags ís-
lands barst bréf frá Sigurði G.
Guðjónssyni hdl. dags. 26. ágúst
1987. Sigurður er lögmaður Bald-
vins Bjömssonar auglýsingateikn-
ara sem er aðili að Svefneyjamálinu.
í bréfi sínu óskar hann eftir úr-
skurði nefndarinnar vegna umfjöll-
unar sjónvarpsins um málið í
aðalfréttatíma mánudaginn 17.
ágúst.
í greinargerð frá siðanefnd
Blaðamannafélagsins segir að
nokkrir vandamenn bama sem
tengdust Svefneyjarmálinu komu á
fréttastofu sjónvarpsins að kvöldi
laugardagsins 15. ágúst. Kváðust
þeir vera að fara á fund Rannsókn-
arlögreglu ríkisins til að kreQast
þess „að RLR gæfí samskonar upp-
lýsingar til fjölmiðla og þeir teldu
sig hafa fengið hjá embættinu."
Amþrúður Karlsdóttir frétta-
maður fór með fólkinu til Rann-
sóknarlögreglunnar að beiðni
varafréttastjóra og átti viðtal við
það. Rannsóknarlögreglan lét ekk-
ert hafa eftir sér. Daginn eftir var
ákveðið að láta málið kyrrt liggja,
en á mánudag var það til umræðu
á fundi fréttamanna. Ingvi Hrafn
Jónsson fréttastjóri fól þá Amþrúði
að halda málinu áfram.
Síðan segir orðrétt í greinargerð
siðanefndarinnar: „Vandamenn
bamanna fóm eftir hádegi á mánu-
INNLENT
dag til fundar við bæjarfógetann í
Hafnarfirði í því skyni að krefjast
þess, að Baldvin yrði látinn sæta
gæsluvarðhaldi, þar til dómur félli.
Amþrúður fór með fólkinu til Hafn-
arfjarðar ásamt myndatökumönn-
um og átti þar við það annað viðtal.
í viðtölunum, sem send vom út að
kvöldi mánudags, fullyrða viðmæl-
endur fréttamannsins, að játningar
og sök liggi fyrir, en málið var þá
enn í rannsókn. Skv. 4. gr. siða-
reglna ber blaðamönnum að virða
þá meginreglu laga, að hver maður
sé talinn saklaus, þar til sekt hans
hefír verið sönnuð. Ljóslega hefir
þessi regla verið brotin alvarlega.
í 3. gr. siðareglna er blaðamanni
gert skylt að „forðast allt, sem vald-
ið getur saklausu fólki, sem á um
sárt að binda, óþarfa sársauka eða
vanvirðu." í fréttinni var þessi grein
einnig brot.in.
Amþrúður Karlsdóttir er ekki
félagi í Blaðamannafélaginu. Siða-
nefnd er því ekki bær um að
úrskurða í máli hennar. Fréttastjóri
sjónvarps, Ingvi Hrafn Jónsson, ber
ábyrgð á fréttinni, enda átti hann
kost á að kynna sér efni hennar
og málsmeðferð, og hann sá hluta
hennar, meðan hún var í vinnslu.
Úrskurður siðanefndar er sá, að
Ingvi Hrafn Jónsson fréttastjóri
hafí orðið sekur um alvarlegt brot
í umfjöllun sjónvarpsins um „Svef-
neyjamál" svo nefnt mánudags-
kvöldið 17. ágúst 1987.
Lögmaður Baldvins, Sigurður G.
Guðjónsson, kom á fund nefndar-
innar, enn fremur Ingvi Hrafn
Jónsson fréttastjóri, Helgi H. Jóns-
son aðstoðarfréttastjóri og Guð-
bergur Davíðsson fyrrum
starfsmaður sjónvarpsins. Amþrúð-
ur Karlsdóttir dvelst erlendis. Hún
sendi nefndinni skriflega greinar-
gerð og rætt var við hana í síma.
Siðanefnd skoðaði sjónvarpsfréttina
sameiginlega."
Að lokum er þess getið að nefnd-
in fjallaði um málið á fundum sínum
fyrst þann 29. september, en úr-
skurðurinn var kveðinn upp á fundi
nefndarinnar 17. nóvember. Tafír
urðu á afgreiðslu málsins vegna
sumarleyfa nefndarmanna.
Morgunblaðið/BAR
Húsnæði Gunnars Ásgerissonar hf. og Veltis hf. við Suðurlandsbraut, sem er til sölu.
*
Húseignir Gunnars Asgeirs-
sonar hf. og Veltis hf. til sölu
Morgunblaðið/Bjami
L6ð Gunnars Ásgeirssonar hf. við Armúla þar sem fyrirhugað
er að reisa sex hæða byggingu.
Nýtt hús byggt
við Ármúla
HÚSNÆÐI Gunnars Ásgeirs-
sonar hf. og Veltis hf. við
Suðurlandsbraut er til sölu og
hefur verið ákveðið að byggja
nýtt húsnæði við Armúla. Fyrir-
hugað er að aðskilja fyrirtækin
og er vörubifreiðadeildin flutt
í nýtt húsnæði við Bíldshöfða
6. Bifreiðasalurinn í Skeifunni
verður áfram þar til húsa.
„Þama er að rætast gamall
draumur um að komast í hentugt
húsnæði fyrir vörubifreiðaþjón-
ustu sem erfítt hefur verið að
sinna við Suðurlandsbraut og að-
skilja um leið fyrirtækin tvö, en
það hefur lengi staðið til,“ sagði
Ásgeir Gunnarsson forstjóri. Velt-
ir hf. er sem stendur á fjórum
stöðum í borginni, við Suðurlands-
braut, á tveimur stöðum við
Skeifuna og við Bíldshöfða en þar
hafa verið fest kaup á húsi nr. 4
og lóð nr. 6.
Ásgeir sagði að vonir stæðu til
að eftir eitt ár yrði hægt að flytja
Gunnar Ásgeirsson hf. í nýtt hús,
sem byggt yrði á núverandi bak-
lóð fyrirtækisins við Suðurlands-
braut, en það hús yrði þá við
Ármúla. Ráðgert er að fýrirtækið
nýti sjálft þijár af sex hæðum
hússins.
Viðskiptin við Sovétríkin rædd í Moskvu:
Óskað staðf estingar á
saltsíldarsamningum
NÚ STANDA yfir í Moskvu við- um framkvæmd rammasamnings milli. Samningur þessi gildir til
ræður íslendinga og Sovétmanna landanna um viðskipti þeirra á ársloka 1990 og tekur til helztu
viðskiptanna. I viðræðum þessum
Indverjar kanna kaup
á íslenskri tækni
Ólafur Ragnar Grímsson ræðir við Rajiv Ganhdi forsætisráð-
herra Indlands og fleiri ráðamenn á heimili Ganhdis. Á veggnum
eru málverk af Nehru og Indiru Ganhdi
Ólafur Ragnar
Grímsson átti
viðræður við
indverska
ráðamenn
STJÓRNVÖLD Indlands munu
senda fulltrúa til íslands til að
kynna sér nánar þær vörur og
þjónustu sem íslendingar gætu
boðið Indverjum til kaups. Er
þar aðallega um að ræða kaup
á tækniþjónustu og ýmsa ráð-
gjöf á sviði sjávarútvegs,
ráðgjöf við nýtingu jarðhita á
Indlandi og framleiðsla á tölv-
um og hugbúnaði. Þetta var
niðurstaðan af viðræðum sem
Ólafur Ragnar Grímsson for-
maður Alþýðubandalagsins átti
við ráðamenn í Indlandi þegar
hann var þar staddur á vegum
alþjóðlegra þingmannasam-
taka.
Ólafur Ragnar var í Indlandi
til að taka við Indiru Gahdhi frið-
. arverðlaununum fyrir hönd Parl-
iamentarians Global Action. Þessi
verðlaun námu 100 þúsund
bandaríkjadölum og tilkynnti Ól-
afur Ragnar að verðlaununum
yrði varið til að ýta úr vör nýju
frumkvæði um alþjóðlegt öryggis-
kerfí.
Ólafur Ragnar átti viðræður við.
K.R. Narayanan vísinda- og
tæknimálaráðherra Indlands og
Vasant Sathe orkumálaráðherra
og ýmsa aðra ráðamenn um
möguleika á auknum viðskiptum
Indlands og ísland. í viðræðunum
var einkum fjallað um kaup á
vélum og tækjum í sjávarútvegi
og tækniþjónustu, markaðsráð-
gjöf og skipulagsaðstoð í því
sambandi. Einnig var rætt um
skipulega leit að jarðhita á Ind-
landi og rannsóknir á að hve miklu
leyti sé hægt að nýta hann til
orkuframleiðslu. í þriðja lagi var
rætt um framleiðslu á tölvum og
kaup á hugbúnaði en til greina
gæti komið að gera svipaða samn-
inga við íslensk fyrirtæki á þessu
sviði og gerðir hafa verið við
Norsk Data.
Indveijar eru nú um 800 millj-
ónir talsins og er áætlað að um
næstu aldamót verði þeir fjöl-
mennasta þjóð heims. I samtali
við Morgunblaðið sagði Ólafur
Ragnar að á Indlandi væri að
fínna eitt af mikilvægustu mark-
aðssvæðum í framtíðinni. Þar
væru nú verulegar framfarir á
ýmsum sviðum, og útlit fyrir að
Indveijar kæmust í hóp tækni-
væddustu þjóða heims áður en
langt um liði. Það væri því mjög
mikilvægt fyrir íslendinga að ná
fótfestu á Indlandsmarkaði. Ólaf-
ur Ragnar mun á næstu dögum
gera þeim innlendu fyrirtækjum,
stofnunum og ráðuneytum sem
málið snertir nánari grein fyrir
þessum möguleikum.
verður meðal annars rætt um
framkvæmd saltsíldarviðskipta
og leitað staðfestingar Sovét-
manna á lúkningu nýgerðs
samnings um sölu á 200.000 tunn-
um þangað.
í viðræðum þessum er verið að
ræða framkvæmd samninga þessa
árs og þess næsta, en í þeim er
ekki rædd bein samningagerð. Það
er í höndum útflytjenda hér heima
og kaupenda í Sovétríkjunum. í
ferðinni nú eru fulltrúar viðkomandi
aðilja og munu þeir nota tækifærið
og ræða við kaupendur ytra.
í næstu viku hefjast svo í Moskvu
viðræður um kaup á olíu og bensíni
frá Sovétríkjunum, en einnig á eft-
ir að semja um sölu á lagmeti,
frystum fiski og ull. Olía og bensín
er uppistaðan í vörukaupum okkar
að austan, en þaðan kaupum við
einnig bíla og timbur. Nýgerðir
samningar um sölu á saltsfld teljast
til samninga næsta ára, þar sem
síldin verður að mestu afhent eftir
áramót. í þeim var samið um sölu
á 200.000 tunnum, en þar af biðu
50.000 tunnur staðfestingar Sovét-
manna og átti hún að liggja fyrir
15. þessa mánaðar. Hún er enn
ekki komin. Þar að auki náðist sam-
komulag um sölu á 20.000 tunnum
til Sovétríkjanna í stað þeirra, sem
fóru niður með flutningaskipinu
Suðurlandi í desember í fyrra.